Morgunblaðið - 03.08.2019, Blaðsíða 24
ÁRBÆJARKIRKJA | Sumarhelgi-
stund Árbæjarsafnskirkju kl. 11. Sr.
Þór Hauksson prédikar og þjónar
fyrir altari. Félagar úr kór Árbæjar-
kirkju leiða söng. Kristina Kalló
Szklenár organisti.
Dómkirkja Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á ís-
lensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18, og má.
mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 er vigil-
messa á spænsku og kl. 18 er vigil-
messa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11.
Séra Elínborg Sturludóttir prédikar
og þjónar fyrir altari. Félagar úr
Dómkórnum syngja og Kári Þormar
dómorganisti. Minnum á bílastæðin
við Aþingi.
EFRA-Núpskirkja Miðfirði |
Messa kl. 14 laugardag. Almennur
söngur, saga fyrir börnin og sam-
félag um kaffisopa eftir messu, þar
er öllum heimilt að leggja veitingar í
púkk. Rifjuð upp nokkur íslensk
sönglög. Við hljóðfærið verður Pál-
ína F. Skúladóttir, prestur Guðni Þór
Ólafsson.
GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffi-
húsamessa kl. 11. Séra Guðrún
Karls Helgudóttir prédikar og þjónar,
Hákon Leifsson er organisti og for-
söngvari leiðir söng.
GRENSÁSKIRKJA | Messufrí
vegna sumarleyfa. Næsta messa er
11. ágúst kl. 11. Bent er á guðs-
þjónustur í Bústaðakirkju öll sunnu-
dagskvöld í sumar kl. 20.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti
| Helgistund kl. 20. Prestur er Karl
V. Matthíasson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA |
Vegna sumarleyfa er ekki messa í
Hafnarfjarðarkirkju um verslunar-
mannahelgina.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl.
11. Dr. Sigurður Árni Þórðarson
prédikar og þjónar fyrir altari. Hópur
messuþjóna aðstoðar. Félagar úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti er Kjartan Jósefsson Ogni-
bene. Alþjóðlegt orgelsumar: Tón-
leikar laugard. kl. 12 og sunnud. kl.
17. Lára Bryndís Eggertsdóttir
organisti leikur. Fyrirbænaguðsþjón-
usta þriðjud. kl. 10.30. Árdegis-
messa miðvikud. kl. 8 og tónleikar
Schola cantorum kl. 12. Org-
eltónleikar fimmtud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Séra Helga Soffía Konráðsdóttir
prédikar og þjónar fyrir altari. Organ-
isti er Guðný Einarsdóttir. Samskot
dagsins renna til Blindrafélagsins.
LAUGARNESKIRKJA | Ljóða-
messa kl. 20. Guðsþjónusta hins
talaða orðs – án tónlistar. Skáldin
Bubbi Morthens, Elísabet Kristín
Jökulsdóttir, Ingunn Snædal og
Valdimar Tómasson lesa úr verkum
sínum. Sr. Davíð Þór Jónsson þjón-
ar fyrir altari og prédikar.
LINDAKIRKJA í Kópavogi |
Messa fellur niður 4. ágúst.
NESKIRKJA | Messa kl. 11.
Félagar úr kór Neskirkju leiða söng,
prestur er Steinunn Arnþrúður
Björnsdóttir. Hressing og samfélag
á kirkjutorgi eftir messu. Litir, blöð
og leikföng fyrir yngstu kynslóðina.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós |
Árleg hesta- og útivistarmessa kl.
14. María Gunnarsdóttir guðfræð-
ingur og hestakona predikar. Guð-
mundur Ómar Óskarsson leiðir söng
og kór. Ritningarlestra lesa Gríma
Huld Blængsdóttir og Sigríður Klara
Árnadóttir. Arna Grétarsdóttir
sóknarprestur þjónar fyrir altari.
Pallakaffi og kleinur við prestssetrið
eftir messuna.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Guðs-
þjónusta og altarissakramenti kl.
11. Séra Skírnir Garðarsson predik-
ar og þjónar fyrir altari. Jón Bjarna-
son organisti leikur á orgel og flutt
verða tónlistaratriði frá Sumartón-
leikum í Skálholti. Elfa Rún Krist-
insdóttir leikur barokktónlist á fiðlu.
