Morgunblaðið - 03.08.2019, Síða 37

Morgunblaðið - 03.08.2019, Síða 37
andi, bús. í Reykjavík. Sonur hans er Árni Már Guðmundsson, f. 2001. 2) Einar Már, f. 1980, hefur starfað er- lendis um árabil, bús. í Lúxemborg. Dóttir hans er Ágústa Marý, f. 2001. Einar Már er í sambúð með Sherry Dixon flugmanni. Sonur hennar er Brandon, f. 2001. 3) Sigríður Sæland, f. 1984, hjúkrunarfræðingur að mennt, bús. í Reykjavík. Hún starfar sem að- stoðardeildarstjóri á öryggisgeðdeild Landspítalans. Sonur hennar er Adrían Óli Pálsson, f. 2008, og stjúp- sonur Viktor Freyr, f. 2008. 4) Baldvin Örn, f. 1987. Hann er í sambandi með Önnu Ólöfu Kristófersdóttur og sonur þeirra er Tristan Máni, f. 2019. Þau búa í Reykjavík. Systkini Ingu eru a) Jón Númi Ást- valdsson, f. 1954, búsettur í Hafn- arfirði, b) Helgi Ástvaldsson, f. 1957, d. 1988, c) Júlíana Ástvaldsdóttir, f. 1962, hannyrðakona, búsett á Akureyri. Foreldrar Ingu eru Ástvaldur Einar Steinsson, f. 1930, sjómaður lengst af og síðar netagerðarmaður á Ólafsfirði, og Sigríður Sæland Jónsdóttir, f. 1937, húsmóðir, búsett í Reykjavík. For- eldrar Sigríðar Sæland voru Númi Ingimarsson sjómaður á Ólafsfirði og Megnea Stefánsdóttir húsmóðir. Kjör- foreldrar hennar voru Jón Ingimars- son málari á Ólafsfirði og kona hans Sveinína Sigurjóna Sigmundsdóttir húsmóðir á Ólafsfirði. Hún fluttist til þeirra þriggja ára þegar Númi faðir hennar lést af slysförum. Jón og Númi voru bræður. Inga Sæland Þórdís Ingimundardóttir húsfreyja á Ólafsfi rði Stefán Sigurðsson bóndi á Stóru-Þverá í Fljótum og á Syðsta-Mói í Flókadal, Skagafi rði Magnea Stefánsdóttir húsmóðir á Ólafsfi rði Númi Ingimarsson sjómaður á Ólafsfi rði Sigríður Sæland Jónsdóttir fædd á Siglufi rði, húsmóðir í Reykjavík Sigríður Ingibjörg Marteinsdóttir húsfreyja á Ólafsfi rði Ingimar Jón Jónsson verkamaður í Kvíabekkjarsókn Jón Ingimarsson, málari á Ólafs- fi rði, kjörfaðir Sigríðar Sæland, kona hans var Sveinína Sigur- jóna Sigmundsdóttir, húsmóðir á Ólafsfi rði, kjörmóðir Sigríðar Júlíana María Jóhannsdóttir vinnukona á Vatnsleysu í Skagafi rði Einar Eðvald Jónsson vinnumaður á Vatnsleysu og víðar í Skagafi rði Júlíana Kristín Einarsdóttir húsmóðir á Ólafsfi rði Steinn Jónsson verkamaður á Ólafsfi rði Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Móafelli í Fljótum Jón Gunnlaugsson bóndi á Móafelli í Fljótum Úr frændgarði Ingu Sæland Ástvaldur Einar Steinsson sjómaður á Ólafsfi rði DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019 Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Áfram gengur ekki sá. Upp á hestinn stíga má. Afturflötur er það víst. Orðheldinn mun vera síst. Helgi Seljan svarar: Aftur á bak mun arka sá, upp á hestbak knapar ná. Brýnt er að treysta á bakhlutann, á bak sinna orða gengur hann. Þessi er lausn Hörpu á Hjarð- arfelli: Afturábak gengur hann grallarinn sá. Gaman á hestbak að fara er víst. Bakið er flötur sem aftan er á. Orðanna sinna hann fer á bak síst. Guðrún Bjarnadóttir leysir gát- una þannig: Gengur Anna aftrá bak, ætlar á bak. Æ, sver hún, allt of þung og breitt er bak. Á bak sinna orða fer’ún. Hér kemur lausn Helga R. Ein- arssonar: Ákveðinn ég tók mér tak tímaleysið burtu rak einn svo reri á orðaskak og þar setti loks í bak. Og Helgi lét limru fylgja – „Bak- tal“: Það var með brestum og braki sem Friðleifur féll af baki. Hann hefði ’ana fellt og í hundamat selt ef ’ún hefði’ ekki verið hans maki. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Til baka gengur greppur sá. Grána á bak hann stíga má. Baka til er bak á rekk. Bak hann sinna orða gekk. Þá er limra: Þorbjörg digra var þéttari en Þjóðhildur, sem var réttari í baki, af því að upprétt á ný hún varð, þegar varð hún léttari. Og síðan ný gáta eftir Guðmund: Margt er það, sem miður fer, ef maður er að flýta sér, gerð í skyndi gátan er, glöggt það líka með sér ber: Gnæfir hátt við himininn. Heitir sama nafni bær. Hafa ber í huga skinn. Í haga þangað reknar ær. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Margur fær bank í bakið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.