Morgunblaðið - 03.08.2019, Page 14

Morgunblaðið - 03.08.2019, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019 Vantar þig ráðleggingar við sölu eignar þinnar? s 893 6001 Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is Guðbergur Guðbergsson Löggiltur fasteignasali og leigumiðlari Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Ellefu álfígúrur á þaki Arnarhvols, þar sem fjármála- og efna- hagsráðuneytið er til húsa, hafa vakið athygli borgarbúa og gesta í miðbæ Reykjavíkur í sumar. Listaverkið, sem ber nafnið Tákn, er eftir Steinunni Þórarinsdóttur og er hluti af dagskrá Listasafns Reykjavíkur á ári listar í almannarými. Steinunn segist hafa fengið feiknaleg viðbrögð og góð við sýningunni. Fólki finnist hún færa ævintýri í miðbæinn og vera mótvægi við nýja miðbæinn sem sumum þyki svolítið fer- kantaður. Öðrum finnist miðbærinn færast upp á hærra plan; fígúrurnar stækki hann og útvíkki og séu nýtt kennileiti í Reykjavík. Steinunn segist hafa viljað varpa ljósi á það fallega og sérstaka hús sem Arnarhvoll er en margir hafi gleymt að horfa á bygginguna síðustu áratugi. Engar af fígúrunum 11 á þaki Arnarhvols, sem koma af sýningu Steinunnar á sögusafni þýska hersins í Dresden, eru eins. Steinunn segir töluna 11 gefa fyrirheit um framhald; hún sé opin og loki ekki fyrir möguleika. Fígúrurnar séu aðallega Ingólfsstrætismegin og haldi upp Lindargötu, sem gefi tilfinningu fyrir framhaldi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Styttur Steinunnar á Arnarhvoli vekja mikla eftirtekt Alheimsmóti skáta í Summit-Bectel Reserve í Vestur-Virginíu í Banda- ríkjunum lauk í fyrrakvöld. Yfir 45.000 skátar frá 151 landi tóku þátt í mótinu. Alheimsmót eru haldin á fjögurra ára fresti að undanskildum stríðsárunum. Mótið í ár er það 24. frá árinu 1920. 171 íslenskir skátar sóttu mótið. Þar af voru 121 á aldrinum 14 til 18 ára og 50 sjálfboðaliðar sem voru yf- ir 18 ára. Auk þess fóru átta sjálf- boðaliðar í fararstjórn, en hún sá um undirbúning ferðarinnar, samskipti við stjórnendur mótsins og umsjón með íslensku skátunum á mótinu. 14 sveitarforingjar undirbjuggu skát- ana fyrir mótið, ferðuðust með þeim út og studdu þátttöku meðan á mótinu stóð. Auk þess sinntu 28 ís- lenskir sjálfboðaliðar hlutverki al- þjóðlegra þjónustuliða, en þeir mæta á mótið viðbúnir því að sinna öllum verkum sem upp kunna að koma. Alheimsmót skáta í ár var haldið sameiginlega af landssamtökum skáta í Kanada, Bandaríkjunum og Mexíkó. Í tilkynningu íslensku skátahreyfingar um mótið segir að þrátt fyrir að samskipti Kanada, Mexíkó og Bandaríkjanna hafi oft verið betri á hinum pólitíska vett- vangi en undanfarin ár hafi skátar frá þessum löndum komið saman í krafti þess sem sameinar þau og skilað af sér glæsilegu móti Á fyrsta alheimsmótinu, stuttu eftir lok fyrri heimsstyrjaldar, var mikil áhersla lögð á frið. Í lokaávarpi mótsins flutti stofnandi skátahreyf- ingarinnar eftirfarandi ávarp: „Kæru skátar. Munur fyrirfinnst á milli íbúa heimsins, í hugsunar- hætti og viðhorfi líkt og með tungu- mál og líkamlegt atgervi. Alheims- mótið hefur kennt okkur að ef við sýnum hvert öðru umburðarlyndi og gefum bæði og þiggjum mun ríkja samkennd og friðsemd. Sé það vilji ykkar skuluð þið fara héðan stað- ráðin í að við munum þróa með okk- ur bræðralag, í hinum útbreidda anda skátahreyfingarinnar, svo að við getum stuðlað að þróun friðar og hamingju í heiminum öllum og góð- vilja á milli allra manna.“ Tilgangur alheimsmótsins hefur ekki breyst, en hann er að stuðla að friði og gagnkvæmum skilningi á milli fólks. Á alheimsmótum skáta gefst ungmennum tækifæri á að deila hugmyndum sínum og menn- ingarheimum hvort með öðru og mynda vinabönd þvert yfir höf og heimsálfur. Þegar ungmenni deila vissum gildum úr skátastarfinu, þar á meðal að stuðla að bættum heimi. gengur slíkt áreynslulaust fyrir sig, því ungmennin deila þegar vissum gildum. Það sama má segja um eldri skáta sem standa að mótinu í sjálf- boðaliðastarfi í stærstu friðarhreyf- ingu ungmenna í heiminum. Góðu alheimsskátamóti lokið Ljósmynd/Boy Scouts of America Fjölbreytni Skátastarf er friðarstarf þar sem ungt fólk stillir saman strengi. Hér eru kátir skátar frá ýmsum löndum að skemmta sér saman.  211 íslenskir skátar og sjálfboðaliðar á heimleið frá Bandaríkjunum  Áhersla á frið og gagnkvæman skilning  450.000 skátar frá 151 landi á alheimsmóti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.