Morgunblaðið - 03.08.2019, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019
FJARÐABYGGÐ
fjardabyggd.is
Sviðsstjóri
fjölskyldusviðs
Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð auglýsir starf sviðsstjóra
fjölskyldusviðs laust til umsóknar.
Starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs er nýtt starf í stjórnkerfi
Fjarðabyggðar og heyrir það undir bæjarstjóra. Sviðsstjóri
er yfirmaður fjölskyldusviðs og ber hann stjórnunarlega
ábyrgð á málaflokkum sviðsins. Í starfinu felst þróun
starfsemi sviðsins með framtíðarsýn bæjaryfirvalda að
leiðarljósi þar sem málefni fjölskyldunnar eru í forgrunni.
Leitað er að dugmiklum einstaklingi með mikinn áhuga og
reynslu af stjórnun og teymisstarfi. Viðkomandi þarf að búa
yfir mikilli hæfni til að leiða breytingar, skipuleggja og virkja
samstarfsmenn til samráðs og samvinnu um málefni
fjölskyldunnar með það að markmiði að áherslur
fjölskyldustefnu sveitarfélagsins nái fram að ganga.
Helstu verkefni:
• Yfirstjórn þeirra málaflokka sem falla undir starfið m.a.
félagsmála, fræðslumála, íþrótta- og tómstundamála.
• Ábyrgð á samræmingu og samhæfingu félagsþjónustu,
skóla- og íþróttastarfs.
• Þróun öflugs stjórnendateymis innan sviðsins.
• Þróun markmiða, mælikvarða og verkferla sem styðja við sýn
og stefnu sveitarfélagsins.
• Að byggja upp heildstæða samhæfða þjónustu við
fjölskyldur.
• Að auka samstarf og samþættingu starfsemi sviðsins þvert á
málaflokka.
• Að koma á og efla sérfræðiþjónustu innan sviðsins og
tryggja tengingu hennar þvert á málaflokka.
• Frumkvæði að samskiptum og aðgerðum til að styrkja
samfélagið í Fjarðabyggð
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun.
• Meistaragráða er æskileg.
• Haldgóð þekking og reynsla á rekstri, teymisvinnu stjórnun
og stefnumótun.
• Þekking á stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar-og
fjárhagsáætlana.
• Þekking á helstu upplýsingakerfum.
• Þekking á undirbúningi og stjórnun funda.
• Góð málakunnátta (íslenska og enska) og hæfni til að setja
fram mál í ræðu og riti.
• Reynsla og þekking á málefnum sveitarfélaga er kostur.
Starfið gegnir veigamiklu hlutverki í stjórnkerfi
sveitarfélagsins. Rík áhersla er lögð á teymisvinnu og
þverfaglega vinnu. Launakjör eru samkvæmt launakerfi
sviðsstjóra hjá sveitarfélaginu. Konur jafnt sem karlar eru
hvattar til að sækja um stöðuna.
Allar frekari upplýsingar veitir Karl Óttar Pétursson
bæjarstjóri Fjarðabyggðar, í síma 470 9000 eða á
netfanginu karl.petursson@fjardabyggd.is.
Umsóknarfrestur er til og með 2. 2019 og
æskilegt að viðkomandi geti hafið störf
Sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Fjarðabyggðar á
slóðinni starf.fjardabyggd.is.
F
Mj
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Umsóknarfrestur er til og með 14. ágúst 2019.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Unnur V. Ingólfsdóttir, unnur@mos.is framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs, sími 525-6700 og
Sigurbjörg Fjölnisdóttir sigurbjorgf@mos.is verkefnastjóri gæða- og þróunarmála sími 525-6700 . Umsóknir ásamt
starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið
skulu berast á netfangið mos@mos.is. Um framtíðarstöðu er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt
kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í starfið óháð kyni.
Stjórnandi barnaverndar á fjölskyldusviði
Mosfellsbæjar
VIÐ LEITUM AÐ METNAÐARFULLUM EINSTAKLINGI Í STARF STJÓRNANDA BARNAVERNDAR Á
FJÖLSKYLDUSVIÐI MOSFELLSBÆJAR
Fjölskyldusvið Mosfellsbæjar auglýsir stöðu stjórnanda barnaverndar lausa til umsóknar. Helstu
verkefni eru stjórnunarleg og fjárhagsleg ábyrgð á starfsemi barnaverndarmála hjá Mosfellsbæ.
Ábyrgð á undirbúningi mála fyrir fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar og eftirfylgni með framkvæmd
þeirra. Stefnumótun og umbótarstarf í málaflokknum. Stuðla að virku samstarfi við lykil
samstarfsaðila barnaverndar ásamt því að veita upplýsingar um málaflokkinn.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og
umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi er
skilyrði, framhaldsmenntun er skilyrði
Þekking og reynsla á skipulagi
barnaverndarstarfs og stjórnsýslu er
skilyrði
Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi
hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í
vinnubrögðum
Reynsla af stjórnun og umbótastarfi
Hæfni og reynsla í miðlun upplýsinga
Álnabær
Verslunarstarf
Starfskraftur óskast í verslun okkar
í Síðumúla 32, Reykjavík.
Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18
alla virka daga.
Áhugasamir sendi umsókn á
ellert@alnabaer.is
Árbæjarkirkja
Kirkjuvörður
Sóknarnefnd Árbæjarkirkju óskar eftir kirkju-
verði í 50% starf, unnið er aðra hverja viku.
Við leitum að samviskusömum, jákvæðum
og þjónustuliprum einstaklingi sem einnig
er lipur í mannlegum samskiptum og með
hreint sakavottorð.
Meðal verkefna er dagleg umsjón með
kirkju, undirbúningur fyrir helgihald, mót-
taka á fólki, dagleg þrif, umsjón með eldhúsi
og ýmislegt sem til fellur.
Umsóknarfrestur er til 12. ágúst á
arbaejarkirkja @arbaejarkirkja.is
Sóknarnefnd.
Heildsala
Í Reykjavík óskar eftir fólki eldra en 35 ára í
framtíðarstörf í afgreiðslu og í skrifstofu-
vinnu, 50% vinna, þarf að tala og skrifa góða
íslensku.
Umsóknir sendist á box@mbl.is
merkt E 26542
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi