Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2019, Blaðsíða 8
FRÉTTASKÝRING 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.6. 2019 Melanotan er lyf sem örvar húð-frumur til að mynda litarefni ogþannig verður húðin sólbrún án sólar. Þar sem við vitum í dag að sólin hef- ur veruleg krabbameinsvaldandi áhrif á húðina var talið að með því að þróa lyf sem örvaði litarefnið þá gætum við varið húðina gegn krabbameini,“ segir Jenna Huld og segir að reyndin sé sú að nú óttist læknar að lyfið geti valdið húðkrabba- meini. „Löglega lyfið heitir Afamelanotide og er notað hjá fólki með sjaldgæfan blóð- sjúkdóm sem gerir húðina mjög viðkvæma fyrir sólinni. Þetta lyf eykur þol þeirra gagnvart sólinni með því að örva litarefnið. Þetta lyf er tiltölulega nýtt af nálinni og er verið að skoða verkun þess í fleiri sjúk- dómum, eins og til dæmis sólarexemi,“ segir Jenna og nefnir að lyfið Melanotan sé af allt öðrum toga. „Fólkið sem kaupir Melanotan er að kaupa ólöglegt lyf og þar sem um ólöglegt lyf er að ræða þá eru verulega margir óvissuþættir varðandi gæði lyfsins, öryggi, virkni og síðast en ekki síst hugsanlegar aukaverkanir.“ Sortuæxli áhyggjuefni „Melanotan er sprautuð undir húð og fer þaðan út í blóðrásina og örvar húðfrumur,“ útskýrir Jenna. „Það eru tvö efni sem eru notuð ólög- lega; Melanotan I og II. Fólk kaupir þetta á netinu og það veit ekkert hvaðan það kemur, það veit ekki hvernig framleiðslan er og það veit í raun ekki hvað er notað í lyfið. Það veit ekki hvort það er blóðmeng- að eða hvort það er hreinlega rétt lyf í am- púlunni,“ segir hún. „Það hefur verið mælt hvort magn virka efnisins sé rétt í ampúlunni en komið hef- ur í ljós að það er ekki alltaf svo, enda er ekkert gæðaeftirlit eða lyfjaeftirlit með þessu. Fólk er að taka mjög mikla áhættu,“ segir hún. „Melanotan I og II örva litarefni húð- frumnanna og þá verður húðin sólbrún án sólar. Melanotan II er yfirleitt það sem er keypt á netinu og það er kallað barbí-lyfið. Það hefur fleiri aukaverkanir en Mel- anotan I og þessar algengu aukaverkanir lyfsins þykja mjög eftirsóknaverðar, þar sem matarlyst minnkar vegna ógleði og viðkomandi grennist og svo örvast kyn- hvötin. Þetta lyf hefur sem sagt víðtæk áhrif og virkar ekki bara á húðlitinn,“ seg- ir hún. „Mestu áhyggjurnar eru að með því að örva litarfrumurnar gætu myndast sortu- æxli en þau koma frá þessum sömu frum- um. Sjúkratilfellum hefur verið lýst og þau birt í virtum læknatímaritum þar sem sýnt er fram á að fæðingarblettir breyta sér og fara að haga sér öðruvísi og það hafa kom- ið fram tilfelli þar sem fólk hefur greinst með sortuæxli,“ segir hún. „Það er auðvitað okkar stærsta áhyggju- efni af því sortuæxli er mjög alvarlegt og greinist gjarnan í ungu fólki. Það getur í versta falli leitt til dauða ef það greinist of seint,“ segir Jenna og nefnir að erfitt sé að rannsaka langtímaáhrif lyfsins. „Það er auðvitað siðferðislega rangt að sprauta lyfinu í fólk til þess að athuga hvort það fái sortuæxli eftir tíu ár þannig að í raun er það eina sem læknar geta gert að safna upplýsingum. Fleiri tilfelli eru byrjuð að dúkka upp þannig að upp- lýsingar eru að safnast saman.“ Fæðingarblettir breyttust Jenna segist sjálf ekki hafa orðið vör við mörg tilvik þar sem grunur leikur á að viðkomandi sé að sprauta lyfinu í sig. „Ég hef ekki orðið mjög vör við þetta hér en auðvitað er þetta eins og með stera og fleira að sjúklingurinn er ekki endilega að segja okkur allan sannleikann,“ segir Jenna og segist hafa fengið til sín sjúk- linga sem hafa sprautað sig með Mel- anotan þegar hún vann erlendis. „Þegar ég var starfandi í Gautaborg í Svíþjóð varð ég meira vör við þetta. Ég man eftir einu tilfelli þar en það kom til mín ung kona með