Morgunblaðið - 08.08.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 08.08.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2019 Þóra Sigurðardóttir Baldur Arnarson Frá sumrinu 2018 hefur að minnsta kosti 14 veitingahúsum verið lokað í miðborg Reykjavíkur. Þá hafa tveir staðir dregið úr framboði. Þetta má ráða af fréttum sem birt- ust á mbl.is og á vefsíðunni veitinga- geirinn.is á tímabilinu. Tímasetning- arnar á grafinu hér til hliðar taka mið af dagsetningum á fréttunum en þær kunna í einhverjum tilvikum að vera ónákvæmar. Jafnframt var framboðið athugað í miðborginni í gær og rætt við veitingafólk. Áður hafði Argentína steikhús far- ið í þrot og nýir eigendur komið að rekstri Jamie’s Italian á Hótel Borg. Hefur sá staður tvisvar skipt um rekstraraðila að undanförnu. Af öðrum dæmum má nefna að veitingahúsið La Poblana hætti rekstri í Hlemmi mathöll í fyrra- haust en í staðinn kom taco-staður- inn Fuego. Þá hætti ísbúð starfsemi og kom Flatey pizza í staðinn. Fleiri staðir verið opnaðir Athygli vekur að samkvæmt sam- antekt Morgunblaðsins hafa töluvert fleiri veitingahús verið opnuð í mið- borginni á tímabilinu en hafa lokað. Þannig hafa að minnsta kosti 20 veitingahús, eða kaffihús, verið opnuð, eða eru í þann mund að hefja rekstur, og er Grandi mathöll þá tal- inn sem einn veitingastaður. Þar eru hins vegar níu veitingastaðir. Með þeim hafa hátt í 30 veitingahús verið opnuð í miðborginni á tímabilinu. Sala á götumat hefur líka færst í vöxt. Skemmst er að minnast mat- armarkaðar á Miðbakkanum við Reykjavíkurhöfn í júlí. Fram undan er opnun tveggja veitingastaða á Laugavegi 95-99 í næstu viku og svo opnun veitingahússins Yuzu á Hverfisgötu 44 í september. Þá er áformað að opna eitt stærsta veit- ingahús borgarinnar á Marriott-lúx- ushótelinu við Hörpu næsta vor. Þessu til viðbótar eru hugmyndir um veitingarekstur í atvinnurýmum á jarðhæð Austurhafnar við Hörpu. Þar er uppbygging á 70 íbúðum langt komin gegnt Hafnartorgi. Þá er verið að leggja lokahönd á jarðhæðir á þéttingarreitum á Hverfisgötu 85-93 og 94-96 en þar er gert ráð fyrir atvinnurýmum. Á fyrr- nefnda reitnum kemur til greina að hafa eitt rými. Á Hverfisgötu 94-96 var gert ráð fyrir veitingarýmum. Að auki er stækkun á Hlemmi mathöll í undirbúningi en rætt hefur verið um að stækka Hlemmtorgið og mathöllina til austurs á næsta ári. Horft lengra fram í tímann eru auð rými á jarðhæð húss Trygginga- stofnunar, sem flutt var í Kópavog. Húsið er á horni Laugavegar og Snorrabrautar og gæti hentað undir rekstur veitingahúsa. Áformað er að breyta þeim hluta Laugavegar í göngugötu á næstunni. Sviptingar í veitingarekstri  Fjöldi veitingahúsa hefur farið í þrot eða hafið starfsemi í miðborginni frá því á miðju síðasta ári  Ný veitingahús hafa yfirleitt komið í stað þeirra sem hættu  Fjöldinn eykst með mathöllunum Dæmi um opnun og lokun veitingastaða í miðborginni 1 5 4 2 8 6 7 28 19 20 35 16 15 17 18 21 24 1. Yuzu Hverfisgötu 44 Opnar í september 2. Aleppo (kaffihús) Tryggvagötu 13 Opnaði í ágúst 3. Dill Hverfisgötu 12 Lokaði í ágúst 4. Joe & The Juice Hafnartorgi Opnaði í ágúst 5. Lóa Bar & Bistro og Stökk CenterHotel, Laugavegi Opna í ágúst 6. Essensia Hverfisgötu 6 Lokaði í júlí 7. XO JL-húsinu Lokaði í júlí 8. Vietnam Restaurant Laugavegi 3 