Morgunblaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 63
MENNING 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019
Að fjalla um samtíma-viðburði í bók til útgáfuskömmu eftir að þáttaskilverða í atburðarásinni
krefst aga, þekkingar og yfirsýnar. Í
senn verður að gæta þess að ekkert
sé sagt sem ekki stenst og hins veg-
ar að gera frásögnina þannig úr
garði að áhugasömum lesanda finn-
ist hann fá meiri
vitneskju um við-
fangsefnið en
hann hafði af því
að fylgjast með
daglegum frétt-
um.
Stefán Einar
Stefánsson, við-
skiptaritstjóri
Morgunblaðsins,
tókst á við þetta allt við ritun bókar
sinnar WOW – ris og fall flugfélags
sem var kynnt í útgáfuhófi 29. maí
2019 en starfsemi WOW air stöðv-
aðist 28. mars 2019. Liðu aðeins rétt-
ir tveir mánuðir frá þáttaskilum í at-
burðarásinni þar til bókin birtist.
Þar var vel að verki staðið.
Lýst er þróun flugfélagsins WOW
frá því að Skúli Mogensen fjárfestir
tilkynnti um stofnun félagsins 23.
nóvember 2011 til gjaldþrotsins 28.
mars 2019. Þetta er viðburðaríkur
tími mikilla umsvifa og stórra
drauma. Ítarleg heimildaskrá fylgir
textanum auk nafnaskrár. Þá er
einnig birt tímatal um höfuðatriði í
sögu WOW.
Höfundur skapar andrúm í kring-
um einstaka viðburði eins og til
dæmis í kaflanum um kynningu
Skúla á WOW:
„Hann stígur inn í flóðlýsinguna
og er augljóslega kátur í bragði.
Dökkblá skyrta, fráhneppt, svartar
gallabuxur og samlitt belti. Í hendi
hefur hann iPad-spjaldtölvu, nýjustu
afurð tæknirisans Apple. Tækið
undirstrikar að þarna fer maður sem
er handgenginn nýjustu tækni.“
(Bls. 61.)
Þetta er lýsing á stjórnanda í anda
Steve Jobs, frægs forstjóra Apple.
Ímynd WOW var alla tíð nátengd
frjálslegri framkomu Skúla og óbil-
andi bjartsýni hans og baráttuvilja.
„Hann er sölumaður af Guðs náð og
á betra en flestir með að hrífa fólk
með sér og sannfæra um að sú leið,
eða sýn sem hann boðar, sé hin
rétta.“ (Bls. 335.)
Í bókinni má sjá merki þess að
ekki hafi verið farið í saumana á öllu
sem óhjákvæmilegt er að skoða við
lokafrágang handrits. Einkennilega
er að orði komist á bls. 88 þegar rætt
er um „reglugerð Evrópuráðsins um
sameiginlegar reglur um úthlutun á
afgreiðslutíma á bandalagsflug-
völlum“. Á bls. 280 segir að „reglu-
gerð Evrópuþingsins og Evrópu-
ráðsins“ leggi stífar kvaðir á skipan
eignarhalds á félagi með íslenskt
flugrekstrarleyfi.
Þetta eru EES-reglur og skýra
hefði mátt fyrir lesandanum hve að-
ild að þeim auðveldar allar ákvarð-
anir varðandi flugrekstur hér á
landi. Útrýming tæknilegra hindr-
ana á sameiginlega EES-mark-
aðnum og frelsi til að velja flugvelli
innan hans er ómetanlegur kostur
samhliða aðildinni að Open Sky-
samningi ESB og Bandaríkjanna
sem heimilar íslenskum flugfélögum
að velja velli innan Bandaríkjanna.
Höfundur nálgast efnið úr annarri
átt. Ofuráherslan á Skúla Mogensen
og viðskiptaferil hans er rökrétt. Án
fjármagns hans og áhættusóknar
hefði WOW ekki starfað eða farið út
fyrir ramma lággjaldaflugfélaganna.
