Morgunblaðið - 03.08.2019, Síða 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019
✝ Bára Guð-mundsdóttir
fæddist 3. septem-
ber 1936 á Bjargi,
Eskifirði. Hún and-
aðist á Hjúkrunar-
heimilinu Huldu-
hlíð á Eskifirði 24.
júlí 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Guðmund-
ur Karl Stefánsson
frá Borgum,
Reyðarfirði, f. 2.4. 1895, d. 15.6.
1976, og Jóhanna Kristín
Magnúsdóttir frá Bæjarstöðum,
Stöðvarfirði, f. 15.3. 1904, d. 8.2.
1996.
Systkini Báru eru Stefán Við-
ar Guðmundsson, f. 9.6. 1927, d.
30.4. 1979, Anna María Guð-
mundsdóttir, f. 22.3.1929, d.
10.10. 2010, Sæbjörn Reynir
Guðmundsson, f. 27.10. 1930, og
Guðmundur Kristinn Guð-
mundsson f. 21.9. 1933.
Bára giftist 26. janúar 1957
Óla Fossberg Guðmundssyni frá
Akureyri, f. 13.5. 1936, d. 18.9.
2010. Foreldrar hans voru Guð-
rún Indíana Árnadóttir og Guð-
mundur Pétursson.
Börn Báru og Óla eru: Jó-
hanna María Káradóttir, f. 16.9.
1953, maki Jónas Wilhelmsson
Jensen, f. 21.7. 1954, eiga þau
þrjá syni og tíu barnabörn; Árni
Sæbjörn Ólason, f. 26.10. 1957,
maki Fanney Linda Krist-
insdóttir, f. 30.1. 1957, eiga þau
tvo syni og fjögur barnabörn;
Matthildur Óladóttir, f. 17.8.
1959, maki Benedikt Jón
Hilmarsson, f. 21.5.
1957, d. 15.3. 2018,
eiga þau þrjú börn
og tvo barnabörn;
Guðný Harpa Óla-
dóttir, f. 31.3. 1961,
maki Sigurður
Lárusson, f. 6.9.
1965, á Guðný
Harpa tvo syni og
sex barnabörn;
Ragnar Þór Ólason,
f. 7.6. 1962, maki
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, f.
21.4. 1972, eiga þau þrjú börn;
Óli Fjalar Ólason, f. 18.5. 1964,
d. 23.2. 2018, maki Anna Kristín
Magnúsdóttir, f. 25.1. 1966, eiga
þau þrjú börn og eitt barnabarn;
Guðmundur Karl Ólason, f. 7.4.
1968, maki Elín Hauksdóttir, f.
1.9. 1968, eiga þau fjögur börn
og þrjú barnabörn; Hulda Krist-
ín Fossberg Óladóttir, f. 24.10.
1969, maki Andrés Kolbeinn
Steingrímsson, f. 9.12. 1965,
eiga þau tvö börn og þrjú barna-
börn; Þórey Mjöll Fossberg Óla-
dóttir, f. 26.4. 1971, maki Marjan
Cekic, f. 18.12. 1970, eiga þau
tvo syni; Erla Rut Fossberg Óla-
dóttir, f. 18.3. 1975, maki Davíð
Örn Helgason, f. 30.5. 1978, eiga
þau þrjú börn; og
Alda Björk Fossberg Óla-
dóttir, f. 14.6. 1977, maki Har-
aldur Harðarson, f. 12.3. 1975,
eiga þau þrjú börn.
Bára var fædd og uppalin á
Eskifirði og sinnti hún ýmsum
störfum um ævina. Útförin hef-
ur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Elsku mamma.
Stórt skarð hefur verið höggvið
í stórfjölskylduna.
Ekki óraði mig fyrir því þegar
við Daníel og Stefán komum að
heimsækja þig á spítala í Nes-
kaupstað í byrjun júlí og kyssa þig
bless áður en við færum í fríið
okkar til Serbíu, að þú myndir
ekki ná þér upp úr veikindunum,
því þegar þú lentir á spítala
komstu alltaf tvíefld til baka.
Þú varst orðin svolítið spennt
að fara að flytja í Hulduhlíð.
Þegar ég hringdi í þig frá Serbíu
sagðir þú mér að þú ætlaðir að
leyfa stelpunum að ráða hvernig
dótinu þínu yrði stillt upp í Slotinu
þínu eins og þú kallaðir herbergið
þitt. En því miður náði ég ekki að
koma að heimsækja þig þangað
því þú stoppaðir stutt þar.