Opnaði í júlí 9. Fjallkonan Hafnarstræti 1-3 Opnaði í júní 10. Shaw arma King Laugavegi 87 Opnaði í júní 11 10 36 12 29 30 31 32 27 25 23 22 34 14 26 3 13 33 9 11. Geysir Bistro Laugavegi 96 Opnaði í maí 12. Laundromat Austurstræti 9 Opnaði í júní 13. Nostra Laugavegi 59 Lokaði í maí 14. Bergmál Bistro Hörpu Opnaði í apríl 15. Matwerk Laugavegi 96 Lokaði í apríl 16. Smurstöðin Hörpu Lokaði í apríl 17. Skelfisk­ markaðurinn Klapparstíg 28-30 Lokaði í mars 18. Grill markaðurinn Lækjargötu 2a Lokaði í hádeg- inu í febrúar 19. Systur Hverfisgötu 12 Opnaði í janúar Lokaði í ágúst 20. Nafnlausi pítsustaðurinn Hverfisgötu 12 Lokaði í janúar 21. Egill Jacobsen Austurstræti 9 Lokaði í desem- ber 2018 22. La Primavera Grandagarði 20 Opnaði í nóv- ember 2018 23. Mímir Hótel Sögu Opnaði í nóv- ember 2018 24. Rústik Hafnarstræti 1-3 Lokaði í nóvem- ber 2018 25. Downtown Cafe & Bar Laugavegi 51 Opnaði í sept- ember 2018 26. The Restaurant Renaissance Hótel Holti Opnaði í sept- ember 2018 27. Reykjavík Kitchen Rauðarárstíg 8 Opnaði í ágúst 2018 28. Fjalakötturinn Hótel Reykjavík Centrum, Aðalstræti 16 Lokaði tíma- bundið í okt. 2018 en bauð áfram morgunverð 29. Brewdog Frakkastíg 8a Opnaði í sept- ember 2018 30. Reykjavík Meat Frakkastíg 8b Opnaði í sept- ember 2018 31. Grandi mathöll Grandagarði 16 Opnaði í júní 2018 32. Bastard Brew & Food Vegamótastíg 4 Opnaði í maí 2018 33. Argentína Barónsstíg 11a Lokaði í apríl 2018 34. Lamb Street food Grandagarði 7 Opnaði í apríl 2018 35. Lof vetingahús Mýrargötu 31 Opnaði í apríl Lokaði í júlí 2018 36. Vietnam Restaurant Laugavegi 101 Opnaði í apríl 2018 Er stærsti framleiðandi sportveiðarfæra til lax- silungs- og sjóveiða. Flugustangir og fluguhjól í úrvali. Gott úrval af fylgihlutum til veiða stólar, töskur, pilkar til sjóveiða, spúnabox margar stærðir, veiðihnífar og flattningshnífar. Abulon nylon línur. Gott úrval af kaststanga- settum, fyrir veiðimenn á öllum aldri, og úrval af „Combo“ stöng og hjól til silungsveiða, lax veiða og strandveiða. Flugustanga sett stöng hjól og lína uppsett. Kaststangir, flugustangir, kast- hjól, fluguhjól, gott úrval á slóðum til sjóveiða. Lokuð kasthjól. Úrval af flugustöngum, tvíhendur og hjól. Balance Lippa, mjög góður til silungsveiða „Original“ Fireline ofurlína, gerfi- maðkur sem hefur reynst sérstaklega vel, fjölbreitt gerfibeita fyrir sjóveiði og vatnaveiða, Berkley flattnings- hnífar í úrvali og úrval fylgihluta fyrir veiðimenn. Flugnanet, regnslár, tjaldhælar, og úrval af ferðavörum Helstu Útsölustaðir eru: Veiðivon Mörkinni Vesturröst Laugavegi Veiðiportið Granda Veiðiflugur Langholtsvegi Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kassinn Ólafsvík Söluskáli ÓK Ólafsvík Skipavík Stykkishólmi Smáalind Patreksfirði Vélvikinn Bolungarvík Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki SR-Bygginavöruverslun Siglufirði Útivist og Veiði Hornið Akureyri Veiðiríkið Akureyri Hlað Húsavík Ollasjoppa Vopnafirði Veiðiflugan Reyðarfirði Krían Eskifirði Þjónustustöðvar N1 um allt land. Axelsbúð Akranesi Dreifing: I. Guðmundsson ehf. Nethyl 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com. Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum „Betri sportvöruverslunum landsins“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.