Morgunblaðið - 03.08.2019, Qupperneq 36
menn, sem eins og vitað er eru orðnir
tveir í kjölfar hins alkunna Klaust-
ursmáls svonefnda.
„Í dag er brennandi hugsjón mín að-
eins sú að hjálpa þeim sem standa
hvað höllustum fæti í samfélaginu. Ég
stofnaði Flokk fólksins til að berjast
gegn fátækt. Enginn á að þurfa að líða
skort á okkar ríka landi. Staðreyndin
er þó sú að það gera um 10% barnanna
okkar ásamt fjölskyldum sínum, ör-
yrkjar og þúsundir aldraðra,“ segir
Inga. Í þeim efnum er mikilvægt
„aldrei að gefast upp. Bjartsýni og
bros bjarga deginum,“ segir hún.
Á tímamótum minnist Inga hins
góða og hins slæma. Það hefur blásið á
hamlað mér á ýmsa vegu. Til að
mynda þurfti ég að hætta í tónlist-
arnámi vegna annmarka með nót-
urnar. Ég gat síðan ekki stundað nám-
ið sem mig dreymdi um fyrr en á
fullorðinsárum, með tilkomu Þjónustu-
og þekkingarmiðstöðvar fyrir sjón-
skerta, blinda og daufblinda ein-
staklinga. Enginn yrði heldur svo
vænn að kvitta upp á bílpróf fyrir
mig!“ segir Inga og hlær við. Árið 2016
stofnaði hún og var fyrsti formaður
stjórnmálaflokksins Flokks fólksins. Í
fyrstu atrennu að alþingiskosningum
það ár fékk flokkurinn engan þing-
mann en í kosningum 2017 fékk flokk-
urinn tæplega 7% fylgi og fjóra þing-
I
nga Sæland fæddist 3. ágúst
1959 að Ólafsvegi 16 á Ólafs-
firði og ólst þar upp til 16 ára
aldurs. „Þá varð ég ástfangin
af manninum sem átti með
mér fjögur yndisleg börn og átti eftir
að verða lífsförunautur minn lengst af
þrátt fyrir að við skildum um tíma. Við
byrjuðum að búa, ég og Óli Már Guð-
mundsson, í litlu húsi við hliðina á syðra
frystihúsi bæjarins, Normandí. Nú hef-
ur húsið verið fjarlægt og lítið sem
minnir á tilvist þess í firðinum mínum
fagra nema fallegar ógleymanlegar
minningarnar. Við giftum okkur þann
25. mars 1978. Ég var þá orðin barns-
hafandi af fyrsta barninu okkar. Á
sama tíma kvæntist Helgi heitinn bróð-
ir ástinni sinni Helgu. Fallegur dagur
sem aldrei gleymist.“
Inga flutti til Reykjavíkur með fjöl-
skyldunni 1994. Þá var eiginmaður
hennar að klára nám í rafeindavirkjun
við Iðnskólann og vildi að sögn Ingu
ólmur fá allt liðið með suður. Hann
hafði orðið fyrir því óláni að handleggs-
brotna þegar þau voru að flytja. „Eftir
ítrekuð læknamistök stóð sú þraut-
arganga yfir í 6 ár. Í kjölfarið dreif ég
mig í skóla og hóf nám við Mennta-
skólann í Hamrahlíð. Þaðan lá leiðin
síðan í stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands en ég lauk því námi ekki heldur
færði mig yfir í lagadeildina. Þar út-
skrifaðist ég síðan með BA-próf í lög-
fræði á afmælisdaginn hennar mömmu,
25. júní 2016,“ segir hún.
Á yngri árum var Inga aðallega
heimavinnandi húsmóðir með fjögur
börn. Hún hefur alltaf haft yndi af söng
og var í hljómsveitum á árum áður.
