Morgunblaðið - 08.08.2019, Side 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2019
EM U17 kvenna
B-deild á Ítalíu:
A1-riðill:
Tékkland – Ísland................................. 24:26
Tyrkland – Ísrael.................................. 20:22
Ísland 6, Tékkland 4, Ísrael 4, Tyrkland
2, Kósóvó 0.
Í lokaumferðinni í dag leikur Ísland við
Kósóvó og Tékkland við Tyrkland. Tvö
efstu liðin komast í undanúrslit.
HM U19 karla
Leikið í Norður-Makedóníu:
D-riðill:
Túnis – Þýskaland ................................ 15:36
Brasilía – Ísland.................................... 26:30
Portúgal – Serbía ................................. 22:21
Ísland 4, Portúgal 4, Serbía 2, Þýskaland
2, Brasilía 0, Túnis 0.
Ísland mætir Portúgal í þriðju umferð í
fyrramálið.
EM karla 2021
Forkeppni, H-riðill:
Portúgal – Ísland.................................. 80:79
Staðan:
Sviss 1 1 0 77:72 2
Portúgal 2 1 1 152:156 2
Ísland 1 0 1 79:80 0
E-riðill:
Hvíta-Rússland – Danmörk ................ 78:81
F-riðill:
Kýpur – Rúmenía ................................. 70:85
G-riðill:
Kósóvó – Bretland................................ 63:71
EM U20 kvenna
B-deild í Kósóvó:
Keppni um sæti 9-12:
Grikkland – Ísland................................ 55:67
Ísland mætir Kósóvó á morgun og Úkra-
ínu á sunnudaginn.
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550
progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17.
JAPANSKIR HNÍFAR
Allt fyrir eldhúsið
Hágæða hnífar og töskur
Allir velkomnir
Einstaklingar og fyrirtæki
Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin!
Í SARAJEVO
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Íslandsmeistarar Breiðabliks áttu
ekki í miklum vandræðum í fyrsta
leik sínum í undanriðli Meist-
aradeildar kvenna í knattspyrnu í
gær, en leikið er í Sarajevó í Bosníu.
Fyrsti andstæðingurinn var ASA Tel
Aviv, meistaraliðið frá Ísrael, og
unnu Blikar nokkuð þægilegan 4:1
sigur. Mörkin hefðu þó hæglega get-
að verið fleiri miðað við færin sem
gáfust.
Óhætt er þó að segja að riðla-
keppnin hefði vart getað byrjað bet-
ur. Blikar komust yfir strax á fjórðu
mínútu leiksins með skalla Alex-
öndru Jóhannsdóttur, en liðið byrjaði
leikinn af miklum krafti og virtist
getumunurinn á liðunum í upphafi
leiks vera ansi mikill. Ísraelska liðið
náði þó að bíta frá sér, en Blikar voru
2:0 yfir í hálfleik eftir að Agla María
Albertsdóttir bætti við marki. Hún
var svo aftur á ferðinni úr vítaspyrnu
í síðari hálfleik og lagði einnig upp
mark fyrir Hildi Þóru Hákonardótt-
ur.
Blikarnir voru þó heppnir líka og
boltinn small bæði í stöng og slá á
marki þeirra, en annars var hættan
lítil frá andstæðingunum. Að fá á sig
klaufamark í lokin eftir lélega hreins-
un skyggir þó svolítið á, en kemur
vonandi ekki að sök þegar yfir lýkur.
Jákvæðustu fréttirnar fyrir Blika
er hversu vel liðið höndlaði hitann,
sem var rúmlega 30 gráður þegar
mest lét og vindkælingin nánast eng-
in. Fyrir fram var mesta hættan talin
vera að liðið myndi fljótt missa mikla
orku í hitanum, en það var ekki að sjá
nema kannski undir lokin. Nú er búið
að fá smjörþefinn af aðstæðum og
því hægt að undirbúa sig enn betur
fyrir aðstæður í hinum tveimur leikj-
unum.
Synd að skora ekki fleiri
Það var augljóst að Breiðablik er
töluvert betra lið en ísraelska meist-
araliðið. Bæði var hlaupagetan mun
meiri hjá Blikum og mjög greinilegt
að andstæðingnum leið ekki vel að
fara í líkamleg návígi. Þá er gott að
hafa leikmenn eins og Hildi Antons-
dóttur og Selmu Sól Magnúsdóttur
að djöflast á miðjunni.
Agla María skoraði tvö mörk og
lagði upp eitt í leiknum, en auk þess
var Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
frábær í sóknarleik Breiðabliks.
Vinnusemi hennar úti hægra megin
var til fyrirmyndar og hún var að
dæla boltunum inn í teiginn, sem
meðal annars skilaði fyrsta markinu.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir veit
svo að hún hefði átt að nýta færin
sem Karólína lagði upp fyrir hana.
Sérstaklega gegn jafn slökum mark-
verði og í gær. Það er algjör synd að
Blikarnir skyldu ekki skora fleiri á
hana.
