Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.07.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.07.2019, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.7. 2019 LÍFSSTÍLL Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 5-8 manneskjur 19.500 kr. 1-4 manneskjur 15.500 kr. Verð aðra leið: Þetta hefur verið algert rjómasumar,“ segir Guð-ríður aðspurð hvernig sumarið hafi verið fyrirblómin. „Eftir síðasta rigningasumar fengum við loksins almennilegt sumar, sem gerir það að verkum, sérstaklega með fjöl- æru plönturnar margar hverjar, að núna fáum við svo góða og fína blómg- un. Plönturnar eru margar svo glæsi- legar að maður hreinlega fellur í stafi.“ Aðspurð hvenær blómgun nær há- marki og hvort það sé sérstakur tími yfir sumarið sem blómin séu alveg sér- staklega falleg segir Guðríður að það séu hápunktar yfir allt sumarið. „Fyrsti hápunkturinn er eiginlega í mars/apríl þegar fyrstu vorblómstrandi plönturnar eru að byrja og síðan taka tegundirnar við hver á fætur annarri. Þannig að yfir sumarið, í þessum fjölæru jurtkenndu plöntum, getum við verið með eitt- hvað í blóma alveg frá því í mars/apríl fram í október.“ Þetta er ansi langur tími en hver tegund fyrir sig er þó yfirleitt ekki mjög lengi í blóma. „Yfirleitt eru plönturn- ar í blóma í um hálfan mánuð upp í fjórar vikur en sum- ar tegundir eru þó duglegar að blómstra nánast allt sumarið eins og til dæmis dverghjarta, sem byrjar frek- ar snemma og er með blóm eiginlega alveg þangað til það fer að kólna á haustin og plantan fellir blöð og stöngla. Þær eru ekki margar þannig en þær finnast.“ Veðurfar hefur áhrif á blómgun „Vegna þess hve sólríkt og gott sumarið er í ár eru plönturnar svolítið snemma á ferðinni og blómgunin fyrr. Þegar talað er um tíma blómgunar á plöntum verður maður aðeins að meta aðstæður,“ útskýrir Guð- ríður og segir að ef sumarið er sólríkt og hlýtt geti blómgunin verið tveimur til þremur vikum fyrr en ella. „Til að mynda var öll blómgun í fyrra mjög sein í jurt- kenndum plöntum vegna þessara miklu rigninga.“ Aðspurð hvaða plöntur séu að ná hápunkti um þetta leyti og fram á haust tók Guðríður saman nokkrar plöntur sem eru blómstrandi frá því í lok júlí/byrjun ágúst og fram á haust. Dreyramura „Ættingi jarðarberjamurunnar er dreyramura. Hún er seinna á ferðinni og er svolítið dekkri á litinn. Hún er að byrja að blómstra um það leyti sem jarð- arberjamuran er að klára. Þá getur maður haft þessar plöntur báðar í garð- inum og þannig er maður að teygja blómgunartímann fram í september. Það er mjög sniðugt þegar maður er að raða niður plöntum í garðinn að velta fyrir sér hvenær þær hefja blómgun og hvað tekur svo við. Þannig er hægt að tryggja að allt sumarið sé eitthvað fallegt í blóma í garðinum.“ Ljósmyndir/gardaplontur.is Útlagi „Svo er tegund sem var mjög algeng í görðum áður fyrr og heitir útlagi. Plantan öll er 70-80 cm há og þetta eru uppréttir stönglar með ljósgræn blöð og efst eru alveg skærgul blóm. Hér áður fyrr var þessi planta nánast í öllum görðum því hún er falleg frá því seint í júlí eða snemma í ágúst og langt fram í september. Hún breiðir svolítið úr sér svo maður þarf aðeins að halda henni í skefjum en það er alltaf eitthvað heimilislegt við útlag- ann; hann vekur oft minningar um til dæmis garðinn hjá ömmu.“ Jarðarberjamura „Um þetta leytið er jarðarberjamura að blómstra en hún er með alveg há- rauð blóm, sem er ekki algengt í görð- um á íslandi. Rauðblómstrandi plöntur eru ekki svo margar en svo dýrmætar og fólk sækir yfirleitt mjög mikið í þær. Jarðarberjamuran er með blöð sem eru svipuð jarðarberjum. Stönglarnir eru svolítið útafliggjandi þannig að maður þyrfti helst að vera með hana í steinhæð til að hún njóti sín sem best. Svo koma þessi gullfallegu hárauðu blóm sem eru svipuð sóleyjum í laginu en alveg hárauð. Jarðarberjamuran myndi kjósa að vera á frekar sólríkum vaxtarstað.“ Prestabrá Blómið prestabrá segir Guðríður svolítið eins og baldursbrá á sterum. „Blöðin eru heilli en á baldursbránni en blómin einkennast af risastórum hvítum körf- um. Miðjan er gul og síðan eru hvítu tungukrónurnar sem kallaðar eru í kring- um miðjuna alveg svakalega stórar. Það eru til prestabrár þar sem hvert blóm er allt að 10-15 cm í þvermál. Prestabrá byrjar í blóma í lok júlí og er í blóma fram í ágúst.“ Garðamaríustakkur „Garðamaríustakkur, sem er náskyldur íslenska mar- íustakknum, er mjög áberandi í görðum núna. Garðam- aríustakkurinn er alveg grjótharðgerður, með stór og mjúk blöð og gulgræna blómgun. Þetta er ofboðslega dugleg planta en hefur þann ávana að sá sér dálítið, sem gerir að verkum að það eru ekki allir hoppandi glaðir með hana. Garðamaríustakkurinn þrífst um allt land og allir geta ræktað þessa fallegu plöntu.“ Kínavöndur „Kínavöndur blómstrar mjög seint að sumri. Blómið einkennist af eins konar stórum bláum lúðrum með ljósgrænum sportröndum á hlið- unum. Kínavöndurinn er í blóma í ágúst og langt fram í september. Á daginn opnast blómin en á kvöldin lokar hann sér aftur til að passa upp á að blómin endist lengur. Kínavöndur er frekar lágvaxinn og er notaður í steinhæðir.“ Blómgun fyrr á ferðinni í ár Alpaþyrnir „Alpaþyrnir er planta sem lítur svolítið út fyrir að hafa komið utan úr geimnum. Þetta er alveg glæsileg garð- planta og þessir stóru sveipir sem hún er með eru grænir til að byrja með en þegar líður á sumar blána þeir smám saman og verða blá-stálgráir í lok sumars. Þetta er frábær garðplanta, harðgerð og dugleg og bætir við sig jafnt og þétt á hverju ári. Alpaþyrnir er einnig hægt að nota til af- skurðar, eins og langdepluna.“ Guðríður Helgadóttir Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur segir að hápunktar blómgunar plantna dreifist jafnt og þétt yfir allt sumarið og hver tegund eigi sinn tíma. Sunnudagsblaðið fékk Guðríði til að segja frá nokkrum fjölæringum sem ná hápunkti núna í byrjun ágúst og fram á haustið. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Hraundepla „Nú eru að detta í blóma tegundir sem heita hraundepla, sem er um 40 cm há, og langdepla, sem er 70-80 cm há. Báðar blómstra fallega bláum blómum. Langdeplan er mun fínlegri og hefur hún verið notuð sem af- skorin planta. Ef fólk langar að vera með eitthvað í garðinum sem hægt er að tína í vönd þá er langdeplan upplögð í það. Hún er yfirleitt blá en finnst líka hvít og bleik.“

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.