Morgunblaðið - 03.08.2019, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019
Biskup Íslands hefur auglýst laust
til umsóknar embætti sókn-
arprests í Laufásprestakalli, Eyja-
fjarðar- og Þingeyjarprófasts-
dæmi. Skipað er í embættið frá 1.
nóvember 2019 til fimm ára. Lauf-
ás í Eyjafirði
kemur við sögu
skömmu eftir að
Ísland byggðist
og þar hefur stað-
ið kirkja frá
fyrstu árum
kristni í landinu.
Sóknarprest-
urinn séra Bolli
Pétur Bollason
var í námsleyfi
síðastliðinn vetur.
Hann tók þá ákvörðun að koma
ekki aftur til starfa í Laufási held-
ur segja embætti sínu lausu. Því
þarf að auglýsa embættið nú. Þess
má geta að eiginkona Bolla, séra
Sunna Dóra Möller, er nú sóknar-
prestur í Hjallakirkju í Kópavogi.
Séra Bolli mun í vetur þjóna sem
prestur í afleysingum í Ástjarn-
arprestakalli í Hafnarfirði.
Séra Sólveig Halla Kristjáns-
dóttir leysti séra Bolla af í náms-
leyfinu. Hún mun í vetur leysa af
séra Sighvat Karlsson á Húsavík,
sem í vetur mun þjóna í Reykjavík.
Í Laufásprestakalli eru fimm
sóknir, Laufás- og Grenivíkur-,
Svalbarðs-, Háls-, Ljósavatns- og
Lundarbrekkusóknir. sisi@mbl.is
Segir lausu
embætti
sóknarprests
Bolli Pétur
Bollason
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Tjaldsvæðiseigendur í Mývatns-
sveit voru bornir þeim sökum í
facebookhópi síðastliðinn fimmtu-
dag að skiptast á um að aka um
sveitina og benda ferðamönnum á
að leggja sig ekki utan tjaldsvæða.
Spratt umræðan upp eftir að ís-
lenskur ljósmyndari var vakinn af
tjaldsvæðiseiganda í sveitinni eftir
að hafa lagt sig í bíl sínum á dög-
unum. Einar Guðmann, annar ljós-
myndari, vakti máls á meintum
ábendingum tjaldsvæðiseigend-
anna. Í samtali við Morgunblaðið
segir Einar að einn eigendanna
hafi rekið sig burt þegar hann
lagði bíl sínum á bílastæði í sveit-
inni fyrir nokkru. Þá hafi tjald-
svæðiseigandinn beinlínis sagt að
tjaldsvæðaeigendur á svæðinu
skiptust á að keyra um og benda
fólki á að vera einungis á tjald-
svæðum. Einar er ósammála því
að fólk sem leggur húsbílum sín-
um á bílastæðum úti á landi sé í
órétti.
„Það skiptir engu máli þótt það
sé inni á þeirra landi; þarna er ég
inni á stæði sem Vegagerðin hefur
áreiðanlega búið til á sínum tíma.
Landeigendur hafa engan rétt til
þess að vera lögreglur á Íslandi.
Þetta er eflaust vel meint en af-
skiptasemi af ferðalöngum er farin
fram úr öllu hófi.“
Finnur Sigfús Illugason rekur
tjaldsvæði í Mývatnssveit og er sá
sem vakti manninn sem birti
færsluna í facebookhópnum.
„Það er ekkert til í því að við
gerum þetta markvisst. Ég held
að þessi tjaldsvæði séu nú það full
að það þurfi ekki að vera að smala
inn á þau. Hitt er annað mál að
það eru allir orðnir mjög þreyttir
á því að fólk gisti úti um allt.“
Finnur segist einfaldlega hafa
ætlað að benda manninum sem
hann vakti á að hann væri að
leggja bíl sínum í leyfisleysi.
