Morgunblaðið - 04.07.2019, Blaðsíða 57
Hallgrímur Jónsson, f. 7.2. 1942,
fyrrverandi flugstjóri hjá Ice-
landair, og Guðríður Þórhallsdóttir,
f. 7.9. 1945, fyrrverandi meinatækn-
ir hjá Blóðbankanum.
Stjúpsonur Katrínar er Óðinn Ív-
ar Hallgrímsson, f. 24.7. 1998, bif-
vélavirki á Höldi á Akureyri.
Systkini Katrínar eru Ragnar
Árni Sigurðsson, f. 30.4. 1980, að-
stoðarframkvæmdastjóri og stað-
gengill aðallögfræðings í Seðla-
banka Íslands, og Þóra Kristín
Sigurðardóttir, f. 18.4. 1988, lög-
fræðingur, flugfreyja og hár-
greiðslukona.
Foreldrar Katrínar eru hjónin
Sigurður Rúnar Ragnarsson, f. 20.5.
1951, sóknarprestur í Neskaupstað,
og Ragnheiður Kristín Hall, f. 18.8.
1955, skrifstofumaður hjá Síldar-
vinnslunni í Neskaupstað.
Úr frændgarði Katrínar Halldóru Sigurðardóttur
Katrín
Halldóra
Sigurðardóttir
Ragnheiður Kristín Þórisdóttir Hall
skrifstofumaður hjá Síldarvinnslunni í
Neskaupstað
Árni Þórir Hall
verslunarmaður í Rvík
Ragnheiður Kristín Árnadóttir
húsfreyja í Rvík, frá Hellissandi
Niljóníus Hall
verslunarmaður í Rvík, frá Ísafi rði
Sigurður Lárus Hall
matreiðslumaður
Sigríður Guðný Jónsdóttir
húsfreyja á Vatnsenda, f. í Rvík
Lárus Hjaltested
bóndi á Vatnsenda við
Elliðavatn, f. í Rvík
Ingveldur Hjaltested óperusöngkona
Sigurveig Hjaltested óperusöngkona
Frank Pétur
Hall vél-
fræð ingur á
Sel tjarnar-
nesi
Frank Hall
tónlistar-
maður
Katrín Hall
listrænn
stjórn andi
dans fl okks
Gauta-
borgar-
óper unnar
Bjarni Hall
tónlistar-
maður
Jón Lundberg stjórnandi Lúðrasveitar Neskaupstaðar
Sigurborg Eyjólfsdóttir
húsfreyja í Neskaupstað, f. í Sandvík, S-Múl.
Anton Lundberg
verkstjóri í Neskaupstað,
f. í Ólafsvík
Kristín Sesselja Lundberg
talsímavörður og
bankastarfsmaður í Neskaupstað
Ragnar Ágúst Sigurðsson
loftskeytamaður, hafnarstjóri og sparisjóðsstjóri í Neskaupstað
Sigurður Hinriksson
útgerðarmaður í
Neskaupstað, f. á Tröllanesi
Sigurður Rúnar Ragnarsson
sóknarprestur í Neskaupstað
Viðar Stefánsson
prestur í
Vestmannaeyjum
Hallmar Sigurðsson leikari og leikstjóri
Katrín Sigurðardóttir
söngkona og loðdýrabóndi
í Mön í Árnessýslu
Hallmar
Helgason
sjómaður
á Húsavík
Sigurður
Hallmarsson
skólastjóri á
Húsavík og leikari
Kristrún Helgadóttir
húsfreyja og hótelstýra í Neskaupstað, f. á Húsavík
Katrín Lárusdóttir Hjaltested Hall
ljósmóðir í Rvík
DÆGRADVÖL 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019
„HVAÐ ER AÐ ÞVÍ AÐ FARA
FÓTGANGANDI? EKKI VILJUM VIÐ MÆTA
OF SNEMMA.”
„SVO ÞÚ TÓKST EFTIR ÞVÍ, HA?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar það er auðvelt
að lesa á milli línanna.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HEYRÐU! ÞÚ LAGÐIR
OFAN Á TÁNUM Á MÉR!
EN ÞAÐ TRUFLAR MIG EKKERT!
MÚ-HAHAHAHAHAHA!
OG ÞÁ RÍS SÓLIN
ÚR SÆ
ÞURFTIR ÞÚ AÐ GANGA Í
SKÓLA TIL ÞESS AÐ LÆRA
TIL VERKA?
NEI … ég vann hjá
frænda mínum á
kalkúnabúi!
OG NÚ LOKAÞÁTTUR
ÞÁTTARAÐARINNAR „Drakúla
gegn risatrukknum”
Ólafur Stefánsson skrifaði íLeirinn á þriðjudag: „Nú er
tími mikilla náttúrulýsinga og til-
beiðslu sólar, gróðurs – og birtu.
Jónsmessan er líka nýliðin og
ekki farið að rökkva um kvöld
þótt sólin skjótist örskammt í fel-
ur á öðrum tímanum. En fyrr en
nokkurn grunar koma hinar sól-
stöðurnar og Þorlákur, og þá er
þreifandi myrkur og allur and-
skotinn í veðrinu!“:
Gleður sólin guma og snót,
geislar heitir ylja brá,
en yfir jól og áramót,
óskaplegt er myrkrið þá.
Sigrún Haraldsdóttir svaraði
og sagði: „Nú er um að gera að
safna í sarpinn fyrir komandi
tíma“:
Kvelji þig myrkur
kuldi og hríð
illska og andstreymi
legg aftur augu
leiddu svo hug
um sólvermd sumarlönd
Ingólfur Ómar skrifaði á mánu-
dag: „Í gærmorgun nánar tiltekið
var veðrið fallegt hér syðra og
enn einn dýrðardagurinn bættist
við það sem af er þessu sumri. En
það var vel þegið að fá smávætu
engu að síður. Af því tilefni orti
ég:“
Risinn er nú dýrðardagur
dögg á grasi merlar skær,
logar himinn ljós og fagur
laufið strýkur þíður blær.
Sumarglaðir söngvar óma
sólin bliki á fjöllin slær,
gefur jörðu gullinn ljóma
gleðin dátt í sinni hlær.
Jón Atli Játvarðarson dregur
hér upp fallega náttúrumynd:
Við nú blasir fjörður fríður
fuglamergð í „perlu“ hans.
Sundhani um sæinn líður
sæluminning farþegans.
Glaðværð er í griðlandinu,
Grímsey lukin djúpum sjó.
Tuða út af tilstandinu
teista, lundi og kolluhró.
Sigtryggur Jónsson yrkir um
konu sem vill fá að heita Kona:
Lög eru svona og svona,
þá svanni vill heiti bera.
Nafnið kýs hún Kona,
og Karlsdóttir að vera.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn einn dýrðardagurinn
og glaðværð í griðlandinu