Morgunblaðið - 08.08.2019, Síða 28

Morgunblaðið - 08.08.2019, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2019 Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda og hagræða málin fyrir húsfélög Traust - Samstaða - Hagkvæmni eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005 Ráðgjöf Veitum faglega ráðgjöf til húsfélaga Bókhald Höfum umsjón með bókhaldi fyrir húsfélög Þjónusta Veitum persónulega þjónustu sem er sérsniðin að hverju og einu húsfélagi Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Ég bíð spenntur eftir að koma heim og fá að halda á bókinni. Þá mun þetta allt verða raunverulegra,“ sagði rithöfundurinn Gunnar Theodór Eggertsson um nýja skáldsögu sína Sláturtíð þegar blaðamaður Morg- unblaðsins náði tali af honum. Hann hefur verið búsettur í Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni síðastliðið ár en snýr aftur heim um næstu helgi. Gunnar hefur skrifað vinsælar barna- og ung- mennabækur og hlaut Íslensku barnabókaverð- launin árið 2008 fyrir bókina Steindýrin og framhald af þeirri bók, Steinskrípin, kom út fjórum ár- um síðar. Hann var tilnefndur til Barnabókaverðlaunanna fyrir Drauga-Dísu, fyrstu skáldsöguna í þríleik um hina rammgöldróttu Dísu. Önnur bókin, Galdra-Dísa, kom út ár- ið 2017. „Ég byrjaði að vinna á frí- stundaheimili og fór að segja sögur þar og fór svolítið óvænt út í það að skrifa fyrir börn og unglinga. Mig hefur alltaf langað til að skrifa fyrir fullorðna en ég hef átt svolítið erfitt með að finna rétta efnið.“ Það virðist hafa tekist með ágætum enda skáld- saga komin út. Samhliða doktorsnámi „Ég fór að velta fyrir mér sam- bandi okkar mannanna við dýrin á gagnrýninn hátt og að lokum gerði ég það að sérsviði í doktorsverkefni mínu.“ Gunnar lauk doktorsprófi í al- mennum bókmenntum árið 2016. „Þá byrjaði þessi saga að verða til. Ég las svo mikið af spennandi efni sem ekki var pláss fyrir í doktorsritgerðinni. Ég var að meðtaka svo mikið af nýj- um pælingum sem ég vissi ekki alveg hvernig ég ætti að melta eða hvað ég ætti að gera við. Þá byrjaði aktívist- inn Sólveig, sem er ein aðalpersónan í bókinni, að verða til.“ Þannig kvikn- aði hugmyndin að efni bókarinnar sem fjallar um íslenskan aktívista, sem hafði látið að sér kveða áður fyrr en hefur fallið í gleymsku, og hug- myndir manns sem fer að leita að henni. „Þetta byrjaði að kvikna sam- hliða doktorsnáminu sem hálfgerð geymsla fyrir allt sem rataði ekki inni í ritgerðina,“ segir Gunnar. „Ég hef alltaf haft gaman af dýrum og áhuga á dýrum, það sést í barna- bókunum mínum. Dýr leika oft stórt hlutverk þar, sérstaklega í fyrstu bókinni, Steindýrunum.“ Gunnar seg- ist lengi hafa haft áhuga á dýravernd og segir það mega rekja til þess þeg- ar Greenpeace kom hingað til lands árið 2003 til þess að mótmæla hval- veiðum sem þá voru að hefjast að nýju. „Ég var mjög forvitinn að kynn- ast því fólki og heyra hugmyndir þess um verndun hvala. Svo fylgdist ég með þegar fólk kom niður á Reykja- víkurhöfn til þess að mótmæla Green- peace með því að grilla hrefnukjöt. Þá komu Greenpeace-liðar út og var mjög annt um að koma vel fram og vera ekki álitnir ofstækismenn,“ seg- ir Gunnar og lýsir því að liðsmenn Greenpeace hafi brugðið á það ráð að taka þátt í grillinu og grilla kálfakjöt við hlið þeirra sem grilluðu hrefnu- kjöt. Dýrasiðfræði og menning „Það stuðaði mig rosalega og ég fór í mikla sjálfsskoðun upp frá því. Ég fór að velta því fyrir mér af hverju þetta stuðaði mig. Ég borðaði sjálfur kjöt, t.d. nautakjöt.“ Honum fannst hins vegar óþægilegt tilhugsun að borða kálfa og fór að velta því fyrir sér af hverju honum þætti ekki óþægilegt að borða annað kjöt. Hann segir að um leið og maður fari að velta fyrir sér sambandi manna og dýra sé erfitt að hætta og spurning- arnar margfaldist. „Ég hef verið hel- tekinn af þessu síðan,“ segir rithöf- undurinn. „Upp frá því fór ég að lesa dýrasið- fræði og var mikið að pæla í sam- bandi dýrasiðfræðinnar við menn- inguna, hvernig menningin mótar hugmyndir okkar um dýr. Það hefur heillað mig.