Morgunblaðið - 03.08.2019, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019 31
Gigtarfélagið bráðvantar
iðjuþjálfa
Iðjuþjálfi óskast í 70 til 100% starf. Um er að
ræða framtíðarstarf, en í fyrstu til afleys-
ingar. Starfið er fjölbreytt og gefandi, krefst
faglegra vinnubragða og sjálfstæðis í starfi.
Kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem
fyrst.
Nánari upplýsingar gefur Emil Thoroddsen
framkvæmdastjóri í síma 863 9922. Fyrir-
spurnir er hægt að senda á netfangið
emilthor@gigt.is Nánar má fræðast um
starfsemi Gigtarfélagsins á www.gigt.is
Umsóknir ásamt öðrum upplýsingum send-
ist rafrænt á netfangið, emilthor@gigt.is
fyrir 15. ágúst nk.
Gigtarfélag Íslands
Er Nielsen Sérverzlun
að leita að þér?
Okkur vantar frábært sölufólk í hópinn
• Reynsla af verzlunarstörfum mikill kostur
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Hafa gaman af mannlegum samskiptum
• Stundvísi
• Jákvætt og gott hugarfar
Áhugasamir sendi inn umsóknir fyrir 10. ágúst
á netfangið laila@nlsn.is
Markaðsfulltrúi sölu- og markaðssviðs
Toyota á Íslandi
Starfssvið:
• Umsjón með viðburðum og verkefnum sem Toyota á Íslandi stendur beint eða óbeint fyrir, s.s. bílasýningum,
menningar- og íþróttaviðburðum
• Vörumerkjastjórnun Toyota og Lexus, s.s. kynning nýrra bíla á markað, samskipti við Toyota Motor Europe og
umsjón með réttri framsetningu vörumerkjanna
• Dagleg samskipti við utanaðkomandi aðila - t.d. í tengslum við styrkbeiðnir, myndefni,
merkingar og upplýsingar um vöru og þjónustu
•
!" viðkomandi vörumerkja
Hæfniskröfur:
• Öguð og vönduð vinnubrögð
• #
! !"
• Góð íslensku- og enskukunnátta - bæði í rituðu og töluðu máli
• Góð tölvukunnátta skilyrði - s.s. Word, Excel og Powerpoint
• Kunnátta á helstu hönnunarforrit æskileg - s.s. InDesign, Photoshop og Illustrator
Toyota á Íslandi leitar eftir ungum einstaklingum sem eru metnaðargjarnir, samviskusamir og jákvæðir, með ríka
þjónustulund og liprir í mannlegum samskiptum. Í boði er spennandi framtíðarstarf hjá framsæknu fyrirtæki sem
hefur á að skipta metnaðarfullu og samhentu starfsfólki.
Áhugasamir sæki um á vef félagsins www.toyota.is/storf. Umsóknarfrestur er til 14. ágúst, en nánari
upplýsingar veitir Fanný Bjarnadóttir í síma 570-5070.
Toyota á Íslandi
Kauptúni 6
Sími: 570 5070
www.toyota.is
Grunnskólinn á Þórshöfn
óskar eftir grunnskólakennurum
til starfa á komandi skólaári
Við óskum eftir áhugasömum grunnskólakennurum sem eru skapandi í starfi. Við
leitum að fólki með margþætta reynslu og bakgrunn sem á það sameiginlegt að hafa
mikinn áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun.
Í boði eru fjölbreytt viðfangsefni, þar sem hæfileikar og frumkvæði kennarans fá notið
sín.
Okkur vantar umsjónarkennara, stærðfræðikennara, kennara í list- og verkgreinar og
íþróttakennara.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Kennsluréttindi í grunnskóla
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Þekking á upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu æskileg
• Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður og drífandi og áhugasamur fyrir þróunarstarfi
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og
Kennarasambands Íslands.
Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.
Starfsfólk Grunnskólans á Þórshöfn hefur tekið virkan þátt í þróunarstarfi á síðustu
árum þar sem lögð hefur verið áhersla á þróun fjölbreyttra kennsluhátta, teymisvinnu
og á aukna lýðræðislega þátttöku nemenda í skólastarfinu. Framundan er áfram-
haldandi spennandi skólaþróun.
Umsóknarfrestur er til 10. ágúst og skulu umsóknir sendar rafrænt á netfangið
elias@langanesbyggd.is.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Langanesbyggð leitar eftir
áhugasömum grunnskólakennurum
Í Grunnskóla Þórshafnar eru 65 nemendur í
hæfilega stórum bekkjardeildum. Starfsemi
skólans einkennist af kraftmiklu og framsæknu
skólastarfi. Samhliða skólanum er rekinn tón-
listarskóli og hefð er fyrir öflugu íþróttastarfi
fyrir alla aldurshópa skólans.
Langanesbyggð er öflugt og vaxandi sveitar-
félag með spennandi framtíðarmöguleika. Á
Þórshöfn búa um 400 manns í fjölskylduvænu
umhverfi. Skólinn var endurnýjaður árið 2016
og er öll aðstaða og aðbúnaður til fyrirmyn-
dar. Nýr leikskóli verður tekin í gagnið núna í
ágúst. Gott íbúðarhúsnæði er til staðar og öll
almenn þjónusta er á Þórshöfn. Á staðnum er
gott íþróttahús og innisundlaug og stendur
Ungmennafélag Langaness fyrir öflugu íþrót-
tastarfi. Í þorpinu er mikið og fjölbreytt félagslíf.
Samgöngur eru góðar, m.a. flug fimm daga
vikunnar til Reykjavíkur um Akureyri. Í næsta
nágrenni eru margar helstu náttúruperlur land-
sins og ótal spennandi útivistarmöguleikar, s.s.
fallegar gönguleiðir og stang- og skotveiði.
Langanesbyggð leitar að fólki á öllum aldri, af
báðum kynjum, með margs konar menntun og
reynslu. Í samræmi við jafnréttisáætlun Langa-
nesbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til
að sækja um störf hjá sveitarfélaginu.
Bakari eða konditor
óskast til starfa hjá Bernhöftsbakaríi ehf.
Eingöngu fagmenntað fólk með sveins- eða
meistararéttindi kemur til greina.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Allar frekari upplýsingar veitir Sigurður Már
á netfanginu info@bernhoftsbakari.is.
Heildsala
í Reykjavík óskar eftir skólakrökkum í
hlutastörf með skóla, þurfa að tala íslensku
og vera með bílpróf.
Umsóknir sendist á box@mbl.is,
merktar: ,,R - 26527”.