Morgunblaðið - 08.08.2019, Side 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2019
✝ Guðmundur Þor-leifsson (Gummi
Dolla) fæddist í
Dagsbrún í Neskaup-
stað 4. janúar 1940.
Hann lést á hjúkrun-
arheimilinu Mörk 28.
júlí 2019.
Foreldrar hans
voru hjónin Þorleifur
Jónasson, skipstjóri
og útgerðarmaður
frá Neskaupstað, og
Sigurfinna Eiríksdóttir frá
Dvergasteini í Vestmannaeyjum,
þau eru bæði látin. Systkini Guð-
mundar eru 1) Sigurbjörg Þor-
leifsdóttir, maki Ólafur Gunnar
Gíslason, látinn, 2) Eiríkur Þor-
leifsson, maki Jónasína Þóra Er-
lendsdóttir, látin, 3) Herbert Þor-
leifsson, 4) Jónas Pétur Þorleifs-
son, látinn, eftirlifandi maki Gina
Cuizon.
Guðmundur giftist Bertu Guð-
nýju Kjartansdóttur, f. 23. júlí
1945, frá Flateyri. Berta var
dóttir Guðrúnar Pálmfríðar
Guðnadóttur og Kjartans Ó. Sig-
urðssonar frá Súgandafirði.
Dætur þeirra eru 1) Erla, f.
14.12. 1971, gift Bernhard A.
Maríu er Arnar Már Ármanns-
son.
Guðmundur ólst upp í Nes-
kaupstað til 24 aldurs en þá flutti
hann með foreldrum sínum til
Hafnarfjarðar. Guðmundur og
Berta hófu búskap í Hafnarfirði
en fluttu síðar til Vestmannaeyja
og bjuggu þar til ársins 1973 er
gos hófst í Eyjum. Fjölskyldan
flutti þá til Neskaupstaðar og bjó
þar lengst af. Árið 1996 fluttust
Guðmundur og Berta á höfuð-
borgarsvæðið, síðast að Lækja-
smára í Kópavogi.
Guðmundur gekk í barna- og
gagnfræðaskólann í Neskaup-
stað, síðar stundaði hann nám í
Stýrimannaskólanum í Reykja-
vík og útskrifaðist þaðan með
meira fiskimannapróf árið 1960.
Guðmundur stundaði sjóinn frá
barnæsku hjá föður sínum, fyrst
sem háseti en síðar stýrimaður á
Gullfaxa og skipstjóri á sama
skipi til 1973. Við tók eigin út-
gerð ásamt eiginkonu sinni
Bertu á bátunum Ísaki, Arnþóri
og Gullfaxa.
Útför Guðmundar fer fram frá
Digraneskirkju í dag, 8. ágúst
2019, og hefst athöfnin kl. 13.
Petersen. Börn
þeirra eru Diljá
Heba, Júlía Hrönn
og Bernhard Snær.
2) Harpa, f. 7.4.
1976, í sambúð með
Jóhanni Hafþórs-
syni, börn þeirra eru
Birgir Þór og Birg-
itta Heiða.
Fyrir átti Guð-
mundur 1) Grétar
Birki, f. 8.4. 1965,
giftan Svanhildi Bjarnadóttur.
Börn þeirra eru Harpa María,
Hekla Björk og Hákon Birkir.
Sambýlismaður Hörpu Maríu er
Tómas Emil Guðmundsson Han-
sen og sonur þeirra Emil Berg,
fyrir átti Tómas þrjár dætur. 2)
G. Vilberg Guðmundsson, f.
17.12. 1967, sambýliskona hans
er Jóna Guðrún Vébjörnsdóttir.
Sonur G. Vilbergs og Ólafar Ósk-
ar Þórhallsdóttur er Þórhallur
Arnar.
Fyrir átti Berta Guðrúnu Ernu
Sigurðardóttur, f. 24.7. 1966.
