Morgunblaðið - 03.08.2019, Qupperneq 39
ÍÞRÓTTIR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019
Miðað við hversu góð tíðin
hefur verið hér í sumar er erfitt
að segja að nýtt tímabil í enska
boltanum sé sá haustboði sem
hann hefur stundum verið. Bolt-
inn fór að rúlla í B-deildinni í
gær, leikið er um Samfélags-
skjöldinn á morgun og sjálf úr-
valsdeildin hefst svo í næstu
viku.
Sama hversu mikið maður
reynir að stilla væntingum í hóf,
þá kemur alltaf fiðringur í mag-
ann þegar ný leiktíð nálgast.
Sem stuðningsmaður Newcastle
ætti það alls ekki að vera þannig,
og sérstaklega ekki eftir þetta
sumar. Bara hreint alls ekki.
Í viðtali á fotbolti.net í vikunni
sagði ég einmitt að það hafi
sjaldan verið jafn mikil þolraun
og nú að styðja þetta lið. Enda er
ekkert sem bendir til þess að fé-
lagið nái að rífa sig upp úr þeirri
meðalmennsku sem hefur ein-
kennt það síðustu ár.
En svo gerist það eins og í
gær að þetta blessaða New-
castle-lið fær til sín tvo nýja leik-
menn, stuttu eftir að hafa slegið
félagaskiptamet sitt yfir dýrustu
kaupin í sögunni. Þá fer að vakna
púki innra með manni sem skap-
ar spennu fyrir nýju tímabili,
nokkuð sem var aldrei í augsýn
fyrir mánuði.
Þetta er órjúfanleg hringrás,
sama hversu mikið maður reynir
að stjórna væntingum. En eins
og venjulega á ég ekki von á því
að september verði langt kominn
þegar vonbrigðin byrja að hellast
yfir. Sjáum til.
En það er fyrst og fremst
gleðiefni að Íslendingar geti enn
á ný farið að sameinast yfir
enska boltanum. Þar á milli eru
merkileg tengsl sem hafa fest
sig rækilega í sessi; svona eins
og slæm væntingastjórnun
stuðningsmanna liða á borð við
Newcastle.
BAKVÖRÐUR
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Á dögunum var dregið til undan-
keppni Eurobasket kvenna 2021, eða
lokakeppni Evrópukeppni landsliða í
körfuknattleik. Eins og greint var
frá hér í blaðinu verður Ísland í riðli
með Slóveníu, Grikklandi og Búlg-
aríu.
„Grikkland lék um bronsverðlaun
á Eurobasket 2017 og Slóvenía hefur
oft verið í topp 8 í Evrópu. Þessi lið
þekkir maður þar sem þetta eru
miklar körfuboltaþjóðir. Ég þekki
ekki búlgarska liðið en gæti ímyndað
mér að það yrðu 50/50 leikir,“ sagði
Benedikt Guðmundsson landsliðs-
þjálfari þegar Morgunblaðið spjall-
aði við hann.
Benedikt og hans teymi á eftir að
leggjast yfir andstæðinga Íslands en
fyrsti leikur í undankeppninni verð-
ur 14. nóvember gegn Búlgaríu á
heimavelli og sá næsti gegn Grikk-
landi á útivelli þremur dögum síðar.
Næst er ekki leikið fyrr en ári síðar, í
nóvember 2020, þegar Ísland leikur
við Slóveníu á heimavelli og Búlgaríu
á útivelli. Síðustu leikirnir eru í febr-
úar 2021 gegn Grikklandi á heimavelli
og Slóveníu á útivelli.
Sigurlið riðilsins fer beint á EM og
fimm bestu lið í öðru sæti komast
einnig í lokakeppnina sem fer fram í
Frakklandi og á Spáni í júní 2021.
Segir Benedikt að Ísland hafi verið
fremur óheppið með riðil að hans
mati. Þá sérstaklega að fá Grikkland
úr öðrum styrkleikaflokki en Slóvenía
var í efsta styrkleikaflokki. „Grikk-
land komst ekki á Eurobasket 2019
eftir að hafa verið í einhverjum svaka-
legum riðli og 2. sætið dugði ekki til að
vera á meðal þeirra liða sem voru með
bestan árangur úr 2. sæti undan-
keppninnar. Er það væntanlega þess
vegna sem Grikkland var í öðrum
styrkleikaflokki þegar dregið var nú.“
Sáttur við fyrstu leikina
Benedikt var ráðinn í vor og stýrði
íslenska liðinu í fyrsta skipti á Smá-
þjóðaleikunum í Svartfjallalandi
snemma í sumar. Ísland hafnaði í 2.
sæti. Tapaði fyrir Svartfjallalandi í
jöfnum leik en Svartfjallaland hefur
verið í síðustu lokakeppnum Euro-
basket. Benedikt var nokkuð ánægður
með spilamennsku íslenska liðsins í
Svartfjallalandi.
