Morgunblaðið - 04.07.2019, Page 43

Morgunblaðið - 04.07.2019, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019 43 Starfstækifæri fyrir iðnaðarmenn Alcoa Fjarðaál er stærsta iðnfyrirtæki landsins og öflugur hópur iðnaðarmanna sinnir viðhaldi í álverinu. Við leitum nú að góðum raf- og véliðnaðarmönnum í fjölbreytt dagvinnustörf. Við hvetjum konur sérstaklega til að sækja um störfin. Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí 2019. Umsóknir eru trúnaðarmál og er þeim öllum svarað. Frekari upplýsingar veitir Jón Óli Benediktsson, leiðtogi viðhalds, jon.benediktsson@alcoa.com eða í síma 470 7700. Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað á www.alcoa.is. Framleiðslutæki Fjarðaáls eru að stórum hluta sjálfvirk og mikið um iðnstýringar. Áhersla er lögð á að tryggja áreiðanleika með fyrirbyggjandi viðhaldi sem tekur mið af raunverulegu ástandi búnaðar. Fjögur teymi sinna skipulögðu viðhaldi í dagvinnu, sérhæft greiningarteymi fylgist með ástandi búnaðar og miðlæg viðhaldsvakt bregst við bilunum allan sólarhringinn. Iðnaðarmenn vinna náið með framleiðslustarfsfólki, skipu- leggjendum viðhalds og öðrum sérfræðingum. Hvers vegna að velja starf hjá Alcoa Fjarðaáli? Góð laun og fjölskylduvænn vinnutími. Tækifæri til starfsþróunar í gegnum þjálfun, fræðslu og fjölbreytta starfsreynslu. Ýmis fríðindi á borð við akstur til og frá vinnu, gott mötuneyti, heilsugæslu og velferðarþjónustu. Fjarðaál er vinnustaður þar sem komið er fram við alla af vinsemd og virðingu. Heilsa og öryggi starfsfólks eru ávallt forgangsmál. Við trúum því að samhent teymi ólíkra einstaklinga séu lykillinn að árangri. Við erum framsækin í jafnréttismálum og viljum fjölga konum í hópi iðnaðarmanna. • • • • • • www.hagvangur.is FRÆÐSLA OG ÞJÁLFUN HJÁ HAGVANGI FYRIR FYRIRTÆKI OG EINSTAKLINGA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.