Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2019, Blaðsíða 14
ÚTTEKT 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.6. 2019 Þ að er fátt sem við vitum um líf okk- ar fyrirfram. Það eina sem við vit- um er að við deyjum og við deyj- um bara einu sinni, eða flest okkar allavega. Útfarir eru stór hluti af þeim verkefnum sem þjóðkirkjan tekst á við í sínu starfi. Bæði er það útförin sjálf og svo allt sem henni fylgir, eins og að veita aðstand- endum sáluhjálp. „Þessar athafnir; skírn, ferming, gifting, þetta eru allt gleðistundir, en svo aftur á móti þegar við stöndum frammi fyrir dauðanum þá sem betur fer skortir okkur öll reynslu á því sviði,“ segir Hjalti Hugason, prófessor í guð- fræði við Háskóla Íslands. Hann segir að við kunnum frekar að halda gleðilega hátíð en sorgarathöfn og að fólk leiti frekar í hefðirnar. „Prestar taka þátt í mestu gleðistundum og dýpstu sorgarstundum fólksins. Áður fyrr var það sjálfgefið hvernig kirkjan kom að lífi fólks- ins en núna hefur fólk val. Það getur snúið sér til Siðmenntar eða eitthvað annað. En það hef- ur líka val um þjóðkirkjuna. Þetta er allt undir því komið að fólkið sjálft sæki þjónustuna,“ segir Hjalti. „Á sama tíma vitum við að væntingar fólks eru að breytast í þessum efnum og fólk er farið að óska eftir fleiri veraldlegum söngvum og tónlist við útfarir,“ segir Hjalti. Það er rétt sem Hjalti segir að margt hefur breyst í kringum jarðarfarir og eru þær að einhverju leyti orðnar veraldlegri. Rannsókn Búa Stefánssonar þjóðfræðings árið 2014 leiddi í ljós að þessi þróun hefur staðið frá því á tíunda áratug síðustu aldar og að lagavalið hefur breyst frá trúarlegum sálmum yfir í lög sem sá látni valdi fyrirfram eða eftirlætislög hins látna. Sama má segja um minning- argreinar en rannsókn fræðimannanna Arn- ars Árnasonar, Baldurs Sigurjóns Hafsteins- sonar og Tinnu Grétarsdóttur leiddi í ljós að í lok síðustu aldar fóru minningargreinar að breytast með þeim hætti að þær urðu per- sónulegri, opinskárri og jafnvel talað við þann látna í greinunum. Mega ekki halda útfarir í kirkjum Athöfnum á vegum Siðmenntar hefur fjölgað síðustu ár. Fermingum hefur fjölgað hvað mest á vegum félagsins en í ár voru ferming- arbörnin 545, eða tæplega 13 prósent af öllum börnum fæddum árið 2005. Það segir þó ekki alla söguna en fyrir tíu árum var hlutfall ferm- ingarbarna sem fermdust borgaralega aðeins tæp þrjú prósent. Félagið býður einnig upp á nafngjafir, hjónavígslu og útfarir. Fjöldi allra þessa athafna hefur aukist, en útförunum hef- ur fjölgað hvað minnst, en árið 2018 kom Sið- mennt að ellefu útförum. Árið 2017 kom félag- ið að 15 útförum, en samkvæmt tölum Hagstofunnar dóu 2.239 manns á því ári svo að hlutfallslega sækja fáir til Siðmenntar í þeim efnum. Siggeir F. Ævarsson, framkvæmdastjóri Siðmenntar, segir að áður en félagið fór að taka að sér útfarir hafi lítið verið í boði fyrir fólk sem vildi ekki vera jarðað af presti. Hann telur að það sé ýmislegt sem hafi áhrif á það að útförum hjá Siðmennt hefur ekki fjölgað mik- ið. Hefðirnar tosi oft mikið í fólk hvað útfarir varðar, en einnig að fólk viti kannski ekki endi- lega hvað er í boði. „Síðan er spurningin líka hvar verður útförin haldin. Ég sendi inn fyrir- spurn á dómsmálaráðuneytið um daginn til að reyna að fá það á hreint hvar þessir óvígðu reitir eru. Sumum er alveg sama hvar þeir hvíla en aðrir vilja ekki sjá að það sé vígð jörð í kringum þá,“ segir Siggeir. Félagið er ekki með húsnæði sem það getur boðið upp á, hvorki fyrir útfarir né aðrar athafnir á vegum þess. Auk þess er aðeins hluti