fæðingarbletti sem höfðu allir breyst. Þeir voru orðnir mjög furðulegir eftir að hún hafði sprautað sig með lyfinu því um leið og þú ert að örva frumurnar í húðinni ertu líka að örva frumurnar í fæðingarblettunum,“ segir hún. Jenna segir að sá hópur sem fer í ljósa- bekki eða sólböð í óhófi sé líklega sami hópur og sprauti sig með lyfinu og því geti verið erfitt að meta hvað af þessu veldur sortuæxlum hjá þeim sem með það grein- ast. „Þetta fólk vill verða brúnt. Auðvitað þyrfti að taka það upp hjá landlækni ef notkunin á Melanotan er orðin víðtæk hér. Það er frekar óhugnanlegt fyrir okkur lækna að vita af því að fólk sé að sprauta sig með einhverju lyfi sem fer út í blóðrás- ina og enginn veit hvað er. Mér líst alls ekkert á þetta.“ Ung og ódauðleg Þegar blaðamaður hringdi í landlækn- isembættið könnuðust þeir hvorki við lyfið né ólöglega notkun þess á Íslandi. Banda- ríska lyfjaeftirlitið, það ástralska og lyfja- eftirlit víða í Evrópu hafa varað við notkun lyfsins að sögn Jennu. „Auðvitað ætti land- læknisembættið að vara við þessu, en þeir hafa líklega ekki heyrt af þessu og það er erfitt að vita hversu margir eru að nota lyfið,“ segir Jenna. „Þegar ég skoðaði erlenda könnun sá ég að flestir segja það vera mjög auðvelt að nálgast efnið og í sömu könnun sögðust 93% ætla að nota lyfið áfram þrátt fyrir að hafa áhyggjur af ókunnum langtíma- áhrifum. Málið er að fólk veit ekkert hvaða langtímaáhrif þetta hefur af því þetta er tiltölulega nýtt. Og það eina sem hægt er að gera er að safna tilfellum. Þetta er ekki nógu vel skoðað og það þarf að skoða þetta betur; langtímaáhrif eru óljós. Svo væri hræðilegt ef konur nota þetta á með- göngu.“ Jenna segir hóp fólks háðan því að vera brúnn. „Þessi tanorexia er til. Þetta er eins og með anabólíska stera; fólk sem notar þá verður háð því og það þarf hjálp til þess að hætta notkun þeirra. Þetta er þessi hópur sem er ungur og ódauðlegur.“ „Fólk er að taka mjög mikla áhættu“ Jenna Huld Eysteinsdóttir, sérfræðingur og doktor í húðlækningum, hefur áhyggj- ur af notkun ólöglega brúnku- lyfsins Melanotan. Hún segir enn of snemmt að segja til um langtímaáhrif en nokkrum tilfellum hefur verið lýst þar sem sortuæxli hafa greinst í einstaklingum sem sprauta sig með Melanotan. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Húðlæknirinn Jenna Huld Eysteinsdóttir segir varasamt að nota Melanotan. Morgunblaðið/Ásdís ’ Það er frekar óhugnan-legt fyrir okkur læknaað vita af því að fólk sé aðsprauta sig með einhverju lyfi sem fer út í blóðrásina og enginn veit hvað er. Lyfið melanotan er ólöglegt lyf sem fyrst var framleitt á tíunda áratugnum í há- skólanum í Arizona. Melanotan I og Mel- anotan II er hormón sem framleitt er á tilraunastofum og ætlað að örva líkam- ann til að framleiða melanin sem dekkir húðina og er það því vinsælt hjá fólki sem vill vera brúnt allt árið. Lyfið er selt í vökvaformi og því er sprautað undir húð á maga. Heilbrigðisyfirvöld víða um heim hafa lýst yfir áhyggjum sínum af notkun þess en langtímaáhrif eru ókunn. Lyfið veldur dekkri húð en aukaverk- anir sem nefndar hafa verið eru dekkri fæðingarblettir og freknur, ógleði, upp- köst, maga- og bakverkir, minnkandi matarlyst, þreyta, stinning í tíma og ótíma, roði í andliti og geispar. Sannað er að styrkleiki lyfsins sé afar misjafn og þar sem lyfið er ólöglegt og lítið rannsakað veit fólk í raun ekki hverju það er að sprauta í sig. Mikil smit- hætta getur einnig fylgt því þegar fólk notar sömu sprautu við notkun lyfsins. MELANOTAN „Barbí-lyfið“ Lyfið er selt í glerhylkjum og sprautað undir húð á maga. Á hylkið er ritað að lyfið sé eingöngu ætlað til rannsókna en ekki til almennrar notkunar.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.