VALÞJÓFSSTAÐARKIRKJA |
Messa kl. 20. Sr. Ólöf Margrét
Snorradóttir þjónar. Organisti Jón
Ólafur Sigurðsson.
ÞINGVALLAKIRKJA | Útimessa við
Skötutjörn austan við Þingvallakirkju
kl. 14. Guðmundur Vilhjálmsson
organisti og Vilhjálmur Guðmunds-
son leika á básúnu forspil og eft-
irspil og leiða almennan sálma-
söng. Kristján Valur Ingólfsson
predikar og leiðir messuna. Dagur
Fannar Magnússon guðfræðingur
annast lestra og bænir. Með þess-
ari messu lýkur Kristján Valur fimm-
tán ára þjónustu sinni á Þingvöllum.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Strandarkirkja, Árnessýslu.
Orð dagsins: Jesús
mettar 4 þús. manna.
(Mark. 8)
24 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019
✝ Pétur WilhelmJóhannsson
fæddist í Keflavík
23. maí 1945. Hann
lést á hjúkr-
unarheimilinu Ísa-
fold 8. júlí 2019.
Foreldrar Péturs
voru Jóhann B. Pét-
ursson, klæðskeri
og póstmeistari frá
Bakkagerði við
Reyðarfjörð, f. 28.4.
1920, d. 19.9. 2013, og Kristrún
Líney Helgadóttir frá Hlíðarenda
á Eskifirði, f. 14.9. 1923, d. 18.5.
2008. Systkin Péturs eru: 1)
Óskírður drengur, f. og d. 1947.
2) Guðrún Rósalind, f. 1950, son-
ur hennar er Jóhann. 3) Helgi, f.
1951, d. 2017, maki Hjördís
Bjarnason. Börn þeirra eru a)
Gunnar Fjalar, maki Kristrún
Kristjánsdóttir og eiga þau þrjú
börn, b) Óttar Örn, maki Þor-
gerður Einarsdóttir og eiga þau
þrjú börn, c) Hallur Már. 4) Sóley
Enid, f. 1956 og á hún soninn
Sindra Tryggvason, maki Unnur
Börn þeirra eru a) Andri Pétur,
f. 1998, og b) Arnar Hugi, f.
2006. 3) Bryndís, f. 5.3. 1976,
maki Sverrir Jan Norðfjörð, f.
1976. Börn þeirra eru a) Hákon
Jan, f. 2002, b) Pétur Wilhelm, f.
2006, og c) Haukur Artúr, f.
2013.
Pétur var rafvélavirki að
mennt. Á fyrstu árum starfsævi
sinnar starfaði hann hjá krana-
fyrirtæki föður síns. Þar á eftir
vann hann hjá Brunabótafélagi
Íslands í Keflavík. Pétur stofnaði
fyrirtækið Ísbrek ehf. sem fékk
til liðs við sig skáta og hjálp-
arsveitir til að safna saman net-
um um allt land sem svo voru
flutt út til endurvinnslu. Þar á
eftir stofnaði hann Dansstúdíó
Sóleyjar ásamt systkinum sínum,
Sóleyju og Helga, þar sem hann
gegndi stöðu framkvæmdastjóra.
Vann hann þó lengst af á krana
og stofnaði G.P. Krana ehf.
ásamt vini sínum Gunnþóri Krist-
jánssyni. Á sínum síðustu árum
var hann fjárfestir og fékkst við
ýmis verkefni því tengd.
Pétur var einn af stofnendum
Kiwanisklúbbs Keflavíkur, fé-
lagsmaður í Rótarýhreyfingunni
og einnig var hann virkur félags-
maður í Oddfellowreglunni.
Útför Péturs hefur farið fram
í kyrrþey.
Skúladóttir og eiga
þau tvö börn. 5) Jó-
hann (kjörsonur), f.
1969, sambýliskona
Hallgerður Jóns-
dóttir og á hann
þrjú börn.
Pétur kvæntist
hinn 14.8. 1971 Sig-
rúnu Jónatans-
dóttur, f. 19.2. 1948.
Foreldrar hennar
voru Jónatan Guð-
brandsson og Guðmunda K. Guð-
mundsdóttir. Börn Péturs og Sig-
rúnar eru: 1) Þórarinn Gunnar, f.
