Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.07.2019, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2019
TRATTO model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 335.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 439.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
MENTORE model 3052
L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 389.000,-
L 201 cm Leður ct. 10 Verð 459.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 365.000,-
STAN model 3035
L 206 cm Áklæði ct. 86 Verð 359.000,-
L 206cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-
Þegar leikritið Te klukkan fimm var sett á svið í Huntington-
leikhúsinu í Boston í júní fékk Faye Dunaway glimrandi dóma
fyrir túlkun sína á Katherine Hepburn í blaðinu Boston Globe
og var hrósað fyrir „snilldarframmistöðu“. Uppfærslan í Boston
var undirbúningur fyrir að verkið færi á svið í New York í haust,
en nú mun ekki verða af því vegna þess að Dunaway hefur verið
sagt upp án útskýringa. Í frétt í New York Times segir hins veg-
ar að hún sé þekkt fyrir að vera erfið í samstarfi.
Dunaway, sem er 78 ára, fór með eina hlutverkið í leikritinu,
sem var skrifað 2002 og er eftir Matthew Lombardo. Í desem-
ber var tilkynnt að það yrði sett á fjalirnar á Broadway. Greint
var frá uppsögninni í tveimur setningum og sagt að stefnt væri á
að sýna verkið snemma á næsta ári með nýrri leikkonu.
Dunaway fékk Óskar fyrir leik sinn í myndinni
Network 1977 og hefur fimm sinnum leikið á
Broadway, síðast 1982.
AFP
Dunaway sagt upp
Faye Dunaway afhenti Óskarsverðlaun í fyrra
ásamt Warren Beatty sem lék með henni í mynd-
inni Bonnie og Clyde frá 1967.
Faye Dunaway hlaut lof fyrir leik í leikrit-
inu Te klukkan fimm, en var rekin áður
en það komst á fjalirnar á Broadway.
Faye Dunaway í
hlutverki Katherine
Hepburn í leikritinu
Te klukkan fimm.
„Hvernig líkar yður við íslenzka
hestinn, frú Scott?“ spurði blaða-
maður Morgunblaðsins banda-
rískan ferðalang, sem farið hafði í
átta daga reiðferð um Fjallabaks-
veg. Svarið lét ekki á sér standa:
„Hann er í einu orði sagt dásam-
legur. Sérstaklega þægilegur, þíð-
ur og óþreytandi.“ Íslenski hest-
urinn stæðist fyllilega samanburð
við erlenda.
Viðtalið birtist í Morgun-
blaðinu 21. júlí 1959. Í ferðinni
voru 30 manns, þar af 10 útlend-
ingar, og var hún farin á vegum
Ferðaskrifstofu ríkisins. Nema
hvað. Í frétt Morgunblaðsins að
nýlunda væri að bjóða upp á kom
fram að slíkar ferðir fyrir erlenda
ferðamenn.
Frú Scott var í för ásamt vin-
konu sinni, fröken Mellor. „Þær
hafa báðar runnið sitt æskuskeið
en voru samt hinar sprækustu
eftir langa ferð,“ skrifaði blaða-
maður og bætti við að þær hefðu
verið á leið til Stokkhólms til að
sitja ráðstefnu kvenna sem berð-
ust fyrir friði og frelsi í heiminum.
Flesta daga ferðarinnar rigndi
á ferðalangana, en frú Scott lét
það ekki slá sig út af laginu. „Ég
sá nógu mikið til að hrífast,“
sagði hún við blaðamann.
GAMLA FRÉTTIN
Nýtt fyrir
ferðamenn
Íslenski hesturinn er dásamlegur, var yfirskrift fréttarinnar í Morgunblaðinu
um ferðalagið á vegum Ferðaskrifstofu ríkisins um Fjallabaksveg.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Eyþór Ingi Gunnlaugsson
söngvari
Gregg Allman
söngvari
Högni Egilsson
söngvari