“ „Eiginlega brjálæðislegt“ Skáldsagan Sláturtíð kemur út á tímum þar sem miklar breytingar hafa orðið í samfélaginu á viðhorfi manna til dýra og réttinda þeirra. „Það hefur verið rosaleg uppsveifla síðan ég byrjaði að skrifa þessa bók fyrir fimm eða sex árum. Það er eig- inlega brjálæðislegt. Ég var á tíma- bili orðinn hræddur um að ég væri orðinn allt of seinn gefa þessa bók út. Ég var líka að skrifa Drauga-Dísu og Galdra-Dísu á sama tíma og þessi var að malla í bakgrunninum.“ Gunnar segist hafa tekið eftir breytingum þegar hann kenndi nám- skeið um menningu og dýr í Háskóla Íslands. Fyrst kenndi hann nám- skeiðið árið 2010. „Þá fannst mér ég þurfa að útskýra allt um hin og þessi hugtök sem tengjast dýrasiðfræð- inni; hvað væri að vera vegan og ve- getarian, tegundarhyggju, muninn á dýravelferð og dýraréttindum. Svo kenndi ég það aftur 2013 og það var strax rosalegur munur á þekkingu nemendanna. Árið 2017 virtust allir nemendurnir þekkja grunninn sem ég fór í gegnum.“ Rannsakaði tímarit frá 1885 Auk þess að vera rithöfundur held- ur Gunnar áfram að rannsaka birt- ingarmynd dýra í menningunni. „Ég skipti árinu svolítið til helminga milli rannsókna og skrifa. Enn sem komið er helst þetta vel í hendur. Mig lang- ar að gera þetta áfram, reyna að við- halda einhverju jafnvægi þar á milli.“ Í fræðistörfum sínum hefur Gunn- ar kannað dýrasögur. Hann nefnir einnig hið íslenska dýravernd- unartímarit, Dýravinurinn, sem kom fyrst út 1885 og gekk í 30 ár. „Svo að á sama tíma og ég er að fylgjast með þessari uppsveiflu sem á sér stað núna er ég alltaf með hausinn þarna þar sem var líka rosalega mikil um- ræða og uppsveifla um dýravernd sem hvarf svo svolítið. Tryggvi Gunn- arsson athafna- og bankamaður var ritstjóri Dýravinarins og aðal- drifkrafturinn á bak við þetta og var að reyna að stofna dýraverndunar- félag í mörg, mörg ár. Hann birti sög- ur sem fólk sendi inn af dýrum og dýravernd og -velferð. Hann á upp- hafstilvitnunina í Sláturtíð, hún er úr síðasta blaðinu sem hann ritstýrði. Þá hafði hann verið að predika um dýra- vernd í þrjátíu ár. Hann var svolítil Sólveig,“ segir Gunnar og á þar við sögupersónuna í Sláturtíð. „Honum gekk mjög illa í fyrstu að fá fólk til að skrifa í blaðið því þetta var álitið svo kjánalegt. Svo tókst honum hægt og rólega að byggja upp þetta tímarit,“ segir hann. Opin og gagnrýnin umræða „Fyrst og fremst vildi ég skrifa skemmtilega og spennandi bók og hef lagt mikla áherslu á að hafa hana fjöl- breytta, fjölradda og opna. En auðvit- að er mér annt um að þessi umræða um samband manna og dýra sé í gangi. Ég er að reyna að draga fram óvæntar hliðar á henni í þessari bók og vonast til þess að það sé eitthvað sem muni koma lesendum á óvart. Ég vil halda opinni, gagnrýninni og góðri umræðu um þessi mál í gangi, um samband okkar við dýrin hvernig sem það birtist,“ segir Gunnar og heldur áfram. „Þetta er stórt og flókið efni og ég lagði mikla vinnu í það að gera bókina fjölradda og lifandi. Ég vildi innilega forðast það að predika. Ég reyni að nota svipaðan tón og þegar ég er að kenna þetta efni. Ég vil slengja fram alls konar efni sem mér finnst áhuga- vert, vekja forvitni og reyna að draga fram eitthvað sem kveikir í pælingum hjá lesendum sem þeir geta haldið áfram ef þeir vilja.“ Það er nóg um að vera hjá rithöf- undinum. „Ég er núna að reyna að leggja lokahönd á sögurnar mínar um hana Dísu. Ég er að vinna að þriðju og síðustu bókinni um hana. Síðan er ég voða spenntur fyrir því að halda áfram að skrifa fyrir fullorðna. Ég er tilbúinn með eina skissubók sem mig langar að halda áfram með. Mig lang- ar að reyna að skrifa hrollvekju fyrir fullorðna eftir að hafa verið að skrifa hrollvekjur fyrir krakka. Ég held að ég sé að verða reiðubúinn að halda áfram með það skref en við sjáum til hvernig gengur og hvernig viðtök- urnar verða við Sláturtíð.“ Ljósmynd/Elsa Björg Magnúsdóttir Rithöfundur „Þetta er stórt og flókið efni og ég lagði mikla vinnu í það að gera bókina fjölradda og lifandi. Ég vildi innilega forðast það að predika,“ segir Gunnar Theódór um Sláturtíð, fyrstu skáldsögu sína fyrir fullorðna. „Hef verið heltekinn af þessu“  Gunnar Theodór Eggertsson gefur út skáldsöguna Sláturtíð  Heillaður af því hvernig menningin mótar samband manna og dýra  „Ég er að reyna að draga fram óvæntar hliðar,“ segir höfundur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.