Til að árétta hve slátturinn á
WOW og Skúla var mikill vorið 2017
segir Stefán Einar sögu af þáver-
andi stjórnendum Icelandair í kvöld-
verði á veitingahúsinu Snaps. Óvænt
birtist þjónn með kampavínsglös á
bakka. Þá segir (bls. 166): „Í þeim
var að finna hanastélið Key Royal
sem er einn þekktasti kampavíns-
kokkteill í heimi. Í honum eru aðeins
tvö innihaldsefni, kampavín og líkj-
örinn Crème de cassis sem búinn er
til úr sólberjum. Það sem strax vakti
eftirtekt borðfélaganna var að
kokkteillinn var léttblandaður, sem
þýðir að í stað hefðbundins rauðs lit-
ar, var drykkurinn fagurfjólublár og
því réð rauði litur sólberjanna í
bland við gylltan lit kampavínsins.“
Atvikið gerðist um svipað leyti og
Skúli lét eins og WOW yrði stærra
en Icelandair og jafnvel stærra en
Norwegian. Skúli sat á Snaps og bað
þjóninn að færa Icelandair-
mönnunum fordrykkinn í WOW-lit,
ögrun af hans hálfu. (Þessi franski
drykkur heitir raunar Kir Royale.)
Lýsingin á því hvernig þeir kynnt-
ust haustið 2015 Skúli og Steven
Ferencz Udvar-Házy, stofnandi og
forstjóri Air Lease Corporation
(ALC) í Bandaríkjunum, er ævintýri
líkust. „En staða hans og áhrif í flug-
heiminum eru slík að saga WOW air
verður ekki sögð með viðhlítandi
hætti, nema nokkru ljósi sé varpað á
þennan mann – sannkallaðan örlaga-
vald í vexti félagsins, falli þess og
þeim átökum sem upp komu milli
Isavia og Air Lease Corporation í
kjölfarið,“ segir á bls. 136.
Til marks um auð, áhrif og flug-
áhuga Udvar-Házys er nefnt að
hann styrkti gerð flug- og geimsafns
Smithsonian-stofnunarinnar við
Dulles-alþjóðaflugvöllinn skammt
frá Washington DC (ekki í Dulles
eins og segir á bls. 141) með 66 millj-
ónum dollara. Ber safnið nafn hans
og þar eru rúmlega 120 flugvélar og
120 minjar tengdar geimferða-
áætlun Bandaríkjanna.
Smávillurnar eru léttvægar miðað
við ásakanir Skúla Mogensens á
Facebook 9. júní um rangfærslur í
bókinni. Stefán Einar svaraði því
öllu skilmerkilega á Facebook dag-
inn eftir, 10. júní.
Skúli sagði meðal annars að hann
hefði ekki viljað ræða við Stefán
Einar við gerð bókarinnar vegna
þess að hann hefði „borið fram al-
varlegar ásakanir og rangfærslur í
garð WOW air sem áttu ekki við rök
að styðjast“. Alvarlegast hefði verið
„þegar hann fullyrti að WOW air
skuldaði Isavia 2 milljarða í stórri
forsíðugrein sem Morgunblaðið birti
15. september 2018“.
Stefán Einar svaraði að í byrjun
október 2018 hefði Skúli undirritað
leynilegt og fordæmalaust sam-
komulag við Isavia þar sem hann fór
á bak við sína nánustu samstarfs-
aðila. Frétt Morgunblaðsins um að
WOW air skuldaði um tvo milljarða,
þar af um helminginn gjaldfallinn,
hefði verið rétt.
Frétt í dagblaði ræður ekki úrslit-
um um gjaldþrot þrátt fyrir ímynd-
aráhrif hennar. Skúli segir raunar
að mikil og dýrkeypt mistök sín hafi
verið að færa WOW frá lággjalda-
stefnunni og að innleiða breiðþotur
inn í leiðakerfi félagsins.
Skýringar Stefáns Einars á falli
WOW air eru ítarlegar en flóknar.
Árið 2017 var ljóst hvert stefndi en
upplýsingar lágu ekki á lausu. Á
árinu 2018 var ekki gripið nægilega
fljótt til gagnaðgerða. Rætt var
hvort nota ætti skattfé til að létta
undir með félaginu. „Enginn heilvita
stjórnmálamaður hefði lagt fyrir-
tæki í slíkum áhættu- og samkeppn-
isrekstri til tíu eða tuttugu milljarða
króna í von um að rættist úr,“ segir
Stefán Einar (bls. 343). Slík ríkis-
aðstoð á sameiginlega EES-
markaðnum hefði auk þess orkað
tvímælis svo að ekki sé meira sagt.
Erfitt er að meta raunveruleg
áhrif af falli WOW air. Ríkisstjórnin
breytti fjárlagaáætlun sinni um 40
milljarða króna vegna þrenginga og
um 10.000 manns eru nú án atvinnu.
