Morgunblaðið - 08.08.2019, Page 2

Morgunblaðið - 08.08.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2019 NÝ VER SLUN Í MÖRKI NNI 3 OG UND IRHLÍÐ 2 AKUR EYRI ÓTRÚLE G OPNU NAR- TILBOÐ VEISLA ALLA V IKUNA Mörkin 3 • Reykjavík | Undirhlíð 2 • Akureyri Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Heilu 150 herbergja hóteli er þessa dagana verið að skipa upp í Helgu- víkurhöfn og setja saman steinsnar frá Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða nýtt hótel Marriott-hótelkeðj- unnar sem sett er saman úr stálein- ingum frá Kína. Hljóðið var gott í Árna Val Sól- onssyni, eiganda Capital Hotels- keðjunnar og sérleyfishafa Marriott-hótelsins, þegar Morg- unblaðið heyrði í honum í gær og sagði hann að vel hefði gengið. Ein- ingarnar væru hífðar í land í Helguvík og síðan ekið á bygging- arsvæðið þar sem þær eru settar saman jafnóðum. „Þetta mun ger- ast mjög hratt á næstu dögum, sér- staklega ef veðrið verður eins og það var í dag,“ sagði Árni. Spurður hversu langan tíma það mun taka að setja einingarnar sam- an sagði hann: „Kannski tíu daga,“ og sagði spurður hvað tæki svo við: „Það sem á eftir að gera núna er að ganga frá samskeytum, vatnsþétta á milli eininga og fleira. Og svo á eftir að klæða utan á einingarnar íslensku veðurkápuna.“ Sagði hann að um það bil einn fjórði eininganna væri kominn á byggingarsvæðið og áætlað væri að opna hótelið í vetur. teitur@mbl.is Ljósmynd/Víkurfréttir/Páll Ketilsson Heilt hótel híft upp í Helguvík Lilja Hrund Lúðvíksdóttir Teitur Gissurarson Guðlaugur Þór Þórðarson, utanrík- isráðherra Íslands, staðfesti í sam- tali við mbl.is í gær að undirbún- ingur vegna komu Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, væri hafinn fyrir nokkru síðan. Morg- unblaðið hafði fyrir því heimildir, og greindi frá fyrir tæpum mánuði, að líkur stæðu til þess að Pence myndi heimsækja Ísland nú í haust. Sagði Guðlaugur í gær: „Undirbún- ingur hefur staðið nokkuð lengi,“ en bætti við að ekki væri endanlega staðfest hvort af heimsókninni yrði, og því lægju dagsetningar ekki fyr- ir. Þá sagði Sveinn H. Guðmarsson, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneyt- is, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að þar sem dagsetningar lægju ekki fyrir væri ekki vitað hversu stórt lið manna myndi fylgja varaforsetanum ef af heimsókninni yrði. Ræða efnahagssamstarfið „Ég hef lagt á það mjög mikla áherslu að styrkja og efla tengslin við Bandaríkin frá því ég tók við sem ráðherra,“ sagði Guðlaugur Þór enn fremur í gær og sagði að- spurður að ætlunin væri að ræða fyrst og fremst efnahagssamráð milli ríkjanna tveggja. Nefndi hann heimsókn Mikes Pompeo, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, hingað til lands í febrúar, þar sem vinna við viðskiptasamráð Íslands og Bandaríkjanna hófst og sagði: „Það er ástæðan fyrir því að Mike Pence sýnir því áhuga á að koma hingað.“ Þá bætti hann við: „Við höfum lagt á það áherslu að fá hingað for- ystufólk frá öðrum ríkjum og þá sérstaklega þeim ríkjum sem við erum í mestum samskiptum við,“ sagði Guðlaugur. Í heimalandinu er Pence af mörgum lýst sem sérstaklega íhaldssömum þegar kemur að efna- hags- og félagsmálum. Hefur hann notað þessa lýsingu um sig sjálfur og sagði í ræðu þegar hann hlaut varaforsetaútnefningu repúblikana árið 2016: „Ég er kristinn, íhalds- amur og repúblikani, í þessari röð.“ Hann er ötull andstæðingur fóst- ureyðinga, aukinna réttinda hinseg- in fólks og hjónabands samkyn- hneigðra. Kommúnistar og laxveiðar Pence verður þriðji varaforseti Bandaríkjanna til að sækja Ísland heim. Lyndon B. Johnson, þá vara- forseti, sótti Ísland heim 16. sept- ember 1963 og tók fjöldi manns á móti honum á Keflavíkurflugvelli. Í Morgunblaðinu degi síðar er sagt frá því að varaforsetinn hafi verið heillandi og reifur, og á meðal þeirra sem tóku á móti honum hafi verið hópur kommúnista, sem af- hentu varaforsetanum mótmælaorð- sendingu. Rétt rúmum tveimur mánuðum síðar tók Johnson við sem forseti Bandaríkjanna eftir að John F. Kennedy var myrtur. Semma í júlí 1983 kom annar verðandi forseti Bandaríkjanna til landsins, þá varaforseti, George Bush eldri. Voru mál Atlantshafs- bandalagsins sérstaklega til um- ræðu í þessari heimsókn, en heim- sókn Bush endaði með því að hann landaði laxi í Þverá, enda kunnur laxveiðimaður. Hann átti eftir að sækja Ísland aftur heim árið 2006, þegar sonur hans gegndi embætti forseta, þá sérstaklega til að renna fyrir lax. Dagsetning heimsóknar óljós  Guðlaugur Þór segir að undirbúningur vegna heimsóknar Mike Pence hafi staðið „nokkuð lengi“  Pence verður þriðji varaforseti Bandaríkjanna til að sækja Ísland heim í varaforsetatíð sinni Mike Pence Guðlaugur Þór Þórðarson Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Háskólann í Reykjavík (HR) af öllum kröfum Kristins Sigurjónsson- ar, fyrrverandi lektors við háskól- ann, en hann stefndi HR vegna upp- sagnar sinnar í október síðastliðnum og krafði skólann um 66 mánaða laun, eða tæplega 57 milljóna króna, á þeim forsendum að hann hefði haft stöðu opinbers starfsmanns. Var honum sagt upp vegna ummæla sinna á netinu um konur. Greint hefur verið frá því hér í Morgunblaðinu að Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykja- vík, telji að ummæli Kristins hafi haft veruleg áhrif á starfsfólk HR, en Kristinn sagði m.a. að konur eyði- legðu vinnustaði með því að troða sér inn á þá og að hann vildi síður vinna með konum. Ekki endanleg niðurstaða Jón Steinar Gunnlaugsson, lög- maður Kristins, segir dómi héraðs- dóms verða áfrýjað til Landsréttar. „Það er ljóst að þetta verður aldr- ei endanleg niðurstaða í málinu,“ segir hann. „Það verður aldrei unað við þetta.“ Þá segir Jón áhugavert hvað sumar dómsúrlausnir komi honum á óvart þótt hann telji lög- fræðina í þeim standa til annarra hluta. „Í sjálfu sér er þetta orðið þannig að maður getur átt von á hverju sem er, sama hvað manni finnst um hinar lagalegu röksemd- ir.“ freyr@mbl.is Háskólinn í Reykjavík lagði Kristin í héraðsdómi  Krafðist tæp- lega 57 milljóna króna frá HR Morgunblaðið/Freyr Niðurstaða Kristinn Sigurjónsson (t.v.) mætti í héraðsdóm í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.