Morgunblaðið - 03.08.2019, Síða 11

Morgunblaðið - 03.08.2019, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019 Grænlenska flugfélagið Air Greenland hóf áætlunarflug á milli Akureyrar og Kaup- mannahafnar í lok apríl 2003 en ákvað að hætta flugi í nóvember sama ár. Tilkynnti félagið að samkeppni við Keflavíkurflugvöll hefði verið ástæða ákvörðunar- innar. Iceland Express bauð upp á beint áætlunarflug frá Akureyri til Kaupmannahafnar nokkur ár í röð yfir sumartímann frá 2006 til 2012. Var flugi hætt sama ár og WOW air tók yfir flugrekstur fyrirtækisins. Árið 2014 bárust fregnir af því að flugfélagið Greenland Express ætlaði að bjóða upp á ferðir milli Akureyrar og Danmerkur. Fyrir- tækið hætti þó við með litlum fyrirvara og gaf þá skýringu að ekki væri nægur áhugi meðal al- mennings á fluginu. Tilraunir til flugs til Akureyrar MILLILANDAFLUG TIL AKUREYRAR OG FRÁ HEFUR GENGIÐ MISVEL Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is „Super Break er í rauninni fyrsta al- vöruleiguflugstilraunin á Akureyrar- flugvelli sem hefur verið undirbúin og unnin þannig að hún eigi að geta gengið,“ segir Arnheiður Jóhanns- dóttir, framkvæmdastjóri Markaðs- stofu Norðurlands, en greint var frá því í Morgunblaðinu í gær að breska flugfélagið Super Break væri hætt rekstri. Hefur flugfélagið boðið upp á beinar flugferðir milli Bretlands og Akureyrar í tvö ár. Arnheiður stað- festir að ýmsar tilraunir hafi verið gerðar með millilandaflug til og frá Akureyri í gegnum tíðina sem fæstar hafi gengið eftir. Arnheiður segir að misgengi þessara tilrauna megi rekja að mestu leyti til þess að undirbún- ingur þeirra hafi ekki verið nægilega traustur og markaðssetning hafi ekki verið nægilega góð. Verkefnin oft illa undirbúin Segir hún að nokkrum sinnum hafi erlendir aðilar tilkynnt um áætlunar- ferðir til og frá Akureyri sem hafi síð- an ekki gengið upp og segir að mark- aðsstofan hafi sjaldan haft trú á þessum áætlunum. Hún tekur dæmi af grænlenska flugfélaginu Green- land Express sem tilkynnti að það myndi hefja áætlunarflug frá Akur- eyri til Kaupmannahafnar og Ála- borgar árið 2014. Úr því varð þó aldr- ei og segist Arnheiður ekki hafa haft mikla trú á verkefninu sem að hennar mati var illa undirbúið. „Það hefur ekki verið nægilega mikil alvara að baki þessum tilraun- um,“ segir Arnheiður. Segir hún jafnframt að stöðvun millilandaflugs Iceland Express árið 2012 hafi snúist um rekstur flug- félagsins en WOW-air tók við rekstr- inum sama ár. „Það er miklu auðveldara að fljúga til Keflavíkur. Það eru miklu stöðugri og öruggari tekjur þaðan og meiri áhætta ef þú ætlar að fara að fljúga á flugvelli eins og Akureyri og Egils- staði. Það er kostnaðarsamara og dýrara að markaðssetja þá,“ segir Arnheiður sem leggur þó áherslu á að hún hafi mikla trú á að millilandaflug til og frá Akureyri geti gengið. Hún bendir á að ferðaskrifstofan Voigt Travel hafi í samstarfi við Transavia, boðið í fyrsta sinn í sumar upp á flug frá Rotterdam í Hollandi og segir það hafa gengið vel. Árið 2019 var þriðja árið sem Super Break var með beinar flugferðir milli Bretlands og Akureyrar en Arnheið- ur segir fyrsta ár ferðaskrifstofunnar hér á landi hafi gengið ágætlega. „Þeir hittu akkúrat á þau tímabil sem seldust vel en voru með lélegt flugfélag sem náði sjaldan að lenda. Annað árið, í fyrra, voru þeir með frá- bært flugfélag en hittu ekki á mark- aðinn svo salan gekk illa í desember og janúar. Þetta ár átti að vera árið sem þetta myndi ganga upp. Mark- aðurinn er alveg til staðar og salan í þessi flug hefur verið frábær þannig að það vantar ekki upp á,“ segir hún og bætir við að gjaldþrot Super Break sé aðeins eitt skref aftur á bak. „Síðan tökum við nokkur skref áfram. Við hættum ekki að berjast í þessu. Við höfum fulla trú á markaðnum,“ segir Arnheiður sem kveðst bjartsýn á að fundinn verði aðili sem geti kom- ið í stað Super Break. „Það er í rauninni ekki markaður- inn á Norðurlandi sem hefur þessi áhrif núna. Þarna eru ytri aðstæður sem hafa þessi áhrif á okkur sem við ráðum ekki við. Ég tek þær ekki sem einhvern dóm á það hvort Norðurland sé ekki tilbúið til að taka við beinu flugi. Þarna erum við bara óheppin.