Það voru mjög erfiðir dagar hjá
mér úti þegar þú varst orðin
svona veik og ég vissi að ég kæm-
ist ekki til þín í tæka tíð, en við
náðum að spjalla nokkrum sinn-
um saman í myndspjalli, stelpurn-
ar sáu til þess.
Ég veit að þú hafðir miklar
áhyggjur af okkur stelpunum
þegar þú færir því við vorum svo
háðar þér, en við ætlum að standa
okkur, við hlúum hvert að öðru,
við erum sko aldeilis ekki einar.
En það verður skrítið að geta ekki
hringt í þig og fengið ráð hjá þér
því þú varst með ráð við öllu.
Handlagnari manneskju er ekki
hægt að finna, það lék allt í hönd-
unum á þér. Það var sko aldrei
komið að tómum kofunum hjá
þér. Það verður skrítið að fara
ekki til þín á hverju kvöldi eins og
ég hef gert eftir að pabbi dó til að
stytta þér stundir og fara með þig
á rúntinn og fá ís eða heimsend-
ingu á shake þegar þú treystir þér
ekki út.
Þú varst frábær amma og alltaf
tilbúin að passa strákana mína.
Strákarnir mínir eiga þér margt
að þakka, minnast þín sem ömmu
sem gat allt, renndir ruggustóla,
smíðaðir barnastóla sem öll
ömmu- og langömmubörnin hafa
dröslað um allt hús og alltaf áttir
þú nóg af hlaupi handa þeim í
búrinu þínu. Nú er komið að
kveðjustund. Það er sárt að missa
þig og mun ég alltaf sakna þín.
Eftir standa hins vegar svo marg-
ar góðar og skemmtilegar minn-
ingar um þig sem munu ylja mér
og fjölskyldu minni á þessari erf-
iðu stundu. Elsku mamma, ég veit
að þeir hafa tekið vel á móti þér
pabbi og Fjalar og eru ánægðir að
hafa fengið drottninguna sína til
sín.
Elsku besta og fallega mamma
mín, takk fyrir allt saman. Ég
mun elska þig að eilífu.
Þórey Mjöll.
Elsku mamma og tengda-
mamma. Það er skrítið að hugsa
til þess að við eigum aldrei aftur
eftir að heyra í þér, þau voru ófá
löngu og skemmtilegu símtölin
sem við áttum við þig. Þegar þú
varst stödd úti í Svíþjóð að fagna
60 ára afmælinu þínu ákváðum við
að gifta okkur og eiga þann dag
með þér, daginn þar áður vissum
við að Ella gengi með alnöfnu þína
Báru Guðmundsdóttur. Það var
svo margt sem þú kenndir okkur
og öll ráðin sem við fengum frá
þér. Það var alltaf jafn gaman að
fá ykkur pabba til okkar norður á
Akureyri, þá var Ella búin að vera
á fullu í þrifum og bakstri til að
taka á móti höfðingjunum að aust-
an. Það voru góðir tímar þegar við
bjuggum fyrir austan í Fossdaln-
um, þar sem mörg af börnunum
ykkar bjuggu á sama blettinum.
Alltaf gott að koma til ykkar á
Túngötuna og þótti krökkunum
okkar alltaf svo gott að fara í búr-
ið hjá ömmu Báru, þar var alltaf
til nóg að borða. Þú stóðst þig eins
og hetja í veikindum þínum og er
þín sárt saknað.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Elskum þig,
Guðmundur og Elín
(Gummi og Ella).
Bára
Guðmundsdóttir
SJÁ SÍÐU 28
um stundum saman. Hann var
fljótur að bregðast við þegar
við Yngvi lentum í vandræðum
með gömlu bílana okkar sem og
að standsetja íbúðina þegar við
byrjuðum að búa enda áttaði
hann sig á því að við vissum svo
miklu minna um svona mál en
hann, enda algjör snillingur í
höndunum.
Ég mun sakna þess mikið að
fá pabba í heimsókn, oftar en
ekki var hann í fréttaleit –
hvort framkvæmdir og viðhald
á húsinu væri ekki örugglega í
lagi, hvernig vinnan okkar
Yngva gengi, hvort börnunum
liði ekki öllum vel og hvort að
allt gengi í haginn hjá okkar
nánasta fólki. Hann vildi hafa
stöðuna á sínu fólki á hreinu,
hvað væri títt og hvað væri
fram undan og fann maður allt-
af að fólkið hans skipti hann
öllu.
Það var alveg sérstaklega
gaman að bjóða pabba í mat
enda mikill matmaður og fannst
gaman að prófa nýja rétti.
Hann var félagslyndur,
skemmtilegur, stríðinn og það
var hægt að smella honum inn í
hvaða veislu sem er, hann gat
talað við fólk um heima og
geima. Pabbi var klár, vel les-
inn, stundum þver og tók oft
ákveðna afstöðu bara til að
koma líflegum umræðum í
gang.
