Morgunblaðið - 03.08.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 03.08.2019, Síða 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019 Sími 564 6711 | thingvangur@thingvangur.is | thingvangur.is Til leigu um 1.500 m2 lager-/ iðnaðarhúsnæði við Héðinsgötu. Mjög hagstætt leiguverð. Laust strax! Húsnæðið samanstendur af framrými með innkeyrsluhurðum og einu stóru vörugeymslurými og er innangengt á milli þeirra um hurðir. Lagerrýmið eru með um 8-9 m. lofthæð. Starfsmannaaðstaða, skrif- stofa/ móttaka og snyrting eru til staðar. Góð aðkoma er að húsinu. VSK leggst ekki við leigufjárhæðina. Nánari upplýsingar veitir Kristján Sveinlaugsson, sími 698 0088, tölvupóstur kristjan@thingvangur.is HÉÐINSGATA 2 Þórbergur Þórðarsonsegir í Ofvitanum fráþeim tíma þegar hannvar ungur og auralítill í Reykjavík. Dag einn kallaði sveitungi hans til hans á götu og bauð honum með sér á kaffihús. Sá pantaði handa þeim tvær sítrónsflöskur. Þórbergur, sem hélt í fyrstu að sítrón væri vín- tegund, fór í huganum óðara að greina orðið sítrón: „Þetta var í fyrsta sinn á ævinni sem ég heyrði sítrón nefnt á nafn, mín óbóklærða málfræðihneigð rakti nafnið á því undir eins til orðsins sí = alltaf, og sagn- arinnar að tróna = ríkja. Sítrón væri vín sem trónaði alltaf yfir öðrum vínum, væri allra vína fullkomnast.“ Í þetta sinn rat- aði hin „óbóklærða málfræði- hneigð“ vissulega svolítið inn á hliðarspor í viðleitninni til að ráða í merkingu og uppruna ókunnuglegs orðs enda dró svaladrykk- urinn sítrón, eða Citron, nafnið af sítrusávexti; tökuorðið sítróna kem- ur af citron í dönsku, frönsku og fleiri málum, sbr. citrus (sítrónutré) í latínu en orðstofninn upp- runalega þangað kominn úr grísku. Þórbergi þótti sí- trónið vera „eins og sólskin á litinn. Og það var sætt og yndislega hressandi“. Af lýs- ingunni að dæma hefði drykkurinn því eftir allt saman sjálfsagt átt skilið þá einkunn að „tróna sífellt“ yfir öðrum drykkjum sem orðið höfðu á vegi Þórbergs. Hin greinandi og skapandi „óbóklærða málfræðihneigð“ í lýsingu Þórbergs felur meðal annars í sér að leitast við að ráða merkingu nýrra eða ókunnuglegra orða beinlínis af einstökum orðhlutum sem málnotandinn ber kennsl á. Segja má að þess háttar viðhorf til orða- forðans hafi verið ein styrkasta stoðin undir þeirri nýyrðastefnu sem enn lifir góðu lífi í íslensku málsamfélagi. Hvers kyns textar sem verða á vegi okkar dags daglega hafa að geyma aragrúa nýrra og nýlegra orða sem byggjast á eldri orðhlutum sem við greinum og tengjum saman fyrirhafnarlaust. Við hugsum ekki endilega út í það hvort orð er nýmyndað eða ekki ef orðhlutarnir eru kunnuglegir (dæmi: rafmagns- reiðhjól). Okkur nægir að kunna helstu orðstofna í íslensku til að eiga góða möguleika á að ráða í merkingu nýrra íslenskra orða ef þau eru samsett úr eldri efniviði sem okkur er kunnur. Íslendingar eru almennt mjög hlynntir nýyrðastefnunni enda þótt hversdagslegt talmál bendi stundum og sums staðar til sterkrar til- hneigingar til að beita erlendum orðstofnum í daglegu máli þrátt fyrir að til séu samsvarandi „alíslensk“ orð. Vandaðar skoðanakannanir hafa ítrekað sýnt á undanförnum árum og áratugum að mjög mikill stuðningur er meðal almennings við það sjónarmið að mikilvægt sé að mynda ný íslensk orð um nýja hluti, aðferðir og hugmyndir sem sífellt koma fram í veröld sem breytist hratt. En þrátt fyrir víðtækan stuðn- ing við nýyrðastefnuna í skoðanakönnunum er ekki þar með sagt að öll nýmynduð „alíslensk“ orð verði endilega fyrir valinu þegar fólk spjall- ar saman dags daglega. Sítrón Tungutak Ari Páll Kristinsson aripk@hi.is Nýyrði Orðið sítrón var Þórbergi ókunnugt og fór hann strax að greina það. Fyrir skömmu fékk ég bréf frá kunningja mínum.Hann hafði verið í fjallgöngu. Og þar sem hannstóð í hlíðum Skjaldbreiðar