Morgunblaðið - 03.08.2019, Side 43

Morgunblaðið - 03.08.2019, Side 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019 T ÍBRÁ Ef keyptir eru miðar á alla 10tónleika raðarinnar fæst 50%afsláttur af miðaverði. Salurinn.is 2019–20 ÁSKRIFTARSALA HAFIN GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is www.gimli.is Við vitum hvað þín eign kostar » Meraki er tríó sem kom fram á tónleikum á Freyjujazzi í Listasafni Íslandsí vikunni. Tríóið skipa Sara Mjöll Magnúsdóttir á píanó, Rósa Guðrún Sveinsdóttir á saxófón og þverflautu og Þórdís Gerður Jónsdóttir á selló. Þær kynntust í Tónlistarskóla FÍH þar sem þær hafa allar lokið námi. Tríóið stofn- uðu þær í fyrra og héldu jómfrútónleika í tónleikaröð Freyjujazz. Meraki kom fram á tónleikum Freyjujazz í Listasafni Íslands Morgunblaði/Arnþór Birkisson Ljúfir tónar Sara Mjöll Magnúsdóttir píanóleikari og Þórdís Gerður Jónsdóttir sellóleikari. Tónn Glitta sést í Rósu Guðrúnu Sveinsdóttur saxófónleikara meðal gesta.Hrifinn Einn tónleikagesta. Stuð Bagdad Brothers í höfuðstöðvum útvarpsstöðvarinnar WNYU í New York. „Milli- göngumaðurinn“ June Mota er til vinstri og þáttastjórnandinn Sam Hafferty fremst. Eðlilegt túrlíf „Við leigðum okkur sendiferðabíl, tróðum farangri, hljóðfærum og okkur sjálfum inn, og svo var bara keyrt af stað,“ segir Bjarni. „June, sem er á svipuðum aldri og við (23 ára), hafði græjað alla tónleikana í gegnum tengsla- netið sitt. Senurnar í hverjum bæ eða borg voru þannig lagað svipaðar; neðanjarðar „gerðuþaðsjálfur“-menningarkimar og merki- legt að kynnast þeim. Á svona túrum nærðu samt ekki, þannig séð, að finna almennt fyrir þeim svæðum sem þú ferð í gegnum. Tíminn fer í að keyra, róta, spila, sofa, borða og við vorum mikið til innan um þá kreðsu sem stóð fyrir hverjum og einum tónleikum. Blæbrigði hvers ríkis fóru því dálítið framhjá okkur, við fundum helst fyrir muninum í gegnum bensín- verðið (hlær)!“ Bjarni segir að eftir u.þ.b. viku hafi verið komin góð rútína á þetta líf þeirra. Snemma lærðu þau að pakka almennilega í bílinn t.d. og um miðbikið voru þau farin að lifa túrlífinu eins eðlilega og hægt er. Alveg meiri háttar „Það voru engar sprengingar í sam- skiptum eða stórvægilegar uppákomur, og ég viðurkenni að við öll – sem erum góðir vinir – vorum langstressuðust fyrir því í upphafi ferð- ar. Við vissum að við yrðum hvert ofan í öðru upp á dag í rúman mánuð. En þetta gekk upp og með tímanum lærði fólk líka betur hvað inn á annað; hvernig væri best að gefa hinum svig- rúm o.s.frv. Ef eitthvað er er vinskapurinn betri og þéttari en nokkru sinni.“ Og sannarlega reyndi á samstöðu og bjargræðishæfileika, gisting var t.a.m. ekki alltaf komin í höfn en slíkt reddaðist ávallt. Mikið var um að þau svæfu í heimahúsum, hjá tónleikahöldurum t.d. og góðviljuðu tónlistar- ástríðufólki. „Mér var sagt að þetta væri ekki jafn algengt og í Evrópu t.d. þannig að við vor- um afar þakklát fyrir þessa velvild alla.“ Tónleikalega séð gekk á ýmsu; á suma tónleika var dræm mæting eins og gengur en í Boulder í Colorado, af öllum stöðum, var hús- fyllir á eins lags stofutónleikum. 150 manns. „Mér fannst þetta alveg meiriháttar,“ seg- ir Bjarni að lokum og brosir breitt. „Ótrúleg reynsla. Samt dálítið skrítið að vera búinn að vera í Bandaríkjunum heilan mánuð og sjá þau að mestu leyti út um bílrúðu!“ » Við vissum að við yrðumhvert ofan í öðru upp á dag í rúman mánuð. En þetta gekk upp og með tímanum lærði fólk líka betur hvað inn á annað. Íslenska nýbylgjurokks- sveitin Bagdad Brothers fór í tónleikaferðalag um þver og endilöng Bandaríkin í sumar. Bjarni Daníel, einn liðs- manna, upplýsti pistilritara um málið. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Hljómsveitin Bagdad Brothers er hlutiaf hinu mjög svo virka útgáfusamlagipost-dreifing og hefur á undan- förnum misserum haldið fjölda tónleika og sömuleiðis gefið út slatta af efni. Síðastliðið haust setti June nokkur Mota, Kanadamaður sem starfar undir merkjum sveitarinnar Un Ashley, sig í samband við sveitina. Fór svo að Bagdadbræður hjálpuðu honum við að koma upp einum tónleikum á Íslandi, en Mota var að millilenda frá Berlín á leið sinni heim til Montreal. Vinskapur tókst með Mota og sveit- inni, svo mikill að í sumar fóru Bagdad Brot- hers í heilmikið tónleikaferðalag um Banda- ríkin og Kanada fyrir milligöngu Mota. Í júní voru spilaðir um 25 tónleikar á stöðum eins og Montreal, Brooklyn, Fíladelfíu, Athens, New Orleans, Austin, LA, Seattle, Portland, Chi- cago og Moskvu (í Idaho). Mannskapurinn, þau Bjarni Daníel, Sigurpáll Viggó, Þóra Birgit, Steinunn Sigþrúðardóttir Jónsdóttir og Ægir Sindri, flaug út til Montreal þar sem þau byrjuðu á að æfa lög Un Ashley, en þau störfuðu og sem undirleikarar fyrir Mota, þannig að tónleikarnir urðu hartnær 50! Bagdad í Bandaríkjunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.