Þegar ég var lítil hafði pabbi
heldur betur verk að vinna,
hann var mikið úti á sjó og var
því lítið slappað af. Það breytt-
ist í raun aldrei. Hann sást
ennþá uppi á húsþökum og ofan
í vélarrúmi báta og bíla þótt
rúmlega sjötugur væri. Hann
gaf sér þó í seinni tíð tíma til að
setjast niður með barnabörn-
unum til að leika og lesa fyrir
þau. Þeim stundum munum við
aldrei gleyma og munu krakk-
arnir sakna elsku afa mikið.
Ég er langyngsta barnið og
fékk því mörg tækifæri til að
ferðast með mömmu og pabba,
bæði hér heima og erlendis.
Alltaf var gaman og munu
minningarnar lifa um ókomna
tíð. Pabbi kunni ekki að meta
bruðl. Ferðir í sjoppur eða á
veitingastaði voru ekki hluti af
dagskránni heldur var nesti,
skonsur og skinkusalat, sem
mamma útbjó, tekið með og
borðað oftar en ekki uppi á
tjaldvagninum.
Pabbi lét sér aldrei leiðast eft-
ir að hann hætti að vinna. Hann
ferðaðist um á vespunni sinni,
stundaði fiskveiðar á bátnum
sínum og hélt bæði heimilinu og
sumarbústaðnum í toppstandi.
Ég er mjög þakklát fyrir þau
77 ár sem pabbi lifði, þakklát
fyrir allt sem hann kenndi mér,
þau gildi sem hann lifði eftir og
ekki síst fyrir að hafa leitt mig
inn kirkjugólfið þegar ég gifti
mig.
Elsku pabbi, takk fyrir alla
hjálpina, fyrir alla umhyggjuna,
fyrir skemmtilegu nærveruna og
fyrir allan hláturinn. Takk fyrir
skemmtilegu umræðurnar, fyrir
ferðalögin okkar og fyrir allan
kærleikann. Eftir lifir minningin
um frábæran pabba, tengda-
pabba og afa. Við munum sakna
þín svo mikið, elsku besti.
Þín dóttir,
Linda.
Jón Bóasson er látinn eftir ill-
vígan sjúkdóm. Ég kveð með
söknuði kæran mág minn og vin
sem farinn er yfir móðuna
miklu, ferðina sem okkur öllum
er ætluð.
Við Bára horfum yfir farinn
veg og hugsum til þess að við
höfum átt samleið með Jóni í
hartnær sextíu ár án þess að
skugga bæri á. Jón Bóasson var
sá sem alltaf var hægt að leita til
er á þurfti að halda. Við kveðj-
um Jón með mikilli virðingu og
þakklæti fyrir vináttu hans,
hjálpsemi og góða samveru m.a.
á ferðalögum okkar innanlands
sem utan.
Við vottum Sigrúnu systur,
börnunum og fjölskyldum
þeirra okkar dýpstu samúð.
Helgi Steinar og Bára.
Það var afdrifaríkt fyrir fjöl-
skyldu Jóns þegar mamma
hans, Emma, varð ekkja aðeins
33 ára með sex börn. Elsta
barnið 12 ára og þrjú börn und-
ir tveggja ára. Faðir hans, Jón
Helgi Líndal, hafði verið til
lækninga á Ríkisspítalanum í
Kaupmannahöfn en þar var
einnig fyrrverandi vinnufélagi
hans úr Vélsmiðjunni Héðni,
Bóas Pálsson. Sögur herma að
Jón Helgi og Bóas hafi rætt sín
á milli að ef allt færi á versta
veg þá myndi Bóas létta undir
með konu og börnum, en Bóas
og eiginkona hans Ásta voru
barnlaus. Jón Helgi virðist hafa
haft það á tilfinningunni að
hann ætti ekki afturkvæmt. Úr
varð að Jón, sem við fjölskyldan
köllum alltaf Nonna bró, flutti
til þeirra hjóna. Þegar fram liðu
stundir reyndust þessar breyt-
ingar honum erfiðar, sem eðli-
legt er. Stöku sinnum fór Sædís
litla systir hans og fékk að gista
hjá Nonna bróður sínum. Ég,
Maggi hennar Sædísar, hef
upplifað þennan sterka streng á
milli þeirra Sædísar og Nonna
bró sem sennilega má rekja til
þessa tímabils. Nonna bró hef-
ur alltaf verið umhugað um
systur sína og fjölskyldu henn-
ar. Alltaf vakandi yfir og tilbú-
inn til að aðstoða okkur. Þegar
sonur okkar sem býr í Svíþjóð
kom hingað í sumarfrí með fjöl-
skyldu sína fannst Nonna bró
sjálfsagt að lána þeim ferðabíl
sinn af gerðinni Volkswagen-
rúgbrauð.
