Morgunblaðið - 08.08.2019, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Oft er hluturkarla ogkvenna
dreginn fram til
samanburðar við
kosningalok og
stjórnarmyndanir.
Ekkert er skrítið við það enda
er það ekki fyrr en á síðustu
tímum sem þokast hefur í
jafnræðisátt í þeim efnum. Sá
tími mun koma að þessi sér-
staka umræða muni þykja
óþörf.
Síðustu árin hefur kona gegnt
embætti forsætisráðherra í
Bretlandi og á sama tíma hefur
kona verið í sambærilegu emb-
ætti í heimastjórn Skotlands.
Hvað sem mönnum þykir um
stjórnunarstíl þessara kvenna
og árangur þeirra í starfi er
enginn vafi á að þær risu báðar
undir sinni miklu ábyrgð. Nú-
verandi forsætisráðherra lét
verða sitt fyrsta verk í embætti
að heimsækja nokkur héruð í
Englandi og því næst í Skot-
landi, Wales og á Norður-
Írlandi. Nicola Sturgeon,
heimastjórnarráðherra Skot-
lands, sat fyrir svörum á „Ed-
inburgh Fringe Festival“ og var
beðin um að gera samanburð á
samtölum sínum við forsætis-
ráðherrana Theresu May og
Boris Johnson. Þótti hún senda
frú May nokkuð kalda kveðju.
„Ég vil hvorki vera niðrandi
eða yfirlætisfull gagnvart
Theresu May, hún er auðvitað
ekki lengur forsætisráðherra,
en að eiga samtöl við hana tók
óneitanlega á taugarnar (var
„pretty soul-destroying“). Hún
vék aldrei hænufet
frá undirbúnum
minnisblöðum sín-
um, þótt viðmæl-
andinn reyndi að
beina umræðu inn á
aðrar brautir. Mér
er einn fundur minnisstæður
þegar ég leitaðist við að byrja
hann á mýkri nótum en endra-
nær til að draga úr hættu á því
að við færum strax að takast á.
May klæddist og klæðist enn
sérstaklega grípandi og glæsi-
legum skóm. Sjálf er ég veik
fyrir skóm svo að ég byrjaði
fundinn á að segja sem svo „áð-
ur en við skellum okkur í
Brexit-umræðurnar má ég
nefna þessa mögnuðu skó sem
þú ert í“...og sá samstundis á
augnaráði hennar að hún teldi
ólíklegt að svarið við þessari
byrjun minni væri að finna í
handritinu hennar. Það varð til
þess að þessi „mjúka opnun mín
breyttist samstundis í mjög
vandræðalegt og stíft upphaf“.
Ráðherrann bætti við: „Það
að eiga fund með Boris var að
minnsta kosti miklu líkara því
að eiga venjulegt samtal milli
manna þótt það hafi ekki verið
alveg frítt við að vera dálítið
sérkennilegt. En þú gast rök-
rætt, skipst á skoðunum og ver-
ið ósammála honum oftar en
sammála. Þetta má hann eiga og
þetta var ólík lífsreynsla.“
Kanski gefur þessi lýsing
nokkra skýringu á því hvers
vegna aldrei þokaðist neitt í við-
ræðum fyrrverandi forsætis-
ráðherra við þá í Brussel eða
þingheim í Lundúnum.
Samanburður ráð-
herra Skotlands á
forsætisráðherr-
unum var sláandi}
Mynd sem segir sögu
Innanhúss-skýrsla í varn-
armálaráðuneyti
Bandaríkjanna
leiðir líkum að því
að Ríki íslams
kunni að rísa úr öskustónni
eftir að hafa misst allt land-
svæðið sem það hafði áður á
valdi sínu. Í skýrslunni kemur
fram að starfsemi þessara
hryðjuverkasamtaka fari vax-
andi á ný í Írak og Sýrlandi.
Trump forseti lýsti yfir sigri
á Ríki íslams í lok síðasta árs
og dró úr þátttöku í átökunum
í Sýrlandi. En eins og með
annað illgresi eiga slík öfl það
til að spretta upp á nýjan leik
og eru talibanar í Afganistan
dæmi um slíka endurkomu.
Verði þessi uppvakningur að
veruleika mun það auka enn á
ófriðinn og hörmungarnar á
svæðinu og var ekki á bætandi.
Viðbótarhætta er að Tyrkir
sæki inn í Sýrland gegn Kúrd-
um og ástandið hefur heldur
ekki batnað með því að Tyrkir
eru farnir að senda flóttamenn
frá Sýrlandi, gegn
vilja þeirra, aftur
til Sýrlands.
Óttast er að
verði spár um
versnandi ástand í
Sýrlandi að veruleika muni af-
leiðingarnar verða vaxandi
flóttamannavandi á nýjan leik.
Hættan sé sú að ný holskefla
gangi þá yfir Evrópu en líklegt
er að þolinmæði gagnvart slíku
verði minni en hún var.