Börn hennar og fyrrverandi eig-
inmanns hennar, Hreins Sigurðs-
sonar, eru Sigurður og Berta
María, sambýlismaður Bertu
Lífsgöngu elsku pabba lauk
sunnudaginn 28. júlí. Skipstjór-
inn hefur siglt á ný mið. Við vor-
um ekki tilbúnar að kveðja en að
sama skapi erum við svo þakk-
látar fyrir þær stundir sem við
áttum með honum.
Pabbi var ekki maður margra
orða þegar við vorum að alast
upp. Okkur fannst hann svolítið
strangur, enda uppeldið meira á
herðum mömmu. Hann vildi
hlusta á fréttirnar og það vakti
ekki lukku þegar við vorum fliss-
andi við matarborðið. Setningin
„þið eruð bestar á balli“ mun
fylgja okkur og vinkonunum um
ókomna tíð. En við vorum rosa-
lega stoltar af því að vera dætur
Gumma Dolla. Pabbi var dugnað-
arforkur, ósérhlífinn, hjálpsam-
ur, stríðinn og frábær sögumað-
ur enda upplifað ýmislegt um
dagana og þá sérstaklega á sjón-
um.
Pabbi og Jonni bróðir hans
voru báðir fúsir til verka ef eitt-
hvað þurfti að gera heima fyrir,
með misgóðum árangri þó. Voru
hálfgerðir Knoll og Tott. Þegar
foreldrar okkar bjuggu í Hauks-
hólunum þurfti að skipta um
klósett. Bræðurnir fóru í málið,
rosalega stoltir þegar allt var
tengt og klárt. Í ljós kom að
klósettið var orðið upphitað þar
sem heita vatnið hafði verið
tengt inn á klósettið. Þeim
fannst heldur ekkert mál að
tengja innstungu inni á baði,
eini gallinn var að þegar því
verkefni var lokið var bara hægt
að nota innstunguna eða hafa
ljósið kveikt, ekki bæði í einu.
Eftir að pabbi hætti að vinna
naut hann þess að dytta að bú-
staðnum þeirra í Norðurárdaln-
um, þar eyddi hann góðum tíma
á sumrin með mömmu og
Krumma sínum. Hann naut þess
að vera afi og fylgjast með hvað
barnabörnin tóku sér fyrir
hendur og þau nutu samveru-
stunda með afa sínum.
Það var mikið áfall þegar
pabbi var greindur með Alz-
heimers árið 2016. En við nýtt-
um tímann vel saman. Uppá-
haldið hans var að fara á
rúntinn með okkur og bað um
það alveg fram undir það síð-
asta. Síðasta minning okkar með
pabba var þegar við fórum á
rúntinn daginn áður en hann
veiktist þ.e. á afmælisdegi
mömmu þann 23. júlí og áttum
við yndislegan dag saman. Hann
lést svo í faðmi okkar þann 28.
júlí.
Við viljum þakka starfsmönn-
um hjúkrunarheimilisins Mark-
ar 4. hæð norður fyrir frábæra
umönnun og stuðning, það var
ómetanlegt.
Blessuð sé minning pabba,
Gumma Dolla,
Erla og Harpa.
Mig langar með nokkrum
orðum að minnast tengdaföður
míns, Guðmundar Þorleifssonar
skipstjóra eða Gumma Dolla
eins og hann var jafnan kall-
aður.