2.7. 1966, maki Kristín Þórðar-
dóttir, f. 1965. Börn þeirra eru a)
Sigrún Harpa, f. 1987, sambýlis-
maður Andri Sigþórsson, f. 1987,
og eiga þau soninn Hrafn Leó. b)
Elín Ástrós, f. 1992, maki Þór
Tómasarson, f. 1992, og eiga þau
soninn Hlyn. c) Helena Sóley, f.
1995, sambýlismaður Hrannar
Már Ómarsson, f. 1990, og eiga
þau dótturina Sóllilju. 2) Hjördís
Líney, f. 17.4. 1972, maki Hafþór
Hafsteinsson, f. 1966 og d. 2009.
Tíminn flýgur áfram og hann teymir
mig á eftir sér
og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert
hann fer.
En ég vona bara að hann hugsi svolítið
hlýlega til mín
og leiði mig á endanum aftur til þín.
Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki
við hlið mér
og ég sakna þín á daginn þegar sólin
brosir við mér.
Og ég sakna þín á kvöldin þegar
dimman dettur á.
En ég sakna þín mest á nóttinni er
svipirnir fara á stjá.
Svo lít ég upp og sé við erum saman
þarna tvær
stjörnur á blárri festingunni sem fær-
ast nær og nær.
Ég man þig þegar augu mín eru opin,
hverja stund.
En þegar ég nú legg þau aftur fer ég á
þinn fund.
(Megas)
Hvíldu í friði, ástin mín.
Þín alltaf,
Sigrún.
Elsku yndislegi pabbi minn og
afi sona minna er fallinn frá.
Betri pabba/afa var ekki hægt að
hugsa sér. Það var vel við hæfi að
nafn hans þýði klettur því það var
hann sannarlega í lífi okkar.
Hann var svo góður og vand-
aður maður, alltaf tilbúinn fyrir
alla alveg sama hvað var. Hann
gaf mér yndislegt líf og kenndi
mér svo margt gott sem ég er
óendanlega þakklát fyrir. Mér er
efst í huga sú lexía að geyma allar
áhyggjur til miðvikudags, því
þegar miðvikudagurinn kæmi
væri yfirleitt ekki lengur ástæða
til að hafa áhyggjur. Einnig lagði
hann mikla áherslu á að taka því
aldrei sem sjálfsögðum hlut ef
fólk fór úr vegi sínum við að að-
stoða mann. Hann kenndi mér að
deyja aldrei úr ráðaleysi, það
væru alltaf lausnir. Einnig
kenndi hann mér að vera tillits-
söm, heiðarleg og traust, sem
hann var gangandi dæmi um
sjálfur.
Þegar ég var lítil fannst mér
ekkert skemmtilegra en að fá að
fara með pabba í vinnuna á kran-
anum. Ég var viss um að hann
hefði nefnt kranann eftir mér því
á honum stóð stórum stöfum PH,
hann var líka ekkert að leiðrétta
þetta hjá mér. Eða þegar við fór-
um að safna netunum, það var
svo gaman bara af því að vera
með honum að vinna. Það var
ekkert sem hann gat ekki gert og
allt sem hann gerði gerði hann
vel. Til dæmis þegar hann var að
mála var allt fullkomið og ekki
dropi af málningu á honum. Allt-
af fannst mér ég verða að bera
undir hann áður en ég tók mik-
ilvægar ákvarðanir í lífinu því
hann var svo ráðagóður. Hann
var geðgóður lúmskur húmoristi
með mjög kaldhæðnislegan húm-
or.
Ég hef alltaf verið svo stolt af
því að vera dóttir hans og það er
þungt að kveðja hann ekki nema
74 ára gamlan. Ég hugga mig við
að Haffi minn tekur á móti hon-
um og passar upp á hann, þeir
voru svo nánir vinir. Minning
hans lifir, hans verður ávallt
saknað.
Hvíl þú í friði, elsku pabbi
minn.
Þín
Hjördís Líney.
Það þarf sérstakan mann til að
taka að sér fjögurra ára gamalt
barn og elska það skilyrðislaust
sem sitt eigið. Ég heyri það oft að
við séum svo líkir. Meira hrós er
ekki hægt að hugsa sér. Ég á eft-
ir að sakna þín, elsku pabbi minn.
Þórarinn G. Pétursson.
