Morgunblaðið - 04.07.2019, Page 40

Morgunblaðið - 04.07.2019, Page 40
40 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019 Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is FRÁBÆR HREINSI- OG SMUREFNI FYRIR BÍLINN ÞINN FYRIR BÍLINN Samtök iðnaðarins eru fylgjandi því að lýðheilsa landsmanna sé efld og Embætti landlæknis er vel treystandi til þess að stuðla að góðri og öruggri heilbrigðis- þjónustu, heilsueflingu og öflugum forvörnum í samræmi við sitt hlutverk. En embættið er á villigötum þegar það leggur til aukna skattheimtu á sykraða og syk- urlausa gosdrykki auk sælgætis í þeim tilgangi að efla lýðheilsu. Í fyrsta lagi byggist tillagan á úr- eltum gögnum sem safnað var fyrir mörgum árum þegar könnun var gerð á mataræði landsmanna. Það vita það allir sem vilja vita að á síð- ustu árum hefur orðið breyting á neysluvenjum landsmanna. Íslenskir framleiðendur sjá þær breytingar meðal annars í sölutölum þar sem neysla á sykruðum gosdrykkjum hef- ur dregist saman á sama tíma og neytendur hafa snúið sér að sykur- lausum gosdrykkjum en markaðs- hlutdeild sykurlausra gosdrykkja og kolsýrðra vatnsdrykkja nemur nú um 60%. Þær breytingar áttu sér stað án þess að stjórnvöld skiptu sér af því með sérstakri skattlagningu. Það stenst því enga skoðun að til- lögur Embættis landlæknis til stjórnvalda taki mið af því hvernig neysla var hér á landi fyrir hátt í ára- tug. Í öðru lagi væri slík skattlagning flókin og íþyngjandi fyrir bæði fyrirtæki og almenning. Samtök iðn- aðarins hafa ávallt bar- ist fyrir jafnræði á markaði og að þar ríki almennar og einfaldar reglur. Benda má á að íslensk stjórnvöld hafa reynt hvort tveggja, sértæka skattheimtu af stökum vöruflokkum og almenna skattlagningu á sykri í matvælum til að stýra neyslu almennings. Hvorugt hefur skilað þeim árangri sem að var stefnt og einungis haft í för með sér umtalsverðan kostnað og óhagræði. Samtök iðnaðarins telja því rökin fyrir þessari auknu skattheimtu haldlítil og mótmæla þeirri aðför sem á að gera að einni tiltekinni atvinnu- grein en sérstök skattlagning á ein- staka vöruflokka felur í sér mis- munun og skerðir samkeppnisstöðu. Stjórnvöld ættu frekar að horfa til þess að upplýsa og hvetja til góðrar heilsu. Haldlítil rök fyrir aukinni skattheimtu Eftir Gunnar Sigurðarson Gunnar Sigurðarson »Embættið er á villi- götum þegar það leggur til aukna skatt- heimtu á sykraða og sykurlausa gosdrykki auk sælgætis í þeim til- gangi að efla lýðheilsu. Höfundur er viðskiptastjóri á framleiðslusviði Samtaka iðnaðarins. Elliðaárdalurinn er einstök náttúruperla í höfuðborginni okkar, höfuðborg allra lands- manna. Nú berast fregnir af því að meirihluti borgar- stjórnar, sem gefur sig út á tyllidögum fyrir að setja um- hverfismálin á odd- inn, sé búinn að heim- ila uppbyggingu gríðarstórra mannvirkja í Elliðaárdalnum. Hugmyndin er að gengið verði á Elliðaárdalinn með mann- virkjum og byggingum skv. til- lögu að deiliskipulagi sem var samþykkt í skipulags- og sam- gönguráði á síðasta fundi ráðsins. Hér er um að ræða deiliskipulag fyrir Stekkjarbakka Þ73 en í til- lögunni eru skilgreindir bygging- arreitir, nýjar lóðir og hámarks byggingamagn, samtals tæpir 43 þúsund fermetrar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í ráðinu lögðust gegn þessari til- lögu, enda leggja allir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgar- stjórn Reykjavíkur ríka áherslu á verndun grænna svæða í borg- arlandinu og leggjast gegn hvers kyns húsnæðisuppbyggingu sem gengið gæti nærri slíkum svæð- um. Árið 2014 lagði Dagur B. Egg- ertsson borgarstjóri, að eigin sögn, fram tillögu í borgarráði um friðun Elliðaárdals í deiliskipulagi með svokallaðri hverfisvernd. Svo virðist sem tillögu Dags hafi ekki verið fylgt eftir þótt hann haldi öðru fram. Við sjálfstæðis- menn í borgarstjórn höfum ítrekað bent á að friðun með hverf- isvernd í deiliskipu- lagi hefur ekki sömu réttaráhrif og friðlýs- ing samkvæmt nátt- úruverndarlögum. Þetta er staðreynd og sýnir sig nú þegar tillaga hins svokallaða „græna meirihluta“ um eyðilegg- ingu Elliðaárdalsins var lögð fram í síðustu viku og samþykkt af fulltrúum þeirra. Fá tækifæri til að sýna sitt rétta andlit Þannig eru Elliðaár og nær- liggjandi svæði hvorki friðuð með hverfisvernd né samkvæmt nátt- úruverndarlögum. Fulltrúar Sjálf- stæðisflokks hafa ítrekað lagt til að unnið verði að því, í samráði við umhverfisráðherra og Um- hverfisstofnun, að Elliðaárdalur og nærliggjandi svæði verði frið- lýst með þeim hætti sem kveðið er á um í 38. gr. náttúruverndar- laga nr. 60/2013. Þetta hefur verið hundsað af meirihlutanum sem vill kenna sig við umhverfisvernd. Það er staðreynd. Það er með ólíkindum að borgarstjórinn sem slær sér upp með verðlaunum fyr- ir umhverfisvernd skuli leggja allt kapp á eyðileggingu Elliðaárdals- ins. Ætla borgarstjórinn og for- maður umhverfis- og heilbrigð- isráðs virkilega að standa að því að taka 43 þúsund fermetra lands í miðjum Elliðaárdalnum undir þessa uppbyggingu? Í dag verður tillaga meirihlut- ans lögð fyrir í borgarráði til staðfestingar. Þá munu borg- arstjórinn, góðkunni, og Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri- hreyfingarinnar – græns fram- boðs og formaður umhverfis- og heilbrigðisráðs, fá tækifæri til að sýna sitt rétta andlit. Þá munu borgarbúar geta metið það á eigin skinni hvar þessir fulltrúar standa í raun og veru þegar kem- ur að umhverfismálum. Sjálfstæð- ismenn munu a.m.k. ekki taka þátt í þessum skrípaleik og greiða atkvæði gegn þessari vondu til- lögu. Ef af verður munu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ekki láta sitt eftir liggja í að mæta þessu af hörku. Meirihlutinn gengur á Elliðaárdalinn Eftir Björn Gíslason »Ætla borgarstjórinn og formaður um- hverfis- og heilbrigðis- ráðs að standa að því að taka 43 þúsund fer- metra í Elliðaárdalnum undir uppbyggingu? Björn Gíslason Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.