af athafnastjórum þeirra þjálfaður í að sinna útförum. „Við erum að skoða málið því okkur langar að stækka þetta og bjóða upp á þessa þjónustu fyrir alla sem þess óska. Mín kenning er sú að ef við þjálfum fleiri athafnastjóra í þessu þá sjálf- krafa verður til betra tengslanet og þetta spyrst út,“ segir Siggeir. Siðmennt má ekki halda athafnir sínar í kirkjum þjóðkirkjunnar. Þau hafa fengið að halda útfarir í Fossvogskirkju, en hún tilheyrir ekki neinum söfnuði. Útfarir á vegum þeirra hafa einnig verið haldnar í félagsheimilum og bíósölum. Siggeir segir að oft geti komið upp ýmis vandamál þegar jarðarför er ekki haldin í kirkju, en erfitt getur verið að koma kistunni að. „Það væri æskilegt að ríkið legði til húsnæði sem væri ekki með neinum trúartáknum, þótt það sé ekki ritað í stefnuskrá Siðmenntar að krefja ríkið um slíkt. Meira að segja í Foss- vogskirkju, þar sem flestar útfarir á okkar vegum eru haldnar, eru krossar, sem stuðar suma. Við erum örugglega ekki að fara að byggja okkar eigið húsnæði á næstunni en ég væri algjörlega fylgjandi því að ríkið myndi leggja til hlutlaust hús handa öllum. Raunar held ég að það sé löngu kominn tími til að end- urskoða lög um kirkjugarða, greftrun og lík- brennslu,“ segir Siggeir. Guðbjörg Jóhannesdóttir, sóknarprestur í Langholtskirkju, segir að hún hafi oft rætt við fólk sem segist ekki vera trúað. Ekki síður er setningin „ég er nú ekki mjög trúuð“ algeng. En þegar talið berst að dauðanum og sýninni á lífið og líf eftir dauðann orði manneskjan mjög skýrar kristnar lífsskoðanir. „Ég held að kristnar lífsskoðanir, þá sérstaklega hvað varðar dauðann, séu alveg rótgrónar inn í okk- ur öll, meira að segja óháð aldri. Svo ekki sé minnst á að trú er ekki mælanlegur veruleiki heldur snýst um tengsl,“ segir Guðbjörg. Henni finnst jákvætt að fólk hafi fleiri valkosti hvað varðar athafnir. „Ég held að við lífslok séu hefðirnar mjög fastar í sessi og þá hefur fólk líka með öðrum hætti þörf fyrir að hafa helgisiði til að setja kveðjustund í farveg og þörf til þess að hafa einhver þrep til að hefja sorgarúrvinnsluna. Þannig að þótt kristnum úförum fari að fækka held ég að þörfin fyrir helgisiðina og farveginn sem athafnirnar veita breytist ekki. Um leið er fækkun athafna ákall um að við endurskoðum margt hjá okkur, ekki síst er snýr að skírnum og hjónavígslum,“ seg- ir Guðbjörg. Skírnum hefur fækkað Það er tilfinning Guðbjargar að fleiri kjósi að skíra ekki í dag en fyrir nokkrum árum. Nafngjöfum á vegum Siðmenntar hefur fjölg- að en í fyrra voru 123 slíkar athafnir á vegum félagsins. Þjóðskrá heldur ekki utan um tölur sem sýna hlutfall barna sem skírð voru hjá þjóðkirkjunni. Miðað við fækkun síðustu ára í þjóðkirkjunni má þó gera ráð fyrir að skírn- um hafi fækkað. Fleiri viðmælendur sem rætt var við sögðu einnig að það væri tilfinn- ing þeirra að skírnum væri að fækka. Það er tilgáta Guðbjargar að ákvörðunin um að skíra ekki hjá þjóðkirkjunni sé ein birting á Dauðinn bíður okkar allra Hefðirnar halda fast í okkur þegar kemur að dauðanum og vita margir ekki hvað annað er í boði en að láta þjóðkirkjuna sjá um útför. Hér skoðum við af hverju hefðirnar halda í okkur og hvað annað kemur til álita. Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Henry A. Henrysson Guðbjörg Jó- hannesdóttir Hjalti Hugason Siggeir F. Ævarsson Agnes M. Sigurðardóttir Hjónavígslur í þjóðkirkjunni 1999-2018 20011999 2003 2009 2011 2013 2015 2017‘1820072005 70% 50 60 40 30 20 10 0 H ei m ild :H ag st of a Ís la nd s Sigríður Á Andersen

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.