Elsku góði og yndislegi pabbi
minn,
Það er svo sárt að kveðja þig
þó að ég viti að síðustu ár hafi
verið þér erfið og þó að ég viti að
þetta er það sem þú hefðir viljað,
þá er samt svo mikill söknuður.
Það er svo skrýtið að ég man þig
allt í einu eins og þú varst fyrir
bara nokkrum árum, áður en
veikindin fóru að herja svo
ósanngjarnlega á þig. Alltaf glað-
ur, komst til okkar skælbrosandi,
opnaðir faðminn og við hlupum í
hann, faðmlagið svo traust og
þétt.
Þó að sorgin sé sár er samt
ekki hægt annað en að brosa og
fyllast af þakklæti þegar ég
hugsa til þín, því eftir sitja svo
yndislegar minningar um dýr-
mætar stundir. Skautaferðir, þar
sem þú dróst okkur út um allt við
mikil hlátrasköll, skíðaferðir í
Bláfjöllum um helgar, skíðaskóli,
söngur og dans í Kerlingarfjöll-
um, hjólhýsaferðir og útilegur,
Krumshólar og gönguferðirnar
með þér og afa þegar enn þá
mátti veiða lax með netum, þvílík
spenna að sjá hvað var komið í
netin, spilakvöldin og -stundirnar
þar sem þú kenndir mér öll trixin
þín, sumarbústaðarstundir þar
sem þú naust þín svo mikið við að
hlúa að garðinum og húsinu og
grilla svo eitthvað gott því þú
varst auðvitað bestur í því, ferða-
lögin erlendis, jólin, aðfangadag-
ur, þegar þú komst með pakkana
og fékkst þér hádegismat með
okkur, allar litlu samverustund-
irnar sem allt í einu eru orðnar
svo risastórar og ómetanlegar.
Sem viðskiptamaður varstu
frumkvöðull, þú stofnaðir fyrir-
tæki sem safnaði netum saman til
að hægt væri að endurvinna, þú
stofnaðir annað fyrirtæki með
systkinum þínum og svo ákvaðst
þú að byrja aftur að vinna á
krana, byrjaðir með einn krana
sem, í samstarfi með góðum vini,
varð að stærsta kranafyrirtæki
landsins. Ég veit að viðskiptavin-
ir þínir fengu líka að njóta þess á
jólum og áramótum þegar þú
færðir þeim gjafir í þakklætis-
skyni fyrir viðskiptin á árinu.
Ég man líka hvað þú varst allt-
af heiðarlegur og kunnir að meta
það góða í fólki. Aldrei kvartaðir
þú, þú tókst hlutunum eins og
þeir voru og sást alltaf það besta í
öllu og öllum sem er svo mikill
lærdómur fyrir okkur sem þú
kenndir og leiðbeindir. Þú varst
svo hjálpsamur og alltaf fyrstur á
staðinn ef vantaði hjálp. Þegar
við vorum að flytja varst þú alltaf
mættur fyrstur, meira að segja
stundum á undan okkur, og áður
en maður vissi af var búið að gera
allt sem þurfti. Ekkert óx þér í
augum og áttir þú ráð við öllu.
Þú elskaðir góðan mat og nýj-
ar íslenskar kartöflur voru að
þínu mati algert sælgæti! Þú
ræktaðir þínar kartöflur í Vatns-
holtinu og í bústaðnum því ekk-
ert var betra en nýuppteknar
kartöflur. Þú elskaðir að dansa
og gast leitt mann hvert sem var,
alltaf var maður í öruggum hönd-
um. Þú elskaðir börnin þín,
barnabörnin og barnabarnabörn-
in. Litlu afastrákarnir þínir elsk-
uðu að vera hjá þér, spila við þig,
spjalla eða bardúsa eitthvað með
besta afa í heimi. Þú elskaðir
mömmu af öllu hjarta og það sást
langar leiðir, ég man hvað mér
leið vel að sjá ykkur dansa sam-
an, hvað mér fannst þið glæsileg,
ég veit að þið dönsuðuð oft tvö
saman í bústaðnum. Hvað þið
elskuðuð að njóta lífsins saman.
Á erfiðum stundum sem þess-
um sé ég þig fyrir mér koma til
mín, horfa í augun mín, taka þétt
í hendurnar mínar, segja mér að
þetta verði allt í lagi og faðma
mig svo að þér þangað til að ég
finn að það verði allt í lagi.
