Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2019, Qupperneq 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2019, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.6. 2019 LÍFSSTÍLL Við brottför þökkum við fyrir okk- ur og kveðjumst með handabandi. Kveðjustundin er jafn mikilvæg og upphafsstundin. Munum að sýna starfsfólki þakk- læti um leið og við kveðjum það. Kveðjustund Höfum sköftin inni í lófunum. Best þyk- ir að hafa vísifingur ofan á hnífi og gaffli, þannig verður mjög auðvelt að beita þeim. Munum að setja hnífapörin ekki aftur á borðið eftir að við erum byrjuð að borða. Vörumst að vera með hnífa- pörin í höndunum ef við notum hend- urnar til að leggja áherslu á orð okkar. Það er óþægilegt að sjá fólk sveifla hnífnum eins og skylmingakappi. Hnífapörin Stundvísi er bæði sjálfsögð og mikilvæg. Tími fólks er dýrmætur. Þess vegna mætum við einfaldlega á réttum tíma. Gott er að áætla sér nokkrar aukamín- útur. Aldrei að vita nema rúta stoppi á miðjum veginum til að hleypa úr fimm- tíu ferðalöngum sem allir eru með tvær töskur ... Á réttum tíma Sleppum tyggjóinu á fundum, það er kæruleysislegt og það á sjaldnast við á viðskiptafundum. Það getur verið vand- ræðalegt að mæta með tyggjó og þurfa að lauma því í bréfsnifsi eða annað áður en maturinn er borinn á borðið. Mun- um því að henda því áður. Ef við gleym- um að henda tyggjóinu áður en við mætum er hvorki smekklegt að setja það á diskbrúnina né undir borðið. Tyggjóið Hvert á að fara? Velja þarf veitingastaðinn vel og með það fyrir augum að gestinum líði sem best. Sá sem býður út að borða eða hefur frum- kvæði að því, þarf helst að þekkja veitingastað- inn, að minnsta kosti hafa heyrt mjög vel af honum látið. Velja þarf sæti svo gesturinn/ viðskiptavinurinn fái betra sætið (sjái vel yfir og hafi ekki gangandi umferð fyrir aftan sig o.s.frv.) og gestgjafinn nái auðveldlega athygli þjónsins. Matseðill eða hlaðborð Í viðskiptamálsverði er ákveðin truflun þegar hlaðborð hefur verið valið. Þá vilja samtölin brotna upp og „takturinn“ í samræðunum helst ekki þar sem fólk fer á öllum tímum frá borði að sækja sér meiri mat. Þá þarf jafnvel að end- urtaka eða byrja að ræða aftur. Hlaðborð getur þó verið ágætt ef tveir eru á fundi. Áður Viðskipta- málsverðir Allnokkur munur er á að fara út að borða með vinum eða fara í við-skiptamálsverð. Alla jafna erum við laus við öll formlegheit þegarvið förum út að borða. Þegar kemur að viðskiptamálsverðum verður að hafa mikilvægi þeirra í huga og því nauð- synlegt að koma vel undirbúinn. Hvað skal gera? Albert Eiríksson albert.eiriksson@gmail.com Við veljum klæðnað í takt við til- efnið. Það getur stungið í stúf að mæta í árshátíðarfötunum þegar um óformlegan fund er að ræða. Hver og einn þarf að ákveða fyr- ir sig hvað er við hæfi. Við- skiptamálsverður kallar þó yfir- leitt á betri föt. Klæðnaður Best er að sleppa klósettferðum á meðan á borðhaldi stendur. Fundir eru mikilvægir, tökum öryggispiss á undan - við sjáum ekki eftir því. Gleymum ekki að kíkja aðeins í spegilinn (bindið inni í kraganum, hárið í lagi o.s.frv.). Öryggispiss Fátt truflar eins mikið fundi og símar, bæði ljós frá þeim og hljóð. Slökkvum á hringing- unni áður en við kom- um á staðinn og sleppum því að hafa hann á borðinu nema við eigum von á mjög mikilvægu símtali. Þá látum við vita af því fyrirfram. Símar Það er alltaf kostur að vera vel undirbúinn, hvort sem við rennum yfir síðustu pósta, les- um viðhengin, fundargerðir eða rifjum upp það sem okkur fór á milli á síðasta fundi. Það segir mikið um fólk