Morgunblaðið - 03.08.2019, Side 29

Morgunblaðið - 03.08.2019, Side 29
besta manneskja í heimi. Þú kenndir mér svo margt, t.d. að prjóna, tálga, föndra og sauma og svo fullt fleira, enda fannst mér það algjör heiður að vera skírð Bára í höfuðið á þér. Þú varst sterkasta manneskja í heimi og al- gjör hetja í augum okkar allra. Ég veit að afi, Fjalar, Benni og allir hinir sem eru farnir tóku vel á móti þér, það er gott að þú finnur ekki til lengur. Ég vil ekki trúa því að þú sért búin að yfirgefa þennan heim og ég muni ekki sjá þig aft- ur. Þess vegna er ég svo þakklát fyrir allar minningarnar. Hvíldu í friði elsku besta amma mín, þín verður svo sárt saknað. Elska þig, þín Hildur Bára Fossberg. Yndislega amma mín, ég veit ekki hvar ég á að byrja. Ég vil þakka þér fyrir allar þær stundir sem þú eyddir með mér. Orð fá því ekki lýst hversu mikið ég mun sakna þín en ég veit að þú ert á betri stað núna. Það mun taka tíma að venjast því að keyra framhjá Túngötu 2 vitandi það að þú sért ekki lengur þar. Ég gleymi aldrei því sem þú hefur kennt mér, hvorki því sem ég lærði inni á litlu listastofunni þinni né því sem gerir mig að betri manneskju. Ég elska þig enda- laust. Hvíldu í friði, elskan mín. Stefán Bjarki Cekic. Elsku amma, skrítið að hugsa til þess að þú sért dáin og að ég komi ekki aftur í heimsókn til þín út á Túngötu. Mér fannst svo gaman að koma til þín í sumar til þess að horfa á fótboltaleiki í stóra sjónvarpinu þínu. Öll ferðalögin sem þú fórst í með okkur, mér fannst svo gaman að hafa þig með og fá að heyra sögurnar þínar. Þegar mamma og pabbi fóru til Dublin rétt fyrir jól vorum við Hildur Bára hjá þér, það var best að vera hjá þér elsku amma. Stundum kom ég labbandi heim til þín eftir skóla, þú gafst mér alltaf eitthvað gott að borða og á ég eftir að sakna þess mikið að fá þig ekki til okkar í föstudagspíts- una. Ég á fullt af minningum um þig elsku amma, þær munu fylgja mér alla ævi. Ég er stoltur af því að vera þrítugasta og yngsta barnabarnið þitt. Elska þig amma, þinn Hörður Breki Fossberg. Þá er víst komið að kveðju- stund, elsku amma mín. Tilhugs- unin að fá aldrei að hitta þig aft- ur, spjalla við þig og fá þín frábæru ráð er mjög erfið. Þú hafðir svo góða nærveru, manni leið alltaf vel í kringum þig og verð ég ævinlega þakklát fyrir að hafa fylgt þér seinasta spölinn. Ég var ekki gömul þegar ég gisti fyrst hjá ykkur afa og var ég tíð- ur næturgestur. Við mamma vorum mjög heimakærar hjá ykkur þegar pabbi var á sjó og þá var ýmislegt skemmtilegt brall- að. Núna er ég flutt á Akureyri og ætla að taka við keflinu hans afa þar, ég veit að Akureyri átti alltaf stað í hjarta ykkar afa. Takk fyrir allt, elsku amma mín, þvílík kona sem þú varst! Fyr- irmyndin mín og hetja. Ég skal passa mömmu, litlu stelpuna þína, fyrir þig. Elska þig amma mín, þín Harpa Mjöll Fossberg. Elsku amma. Minningarnar eru svo ótal margar. Mér þótti alltaf svo gaman þegar ég fékk að gista hjá þér og afa á Túngöt- unni þegar ég var yngri og fá að dunda mér eitthvað í föndurher- berginu þínu. Svo eftir að afi dó og ég og Stefán fengum að sofa í rúminu hjá þér, ég í miðjunni og þú að segja okkur sögur. Heim- sóknirnar á kvöldin með mömmu þegar við komum með ís eða shake til þín og horfa á Arnór keppa í fótbolta, eða fara ísrúnt þegar þú treystir þér. Það var svo gaman að geta tal- að við þig um fótbolta og um liðið okkar Manchester United. Það á eftir að vera skrítið að koma ekki á Túngötuna á aðfangadagskvöld í kökur. Það var mjög erfitt fyrir okkur að vera úti í Serbíu þegar þú varst orðin svona veik en ég og mamma töluðum við þig myndsímtal og ég sagði þér hvað ég elskaði þig mikið. Elska þig amma. Daníel Þór. Elsku Bára amma. Orð fá því ekki lýst hvað ég sakna þín mik- ið. Það eina sem mig langar að gera núna er að knúsa þig og kyssa. Seinustu dagar hafa