Morgunblaðið - 04.07.2019, Síða 59
ÍÞRÓTTIR 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019
Dýrabær Smáralind, Kringlunni, Reykjanesbæ og Akranesi | Byko Selfossi
Fiskó Garðabæ | Heimkaup | Hundaheppni | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
NÁTTÚRULEG INNIHALDSEFNI
bragðgott – hollt – næringarríkt
– fyrir dýrin þín
Er þetta ekki að verða gott? Er
ekki kominn tími á að fótbolta-
yfirvöld heimsins viðurkenni að sú
ofnotkun á myndbandadómgæslu
(VAR) sem við höfum orðið vitni
að síðustu daga, vikur og mánuði
er tilraun sem mistókst?
Þegar VAR er farið að snúast
um að elta uppi millimetra – var
hún rangstæð eða ekki, var hægri
eyrnasnepill framherjans mögu-
lega kominn inn fyrir vinstri tá-
nögl varnarmannsins – er þetta
komið út í tóma vitleysu.
Við lifum á tímum tækni-
framfara og það er sjálfsagt að
nýta þær til góðs. Líka í fótbolt-
anum. Marklínutæknin virkar
ágætlega. Dómarinn veit um leið
hvort boltinn fór yfir línuna eða
ekki. Fær hljóðmerki í úrið. Þetta
er á hreinu um leið og það gerist.
Mark eða ekki mark. Fínt.
En að vera með fjögurra
manna dómarasveit fyrir framan
sjónvarpsskjái til að reyna að
greina það sem fer framhjá dóm-
aratríóinu – og þurfa svo tvær til
þrjár mínútur til að klóra sér í
höfðinu og reyna að komast að
niðurstöðu. Þetta er í besta lagi
orðið grátbroslegt.
HM kvenna í Frakklandi hefur
verið stórskemmtilegt. Langbesta
stórmót kvenna til þessa og áhug-
inn á því er meiri en nokkru sinni
fyrr. En þetta endalausa VAR-
vesen er svarti bletturinn á
mótinu.
Þegar tæknin er orðin slík að
hægt sé að skera úr um vafaatriði
á svipstundu – dómarinn geti með
hjálp hennar tekið ákvörðun um-
svifalaust – er um að gera að nota
hana. Myndbandaskoðun ætti líka
að nota til að hreinsa íþróttina af
svindlinu, leikaraskapnum, t.d.
með því að skoða atvik eftir leik
og senda þá sem svindla í bann.
En ekki til að eyðileggja leikinn á
þennan hátt.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
FÓTBOLTI
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
„Þetta er orðið mitt annað heimili,
enda er ég alltaf að koma aftur,“ segir
danski framherjinn Patrick Peder-
sen, markakóngur Íslandsmótsins í
knattspyrnu 2018, í samtali við Morg-
unblaðið. Hann er nú genginn í raðir
Vals í fjórða sinn, aðeins hálfu ári eft-
ir að hafa yfirgefið félagið sem Ís-
landsmeistari annað árið í röð, og
gæti spilað sinn fyrsta leik með liðinu
á ný gegn KA í kvöld.
Pedersen kom fyrst til Vals á miðju
tímabili 2013, sneri aftur vorið eftir
og spilaði í tvö ár þar sem hann sló í
gegn. Eftir dvöl hjá Viking í Noregi
kom hann aftur, þá í þriðja sinn, á
miðju sumri 2017 og vann tvo Ís-
landsmeistaratitla með Valsmönnum.
Eftir að hafa skorað 17 mörk í deild-
inni í fyrra söðlaði hann um og gekk í
raðir Sheriff frá Moldóvu. Þar gekk
hins vegar á ýmsu.
„Í byrjun var þetta mjög fínt. Ég
kunni mjög vel við þjálfarann sem
fékk mig. Eftir að hafa tapað leik var
hann hins vegar rekinn, en liðið var
samt í toppsætinu. Nýi þjálfarinn var
hins vegar bara brjálaður. Ég vil ekki
láta hafa eitthvað mjög slæmt eftir
mér, en hann kom fram við leikmenn-
ina eins og þeir væru hermenn. Þetta
var allt öðruvísi,“ segir Pedersen,
sem skoraði þrjú mörk í 14 leikjum
með Sheriff en segir sér ekki hafa lið-
ið vel.
„Þetta var allt annar heimur og
annað viðhorf sem ríkti. Sérstaklega
þegar kemur að því að hugsa um leik-
mennina. Það var erfitt fyrir mig og
mér leið ekki vel. Ég var ekki spennt-
ur yfir því að fara á æfingar og leið
ekki vel fyrir leiki. Þér á ekki að líða
þannig,“ segir Pedersen, og þegar
möguleikinn kom upp fyrir um tveim-
ur vikum að snúa aftur „heim“ á Hlíð-
arenda þurfti hann ekki að hugsa sig
lengi um.