„Ég tók síðan þátt í X-Factor-
sjónvarpsþáttunum á Stöð 2 árin 2006
og 2007. Þar gekk mér mjög vel þrátt
fyrir að hafa ekki staðið uppi sem sig-
urvegari,“ segir Inga. Hún varð fyrir
því óhappi að missa framan af fingri við
vinnslu eins þáttanna. „Það hefur sann-
arlega dregið dilk á eftir sér. Í kjölfarið
gat ég ekki spilað á gítarinn minn árum
saman. Það var sárt.“ Inga var einnig
virk í Leikfélagi Ólafsfjarðar um tíma
og lék í nokkrum leikritum með því.
Inga veiktist sem ungabarn. Hún
missti sjónina af völdum veikindanna
og hefur verið lögblind æ síðan. „Eðli
málsins samkvæmt hefur sjónleysið
móti. „Sorgin hefur ekki látið sig
vanta. Helgi bróðir minn lést af slys-
förum 31 árs ásamt Gulla vini sínum,
26 ára. Þeir félagar sigldu á litlum
Zodiac-báti út fyrir Siglunes og lentu í
ofsaveðri þann 26. júlí 1988. Litla báts-
kænan þeirra bar þá ekki aftur heim.
Við Helgi vorum saman í hljóm-
sveitum. Hann var minn besti vinur,
gleðigjafi og mikill ofurhugi. Ari Krist-
ins Gunnarsson, mágur minn og ein-
lægur vinur. Fjallgöngumaður sem
kleif sinn hæsta tind 9. október 1991
og um leið þann hinsta. Enn einn ofur-
huginn í fjölskyldunni var fallinn frá
langt fyrir aldur fram. Ég var lömuð af
sorg. Páll Skúlason elskulegur tengda-
sonur minn lést af slysförum, 42 ára,
þann 24. apríl 2010. Þúsund þjala smið-
ur, hrekkjóttur gleðigjafi og einlægur
vinur. Maður spyr sig. Hvenær er
komið nóg? Þrátt fyrir að nú fagni ég
60 ára afmælinu mínu þá einfaldlega
get ég ekki talað um lífshlaupið án
þess að tala um þessa þrjá ungu menn
sem mörkuðu djúp spor í tilveru mína
þá og nú,“ segir Inga.
Fjölskylda
Eiginmaður Ingu er Óli Már Guð-
mundsson, f. 5. júlí 1953, mynd-
listamaður og fyrrverandi sjómaður.
Foreldrar hans eru Anna Baldvina
Gottliebsdóttir saumakona, f. 1924, d.
2000, og Guðmundur Ólafsson skip-
stjóri, f. 1924, d. 2012. Þau voru alla tíð
hjón og bjuggu á Ólafsfirði.
Börn Ingu og Óla Más eru fjögur: 1)
Guðmundur, f. 1978, sjálfstætt starf-
Inga Sæland, alþingismaður og formaður Flokks fólksins – 60 ára
Alþingi Inga Sæland tók fyrst sæti á þingi árið 2017.
Það á aldrei að gefast upp
Morgunblaðið/Hari X-Factor Inga söng á Stöð 2 árin 2006-2007 Hún átti
góðu fylgi að fagna sem keppandi í söngvakeppninni.
Börnin Fjögurra barna móðir á Ólafsfirði árið 1987. Frá vinstri eru það
Guðmundur, þá Sigríður, svo Inga með Baldvin Örn, loks Einar Már.
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
samlegt ka
nýmalað,
engin h lki.
á
y
–
50 ára Ólafur er fædd-
ur og uppalinn á Sel-
fossi. Býr þar. Alla tíð
alið manninn á selfossi.
Lærður húsasmiður
fráFjölbrautaskóla Suð-
urlands. Núna starfar
hann á bílaverkstæði en
hefur fengist við ýmislegt, smíði, bíla-
viðgerðir, unnið í jarðgöngum í Noregi.
Ólafur rekur hálendismótorhjólaþjónustu
fyrir ferðamenn ásamt viðskiptafélaga.
Maki: Áslaug Heiðarsdóttir viðskipta-
fræðingur, f. 1974, frá Selfossi.
