Morgunblaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019 HERRAFATAVERSLUN BIRGISFÁKAFENI 11 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 553 1170Opið mán-fös 10-18 og lau 11-16 Næg bílastæði Útsalan í fullum gangi 2 fyrir 1 af allri útsöluvöru Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Hitinn í samfélaginu er að aukast. Fólk finnur að það styttist í þetta,“ segir Ísleifur B. Þórhalls- son, tónleikahaldari hjá Senu Live. Rúmar fimm vikur eru í að stór- tónleikar Eds Sheerans fari fram á Laugar- dalsvelli. Um tvenna tónleika er að ræða, 10. og 11. ágúst. Uppselt er á fyrri tónleikana, 30 þúsund miðar ruku út sem frægt varð, en enn eru lausir miðar í einhver svæði á þá seinni. Ljóst er þó að tugir þúsunda tón- listarunnenda munu fjölmenna í Laugardalinn þessa helgi og því að mörgu að huga í undirbúningi hjá Ísleifi og hans fólki. Óvæntar uppákomur í búðinni Eitt af stóru atriðunum sem huga þarf að er afhending miða og staðfestir Ísleifur við Morgun- blaðið að farin verði ný leið til að allt gangi sem best fyrir sig. „Við sögðum þegar miðasalan fór af stað að fólk myndi fá papp- írsmiðana sína þremur vikum fyrir tónleikana. Til að geta annað öll- um þessum fjölda þurftum við ein- hverja miðstöð og úr varð að við munum opna verslun í Kringlunni fimmtudaginn 18. júlí. Þetta verð- ur alvöruverslun, ekki bás, þar sem fólk getur nálgast miðana sína og þarna verður líka Ed Sheeran-varningur til sölu. Svo verða auðvitað skemmtiatriði, óvæntar uppákomur og eitthvert stuð þegar nær dregur. Við send- um fljótlega út tilkynningu og póst á alla kaupendur með ítar- legum upplýsingum um allt varð- andi miðaafhendinguna og allt fyrirkomulag varðandi miðamál og verslunina.“ Hittu Ed Sheeran í Portúgal Ísleifur segir að mikið sé lagt upp úr því að samgöngur til og frá Laugardalsvelli gangi sem best fyrir sig. Einhverjum götum verði lokað í nágrenni vallarins og tónleikagestir eru hvattir til að koma ekki á bíl, því framboð af bílastæðum í kringum völlinn sé takmarkað. „Þetta er auðvitað gríðarlegur fjöldi og við hvetjum þá sem geta labbað til að gera það og þá sem geta hjólað að gera það, það verður sérstakur staður til að geyma reiðhjól. Einnig munum við tryggja að leigubílar eigi greiða leið í gegnum lokanir að vellinum. Svo verða ókeypis sæta- ferðir til og frá Kringlunni, fyrir og eftir tónleika, svo það er góð- ur kostur fyrir þá sem vilja eða þurfa að vera á bíl að koma sér í Kringluna og skilja bílinn eftir þar. Auk þess verður ókeypis í strætó á höfuðborgarsvæðinu á tónleikadag gegn framvísun tón- leikamiðans.“ Ed Sheeran er á tónleikaferð um heiminn og fór hópur á vegum Senu Live til Portúgals á dög- unum til að kynna sér tónleika- haldið. „Við fórum tvo daga í röð og annan daginn hittum við Ed Sheeran sjálfan. Hann var bara að fá sér að borða eins og hver annar starfsmaður þarna baksviðs,“ seg- ir Ísleifur og hlær. Bað um landsliðstreyju Íslenski hópurinn heilsaði að sjálfsögðu upp á stjörnuna, sem tók þeim vel. „Hann sagðist vera mjög spenntur fyrir því að koma til Íslands, spenntastur af öllum þeim stöðum sem hann heimsækir á ferð sinni. Ekki minnkaði spenn- an þegar við sögðum honum að það væri örugglega heimsmet hvað væri búið að selja mikið af miðum á tónleikana hér.“ Frægt varð á síðasta ári þegar Ed Sheeran birti myndir á sam- félagsmiðlum af sér í íslensku landsliðstreyjunni þegar karla- landsliðið keppti á HM í Rúss- landi. „Hann fór einmitt að tala um landsliðið við okkur og spurði hvort það væri séns að fá treyju þegar hann kemur og bað okkur að bjóða landsliðinu á tónleikana fyrir sína hönd. Við erum búnir að koma því til skila og erum að kanna hvort við getum ekki fengið treyjuna áritaða,“ segir Ísleifur. Opna Ed Sheeran-búð í Kringlunni  Tugir þúsunda Íslendinga búa sig undir stórtónleika  Sheeran spenntur fyrir Íslandsheimsókn Ed Sheeran Tónlistarmaðurinn geðþekki er spenntur fyrir Íslands- heimsókn sinni í næsta mánuði. Tugir þúsunda sækja tónleika hans hér. Ísleifur Þórhallsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.