Morgunblaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019
Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðum og fylgiseðli fyrir
notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari
upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
Ofnæmið burt!
Zensitin
10 mg töflur -10, 30 og 100 stk
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is
„Ég flutti út í fyrrahaust og var að klára fyrsta
árið mitt í skólanum. Þetta er búinn að vera al-
gjör draumur,“ sagði Ari í samtali við Sigga
Gunnars á K100 en hann er kominn heim til Ís-
lands í sumarfrí. Ari hefur í vetur verið að
vinna með vini sínum úr skólanum, Cian Duc-
rot, að nýrri tónlist og leit fyrsta lagið dagsins
ljós nú fyrir nokkrum dögum. „Ég hef alltaf
verið mikill poppmaður og hefur alltaf langað
til þess að gera tónlist í þessum stíl,“ segir
hann en þetta er fyrsta lagið í þessum stíl sem
hann sendir frá sér. „Fyrirmyndirnar voru
Justin Timberlake og Maroon 5,“ bætir hann
við. „Það sem gerir þetta enn skemmtilegra er
að hann er að læra klassískan flautuleik og ég
klassískan söng en svo erum við að búa til
svona poppmúsík á kvöldin.“ Þeir vinirnir
vinna þetta allt sjálfir. „Við tókum myndina
fyrir kynningarefnið á baðherberginu heima
hjá Cian,“ segir Ari og hlær.
Lagið hetir „Too good“ og er komið út á
Spotify og öðrum helstu veitum. Ef þú vilt
heyra meira af ævintýrum Ara geturðu horft
og hlustað á viðtalið við hann inni á K100.is.
Nýr hljómur hjá Ara
Ara Ólafssyni kynntust flestir landsmenn í fyrra þegar hann var
valinn til þess að keppa í Eurovision fyrir okkar hönd. Ari hefur
verið í leiklist og tónlist frá unga aldri og þykir mjög hæfileikarík-
ur enda fékk hann inni í einum virtasta tónlistarskóla í heimi,
Royal Academy of Music í London. Ari hefur ekki gefið út neina
tónlist síðan hann tók þátt í Eurovision í fyrra en var að senda
frá sér nýtt efni á dögunum. Það má segja að það kveði við nýjan
tón en Ari hefur hingað til aðallega verið þekktur fyrir klassískan
söng en nýja lagið er poppskotinn r’n’b-smellur.
Ný ímynd Það kveður við nýjan tón hjá Ara Ólafssyni í nýju lagi.
Á K100 Ari og Siggi
Gunnars bregða á leik
í K100-stúdíóinu.
„Ég er gamall útvarpsmaður sem elska að
þeyta skífum án þess að þurfa að hafa áhyggj-
ur af hvort dansgólfið sé hoppandi eða ekki.
Elska það enn,“ segir Palli sem lofar fjörugum
þætti að vanda. Hlustendur mega eiga von á
góðu því í bland við fjöruga tónlist laumar Palli
einum og einum sjaldheyrðum gullmolum inni
á milli. „Pallaball er alltaf blanda af diskói,
House, Eurovision og endurhljóðblöndum af
nýjustu lögunum í bland við stórfurðuleg
sjaldheyrð lög. Svo krydda ég þetta alltaf með
eigin hitturum, glænýjum og eldgömlum,“ seg-
ir Palli sem spilar enn þá alla tónlistina sína af
geisladiskum og er ekkert á leiðinni að fara að
nota tölvu til þess.
Nóg um að vera hjá Palla í sumar
Palli verður fyrir norðan um helgina en
hann verður á bæjarhátíðinni Vopnaskaki á
Vopnafirði annað kvöld. Þá mun hann stýra að-
alpartíinu í fótboltahúsinu Boganum á Akur-
eyri í tilefni af Pollamótinu þar í bæ um
helgina. „Ég elska að koma fram á Akureyri
og ég hlakka mikið til að koma fram á Polla-
mótinu sem er eitt stærsta íþróttamót lands-
ins. Þar mun ég koma fram fyrir alla sem vilja
koma og skemmta sér, ekki bara þá sem eru á
Pollamótinu.“
Þungarokksunnendur munu einnig fá sinn
skammt af Palla í sumar því hann ætlar að
troða upp öðru sinni á þungarokkshátíðinni
Eistnaflugi í Neskaupstað 12. júlí. Þá mun
hann einnig loka Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
í ár og stíga á svið klukkan þrjú aðfaranótt
mánudags. Þar með er ekki öll sagan sögð því
þar sem Gleðigangan mun fara fram viku síðar
í ár en venja er getur Palli einnig tekið þátt í
hinum goðsagnakenndu Fiskidagstónleikum á
Dalvík.
Sívinsæll í sumar
Það er að venju í nægu að snúast hjá þjóðareigninni Páli Óskari í
sumar en hann verður á ferð og flugi um allt land. Palli ætlar að
hertaka K100 með hinum sívinsæla útvarpsþætti Pallaball í
beinni á morgun, föstudag, milli klukkan 16 og 18.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í loftinu Páll Óskar í stúdíói K100.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Samvinna Þeir Páll Óskar og Siggi Gunnars
hafa stýrt fjölda Pallaballa í beinni á K100.
Á sviðinu Palli
ferðast um landið í
sumar og treður upp