Einbeiti mér bara að Val
Pedersen hefur alls skorað 47
mörk í 72 leikjum með Val
og er fjórði markahæsti
leikmaður félagsins í
efstu deild frá
upphafi. Hann
segir að
slæmt gengi
liðsins í vor hafi
komið sér mjög á
óvart.
„Liðið keypti marga
nýja leikmenn fyrir tímabilið
svo ég var svolítið hissa, en það
tekur alltaf tíma fyrir nýja menn að
aðlagast. En ég held að það séu bjart-
ari tímar framundan,“ segir Ped-
ersen en hugsar ekki til þess að hon-
um sé ætlað að bjarga tímabilinu hjá
Val.
„Ég get ekki snúið hlutunum við
upp á eigin spýtur, liðið þarf allt að
gera það. En ég mun gera mitt besta
til þess að hjálpa liðinu,“ segir Ped-
ersen. Hann er 27 ára gamall og
skrifaði undir fjögurra ára samning
við Val í þetta sinn. Er það ekki
óvenjulegt?
„Jú, kannski – en þá veit ég líka
hvað ég á af mér að gera næstu fjögur
árin. Maður veit aldrei í fótboltanum,
ég var bara í hálft ár í Moldóvu og
kom svo aftur, en ég er ánægður
að hafa fengið langan samning
og get einbeitt mér algjörlega
að Val. Ég kann mjög vel við
félagið og við landið, ég er
ánægður hér og nýt þess að
spila fótbolta,“ segir Pedersen
við Morgunblaðið.
Ekki kominn
til að bjarga
Valsmönnum
Þjálfarinn í Moldóvu var „brjálaður“
Valsari Patrick Pedersen er
kominn aftur á Hlíðarenda,
í fjórða sinn á ferlinum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
keppir á sínu fjórða móti á LPGA-mótaröðinni í golfi,
þeirri sterkustu í heimi, þegar hún hefur leik í dag á
Thornberry Creek LPGA Classic-mótinu sem fram fer í
Wisconsin-ríki. Hún hefur ekki enn komist í gegnum nið-
urskurðinn á þremur mótum í ár, en á góðar minningar
frá þessu móti frá því fyrir tveimur árum. Þá var hún
enn á sínu fyrsta tímabili á mótaröðinni.
Ólafía lék á hringina fjóra þá samtals á 10 höggum
undir pari og var það í fyrsta sinn sem hún komst í
tveggja stafa tölu undir par á meðal þeirra bestu. Þá
fékk hún 10 þúsund dollara í verðlaunafé, rúma milljón
íslenskra króna, sem var rétt tæplega helmingur af því sem hún hafði unn-
ið sér inn á 12 mótum þar á undan samanlagt.
Í fyrra komst hún þó ekki í gegnum niðurskurðinn á mótinu, þrátt fyrir
að leika fyrstu tvo hringina á þremur höggum undir pari. Hún talaði þá um
að þessi völlur væri í nokkru uppáhaldi hjá sér. Leiknar verða 72 holur á
mótinu og skorið niður eftir fyrstu tvo keppnisdagana. yrkill@mbl.is
Er á slóðum sælla minninga
Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir
Tryggvi Snær Hlinason, landsliðsmaður í körfuknatt-
leik, hefur fundið sér nýtt lið á Spáni ef marka má frétt
spænska miðilsins Encestando frá því í gær. Tryggvi
Snær, sem var leystur undan samningi hjá Valencia í síð-
asta mánuði, er þar sagður hafa samið við Zaragoza sem
einnig er á meðal fremstu liða á Spáni.
Tryggvi var í láni hjá Obradorio síðasta vetur og sagði
að riftun samningsins hjá Valencia hefði komið sér á
óvart. Hann reiknaði þó með að vera áfram á Spáni.
Zaragoza hafnaði í sjötta sæti í spænsku deildinni á
síðustu leiktíð, fór alla leið í undanúrslit um meistara-
titilinn og leikur í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Tryggvi Snær gæti þar með fylgt í önnur fótspor Jóns Arnórs Stef-
ánssonar á Spáni, en Jón Arnór lauk atvinnumannsferlinum með Valencia
árið 2016, ári áður en Tryggvi fór utan. Jón Arnór lék einmitt áður með liði
Zaragoza árin 2011-2014. yrkill@mbl.is
Tryggvi í önnur fótspor Jóns
Tryggvi Snær
Hlinason