Morgunblaðið - 03.08.2019, Síða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2019
T ÍBRÁ
Ef keyptir eru miðar á alla
10tónleika raðarinnar fæst
50%afsláttur af miðaverði.
Salurinn.is
2019–20
ÁSKRIFTARSALA
HAFIN
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Við vitum hvað þín
eign kostar
» Meraki er tríó sem kom fram á tónleikum á Freyjujazzi í Listasafni Íslandsí vikunni. Tríóið skipa Sara Mjöll Magnúsdóttir á píanó, Rósa Guðrún
Sveinsdóttir á saxófón og þverflautu og Þórdís Gerður Jónsdóttir á selló. Þær
kynntust í Tónlistarskóla FÍH þar sem þær hafa allar lokið námi. Tríóið stofn-
uðu þær í fyrra og héldu jómfrútónleika í tónleikaröð Freyjujazz.
Meraki kom fram á tónleikum Freyjujazz í Listasafni Íslands
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Ljúfir tónar Sara Mjöll Magnúsdóttir píanóleikari og Þórdís Gerður Jónsdóttir sellóleikari.
Tónn Glitta sést í Rósu Guðrúnu Sveinsdóttur saxófónleikara meðal gesta.Hrifinn Einn tónleikagesta.
Stuð Bagdad Brothers í höfuðstöðvum útvarpsstöðvarinnar WNYU í New York. „Milli-
göngumaðurinn“ June Mota er til vinstri og þáttastjórnandinn Sam Hafferty fremst.
Eðlilegt túrlíf
„Við leigðum okkur sendiferðabíl, tróðum
farangri, hljóðfærum og okkur sjálfum inn, og
svo var bara keyrt af stað,“ segir Bjarni.
„June, sem er á svipuðum aldri og við (23 ára),
hafði græjað alla tónleikana í gegnum tengsla-
netið sitt. Senurnar í hverjum bæ eða borg
voru þannig lagað svipaðar; neðanjarðar
„gerðuþaðsjálfur“-menningarkimar og merki-
legt að kynnast þeim. Á svona túrum nærðu
samt ekki, þannig séð, að finna almennt fyrir
þeim svæðum sem þú ferð í gegnum. Tíminn
fer í að keyra, róta, spila, sofa, borða og við
vorum mikið til innan um þá kreðsu sem stóð
fyrir hverjum og einum tónleikum. Blæbrigði
hvers ríkis fóru því dálítið framhjá okkur, við
fundum helst fyrir muninum í gegnum bensín-
verðið (hlær)!“
Bjarni segir að eftir u.þ.b. viku hafi verið
komin góð rútína á þetta líf þeirra. Snemma
lærðu þau að pakka almennilega í bílinn t.d. og
um miðbikið voru þau farin að lifa túrlífinu
eins eðlilega og hægt er.
Alveg meiri háttar
„Það voru engar sprengingar í sam-
skiptum eða stórvægilegar uppákomur, og ég
viðurkenni að við öll – sem erum góðir vinir –
vorum langstressuðust fyrir því í upphafi ferð-
ar. Við vissum að við yrðum hvert ofan í öðru
upp á dag í rúman mánuð. En þetta gekk upp
og með tímanum lærði fólk líka betur hvað inn
á annað; hvernig væri best að gefa hinum svig-
rúm o.s.frv. Ef eitthvað er er vinskapurinn
betri og þéttari en nokkru sinni.“
Og sannarlega reyndi á samstöðu og
bjargræðishæfileika, gisting var t.a.m. ekki
alltaf komin í höfn en slíkt reddaðist ávallt.
Mikið var um að þau svæfu í heimahúsum, hjá
tónleikahöldurum t.d. og góðviljuðu tónlistar-
ástríðufólki. „Mér var sagt að þetta væri ekki
jafn algengt og í Evrópu t.d. þannig að við vor-
um afar þakklát fyrir þessa velvild alla.“
Tónleikalega séð gekk á ýmsu; á suma
tónleika var dræm mæting eins og gengur en í
Boulder í Colorado, af öllum stöðum, var hús-
fyllir á eins lags stofutónleikum. 150 manns.
„Mér fannst þetta alveg meiriháttar,“ seg-
ir Bjarni að lokum og brosir breitt. „Ótrúleg
reynsla. Samt dálítið skrítið að vera búinn að
vera í Bandaríkjunum heilan mánuð og sjá þau
að mestu leyti út um bílrúðu!“
» Við vissum að við yrðumhvert ofan í öðru upp á dag
í rúman mánuð. En þetta gekk
upp og með tímanum lærði fólk
líka betur hvað inn á annað.
Íslenska nýbylgjurokks-
sveitin Bagdad Brothers fór í
tónleikaferðalag um þver og
endilöng Bandaríkin í sumar.
Bjarni Daníel, einn liðs-
manna, upplýsti pistilritara
um málið.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Hljómsveitin Bagdad Brothers er hlutiaf hinu mjög svo virka útgáfusamlagipost-dreifing og hefur á undan-
förnum misserum haldið fjölda tónleika og
sömuleiðis gefið út slatta af efni. Síðastliðið
haust setti June nokkur Mota, Kanadamaður
sem starfar undir merkjum sveitarinnar Un
Ashley, sig í samband við sveitina. Fór svo að
Bagdadbræður hjálpuðu honum við að koma
upp einum tónleikum á Íslandi, en Mota var að
millilenda frá Berlín á leið sinni heim til
Montreal. Vinskapur tókst með Mota og sveit-
inni, svo mikill að í sumar fóru Bagdad Brot-
hers í heilmikið tónleikaferðalag um Banda-
ríkin og Kanada fyrir milligöngu Mota. Í júní
voru spilaðir um 25 tónleikar á stöðum eins og
Montreal, Brooklyn, Fíladelfíu, Athens, New
Orleans, Austin, LA, Seattle, Portland, Chi-
cago og Moskvu (í Idaho). Mannskapurinn,
þau Bjarni Daníel, Sigurpáll Viggó, Þóra
Birgit, Steinunn Sigþrúðardóttir Jónsdóttir
og Ægir Sindri, flaug út til Montreal þar sem
þau byrjuðu á að æfa lög Un Ashley, en þau
störfuðu og sem undirleikarar fyrir Mota,
þannig að tónleikarnir urðu hartnær 50!
Bagdad í Bandaríkjunum