og virti fyrir sérumhverfi sitt, Hlöðufell, Fanntófell, hinn horfna Ok-jökul, sem nú er kominn í heimspressuna, Þór- isjökul í Langjökli og svarta sanda, fékk hann innblástur. Hann fann hjá sér þörf fyrir að taka þátt í baráttunni gegn þriðja orkupakkanum og hefur gert það með mynd- arbrag. Þessa tilfinningu skildi gamall fjósamaður úr Flókadal, sem sá þessa sýn úr meiri fjarlægð, þegar gengið var til mjalta snemma að morgni, dag hvern í fimm sumur. Í góðu skyggni mátti jafnvel sjá Hlöðufell, sem fékk á sig ævintýrablæ þegar til þess var horft frá fjósinu. Svo kom að því að gengið var bæði á Fanntófell og Skjaldbreið og tengslin við þennan stórbrotna landshluta, sem höfðu orð- ið til úr töluverðri fjarlægð í æsku, urðu enn nánari. Það er þessi innblástur, sem mikill fjöldi fólks hefur fengið frá landinu sjálfu, sem hefur ráðið för í barátt- unni gegn þriðja orkupakkanum. Hann á ekkert skylt við „einangr- unarhyggju“, „þjóðrembu“ eða and- stöðu við EES-samninginn. Ríkisstjórnir hafa stundum haldið fundi annars staðar á landinu en í Reykjavík. Kannski nú- verandi ríkisstjórn ætti að halda fund á mið-hálendi Ís- lands, t.d. við Öskju eða í Þjórárverum, til þess að komast í rétt hugarástand, áður en hún gengur til þess verks, sem hún stefnir að snemma í haust á Alþingi. Það er aldrei að vita nema landið sjálft geti haft meiri áhrif á hana en and- mæli þeirra, sem hafa kosið ráðherrana á þing. En sá innblástur sem landið sjálft veitir í þessu máli er jafnframt ástæðan fyrir því, að þingmenn og ráðherrar eiga svo erfitt með að fást við þessa andstöðu, alla vega í stjórnarflokkunum. Hér er ekki um að ræða baráttu, sem háð er af einhverjum sérhagsmunaástæðum, heldur mun stærri hagsmunum, sem snúa að framtíð þjóðarinnar í þessu landi. Það eru til „kerfi“, sem eru jafnvel enn þröngsýnni en opinbera kerfið og er þá mikið sagt. Þetta eru hin innri kerfi stjórnmálaflokkanna sjálfra. Viðbrögð þessara lok- uðu kerfa flokkanna eru stundum svo fáránleg að það liggur við að þau séu hlægileg. Þó að það sé að vísu ekkert hlægilegt við það, hvernig flokkar, sem kenna sig við lýð- ræði og segjast berjast fyrir lýðræði og tjáningarfrelsi, hafa stundum tilhneigingu til að breytast í einhver fyrir- bæri, sem þola hvorki lýðræði né tjáningarfrelsi að ekki sé talað um frjáls skoðanaskipti. Valdaskipti í lýðræðislegum samfélögum eru mikilvæg m.a. til að minna þá, sem lengi hafa farið með völd í um- boði almennra borgara, á, að þeir eru ekki einir í heim- inum og að það er til æðra vald en þeir sjálfir, sem er sam- eiginleg niðurstaða meirihluta kjósenda. Á þetta hafa valdamenn stundum verið minntir með óþyrmilegum hætti. Þessi veruleiki á líka við innan flokkanna sjálfra. Þar verða reglulega breytingar á forystu, sem er mikilvægt, svo að forystur flokka verði ekki eins og heimaríkir hundar. Og raunar margt sem mælir með að setja ákveðin tímamörk á setu í æðstu embættum, eins og t.d. var gert í Alþýðubandalaginu í gamla daga. Það hefur verið lærdómsríkt að fylgjast með því sam- starfi, sem farið hefur fram innan Orkunnar okkar, þver- pólitískra samtaka, þar sem saman koma einstaklingar úr nánast öllum flokkum vegna sameiginlegrar sýnar á tiltekið mál, í sjálfu sér með svipuðum hætti og gerzt hef- ur innan Heimssýnar. Innan hvorra tveggja samtaka er um að ræða sam- starf á milli einstaklinga, sem stóðu áratugum saman í hörðum átökum vegna kalda stríðsins en hafa fundið sér sameiginlegt baráttumál, þegar kemur að málum, sem varða fullveldi Íslands. Það samstarf hefur sýnt að fólk með mjög ólík viðhorf til þjóðfélagsmála getur unnið vel saman að málum, þrátt fyrir allt sem á undan er gengið. En um leið ætti það að vera nokkurt umhugsunarefni fyrir stjórnmálaflokkana, hvað mörg af helztu baráttu- málum samtímans hafa fundið