Þótt Gummi hafi verið hættur
til sjós þegar kynni okkar hófust
þá sé ég hann ætíð fyrir mér
sem hinn dæmigerða íslenska
sjómann, hörkutól, kjarkmikinn
með kassann þaninn í stafni í
ólgusjó með sígarettu í munnvik-
inu. Hann var sannarlega einn af
hetjum hafsins, það sást best á
dansleikjum í Neskaupstað
nokkrum árum eftir að hann fór
í land, þar sem ungir menn sem
stunduðu sjóinn biðu í röðum
eftir að skiptast á skoðunum við
Gumma. Hann tók ungu mönn-
unum vel og sagði þeim sögur
sínar. Hann gerði aldrei mikið úr
sjómannstíð sinni né uppákom-
um sínum til sjós, en það gekk
sannarlega á ýmsu. Ólgusjór í
Pentlinum, eltingaleikur við
Landhelgisgæsluna, stórlúður,
tundurdufl í veiðarfærum og
fleira. Gummi var í essinu sínu
þegar talið barst að sjónum enda
alinn upp á sjómannsheimili og
stundaði sjómennsku alla sína
starfsævi.
Þegar Gummi hætti í útgerð
fluttist hann ásamt eiginkonu
sinni Bertu frá Neskaupstað á
mölina og fljótlega komu þau
sér upp sumarbústað í Norður-
árdal. Gummi naut sín ákaflega
vel á þeim slóðum og var sér-
staklega iðinn við að betrum-
bæta bústaðinn og umhverfi
hans með ýmsum hætti. Gummi
var ekki völundarsmiður né hag-
leiksmaður en hann var einbeitt-
ur við verk sín og lauk þeim að
jafnaði þó að útkoman gæti ver-
ið misgóð. Við viðgerð á einni
undirstöðu bústaðarins tjakkaði
hann bústaðinn upp á einu horni
þannig að útidyrahurðin stóð
föst og tengdamóðir mín komst
ekki út þann daginn. Þá datt
honum í hug að ylja úritanbrúsa
yfir gashitaranum í bústaðnum
sem að endingu sprakk og
dreifðist úritan um allan bústað.
Tengdamóður minni var ekki
skemmt. En bústaðnum var vel
við haldið, stór flötin ætíð ný-
slegin skreytt með akkeri og
netakúlum, hvað annað. Börnum
okkar Erlu minnar þótti gaman
að koma í heimsókn til afa og
ömmu, slá golfbolta, busla í
ánni, keyra um á sláttubílnum
og tína ber á haustin.
Gummi var fámáll en gagn-
orður og hélt sig helst til hlés í
margmenni. Hann var ekki allra
en vinur vina sinna, bóngóður
og barngóður. Glettinn, stríðinn
og sögumaður fram í fingur-
góma. Við Gummi áttum skap
saman – það fór ætíð vel á með
okkur og ég minnist hans með
sárum söknuði.
Tengdamóðir mín og dætur
Gumma hafa verið honum ómet-
anlegur bakhjarl síðastliðin ár
eftir að honum fór að hraka
vegna Alzheimers-sjúkdóms.
Það hefur ekki liðið sá dagur án
þess að þær hafi heimsótt hann
á Mörkina þar sem hann dvaldi
síðustu misserin, drifið hann í
bíltúr niður að sjó þar sem
hjarta hans sló hraðast. Gummi
hefur nú haldið á önnur mið og
votta ég aðstandendum öllum
mína dýpstu samúð. Blessuð sé
minning Gumma.
Bernhard A. Petersen.
Guðmundur Þorleifsson
✝ Hörður Guð-mundsson fædd-
ist 16. febrúar 1929 í
Hafnarfirði. Hann
andaðist á hjarta-
deild Landspítalans
26. júlí 2019.
Foreldrar Harðar
voru Guðmundur
Guðmundsson,
verkamaður í
Hafnarfirði, f. 1900
á Þverlæk í Holtum í
Rangárvallarsýslu, d. 1991, og
Guðrún Sigurbergsdóttir, hús-
móðir og verkakona í Hafnar-
firði, f. 1906 í Skíðholtskoti,
Hraunhreppi á Mýrum, d. 1991.
Bróðir Harðar var Ólafur,
lögregluþjónn í Hafnarfirði, f.
1930, d. 2018, og hálfsystir sam-
feðra Elín Ása, f. 1926, d. 2016.
Fósturbróðir var Bragi Þor-
bergsson, f. 1935, d. 2019.