„Ég var bara nokkuð sáttur á heild-
ina litið. Við unnum okkar leiki sann-
færandi fyrir utan leikinn gegn
Svartfjallalandi þar sem við töpuðum
eftir hörkuleik,“ sagði Benedikt og
hann veit ekki annað en allir bestu
leikmenn Íslands gefi kost á sér að
frátöldum þeim sem leika í banda-
ríska háskólaboltanum og fá ekki frí
til að spila með landsliðinu yfir vetr-
artímann.
Öflugar þjóðir í riðli Íslands
Grikkland og Slóvenía hafa verið í fremstu röð í Evrópu Byrjað heima gegn
Búlgaríu Benedikt sáttur við frammistöðuna á Smáþjóðaleikunum
Morgunblaðið/Eggert
Landsliðið Hildur Björg Kjartansdóttir hefur verið í stóru hlutverki og er
hér í leik gegn Bosníu í síðustu undankeppni fyrir EM.
Áhorfendum á leikjum í Pepsi Max-
deild kvenna í knattspyrnu hefur
fjölgað um 14% í ár miðað við tíma-
bilið í fyrra. KSÍ greindi frá því í
gær að 13.248 áhorfendur hafi sótt
þann 61 leik sem búnir eru í deild-
inni, eða 217 að meðaltali. Á síðasta
tímabili var meðalaðsóknin 186
áhorfendur á leik.
Að meðaltali sækja flestir heima-
leiki Vals (357), en skammt þar á
eftir er Breiðablik (326). Þór/KA,
Stjarnan og Selfoss eru svo öll með
meðalaðsókn yfir 200 manns, sam-
kvæmt gögnum KSÍ. yrkill@mbl.is
Áhorfendum
fjölgað milli ára
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Vinsælastar Flestir mæta á heima-
leiki hjá Val og Breiðabliki.
Annað árið í röð leikur ÍBV heima-
leik á Íslandsmóti karla í knatt-
spyrnu á laugardeginum á Þjóðhá-
tíð. Klukkan 14 í dag taka
Eyjamenn á móti HK í fyrsta leik
15. umferðar.
Í fyrra var sams konar hátíð-
arleikur á dagskrá en þá voru það
Fylkismenn sem voru í heimsókn í
Eyjum á Þjóðhátíð og fóru heim
með þrjú stig eftir 1:0 sigur, en
tæplega 1.600 manns sáu þann leik.
Árið 2013 voru svo 3.034 áhorf-
endur viðstaddir þegar FH vann
Þjóðhátíðarleikinn við ÍBV 2:1.
Þjóðhátíðarleikur
í Eyjum í dag
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þjóðhátíð Víðir Þorvarðarson, ÍBV,
og Máni Austmann Hilmarsson, HK.
HANDBOLTI
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Íslenska landsliðið í handknattleik,
skipað leikmönnum 19 ára og yngri,
heldur á morgun til Norður-
Makedóníu þar sem liðið tekur þátt á
heimsmeistaramóti U19 ára liða. Liðið
kemur á áfangastað aðfaranótt mánu-
dags en fyrsti leikur er strax á þriðju-
dagsmorgun gegn Túnis.
Selfyssingurinn Haukur Þrastar-
son er lykilmaður í íslenska liðinu,
sem náði í silfur á EM í Króatíu í þess-
um aldursflokki í fyrra. Þá var Hauk-
ur valinn besti maður mótsins, en að-
eins fjórar breytingar eru á 16 manna
hópi Íslands á milli móta. Strákarnir
þekkjast því vel, og hafa raunar marg-
ir spilað saman undir stjórn Heimis
Ríkharðssonar í yngri landsliðum allt
frá 14 ára aldri.