Þar vegur hagsveifla líklega þyngra
en óhjákvæmileg brotlending WOW.
Líklega var hún tiltölulega mjúk,
miðað við hæðina á flugi félagsins og
stórkarlalegrar yfirlýsingar um
framtíð þess.
Öll gjaldþrot draga dilk á eftir sér.
Í bókina WOW – ris og fall flug-
félags geta menn leitað til að sjá
heildarmyndina. Stefán Einar vann
þarft verk af mikilli elju við útgáfu
bókar sinnar.
Morgunblaðið/Hari
Höfundur áritar „Öll gjaldþrot draga dilk á eftir sér. Í bókina WOW – ris og
fall flugfélags geta menn leitað til að sjá heildarmyndina,“ segir gagnrýn-
andi meðal annars um bók Stefáns Einars Stefánssonar.
Flugmál
WOW – ris og fall flugfélags
bbbmn
Eftir Stefán Einar Stefánsson.
Vaka Helgafell, 2019. 367 bls.,
BJÖRN BJARNASON
BÆKUR
Brotlending úr háflugi
Sýning á nýjum olíumálverkum eft-
ir Tolla verður opnuð á Vest-
mannaeyjaflugvelli í dag, fimmtu-
dag. Sýningin er samvinnuverkefni
Isavia, rekstraraðila flugvallarins,
og Tolla. Sýningin hefur verið sett
upp á nokkrum stöðum á landinu
síðan hún var fyrst opnuð í flug-
stöðinni á Egilsstöðum í september
í fyrra. Auk Egilsstaða og nú Vest-
mannaeyja hefur Tolli boðið upp á
sams konar sýningar í flugstöðv-
unum á Akureyri og Ísafirði. Sýn-
ingin mun standa fram yfir versl-
unarmannahelgi og er sú síðasta í
þessari röð sýninga.
Í tilkynningu segir að Tolli hafi
heimsótt Vestmannaeyjar síðustu
misseri og sjáist það greinilega í
þessum nýju verkum að eyjarnar
veiti honum mikinn innblástur.
„Það er ofboðslega mikill frum-
kraftur í Vestmannaeyjum. Þar er
nálægðin við náttúruna og það sem
hún gefur og það sem hún tekur
mjög áþreifanleg. Ég finn mjög vel
fyrir þessu þegar ég fer um Vest-
mannaeyjar og ég hef leyft því að
vera mér mikill innblástur,“ segir
Tolli um verkin.
„Ég man ekki eftir því að hafa
séð eyjunni og náttúru hennar gerð
skil með þeim hætti sem ég geri í
þessum verkum og ég hlakka til að
bera þetta undir Vestmannaeyinga
og gesti þeirra í sumar.“
Tímasetning sýningar Tolla í
Eyjum er ekki tilviljun. Gosloka-
hátíð og hátíðarhöld vegna 100 ára
afmælis Vestmannaeyjabæjar hefj-
ast í dag, 4. júlí, og er sýningin
hluti af þeim hátíðarhöldum.
Eftir að sýningaröðinni með
verkum Tolla lýkur er fyrirhugað
að nýta rými flugstöðva til að
styðja við ungt listafólk á hverjum
stað og gera því mögulegt að koma
verkum sínum á framfæri þar.
„Ég ryð brautina og vinn með
Isavia í því að gera flugstöðvarnar
sýningavænar og nota mína list til
að venja farþega og ferðalanga á
hugmyndina að búið sé að setja upp
sýningarrými í þessum fallegu
byggingum. Svo koma flottir ungir
listamenn sem eru að springa úr
sköpunarkrafti og fylla þessi rými
af enn meiri gleði,“ segir Tolli.
„Samfélagið er alltof gjarnt á að
stilla landinu og 101-menningunni í
andstæðar fylkingar og póla,“ seg-
ir málarinn. „Það á ekki að vera
þannig, því það er ekki þannig.
Sköpun og innblástur er alls staðar
og við eigum að njóta gæðanna í
nálægðinni og kannski náum við að
komast nær hvert öðru í gegnum
listina.“
Morgunblaðið/Ófeigur
Listamaðurinn „Ég ryð brautina og vinn með Isavia í því að gera flugstöðv-
arnar sýningavænar,“ segir Tolli um sýningaröðina í flugstöðvum landsins.
Mikill frumkraftur í Eyjum
Sýning á nýjum
málverkum Tolla
í flugstöðinni LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is