Morgunblaðið - 03.08.2019, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 03.08.2019, Blaðsíða 48
 Suðurlandsbraut 54 bláu húsin (við faxafen) 80% afsláttur af öllum vörum Hr ei ns un ! Opið á morgun sunnudag 13 til 17 LOKADAGUR Kvintett dönsku djasssöngkon- unnar Majken Christiansen og Björns Thoroddsen gítarleikara kemur fram á tónleikum á Jóm- frúnni við Lækjargötu í dag kl. 15. Með þeim leika Sigurður Flosason á saxófón, Jón Rafnsson á kontra- bassa og hinn norski Thorstein Ell- ingsen á trommur. Þau munu flytja úrval þekktra djasslaga. Kvintett Christiansen og Björns á Jómfrúnni LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 215. DAGUR ÁRSINS 2019 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.150 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Hallbera Guðný Gísladóttir lands- liðskona úr Val var besti leikmaður júlímánaðar í úrvalsdeild kvenna í fótbolta samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins. Hallbera segir að frammistaða Vals nú og á síðasta ári sé tvennt ólíkt og sjálf er hún mun ánægðari með sína spila- mennsku í ár. Viðtal við hana og úrvalslið júlímánaðar er að finna á íþróttasíðum í dag. »38 Hallbera var best allra í júlímánuði „Í nafni þínu“ er yfirskrift tónleika í Strandarkirkju í Selvogi á morgun, sunnudag, kl. 14 en þeir eru á dag- skrá sumartóneikaraðarinnar Engl- ar & menn. Fram koma Valgerður Guðnadóttir söngkona, Helga Lauf- ey Finnbogadóttir píanóleikari og Guðþjón Þorláksson kontrabassa- leikari. Á efnisskrá tónleikanna eru íslensk og evrópsk þjóðlög auk laga eftir Magnús Eiríks- son, Hilmar Odds- son, Helgu Lauf- eyju Finnboga- dóttur, Rodgers og Hammerstein, Cole Porter, Kurt Weill og fleiri. Flytja fjölbreytileg lög í Strandarkirkju ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Þessi ævintýrastaður á í mér hvert bein,“ segir Anna Sigrún Baldurs- dóttir, sem með sínu fólki dvelst í Flatey á Breiðafirði nú um versl- unarmannahelgina. Búist er við fjöl- menni þangað, enda verður þar bryddað upp á mörgu skemmtilegu og sjálfsprottnu. Í gærkvöldi var dansleikur með hljómsveitinni GÓSS og söngkonunni Sigríði Thorlacius í samkomuhúsi eyjunnar og í Frysti- húsinu verður bingó og barsvar, það er spurningakeppni, í kvöld. Á sunnu- dagskvöld verða tónleikar með hljóm- sveitinni Ylju. Veitt í fiskisúpuna „Ég hef tengst Flatey allt mitt líf og hér líður okkur vel. Stemningin sem hér myndast oft meðal fólks er ljúf og góð,“ segir Anna Sigrún, sem er aðstoðarmaður forstjóra Landspít- alans. Hún er dóttir þeirra Baldurs Ragnarssonar og Guðrúnar Mörtu Ársælsdóttur úr Stykkishólmi. Þau eru nú, komin á eftirlaunaaldur, flutt út í Flatey og fara á fastalandið á eig- in báti sé þess þörf. Annars eru sam- göngur við eyna með besta móti. Ferjan Baldur sem siglir yfir Breiða- fjörð milli Stykkishólms og Brjáns- lækjar tvisvar á dag kemur við í Flat- ey og þar hafa margir viðstöðu milli ferða, enda er margt að sjá og skoða. „Stundum staldrar fólk hér við brot úr degi og heillast af staðnum. Kemur síðan aftur og kannski í nokkra daga, en hér eru bæði hótel, bændagisting og fínt tjaldsvæði. Hér er maður í frábærum tengslum við náttúruna og lifir af því sem landið gefur. Núna var ég til dæmis að gera að fiski sem pabbi minn veiddi hér skammt frá. Hér verður fiskisúpa á borðum um helgina.“ Ræktarsemi á menningarstað Með sínu fólki á Anna Sigrún húsið Byggðarenda í Flatey. Það var byggt um 1950 en á þeim tíma var vöxtur og viðgangur í atvinnumálum og á mörg- um sviðum fleiri í eynni. Svo fór hins vegar að fiskurinn á grunnslóð hvarf og fólkið flutti brott. Eftir stóðu íbúðarhúsin, sem eru á fjórða tuginn. Eru mörg þeirra í eigu fólks sem á ættir eða tengsl við staðinn og sýnir honum ræktarsemi með því að halda byggingunum vel við. Meðal afþreyingar sem býðst í Flatey er kajakaleiga sem Fannar Andrésson rekur. Hafa margir að undanförnu reynt sig í því sporti, sem nýtur vaxandi vinsælda. „En Flatey er ekkert síður menningarstaður; hér er til dæmis fyrsta bókasafnið sem reist var á Íslandi og freskurnar sem Baltasar Samper málaði á veggi kirkjunnar hér gera hana að ein- stökum stað,“ segir Anna Sigrún. Ljósmynd/Aðsend Samvera Anna Sigrún í Flatey í gær með foreldrum sínum, Baldri Ragnarssyni og Guðrúnu Mörtu Ársælsdóttur. Anna í ævintýraeyjunni  Margir í Flatey um helgina  Ball, bingó og barsvar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flatey Fallegur staður á miðjum Breiðafirði þar sem margir staldra við.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.