Ég elska þig alltaf elsku pabbi,
Bryndís.
Elsku Pétur tengdapabbi, ég
þekkti þig meirihluta ævi minn-
ar, eða allt frá því ég tengdist
fjölskyldunni á menntaskólaár-
um okkar Bryndísar. Frá okkar
fyrstu kynnum man ég eftir þér
sem jákvæðum og hlýjum manni
sem tók mér með opnum örmum
og kom vel fram við allt og alla.
Þú hafðir svo marga góða
mannkosti að geyma, en mér
verður sérstaklega hugsað til
þess hve skemmtilegur þú varst,
útsjónarsamur, gjafmildur og
auðvitað hjálpsamur. Það er nán-
ast með ólíkindum hversu oft þú
lagðir okkur lið við að gera upp
ólík heimili okkar í gegnum tíð-
ina. Þú eyddir ekki aðeins
löngum stundum með okkur við
hin ýmsu verk, heldur komstu
ávallt óumbeðinn og til í slaginn
og vissir strax upp á hár hvað var
best að gera.
Þú varst frábær fyrirmynd að
öllu leyti og ég veit að afastrák-
arnir þínir munu einnig njóta
góðs af því, ekki aðeins þegar
þeir eldast, heldur líka þegar við
rifjum upp hvað afi Pétur gerði
alltaf mikið fyrir okkur og það
kemur í okkar hlut að hjálpa
næstu kynslóð.
Sverrir Jan Norðfjörð.
Elsku afi, við söknum þín
óendanlega mikið. Þú varst stór
áhrifavaldur í lífi okkar beggja og
við vildum að þú gætir verið við
okkar hlið að eilífu. Hvort það var
að deila bíladellu okkar eða bara
ræða um lífið og hlæja. Þú skilur
eftir ótaldar góðar minningar
sem við gleymum aldrei. Þú varst
alltaf tilbúinn að hjálpa, örlátur
og fróður í alla staði. Við vitum að
þú munt fylgjast með okkur og
leiðbeina okkur þegar á reynir.
Við munum reyna okkar besta
til að vera eins góðir menn og þú
varst.
Þínir afastrákar
Andri Pétur og Arnar Hugi.
Elsku besti afi minn.
Þegar ég hugsa til barnæsku
minnar standa hvað hæst sumur-
in í sumarbústaðnum hjá þér og
ömmu. Að vera úti að leika og þú
að vinna í garðinum. Ég sé þig
fyrir mér standa í stuttermabol
með derhúfu hjá vinnuskúrnum
þínum, haldandi í hjólbörur. Þú
varst alltaf að, hvort sem það var
að slá grasið, klippa trén, bera á
pallinn eða hvað það var. Smíð-
aðir rólur, sandkassa og dúkku-
hús handa okkur barnabörnun-
um úti í garði. Gróðursettir lítið
grenitré með mér sem ég fékk að
eiga og fylgjast með vaxa. Þú
kenndir mér að skíða og á pásk-
unum fórstu oft með mig upp í
fjall að æfa mig. Skíðaferðirnar
með þér og ömmu eru með eft-
irminnilegustu ferðalögum mín-
um.
Þú hafðir líka alltaf áhuga á
því sem maður var að gera og
sýndir því stuðning. Útvegaðir
mér vinnustofu þegar ég var að
mála og hjálpaðir okkur vinkon-
unum þegar við gerðum upp lít-
inn almenningsgarð fyrir
Reykjavíkurborg. Þú hafðir gam-
an af að skoða verkefnin mín þeg-
ar ég var komin í arkitektúrnám-
ið og líka seinna þegar ég var
farin að vinna og þú orðinn veik-
ur.
Þú varst líka húmoristi, alltaf
að grínast og stríða og fíflast í
okkur krökkunum. Þegar við vor-
um lítil heilsaðirðu okkur með því
að lyfta okkur upp og henda okk-
ur upp í loft, kitla okkur eða snúa
okkur á hvolf. Þú varst alltaf
hress og glaður, aldrei man ég
eftir afa í slæmu skapi. Ég þekki
fáa með álíka jafnaðargeð og þig.
Þegar ég var barn sagði
mamma einu sinni við mig að
seinna myndi ég átta mig á því
hvað Pétur afi væri einstaklega
Pétur Wilhelm
Jóhannsson
Minningar