Þetta getur valdið enn alvar-
legri vanda að þessu leyti í
Evrópu en nú er við að glíma,
og er hann þó verulegur eins
og fréttir bera reglulega með
sér. Og þó að Ísland sé fjarri
átakasvæðunum eða þeim
löndum sem flóttamennirnir
leita fyrst til, hefur reynslan
verið sú að Ísland er fjarri því
ónæmt fyrir slíkum atburðum.
Af þeim sökum er full ástæða
til að stjórnvöld hér á landi
fylgist vel með þessari þróun
og grípi til þeirra ráða sem
duga áður en það verður um
seinan.
Óttast er að flótta-
mannastraumur
kunni að vaxa á ný}
Ríki íslams er enn ógnvaldur
Í
slendingadeginum var fagnað í 120.
skipti í bænum Mountain í Norður-
Dakóta í Bandaríkjunum og í 130.
skipti í Gimli í Manitoba-fylki í Kanada
um liðna helgi. Að deginum standa af-
komendur vesturfara sem héldu frá Íslandi til
Norður-Ameríku á árunum 1875-1914 en talið
er að milli 15.000 og 20.000 Íslendingar hafi
flust búferlum og hafið nýtt líf í vesturheimi. Á
þessum tíma fluttu um 52 milljónir Evrópubúa
til vesturheims meðal annars vegna þess að
landbúnaðarsamfélögin gátu ekki framleitt
nægjanlega mikið í takt við þá miklu fólks-
fjölgun sem átti sér stað í Evrópu en á tíma-
bilinu 1800-1930 fjölgaði íbúum álfunnar úr 150
milljónum í 450 milljónir.
Stolt af uppruna sínum
Hluti af því að þekkja sjálfan sig er að þekkja uppruna
sinn. Vestur-Íslendingar leggja mikið á sig til þess að rækta
tengsl sín við Ísland og halda sögu sinni og menningu á lofti.
Á þessum slóðum í Kanada og Bandaríkjunum eru afkom-
endur Íslendinga sem tala íslensku án þess að hafa búið á
Íslandi. Þrátt fyrir að rúm 100 ár séu liðin frá því að búferla-
flutningar vesturfaranna liðu undir lok er fólk enn mjög
meðvitað um uppruna sinn og er stolt af honum. Slíkt er alls
ekki sjálfgefið en sú þrautsegja, áhugi, dugnaður og þjóð-
rækni sem býr í Vestur-Íslendingum er til eftirbreytni.
Skylda Íslands
Manitoba er fjölmennasta byggðarlag Íslendinga í heim-
inum utan Íslands en samkvæmt Hagstofu Kanada hafa
um 90 þúsund Kanadamenn skráð uppruna
sinn sem íslenskan. Sögu þessa fjölmenna
hóps þarf að gera betri skil á Íslandi og það er
skylda okkar Íslendinga að rækta þessi tengsl
af alúð og alvöru. Ákveðin vatnaskil urðu í
samskiptum Íslands við þetta svæði þegar ís-
lensk stjórnvöld opnuðu ræðismannsskrifstofu
í Winnipeg árið 1999. Skrifstofan hefur leikið
lykilhlutverk í að efla tengsl okkar við Vestur-
Íslendinga. Við viljum halda áfram að efla þau
og því var sérlega ánægjulegt á sjálfum Ís-
lendingadeginum að greina frá ákvörðun ís-
lenskra stjórnvalda um aukinn stuðning við ís-
lenskudeild Manitoba-háskóla í Winnipeg en
deildin hefur verið starfrækt við skólann síðan
1951 við góðan orðstír.
Byggjum fleiri brýr
Það var stórkostlegt að taka þátt í Íslendingadögunum
og kynnast öllu því góða fólki sem leggur mikla vinnu á sig
við að gera daginn sem hátíðlegastan. Um sannkallaðan
fjársjóð er að ræða sem vonandi sem flestir fá tækifæri til
að kynnast. Í því samhengi vil ég nefna Snorraverkefnið
sem ætlað er ungmennum af íslenskum uppruna í Norður-
Ameríku til þess að koma til Íslands og kynnast uppruna
sínum og Snorri-Vestur-verkefnið sem er ætlað íslenskum
ungmennum til að kynnast slóðum Vestur-Íslendinga.
Með ungmennaskiptum sem þessum ræktum við áfram
þessi einstöku tengsl og byggjum þannig fleiri brýr yfir til
skyldfólks okkar í vesturheimi.
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Pistill
Fjársjóður í vesturheimi
Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Hjörtur J. Guðmundsson
hjortur@mbl.is
Sú ákvörðun framkvæmda-stjórnar Evrópusambands-ins að höfða mál fyrir dóm-stól sambandsins gegn
stjórnvöldum í Belgíu vegna þess
hvernig þau stóðu að innleiðingu
þriðja orkupakkans hefur vakið tals-
verða athygli hér á landi í ljósi um-
ræðunnar sem átt hefur sér stað und-
anfarna mánuði um innleiðingu
pakkans hér.