“ Mörg ár á milli tilrauna Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Circle Air á Ak- ureyri, tekur undir með Arnheiði og segir að gjaldþrot Super Break hafi verið óheppilegt en segir mikilvægt að hafa í huga að gjaldþrotið tengist ekki flugi fyrirtækisins til Íslands. Er hann bjartsýnn á að boðið verði upp á fleiri millilandaflug til og frá Akureyri á næstunni. Hann bendir á að misheppnaðar til- raunir til millilandaflugs til og frá Ak- ureyri hafi flestar verið gerðar fyrir ferðamannasprengjuna sem varð í kjölfar bankahrunsins. „Það eru mörg ár á milli þessara til- rauna og mjög mismunandi aðstæður sem hafa verið uppi þegar þær voru gerðar. Ég er sannfærður um að ef stjórnvöld tækju ákvörðun um að standa við bakið á þessari uppbygg- ingu og myndu byggja aðra millilandagátt til landsins þá myndi þetta takast miklu fyrr. Þannig að heimamenn einir séu ekki að standa í þessu,“ segir hann. Alvörutilraun sem ekki tókst  Arnheiður Jóhannsdóttir segir tilraunir með millilandaflug til Akureyrar oft illa undirbúnar  Markaðurinn á Norðurlandi ekki ástæða þess að ferðaskrifstofan Super Break hætti rekstri Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyrarflugvöllur Margar tilraunir hafa verið gerðar í gegnum tíðina til millilandaflugs til og frá Akureyri. gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Skoðið laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 LAXDAL SUMARSALAN LÍÐUR AÐ ÚTSÖLULOKUM VERÐHRUN 50% - 60% - 70% afsláttur OPIÐ Í DAG 10-15 1990 og 0,2 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Meðalhitinn þar rað- ast í 15. sæti á lista 139 ára. Úrkoman hefur verið tæp 10% umfram meðal- lag í Reykjavík og á Akureyri. Tíð í júlí var sérlega góð um landið sunnan- og vestanvert. Í Reykjavík Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Þótt hlýtt hafi verið í júlí var hitafar á landinu ekki óvenjulegt nema um landið suðvestanvert. Þetta segir Trausti Jónsson veðurfræðingur. Sérlega hlýtt var við Faxaflóa og þannig var júlí sá hlýjasti síðan reglu- legar mælingar hófust í Reykjavík ár- ið 1871. Í yfirliti Veðurstofunnar kemur fram að meðalhiti fyrstu sjö mánuði ársins 2019 var 5,8 stig, sem er 1,7 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990 en 0,5 stigum yfir meðallagi síð- ustu tíu ára. Meðalhitinn raðast í 6. hlýjasta sæti á lista 149 ára, ofar eru sömu mánuðir 1964, 1929, 2003, 2014 og 2010. Á Akureyri var meðalhiti mánaðanna sjö 4,6 stig. Það er 1,5 stigum ofan meðallags áranna 1961 til var mánuðurinn sá hlýjasti frá upp- hafi mælinga, og á fáeinum stöðvum öðrum meðal þeirra þriggja til fjög- urra hlýjustu. Svalara var og tíð mun daufari um landið norðan- og aust- anvert en þó var hiti ofan meðallags síðustu tíu ára á flestum veður- stöðvum. Úrkoma var ekki fjarri meðallagi á Suður- og Vesturlandi, en yfir því norðaustanlands. Úrkoma var lang- mest á litlu svæði norðan til á Aust- fjörðum. Vindhraði var ívið minni en í meðalári. Meðalhiti í Reykjavík í júlí var 13,4 stig og er það 2,9 stigum ofan meðal- lags áranna 1961 til 1990, en 1,4 stig- um yfir meðallagi síðustu 10 ára. Á Akureyri var meðalhitinn 12,1 stig, 1,6 stig yfir meðallagi áranna 1961 til 1990 og 0,9 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Fyrstu sjö mánuðir ársins 2019 hafa verið mjög hlýir  Hitafar í júlí ekki óvenjulegt nema á Suðvesturlandi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í sólinni Það hefur verið gott að tylla sér á bekk í blíðviðrinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.