Næsti leikur er á laugardag gegn
Dragon, meistaraliði Norður-
Makedóníu, sem tapaði 5:0 fyrir
heimaliði Sarajevo í hinum leik riðils-
ins í gær. Miðað við það sem maður
sá í þeim leik er stórslys ef Blikar
vinna ekki öruggan sigur, helst
stærri en Sarajavo gerði upp á
markatöluna, á meðan ísraelska liðið
gæti alveg strítt því bosníska.
Hvernig sem fer þá er ljóst að loka-
leikurinn gegn heimakonum á
þriðjudag mun ráða úrslitum um
hvort liðið fer í 32ja liða úrslit.
Blikar stóðust
fyrsta prófið
vel í hitanum
Ísraelsku meistararnir lítil fyrirstaða
Synd að hafa ekki skorað fleiri mörk
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Öflug Landsliðskonan Agla María Albertsdóttir skoraði tvö af fjórum mörk-
um Breiðabliks gegn ísraelsku meisturunum í Sarajevo í gær.
1:0 Alexandra Jóhannsdóttir 4.
2:0 Agla María Albertsdóttir 25.
3:0 Hildur Þóra Hákonard. 60.
4:0 Agla María Albertsdóttir 66.
4:1 Shira Elinav 69.
I Gul spjöldHadas Morin (ASA).
Breiðablik: (4-3-3) Mark: Sonný
Lára Þráinsdóttir. Vörn: Ásta Eir
Árnadóttir, Hildur Þóra Há-
BREIÐABLIK – ASA TEL AVIV 4:1
konardóttir, Heiðdís Lillýjardóttir,
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir.
Miðja: Hildur Antonsdóttir, Selma
Sól Magnúsdóttir, Alexandra Jó-
hannsdóttir (Isabella Eva Aradóttir
76). Sókn: Karólína Lea Vilhjálms-
dóttir, Berglind Björg Þorvaldsdóttir
(Þórhildur Þórhallsdóttir 67), Agla
María Albertsdóttir (Esther Rós
Arnarsdóttir 85).
Dómari: Marina Visnjic, Serbíu.
Áhorfendur: 35.
GOLF
Íslandsmótið í golfi hefst í Grafarholti í dag
þar sem leikinn verður fyrsti hringur af
fjórum.
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Nettóvöllur: Keflavík – Selfoss ........... 19.15
1. deild kvenna, Inkasso-deildin:
Hertz-völlur: ÍR – Afturelding............ 19.15
Sauðárkrókur: Tindastóll – Þróttur R 19.15
Extra-völlur: Fjölnir – FH .................. 19.15
Ásvellir: Haukar – Augnablik ............. 19.15
2. deild kvenna:
Fjarðab.höll: FHL – Völsungur.......... 19.45
2. deild karla:
Dalvík: Dalvík/Reynir – Tindastóll..... 19.15
Nesfiskvöllur: Víðir – Selfoss .............. 19.15
Í KVÖLD!
Íslensku strákarnir í U19 ára landsliðinu í handknatt-
leik eru efstir í sínum riðli eftir tvær umferðir á
heimsmeistaramótinu í Norður-Makedóníu eftir sigur á
Brasilíumönnum í gær. 30:26. Staðan í hálfleik var
18:15, íslenska liðinu í hag, og það náði fljótlega fimm
marka forystu í seinni hálfleik sem það hélt að mestu
til enda.
Mörk Íslands: Arnór Snær Óskarsson 6, Dagur
Gautason 5, Haukur Þrastarson 5, Guðjón Baldur Óm-
arsson 4, Stiven Tobar Valencia 3, Jón Bald Freysson
2, Tjörvi Týr Gíslason 2, Tumi Steinn Rúnarsson 1,
Einar Örn Sindrason 1, Eiríkur Guðni Þórarinsson 1.
Sigurður Dan Óskarsson varði 12 skot í leiknum og Svavar Ingi Sig-
mundsson varði 1 skot.
Þýskaland burstaði Túnis, 36:15, og Portúgal vann Serbíu 22:21 í
hörkuleik. Ísland og Portúgal eru með 4 stig, Þýskaland og Serbía 2 stig
en Brasilía og Túnis eru án stiga. Frídagur er í dag en íslensku strák-
arnir mæta Portúgal í þriðju umferðinni í fyrramálið. vs@mbl.is
Efstir eftir tvær umferðir
Arnór Snær
Óskarsson
Íslenska U20 ára landslið kvenna í
körfubolta vann sinn fyrsta sigur í
B-deild Evrópumótsins í Kósóvó í
gær er liðið lagði Grikkland, 67:55.
Leikurinn var jafn og spennandi
allan tímann en Ísland vann síðasta
leikhlutann 17:8. Dagbjört Dögg
Karlsdóttir skoraði 22 stig og var
stigahæst. Þóranna Hodge-Carr
kom þar á eftir með 12 stig. Ís-
lenska liðið tapaði fyrstu tveimur
leikjum sínum á mótinu og leikur
því um 9.-12. sæti þar sem það á eft-
ir að mæta Kósóvó og Úkraínu.
Stúlkurnar
lögðu Grikki
Ljósmynd/FIBA
Stigahæst Dagbjört Dögg Karls-
dóttir skoraði 22 stig í gær.