ef það kemur vel undirbúið á fundi. Förum vel yfir hvað við viljum fá út úr fundinum og ef eitthvað þarf að forðast. Undirbúningur „Rétta borðið“. Það getur verið gott að horfa aðeins í kringum sig áður en „rétta borðið“ er valið, horfa samt þannig að lítið beri á. Oft eru umræðuefni við- skiptafunda trúnaðarmál. Er keppinautur, samstarfmaður, einhver tengdur ein- hverjum á næsta/næstu borðum? Tímabundin? Það er ágæt þumalputtaregla að taka fram í upphafi ef við erum tímabundin. Það er betra en að segja það á síðustu stundu, rétt áður en við þurfum að rjúka af stað. Kynningar Heilsum öllum með handabandi og kynnum okkur ef þarf. Leggjum nöfn hinna á minnið og notum þau ef þarf, samt í hófi. Fólk sem er sest stendur upp a.m.k. til hálfs og heilsar þeim sem koma. Upphafið Servíettur eru mest upp á punt, en engu að síður gott að hafa þær ef slys verður. Um leið og fólk sest til borðs tekur það servíettuna og leggur hana tvöfalda í kjöltuna. Það er algjör óþarfi að hrista servíettuna úr brotunum með tilþrifum, hún er einfaldlega tekin úr brotunum. Best að gera þetta áður en þjónarnir koma með diskana. Ef einhver þarf að bregða sér frá í miðju borðhaldi þykir fara vel á að leggja servíettuna í stólinn, á stólarm- inn eða á stólbakið og ýta stólnum að borðinu. Servíettan í kjöltuna Spjall um daginn og veginn. Undirbúa létt spjall á undan hinu formlega erindi. Við erum sérfræðingar í að spjalla, slök- um bara á og sleppum því að vera of formleg. Sleppum því samt að spjalla um veikindi, hvorki okkar né annarra og eldfim málefni. Óæskileg umræðuefni Í viðskiptamálsverðum þarf að forðast eins og hægt er að tala um eldfim mál- efni. Þau geta skapað óþarfa spennu og miður góða niðurstöðu af fundinum. Borðhaldið Til þess að viðskiptamálsverðurinn skili sem mestum árangri er nauðsynlegt að tala um efnið þannig að það sé skýrt hvað við er átt. Varpa fram hugmyndum og vera í leiðinni góður hlustandi og með hvetjandi athugasemdir. Gleymum ekki að bera upp spurningarnar og koma með tillögur. Passa verður að umræðan fari ekki um víðan völl. Erindið Ef fundargestir eru ekki þeim mun fleiri bíðum við með að byrja þangað til allir hafa fengið matinn. Svo eru það litlu at- riðin sem allir muna úr æsku: muna að tyggja og kyngja áður en við tölum (ekki tala með fullan munninn) og sleppa því að hafa olnbogana á borðinu. Ekki tala með fullan munninn Halda áfengisdrykkju í algjöru lágmarki, helst sleppa henni alveg. Ef fólk vill skála þá er nóg að lyfta glösum einu sinni, í mesta lagi tvisvar. Alls ekki skála út í eitt og fyrir öllu og öllum. Skál! Ef nauðsyn ber til er gott að punkta hjá sér eitt og annað til að eiga seinna. Það getur verið erfitt að muna öll smáatriðin. Taka niður punkta Búin að borða. Eftir að hafa lokið við síðasta bitann eru hnífapörin lögð snyrtilega saman á diskinn og servíettan á borðið vinstra megin við þar sem diskurinn var. Reikningurinn Almenna reglan er sú að sá sem býður til málsverðar borgar reikninginn. Hins vegar er það ekki ófrávíkjanleg regla og meta þarf hvert tilvik. Nafnspjöld Í viðskiptamálsverðum skiptist fólk gjarnan á nafnspjöldum á fyrsta fundi, gott er að hafa þau til reiðu. Lokin Ný kynslóð málningarefna SÍLOXAN Viltu betri endingu? u Almatta síloxan útimálningin hleypir rakanum út en ekki inn u Framleiðendur múrklæðninga ráðleggja eindregið síloxan u Fæst einnig teygjanleg á netsprungna fleti u Einstök ending á steyptum veggjum Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Veldu betri málningu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.