sér farveg utan vébanda þeirra sjálfra. Getur verið að í því felist vísbending um að þeir skipti minna máli í lýðræðislegum skoðanaskiptum innan samfélaga en áður var? Kjarni málsins er þó sá, að umræðurnar um orkupakk- ann sýna, að umboðinu, sem kjörnir fulltrúar hafa frá kjósendum, eru takmörk sett. Þeir sjálfir verða að átta sig á hvar þau mörk liggja og að það getur haft pólitískar afleiðingar fyrir þá sjálfa, ef þeir virða þau ekki. Hin pólitíska barátta fer ekki bara fram á milli flokka. Í auknum mæli tekur fólk höndum saman í baráttu fyrir ákveðnum málefnum og sú barátta fer fram utan flokk- anna en ekki innan. Það dregur augljóslega úr vægi þeirra og ætti að vera forystusveitum þeirra nokkurt um- hugsunarefni. Skýrt dæmi um þetta er að kornung stúlka, hin sænska Greta Thunberg, hefur orðið heimskunn á ótrúlega skömmum tíma vegna baráttu sinnar fyrir því að heims- byggðin bregðist við vegna áhrifa loftslagsbreytinga á jörðina. Þessar vangaveltur eru til orðnar vegna umhugsunar um, hvort orkupakkamálið sé vísbending um að stjórn- málabaráttan hér sé að taka breytingum, sem muni hafa áhrif til lengri tíma. Hún sé ekki lengur nema að tak- mörkuðu leyti barátta á milli flokka heldur um málefni, sem fólk úr mörgum flokkum sameinast um sín í milli. Getur það verið? Innblásturinn kemur frá landinu sjálfu Kannski ríkisstjórnin ætti að funda við Öskju eða í Þjórsárverum? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Þegar Kristófer Kólumbus fann aft-ur Vesturheim 1492, eftir að Ís- lendingar höfðu týnt álfunni fimm hundruð árum áður, kom hann fyrst að einni eyjunni í eyjaklasa, sem hann nefndi Bahamas og merkir grunnsævi. Mætti því nefna eyjaklasann Grynn- ingar á íslensku. Ein eyjan ber nafnið Paradise Island, og ætti því íslenska nafnið að vera Gimli. Bandarísku sam- tökin Association of Private Enter- prise Education, Samtök um einka- framtaksfræði, héldu ársfund sinn í Gimli á Grynningum í apríl 2019, og flutti ég þar erindi 6. apríl um norræna frjálshyggju, eins og ég hef gert víðar á þessu ári. Norðurlandaþjóðirnar búa að langri og sterkri frjálshyggjuhefð. Til dæmis hafði sænsk-finnski presturinn Anders Chydenius sett fram kenninguna um samband ávinningsvonar og almanna- hags í krafti frjálsrar samkeppni á undan Adam Smith, og frjálslyndir sænskir stjórnmálamenn nítjándu ald- ar beittu sér fyrir víðtækum umbótum, sem hleyptu af stað örum og sam- felldum hagvexti í marga áratugi, og má kalla það fyrstu sænsku leiðina. Velgengni Svía á tuttugustu öld hvíldi eins og annarra Norðurlandaþjóða á öflugu réttarríki, opnu hagkerfi og samheldni og sáttarhug vegna sam- leitni þjóðarinnar. Það var ekki fyrr en árin 1970-1990, sem sænskir jafn- aðarmenn lögðu inn á braut ofurskatta og stórfelldra afskipta af atvinnulífinu. Önnur sænska leiðin, sem farin var 1970-1990, reyndist ófær. Svíar voru lentir öfugum megin á Laffer- boganum svonefnda, þar sem aukin skattheimta hafði ekki í för með sér auknar skatttekjur, heldur minnkandi. Sjá mátti í Svíþjóð þá sviðsmynd, sem Ayn Rand hafði brugðið upp í skáld- sögunni Undirstöðunni (Atlas Shrugged), sem komið hefur út á ís- lensku: Þeir, sem sköpuðu verðmæti, hurfu ýmist á brott, hættu að fram- leiða eða fitjuðu ekki upp á nýjungum. Í einkageiranum urðu nánast engin störf til á þessu tímabili, aðeins í op- inbera geiranum. En nú reyndist Sví- um vel samheldnin og sáttarhugurinn: Með þjóðinni myndaðist óskráð sam- komulag frá 1990 og áfram um að fara þriðju sænsku leiðina, sem felst ekki síst í að efla einkaframtak og halda sköttum í hófi. Geta aðrar þjóðir lært margt af Svíum, eins og ég sagði áheyrendum mínum í Gimli á Grynn- ingum. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Frá Gimli á Grynningum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.