Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2019, Blaðsíða 29
Butler, Osbourne, Iommi og Ward á Black Sabbath-brúnni í Birmingham. Kelvingrove-listasafninu í Glasgow á fimmtudaginn í næstu viku. McCartney segir sama máli gegna um hina Bítlana, jafnvel þegar þeir voru annað veifið gramir hver út í annan. „Þá minnti fólk mig á að þann- ig væru fjölskyldur, svona lagað ger- ist. Vini greinir á. Um leið og við byrj- uðum að vinna að tónlist þá smullum við saman, höfðum yndi af hljóðinu sem við sköpuðum saman, nutum þess að spila hver með öðrum. Við höfum unnið saman í meira en tíu þúsund klukkustundir gegnum árin og þessi gamli andi tók sjálfkrafa yfir. Allur ágreiningur var fljótt jafnaður.“ Í skugga hjónabandsins McCartney viðurkennir í viðtalinu að ferill Lindu sem ljósmyndari hafi til að byrja með liðið fyrir öfgafrægð hans og fallið í skuggann á hjóna- bandi þeirra. Þetta hafi þó breyst með árunum og í dag njóti hún sann- mælis sem listamaður. „Eitt það besta við Lindu var að hún vissi alltaf hvenær hún átti að smella af. Ljósmyndararnir sem hún dáðist að voru menn sem fönguðu augnablikið – Walker Evans, [Henri] Cartier-Bresson, [Jacques Henri] Lartigue. Fréttamennska þeirra umbreyttist í list. Ef menn sjá fyrir sér frægu Cartier-Bresson- myndina af náunga að hoppa yfir poll [fyrir aftan Gare Saint-Lazare, 1932] – snýst það allt um að fanga sekúndubrotið. Linda fann alltaf ósjálfrátt fyrir augnablikum sem þessum.“ Endurspeglar sambandið Það sést vel á hinni myndinni sem fylgir þessari grein, að sögn McCartneys. „Við John segjum: Sæll gamli, hvernig ertu? Gaman að hitta þig. Ljómandi. John slær á létta strengi, ég fer í keng og bæði George og Ringo fíla það í tætlur. Þetta endurspeglar samband okkar fjögurra.“ McCartney hefur lög að mæla; Linda hafði unnið til verðlauna sem ljósmyndari áður en þau kynntust og gengu í heilagt hjónaband árið 1969. Þá undir nafninu Linda East- man. Hún var frá New York og lærði hjá Hazel Archer og var fyrsta kon- an til að taka forsíðumynd fyrir tímaritið vinsæla Rolling Stone. Af Eric Clapton. Sérsvið hennar var að mynda rokkstjörnur bak við tjöldin; þegar glansgríman hafði verið lögð til hliðar. Má þar nefna Jimi Hend- rix, Janis Joplin og fleiri. Já, en hjónabandið skyggði á feril- inn. Þannig vill það verða með bítl- ynjur. Spyrjið bara Yoko okkar Ono! „Sæll gamli, hvernig ertu?“ Bítlarnir kankvísir á blaðamannafundi vegna útgáfu plötunnar Sergeant Pepper’s Lonely Hearts Club Band í Lundúnum árið 1967. Ljósmynd/Linda McCartney BÍÓ Rob Halford, söngvari Judas Priest, var opinn fyrir því í samtali við útvarpsstöðina 107.7 The Bone að gerð yrði leikin kvik- mynd um sögu hljómsveitarinnar, rétt eins og nýlega hefur verið gert um Queen, Mötley Crüe og Elton John. „Hver veit, lagsi? Það virðist ganga einhver rauður þráður gegnum Hollywood um þess- ar mundir. Menn eru að leita að reynslu eins og þeirri sem við búum að.“ Spurður hver ætti að leika hann hló Halford og kvaðst ekki hafa hugmynd. Prestungar á hvíta tjaldinu? Málmguðinn sjálfur, Rob Halford. 30.6. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds BÓKSALA 19.