Þeir bræður Sævar og Nonni
voru samskipa hjá Skipaútgerð
ríkisins, Sævar stýrimaður og
Nonni vélstjóri. Samband
þeirra bræðra styrktist, en
Sævar veiktist alvarlega og
varð óvinnufær sökum veikinda
sinna. Nonni bró hætti svo til
sjós og gerðist umsjónarmaður
hjá Háskóla Íslands. Ég minn-
ist þess þegar Nonni sagði frá
því að HÍ hefði borist tilboð í
gluggaþvott á byggingu sem
var í hans umsjá. Þótti honum
tilboðið vera of hátt. Þessi röski
maður fór þá heim og náði í
þvottagræjurnar sínar og lauk
verkinu með hag skólans að
leiðarljósi, sem er lýsandi fyrir
hann.
Þegar Sævar komst á ról
stakk Nonni bró upp á því að
þeir bræður fengju sér hvor
sína vespuna. Það var alveg
magnað að fylgjast með því hve
jákvæð áhrif það hafði á þá
báða, vinátta þeirra efldist
mjög og Sævar naut lífsins bet-
ur.
Síminn hringir. Nonni bró er
í símanum. Nonni hefur hringt
mjög reglulega síðustu ár í
systur sína Sædísi og rétt eins
og þegar við höfum hist þá spyr
hann um velferð og líðan allra í
fjölskyldunni. Hann hefur
fylgst með mér og veikindum
mínum af gaumgæfni og ástúð.
Nonni bró var gæddur einstakri
gæsku og velvild í garð ann-
arra.
Það hvarflaði ekki að okkur
þegar við hittumst í maíbyrjun
að Nonni bró væri orðinn fár-
veikur. Það var algjör fjar-
stæða. Þessi stóri og stælti
maður. Nærgætinn og innilegur
eins og alltaf. „Hann er mesti
dugnaðarforkur sem ég hef
kynnst og lætur ekki aldurinn
hægja á sér, enda sést ennþá til
hans uppi á húsþökum,“ segir í
færslu Lindu dóttur hans á fés-
bókinni á 75 ára afmæli hans.
Það er mjög góð lýsing á
Nonna bró.
Takk fyrir samfylgdina og
innilegar samúðarkveðjur til
ykkar allra.
Blessuð sé minning Nonna
bró.
Magnús Guðmundsson
(Maggi mágur).
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
FALLEGIR LEGSTEINAR
Verið velkomin
Á góðu verði
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Opið: 10-17 alla virka daga
ÁRNI GUÐMUNDSSON
frá Beigalda,
er látinn.
Útförin verður auglýst síðar.
Steinunn Þórdís Árnadóttir
Alda Árnadóttir
Sesselja Árnadóttir Eggert Aðalsteinn Antonsson
Guðmundur Árnason Ragna Sverrisdóttir
Lilja Árnadóttir Jón Bjarnason
Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir,
SIGURÐUR MAGNASON
læknir,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 21. júlí.
Útförin fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi
fimmtudaginn 8. ágúst klukkan 13.
Stofnaður hefur verið sérstakur söfnunarreikningur fyrir dætur
Sigurðar, fyrir þá sem vilja minnast hans: 0537-14-002470,
kt. 010274-3389.
María og Lilja Sigurðardætur
Signý Sæmundsen
Anna Lilja Sigurðardóttir
Borgar Magnason
Magni Hjálmarsson og Anna Þóra Karlsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BRYNHILDUR JÓNSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 25. júlí.
Útför hennar fer fram frá Áskirkju
þriðjudaginn 6. ágúst klukkan 13.
Guðný Jóna Gunnarsdóttir Haraldur Þráinsson
Hulda Maggý Gunnarsdóttir Ingvar Björn Ólafsson
Björn, Brynhildur, Þráinn,
Birna Ruth, Sóley, Gunnar Sær
og langömmubörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
PÉTUR WILHELM JÓHANNSSON,
lést á Ísafold 8. júlí. Útför hans fór fram í
kyrrþey. Ástvinir þakka samúð og vinarhug.
Sigrún Jónatansdóttir
Þórarinn Gunnar Pétursson Kristín Þórðardóttir
Hjördís Líney Pétursdóttir
Bryndís Pétursdóttir Sverrir Jan Norðfjörð
barnabörn og barnabarnabörn