„Það skiptir miklu máli og kunnum
allir inn á hver annan. Það hjálpar
alltaf, enda höfum við sannað það að
við getum spilað vel og gert góða hluti
saman. Það er full ástæða til bjartsýni
fyrir þetta mót,“ sagði Haukur við
Morgunblaðið.
GOG bannaði Viktori að fara
Auk Túnis er Ísland í riðli með
Brasilíu, Portúgal, Serbíu og Þýska-
landi, sem er síðasti mótherjinn í riðl-
inum mánudaginn 12. ágúst. Efstu
fjórar þjóðirnar komast áfram í 16-
liða úrslit. Haukur segir að það að ná
silfri á EM í fyrra hafi verið sterkt og
nú séu menn árinu eldri.
„Við vitum hvað við getum og hvar
við stöndum í þessum aldursflokki.
Við vitum að við eigum góða mögu-
leika eftir gott mót í fyrra og stefnum
aftur á góðan árangur. Ég er spennt-
ur að taka þátt í þessu og við erum all-
ir klárir. Við ætlum okkur að ná
langt,“ sagði Haukur.
Miklu munar þó um að markvörð-
urinn Viktor Gísli Hallgrímsson er
ekki með, en hans nýja félag GOG í
Danmörku vildi ekki hleypa honum í
verkefnið. Hins vegar vekur athygli
að sjö leikmenn GOG eru í danska
hópnum á mótinu.
Var leiðindaumræða
Haukur er orðinn A-landsliðsmaður
og var einnig valinn í U21 árs lands-
liðið sem tók þátt á HM á Spáni í júlí.
Þá gaf hann ekki kost á sér vegna
álags og var nokkuð gagnrýndur fyr-
ir, en tók hann þá umræðu inn á sig á
einhvern hátt?
„Nei nei. Þetta var kannski leið-
indaumræða, en það er búið að af-
greiða það og ekkert mál. Núna er ég
bara kominn hingað og er spenntur
fyrir því að fara á þetta mót. Ég er bú-
inn að fá ágæta hvíld, en hef líka náð
að æfa sjálfur með því að lyfta og
svona. Svo ég er í toppstandi.“
Haukur hefur verið orðaður við fjöl-
mörg stórlið í Evrópu síðustu misseri
og ljóst að vel verður fylgst með hon-
um á mótinu í Norður-Makedóníu.
Hann er sjálfur jarðbundinn sem áður
fyrr og er ekki að láta það trufla sig.
„Það er algjört aukaatriði fyrir
mér. Ég er að fara til þess að ná ár-
angri með þessu liði á mótinu og ann-
að er algjört aukaatriði,“ sagði Hauk-
ur, sem reiknar ekki með öðru en að
spila með Selfossi í vetur. Eftir það
stefnir hugurinn svo út.
Full ástæða til
bjartsýni á HM
Ætla að fylgja eftir EM-silfrinu í fyrra
Ljósmynd/HRS Foto
Silfurdrengir Haukur Þrastarson og félagar á EM U18 ára í fyrra.
Búið er að velja
það íþróttafólk
sem keppir fyrir
Íslands hönd í
Evrópubikar
landsliða í frjáls-
um íþróttum sem
fram fer á þjóð-
arleikvangi
Norður-
Makedóníu 10.-
11. ágúst. Ísland
er ásamt tólf öðrum þjóðum í 3.
deild; þeirri neðstu af fjórum, eftir
að hafa fallið úr 2. deildinni fyrir
tveimur árum.
Keppt er í 20 greinum í karla-
flokki og 20 greinum í kvenna-
flokki, en hvert land sendir einn
keppanda í hverja grein. 13 stig
fást fyrir fyrsta sætið, 12 fyrir ann-
að sætið og svo ávallt stigi minna
fyrir næstu sæti. Stigahæsta þjóðin
eftir keppnisdagana tvo tryggir sér
svo sæti í 2. deild.
Frjálsíþróttasamband Íslands og
íþrótta- og afreksnefnd völdu flest-
allt okkar besta frjálsíþróttafólk til
þátttöku, 17 karla og 17 konur, þar
sem spretthlaupararnir keppa til að
mynda í einstaklingsgreinum og
boðhlaupum.
Fyrirliðar landsliðsins eru þau
Ásdís Hjálmsdóttir og Ari Bragi
Kárason. yrkill@mbl.is
Landsliðið
valið fyrir
Evrópubikar
Ásdís
Hjálmsdóttir