„Þarna er skilti þar sem stend-
ur að það sé ekki leyfilegt að gista
yfir nótt. Þegar ég sneri við á
þessu plani flautaði ég um leið.“
Lögin illa ígrunduð
Einar segir lög sem lúta að því
að ekki megi leggja húsbílum sín-
um, ferðabílum eða tjöldum hvar
sem er ekki halda vatni, sérstak-
lega hvað varðar húsbíla sem eru
búnir allri þeirri þjónustu sem
ferðalanga kann að vanhaga um.
„Ég tel þessi lög mjög van-
hugsuð. Þau hafa greinilega ekki
haft neinar umsagnir af viti frá
talsmönnum ferðabíla og húsbíla í
ljósi þess að þarna eru menn
skyldaðir í viðskipti við ákveðna
aðila sem bjóða í raun enga þjón-
ustu sem þú óskar eftir. Þig vant-
ar ekki neitt en þú neyðist til að
kaupa.“
Einar bendir sömuleiðis á að
hæpið sé að sektarheimildir séu að
baki lögum sem takmarka tjöldun
og lagningu bíla.
Segist ekki smala á svæðin
Ljósmyndari segir vanhugsað að skylda fólk á tjaldsvæði „Landeigendur
hafa engan rétt til þess að vera lögreglur á Íslandi“ Óvissa um refsiheimildir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tjöld „Tjaldsvæði veita mjög misjafna þjónustu og þegar þú ert að ferðast
um á húsbíl þarftu í raun ekki að kaupa neina þjónustu,“ segir Einar.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Senn líður að því að fólk geti sest
niður og virt fyrir sér eina elstu og
sögufrægustu bryggju landsins,
steinbryggjuna við hlið Tollhússins
í Reykjavík. Eftir er að ganga frá
stáli, rafmagni og lýsingu. Þau verk
munu klárast núna í ágúst.
Steinbryggjan var upphaflega
reist af bæjarsjóði Reykjavíkur ár-
ið 1884. Hún þótti á sínum tíma dýr
en mikil framför miðað við litlu tré-
bryggjurnar út af fjörukambinum
sem voru í einkaeigu kaupmanna.
Steinbryggjan var fyrsti viðkomu-
staður þeirra sem komu til lands-
ins. Danakonungar, drottningar,
prinsar og annað tignarfólk gekk
upp bryggjuna.
Bryggjan var vel sýnileg fram að
seinni heimsstyrjöld, en fór þá und-
ir uppfyllingu. Hún hefur skotið
upp kollinum af og til við gatna-
framkvæmdir og lagnavinnu.
Bryggjan varð sýnileg í fyrra
Þegar gamla steinbryggjan, sem
liggur undir Pósthússtræti, kom í
ljós við gatnaframkvæmdir í fyrra-
sumar var ákveðið að breyta hönn-
un götunnar og gera bryggjuna
sýnilega á nýjan leik.
Við gömlu bryggjuna verður torg
með setbekkjum, hjólabogum,
trjám og sérhannaðri lýsingu, sem
starfsmenn Reykjavíkurborgar
hafa hannað. Gamla steinbryggjan
verður sýnileg og hægt að ganga
niður tröppur að henni á tveimur
stöðum. Timburpallar verða við
bryggjuna fyrir þá sem vilja
staldra við og setjast niður. Næst
tollhúsinu kemur veggmynd sem
minnir á bátana sem áður lögðust
þarna
Þessi endurnýjaði götustubbur
vestan tollhússins (Kolaportsins),
milli Tryggvagötu og Geirsgötu,
var áður hluti Pósthússtrætis en
mun framvegis heita Steinbryggja.
Morgunblaðið/sisi
Merkar minjar Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, brá sér á bryggjuna. Hann hafði ekki áður stigið þar fæti.
Brátt hægt að skoða steinbryggjuna
Ein elsta og sögufrægasta bryggja landsins var byggð árið 1884 og þótti dýr en mikil framför
Fallegar 3ja og 4ra herbergja
íbúðir í nýbyggingu
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070
eða eignasala@eignasala.is
Sýningar-
íbúðir
tilbúnar
Bókið skoðun
Dalsbraut 4 - Reykjanesbæ
VERÐ FRÁ KR. 29.900.000