-25. JÚNÍ Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Sara Árelía Eydís Guðmundsdóttir 2 Sumareldhús Flóru Jenny Colgan 3 Móðir Alejandro Palomas 4 Engin málamiðlun Lee Child 5 Sagas Of The Icelanders Ýmsir höfundar 6 Independent People Halldór Laxness 7 Mótíf X Stefan Ahnhem 8 Gullbúrið Camilla Läckberg 9 Óvænt endalok Ævar Þór Benediktsson 10 Iceland in a Bag Ýmsir höfundar 1 Óvænt endalok Ævar Þór Benediktsson 2 Kennarinn sem hvarf Bergrún Íris Sævarsdóttir 3 Þín eigin saga – draugagangur Ævar Þór Benediktsson 4 Elmar á afmæli David McKee 5 Þín eigin saga – piparkökuhúsið Ævar Þór Benediktsson 6 Barist í Barcelona Gunnar Helgason 7 Risasyrpa Íþróttakappar Walt Disney 8 Seiðmenn hins forna. 2. bindi. Töfrað tvisvar Cressida Cowell 9 Handbók fyrir Ofurhetjur 4 – vargarnir koma Elias/Agnes Vahlund 10 Brandarar fyrir grínendur Walt Disney Allar bækur Barnabækur Um áramótin strengdi ég þess heit að taka mig á í yndislestri. Þetta er með auðveldustu ára- mótaheitum sem mér hefur dottið í hug því það efnist ein- hvern veginn af sjálfu sér – um leið og einni bók er lokið kallar sú næsta. Ég hef því frá áramótum sennilega lesið fleiri bækur en árin tíu þar á undan og sveiflast úr einni veröld í aðra. Aðallega hafa kvenpersónur og/eða kven- höfundar átt hug minn frá því heitið góða var strengt. Þannig sogaðist ég inn í Napólísögur Elenu Ferrante og las allar fjórar bæk- urnar í einum rykk. Það er ótrú- lega heillandi að hverfa inn í framandi heim fátækrahverfa Napólíborgar undir miðja tutt- ugustu öld og fylgjast með þeim vinkonum Elenu og Lilu frá for- skólaaldri til hárrar elli. Ég hef líka dottið inn í skáldsögur Auðar Övu Ólafs- dóttur en bækur hennar eru þess eðlis að maður leggur þær varla frá sér þegar þær hafa verið teknar upp. Ég las Afleggjarann fyrir nokkrum árum en eftir að hafa lesið Ungfrú Reykjavík í upphafi árs komst ég á bragðið og hámaði í mig bæði Ör og Undantekninguna. Auður hefur undra- vert lag á að lýsa því hvernig fólk sem stendur á krossgötum þrosk- ast og lærir og hlýtur nýja sýn á líf- ið og tilveruna þannig að það stendur sterkara eftir. Auk Auðar Övu má nefna bók nöfnu hennar Auðar Jónsdóttur, Ósjálfrátt og skáldsögu Gerðar Kristnýjar, Bátur með segli og allt sem báðar voru afbragðslesning. Þessa stundina er ég svo að lesa ótrú- lega fallega lýsingu norska rithöfund- arins Roy Jacobsen í bókinni Hin ósýni- legu á lífi fjölskyldu í byrjun síð- ustu aldar sem býr á lítilli eyju við strönd Norður-Noregs og heyr þar sína lífs- baráttu við óblíð náttúruöfl. Sagan hverfist um litlu Ingrid og er svo snilldarlega skrifuð að maður finnur nánast lyktina af þanginu í fjör- unni á eyjunni og svalan norð- ankaldann á andlitinu, jafnvel þótt lesturinn eigi sér stað í hrikalegri hitabylgju á meg- inlandi Evrópu. Þegar þeim lestri lýkur er efst á listanum að ná í eintak af glæ- nýrri frumraun vinar míns Eiríks Stephensen, Boðun Guð- mundar. Ég hef lengi vitað að Eiríkur er frábær penni og stór- kostlegur húmoristi svo ég er mjög spennt að koma höndum yfir þessa skáldsögu sem ku fjalla um óvæntan tilvistarvanda miðaldra karlmanns í Reykjavík. Ef ég þekki Eirík rétt á lesturinn eftir að kitla hláturtaugarnar duglega. BERGÞÓRA NJÁLA ER AÐ LESA Átak í yndislestri Bergþóra Njála Guðmunds- dóttir er upp- lýsingafulltrúi umhverfis- og auðlindaráðu- neytisins.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.