Árið 1958 kvæntist Hörður
eftirlifandi eiginkonu sinni, Jó-
hönnu Gunnlaugsdóttur, f. 10.
ágúst 1929 á Brekkuvöllum
Barðaströnd, húsmóður í
Hafnarfirði. Þeirra börn eru: 1)
Gunnlaugur bankamaður, f.
1959, synir Kristófer, Jóhann og
Daníel, uppeldissonur. 2) Guð-
rún tanntæknir, f. 1964, gift
Pétri Einarssyni,
þeirra börn Hrafn-
hildur, Hörður og
Hákon. 3) Jóhanna
leikskólakennari, f.
1966, gift Stefáni
Sigurðssyni, þeirra
börn Agnes og Sig-
urður. Barna-
barnabörn Harðar
og Jóhönnu eru átta.
Hörður ólst upp í
Hafnarfirði. Byggði
hann sér hús á Holtsgötu 19 og
bjó þar allt til andláts. Þar ólust
upp börn hans og Jóhönnu.
Hörður starfaði sem ungur
maður í skátunum í Hafnarfirði
og fór á alheimsmót skáta,
Jamboree, í Frakklandi árið
1947. Hann var einn af stofn-
endum Hjálparsveitar skáta í
Hafnarfirði árið 1951.
Hörður fór í Iðnskólann í
Hafnarfirði og lærði til hús-
gagnasmíði í Dverg hf. og vann
þar allan sinn starfstíma. Einnig
var hann kirkjuvörður í Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði til
margra ára eða meðan heilsan
leyfði.
Útför Harðar fer fram frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði í dag, 8.
ágúst 2019, klukkan 15.
Elsku pabbi.
Við eigum þér svo sannarlega
margt að þakka því betri fyrir-
mynd hefðum við ekki getað
fengið. Þú varst félagslyndur
maður og sóttu bæði börn og full-
orðnir í nærveru þína. Þú fórst
ekki í manngreinarálit enda áttir
þú vini allt frá fjörugum ung-
mennum til systranna í Karmel-
klaustrinu. Við systkinin nutum
þess að vera með þér, afa og
frændfólkinu í fjárhúsunum við
Kaldárselsveg. Við fengum að
njóta okkar þar bæði í leik og
starfi. Í Dverg þar sem þú vannst
vorum við líka alltaf velkomin.
Þar ríkti mikil vinátta og virðing
meðal manna á ólíkum aldri sem
unnu þar hlið við hlið. Eftir að þú
gerðist kirkjuvörður í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði stækkaði vina-
hópur þinn svo um munaði því
flestir fundu fyrir þeim kærleika
sem þér bjó í brjósti.
Nú ertu búinn að senda bolt-
ann yfir til okkar krakkanna.
Vonandi getum við borið kær-
leika þinn áfram þannig að þú
getir verið eins stoltur af okkur
og við erum af þér. Takk fyrir
allt, elsku pabbi.
Jóhanna, Guðrún
og Gunnlaugur.
Þá hefur elsku Haddi frændi
kvatt og fallegt var síðasta sól-
arlagið hans.
Hann var ekki bara föðurbróð-
ir minn, hann var uppáhalds og
hann var mér líka svo kær vinur.
Samskiptin voru alltaf mikil og
góð milli fjölskyldnanna, stutt á
milli heimila, amma og afi í kjall-
aranum á Holtsgötunni, samver-
an oft mikil.
Margar ljúfar og skemmtileg-
ar samverustundir átti ég með
Hadda meðal annars í fjárhúsinu
áður fyrr og síðar í kirkjunni
okkar.
Yndislegt var alltaf að heim-
sækja Hadda og Jóu á Holtsgöt-
una og fór maður jafnan ríkari af
þeim fundum, umvafinn væntum-
þykju.
Hadda verður sárt saknað en
allar ljúfu minningarnar sem við
eigum geymum við og þær ylja
og sefa sorgina.