verið svo ótrúlega erfiðir en ég veit að það var tekið vel á móti þér þarna uppi og að afi er ánægður að fá loksins að hitta þig aftur. Þú varst æðisleg amma og algjör fyrirmynd. Mér fannst alltaf svo æðislegt hvað þú vildir alltaf hlusta á mig og hvað ég ætlaði mér að gera í framtíðinni, hvað þú hafðir mikla trú á mér og ég fann hvað þér þótti vænt um mig. Það verður skrítið að sjá Tún- götu 2 tóma og það verður skrítið að geta ekki komið í heimsókn og rætt við þig um heimsins mál og fengið ráð hjá þér þar sem þú vissir allt. Ég elskaði að koma og gista hjá þér í ömmubóli, þar var alltaf svo notalegt að vera. Þar gátum við legið tímunum saman og spjallað og hlustað á útvarpið sem var alltaf í gangi hjá þér enda var útvarpið aldrei langt undan. Það verður erfitt að labba fram hjá Túngötu 2 og enginn heima. Þín verður sárt saknað elsku amma, hvíldu í friði. Við kveðjum þig kæra amma með kinnar votar af tárum á ást þinni enginn vafi til okkar, við gæfu þá bárum. Horfin er hönd þín sem leiddi á hamingju og gleðifundum, ástúð er sorgunum eyddi athvarf á reynslustundum. Margt er í minninga heimi mun þar ljósið þitt skína, englar hjá guði þig geymi við geymum svo minningu þína. (Höf. ók.) Thelma Rún Fossberg Davíðsdóttir. Nú þegar þú hefur kvatt okkur í síðasta skipti elsku amma hefur stórt tómarúm verið skilið eftir í lífi mínu og lífi okkar allra sem næst þér stóðu. Þú varst hreint mögnuð kona, algjör fyrirmynd og frábær amma, alltaf til staðar og alltaf gat maður leitað til þín sama hvað bjátaði á. Ég gleymi aldrei þeim stundum sem við átt- um saman á Túngötu 2 þar sem þú kenndir mér að tálga út hina ýmsu hluti og þegar við sátum saman og teiknuðum, saumuðum og prjónuðum, allt þetta kenndir þú mér og einnig að vera betri maður. Ég verð þér ævinlega þakklátur fyrir allan þann tíma sem þú hefur eytt með mér frá mínum fyrsta degi og allar þær minningar sem þú hefur skilið eftir í hjarta mínu en ég veit að þú ert komin á betri stað núna þar sem þú og afi eruð sameinuð á ný, þið voruð æðisleg saman. Hvíldu í friði elsku amma mín, ég mun sakna þín hvern einasta dag. Ég elska þig. Þinn sólargeisli, Jóhann Veigar Fossberg. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Guð geymi þig elsku Bára mágkona mín. Ég vil þakka þér allt sem þú varst mér. Þegar ég var hjá ykkur Óla bróður fyrir austan þegar ég var að vinna í bræðslunni eru stundir sem eru mér ógleymanlegar. Þú varst mikill sagnabrunnur, gaman að ræða við þig og allar góðu sam- verustundirnar hjá okkur þegar þið komuð suður og var þá oft glatt á hjalla og mikið talað. Nú hefur Óli bróðir tekið á móti þér með útbreiddan faðminn og aðrir ástvinir sem kvöddu allt of fljótt. Veikindi þín eru búin að vera mikil, nú ertu laus við allar þján- ingar. Elsku Bára mín, hafðu þökk fyrir allt og allt. Guð blessi minn- ingu þína. Ég votta börnum, tengdabörn- um og allri fjölskyldunni mína dýpstu samúð. Reynir mágur. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019 Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda 551 1266 Skipulag útfarar Dánarbússkipti Kaupmálar Erfðaskrár Reiknivélar Minn hinsti vilji Fróðleikur Sjá nánar á www.utfor.is Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | utfor.is Önnumst alla þætti útfararinnar með virðingu og umhyggju að leiðarljósi Reynslumikið fagfólk Elín Sigrún Jónsdóttir Framkvæmdastjóri Jón G. Bjarnason Útfararþjónusta Ellert Ingason Útfararþjónusta Helga Guðmundsdóttir Útfararþjónusta Lára Árnadóttir Útfararþjónusta Katla Þorsteinsdóttir Lögfræðiþjónusta Guðmundur Baldvinsson Útfararþjónusta Sigurður Bjarni Jónsson Útfararþjónusta Magnús Sævar Magnússon Útfararþjónusta Emilía Jónsdóttir Félagsráðgjafi Sigrún Óskarsdóttir Guðfræðingur Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta utfor.is Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.