Stuðningsmenn þess að þriðji
orkupakki Evrópusambandsins verði
samþykktur hér á landi vegna EES-
samningsins, hafa sagt að þeir telji
engar líkur á því að samningsbrota-
mál verði höfðað gegn Íslandi vegna
fyrirhugaðrar innleiðingar orkupakk-
ans hér á landi vegna rangrar innleið-
ingar hans eða að skaðabótamál verði
höfðað gegn Íslandi verði pakkinn
samþykktur en mögulegri umsókn
um lagningu sæstrengs síðan hafnað.
Þeir sem leggjast gegn sam-
þykkt þriðja orkupakkans telja að sú
leið sem ríkisstjórnin hyggst fara við
að innleiða orkupakkann, það er að
samþykkja hann og innleiða löggjöf-
ina sem hann inniheldur en fresta
gildistöku þess hluta hennar sem deilt
er um að standist stjórnarskrána,
standist ekki EES-samninginn og
fyrir vikið sé hætta á að höfðað verði
samningsbrotamál gegn Íslandi. Þá
sé líklegt að til skaðabótamáls komi.
Komið gæti til málshöfðunar
gegn Íslandi
Dómsmálið gegn Belgíu byggist
á því að eftirlitsaðila orkumála þar í
landi hafi ekki verið veitt vald til þess
að taka bindandi ákvarðanir varðandi
gas- og raforkumál og geti einungis
lagt til við ríkisstjórnina að slíkar
ákvarðanir verði teknar. Að sama
skapi séu skilyrði fyrir tengingum við
tengivirki fyrir rafmagn og gas sett af
stjórnvöldum en ekki eftirlitsaðil-
anum. Þá sé ekki hægt að tryggja
jafnan aðgang orkufyrirtækja að
tengivirkjum.
Hér á landi er gert ráð fyrir að
umræddur eftirlitsaðili verði Orku-
stofnun. Með þriðja orkupakkanum
verður eftirlit stofnunarinnar sjálf-
stætt gagnvart íslenskum stjórnvöld-
um en mun hins vegar heyra undir
Eftirlitsstofnun EFTA og í gegnum
hana orkustofnun Evrópusambands-
ins, ACER. Andstæðingar þriðja
orkupakkans telja að dómsmálið
gegn Belgíu sé til marks um áherslu
Evrópusambandsins á rétta innleið-
ingu pakkans.
Komið er inn á hlutverk Orku-
stofnunar samkvæmt þriðja orku-
pakkanum í álitsgerð þeirra Stefáns
Más Stefánssonar, prófessors við
lagadeild Háskóla Íslands, og Frið-
riks Árna Friðrikssonar Hirst lands-
réttarlögmanns sem unnin var um
málið fyrir utanríkisráðuneytið. Þar
segir að spurningar vakni um það
hvort lagaleg umgjörð stofnunar-
innar fullnægi kröfum sem gerð er
samkvæmt orkupakkanum til slíkra
eftirlitsaðila í ljósi þess að hún muni
áfram heyra undir eftirlits- og yf-
irstjórnunarheimildir ráðherra.
Reynist þessar hugleiðingar
þeirra Stefáns Más og Friðriks Árna
á rökum reistar gæti sú staða mögu-
lega komið upp, komi til þess að þriðji
orkupakkinn verði samþykktur á Al-
þingi um næstu mánaðarmót eins og
stjórnvöld gera ráð fyrir, að Eftirlits-
stofnun EFTA muni í kjölfarið höfða
mál gegn Íslandi á þeim forsendum
að staða Orkustofnunar sem eftirlits-
aðila verði ekki fullnægjandi í ljósi
löggjafarinnar líkt og í tilfelli Belgíu.
Verður líka höfðað
mál gegn Íslandi?
Morgunblaðið/ÞÖK
Raforka Evrópusambandið hefur gert athugasemdir við hvernig Belgar
innleiddu þriðja orkupakkann. Gæti sama staða komið upp hér?
Meðal þess sem einkum hefur
verið tekist á um í umræðunni
hér á landi um þriðja orku-
pakkann, sem ríkisstjórnin vill
innleiða vegna aðilar Íslands
að EES-samningnum, er hvort
sú leið sem stjórnvöld vilja
fara við innleiðinguna standist
samninginn og löggjöfina sem
orkupakkinn byggist á og hvort
hugsanlega kunni að verða
höfðað samningsbrotamál af
hálfu Eftirlitsstofnunar EFTA
(ESA) gegn Íslandi fyrir EFTA-
dómstólnum.
Einnig hefur verið tekist á
um það hvort hugsanlega
kunni að koma til skaðabóta-
máls gegn Íslandi verði orku-
pakkinn samþykktur en mögu-
legri umsókn um lagningu
sæstrengs fyrir rafmagn á milli
Íslands og Evrópu síðan hafn-
að.
Tekist á um
málshöfðun
ÞRIÐJI ORKUPAKKINN