Morgunblaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 20-50% af öllum púðum útsala 70% sparaðu allt að af völdum vörum BALL loftljós. Hvítt með 7 kúplum. Ø18 cm. 79.995 kr. Nú 23.999 kr. STEEL hægindastóll. Rauður. 44.900 kr. Nú 29.900 kr. FANO sófaborð. Ø60 cm. Hvítolíuborið. 19.900 kr. Nú 12.900 kr. Listasafn Reykjavíkur, Borgar- bókasafn og Borgarsögusafn Reykjavíkur bjóða upp á kvöldgöng- ur með leiðsögn fimmtudagskvöld í sumar og í kvöld kl. 20 verður gengið á milli minnisvarða og lista- verka sem minna á hvernig landið byggðist, hvers konar samfélag og menning ríkti áður fyrr og hvernig það tók smám saman breytingum. Lagt er upp frá Grófinni, milli Tryggvagötu 15 og 17. Gengið milli minnis- varða og listaverka FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 185. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. „Ég hef æft eins og maður síðan ég var bara krakki. Ég hef alltaf hugs- að vel um mig og fótboltinn hefur alltaf verið númer eitt hjá mér, og ég held að það sé bara að skila sér. Ég byrjaði ekki bara að hugsa vel um mig eftir þrítugt, eins og margir gera, heldur hef ég alltaf gert það,“ segir Óskar Örn Hauksson, leik- maður júnímánaðar hjá Morgun- blaðinu. »58 Ég hef alltaf hugsað vel um mig ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Sænska tónlistarkonan Lykke Li heldur tónleika í kvöld í Silfurbergi í Hörpu. GDRN hitar upp kl. 20. Lykke Li gaf út sína fyrstu EP-plötu árið 2008 og hefur síðan gefið út fjórar breiðskífur. Hún hefur átt mörg lög á vinsælda- listum, m.a. „I Follow Rivers“ og „Litte Bit“, og hefur nýjasta breiðskífa hennar, So Sad So Sexy, hlotið lof gagnrýnenda. Tón- leikar hennar í kvöld eru liður í tónleikaferð hennar um heim- inn í tengslum við útgáfu plöt- unnar. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Dísuparið Björt og Kíki eignaðist þrjá unga fyrir um þremur vikum, tveir þeirra virðast ætla að spjara sig en einn var með fæðingargalla og lifði aðeins í um sólarhring. Fyrir áttu þau þrjá stálpaða unga. Auk þess eru tveir gárar (e. budgie) á heimilinu og því á Margrét Hlín Snorradóttir níu páfagauka. Margrét hefur átt páfagauka frá unglingsárum. „Pabbi minn átti marga páfagauka þegar hann var krakki og ég hef lengi haft áhuga á fuglum,“ útskýrir hún. Snemma hafi hún átt fjóra gára en fljótlega hafi dísa (e. cockatiel) bæst í hópinn. „Bróðir minn eignaðist dísu en hann sinnti fuglinum ekki sem skyldi og ég byrjaði að hugsa um hann. Ég ætlaði mér aldrei að eiga dísu en komst fljótlega að því að þær eru frábærar sem gæludýr. Þær eru miklir og misjafnir karakterar, eins og persónur sem manni þykir vænt um.“ Páfagaukarnir eiga það til að fjölga sér ört, reyna að klekja út eggjum jafnvel tvisvar til þrisvar á sumri. Margrét segir að áhugi þeirra til þess að verpa sé misjafnlega mik- ill. „Mitt par er mjög áhugasamt og fann sér að þessu sinni stað á gólfinu á milli skáps og veggjar og Björt verpti þar.“ Sjálfstæðir fuglar Þessir fuglar fara sínu fram og láta illa að stjórn. „Þeir gera það sem þeir vilja,“ segir Margrét. Hún bætir við að sumar dísur geti lært að tala, þótt það hljómi frekar eins og blístur en tal. „Mínir fuglar gefa frá sér ákveðin hljóð og ein dísan, sem heitir Dropi, kann að kyssa með við- eigandi hljóði.“ Hún segir samt að páfagaukarnir gegni ekki nafni. „Þeir hafa ekki lært að tengja orð við eitthvað en stærri páfagaukar geta það. Ég átti til dæmis fugl af tegund- inni African Grey sem hét Pongó og hann vissi það.“ Páfagaukar Margrétar eru með eigið herbergi og eru yfirleitt þar en opið er inn til þeirra og Margrét seg- ir að þeir fari um allt, ekki síst þegar einhver sé heima. „Þeir hafa hljótt um sig á nóttunni en þeir geta látið í sér heyra á daginn og erfitt getur verið að sofa út á morgnana nema við lokum inn til þeirra.“ Gæludýr þarfnast umönnunar rétt eins og börn. Huga þarf að lýsingu tvisvar á dag, hafa slökkt á nóttunni og bjart á daginn, gefa þeim mat og vatn og fylgjast með heilsufari þeirra. „Pabbi kíkir til fuglanna minna þegar við erum ekki heima og þess á milli hafa þeir félagsskap hver af öðrum,“ segir Margrét. Hún segir að vinskapurinn sé mismikill, mestur hjá parinu, sem hafi samtals eignast sjö unga. „Algengt er að dísur geti verið 15 til 20 ára en sögur fara af um 30 ára dísum,“ bætir hún við. Margrét segir erfitt að láta unga frá sér og því haldi hún þeim, þótt því fylgi mikil vinna. Í því sambandi segir hún að Björt hafi verpt þrisvar og byrjað að plokka ungana um tveggja vikna gamla. „Þá hef ég þurft að taka þá úr hreiðrinu og mata þá, en við það tengist ég þeim betur og þeir fara að líta á mig sem mömmu sína.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Í fuglaríki Margrét Hlín Snorradóttir umvafin páfagaukum á heimili sínu þar sem þeir eiga sitt herbergi. Á níu páfagauka heima  Ein dísan kann að kyssa með viðeigandi hljóði  Ungarnir líta á Margréti Hlín sem mömmu sína Lykke Li heldur tón- leika í Silfurbergi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.