Börn: Theodór Freyr nemi í húsasmíðum,
f. 1991, og Arney Sif nemi, f. 2003.
Foreldrar: Hjónin Björn Halldórsson bif-
reiðasmiður frá Sýrlæk, f. 1931, og Guð-
björg Ólafsdóttir frá Akranesi, f. 1941. Þau
búa á Selfossi.
Ólafur Veturliði
Björnsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér finnst eins og verk sem þú
tókst að þér fyrir löngu stjórni þér núna, og
að þú hafir ekki lengur neitt val. Þú tekur
skyndiákvörðun sem á eftir að draga dilk á
eftir sér.
20. apríl - 20. maí
Naut Passaðu að slaka á og hrósa þér fyrir
það sem þú hefur náð að gera á stuttum
tíma. Hættu að halda hlífiskildi yfir þeim
sem eru ekki að standa sig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér verður hrósað mikið fyrir ár-
angur þinn í starfi og átt það svo fyllilega
skilið. Þú ert með mörg járn í eldinum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Vogun vinnur og vogun tapar en
það má minnka tapið með því að taka aldr-
ei of mikla áhættu, ekki setja öll eggin í
sömu körfuna. Byrjaðu að hreyfa þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú kaupir eitthvað sem þig hefur lengi
dreymt um en aldrei látið verða af. Hafðu
báða fætur á jörðinni þegar þú tekur
ákvörðun í ástamálunum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Kíktu eftir tækifærum til þess að
ganga í augun á öðrum eða bæta mannorð
þitt á einhvern hátt. Það andar köldu milli
þín og gamals vinar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Finndu einhvern til að ljá þér eyra svo
þú getir létt af þér áhyggjunum. Þú ættir
kannski að breyta til og venda þínu kvæði í
kross.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gættu þess að einblína ekki á
eitt atriði þegar þú reynir að finna lausnir.
Ekki eru öll kurl komin til grafar í deilumáli
milli þín og gamals vinar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þetta er ekki hentugur dagur til
að ganga frá skiptingu eigna. Ekki festast í
skýjaborgunum, líttu raunsætt á málin.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Njóttu félagsskapar vina þinna.
Klappaðu sjálfum/sjálfri þér á bakið fyrir
góðan árangur í sjálfsskoðuninni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér hættir til að taka sjálfa/n
þig of hátíðlega. Láttu ekki löngun þína til
að gera öðrum til hæfis koma þér í vand-
ræði.
19. feb. - 20. mars
FiskarMisstu ekki sjónar á takmarkinu,
þótt einhverjir smámunir séu að vefjast fyr-
ir þér. Sumarbústaðaferð mun opna augu
þín.
40 ára Guðrún er
fædd og uppalin á
Akureyri. Hún býr á
Akureyri og starfar
þar við skammtíma-
þjónustu fyrir fötluð
börn og ungmenni.
Guðrún lauk námi
við Háskólabrúna í Keili í vor og stefn-
ir á frekara nám við Háskóla Akureyr-
ar.
Börn: Davíð Máni, f. 2001, Berglind
Líf, f. 2003, Ragnheiður Kristín, f.
2008.
Eiginmaður: Jóhannes Bjarki Sigurðs-
son, húsvörður í Oddeyrarskóla, f.
1975, frá Hjalteyri.
Foreldar: Áslaug Ásgeirsdóttir frá Dal-
vík, f. 1953, og Jón Jóhannsson vél-
fræðingur frá Akureyri, f. 1953.
Guðrún María
Jónsdóttir
Til hamingju með daginn
Móey Minna Einarsdóttir fæddist á
Landspítalanum 31. október 2018. Hún
var 3.985 grömm og 53 cm að lengd.
Foreldrar hennar eru Einar Hlöðver
Sigurðsson og Rakel Rut Ingibjarg-
ardóttir. Þau búa í Hafnarfirði.
Nýr borgari