Elsku Jóa mín og fjölskylda,
Guð veri með ykkur öllum og
styrki.
Guð blessi minningu Hadda
frænda og fylgi honum í sumar-
landinu.
Kristín frænka.
Horfin strönd, heimalönd,
hljóðnar áralag.
Vinabönd, hönd í hönd
hefja nýjan dag.
Ólgar blóð, æskuglóð
alheims tekur völd.
Ástarljóð, ung og rjóð,
inn í nýja öld.
Yndishljóm, lágan óm,
eilíft syngjum lag.
Friðarblóm, óskin fróm
finnur nýjan dag!
(Halldór Halldórsson)
Elsku Jóa og fjölskylda, megi
algóður Guð veita okkur öllum
styrk á þessum erfiðu tímamót-
um við fráfall Hadda, uppáhalds-
frænda míns.
Ástarkveðjur,
Rúnar.
Hörður
Guðmundsson
Fleiri minningargreinar
um Hörð Guðmundsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Okkar ástkæra eiginkona, móðir,
tengdamóðir, amma, og langamma,
ODDNÝ SIGURRÓS GUNNARSDÓTTIR
Rósa í Hvammi,
húsfreyja að Hvammi í Skaftártungu,
lést mánudaginn 29. júlí á hjúkrunar-
heimilinu Klausturhólum. Útför hennar fer fram frá Grafarkirkju í
Skaftártungu laugardaginn 10. ágúst klukkan 13. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á að láta hjúkrunarheimilið Klausturhóla
Kirkjubæjarklaustri njóta þess.
Oddsteinn R. Kristjánsson
Gunnar Kr. Oddsteinsson Sigurbjörg Kr. Óskarsdóttir
Inga Björt H. Oddsteinsd. Brandur Jón Guðjónsson
Kristbjörg Elín Oddsteinsd. Tryggvi Agnarsson
Páll Símon Oddsteinsson Jónína Jóhannesdóttir
barnabörn og barnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR KRISTÓFER PÁLSSON
frá Hálsi við Grundarfjörð,
áður til heimilis að Tröð
í Fróðárhreppi,
verður jarðsunginn frá Grundarfjarðarkirkju
laugardaginn 10. ágúst klukkan 13.
Þórunn Sigurrós Kristinsdóttir
Hjörtur Guðjón Guðmunds. Vineta Karimova
Sædís Helga Guðmundssd. Ólafur Marinósson
Skarphéðinn M. Guðmunds. Þórdís Bjarney Guðmundsd.
Kristinn Þ. Sigurjónsson Martha Castilla Noriega
Samúel Guðm. Sigurjónsson Ragnheiður I. Þórólfsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Bróðir minn, mágur og föðurbróðir,
ANTON GEIR SUMARLIÐASON,
Meiðastöðum,
Garði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
aðfaranótt laugardagsins 3. ágúst.
Útför hans fer fram frá Útskálakirkju mánudaginn 12. ágúst
klukkan 14.
Guðlaugur B. Sumarliðason Sigrún Sigurgestsdóttir
Sigurgestur Guðlaugsson
Tómas Vignir Guðlaugsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
LÁRA INGIBJÖRG ÁGÚSTSDÓTTIR,
Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ,
lést miðvikudaginn 24. júlí.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Ingibjörg Hauksdóttir Sverrir Ólafsson
Þór Hauksson Guðný María Jónsdóttir
Ásgerður Hauksdóttir Þorsteinn Bjarnason
barnabörn og langömmubörn
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÁRNI GUÐMUNDSSON
frá Beigalda,
verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju
fimmtudaginn 15. ágúst klukkan 14.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Steinunn Þórdís Árnadóttir
Alda Árnadóttir
Sesselja Árnadóttir Eggert Aðalsteinn Antonsson
Guðmundur Árnason Ragna Sverrisdóttir
Lilja Árnadóttir Jón Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn