Morgunblaðið - 14.08.2019, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 14.08.2019, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Launakröfur vegna launaþjófnaðar og kjarasamningsbrota á íslenskum vinnumarkaði hlaupa á hundruðum milljóna króna ár hvert meðal aðild- arfélaga Alþýðusambandsins. Þetta er ein af meginniðurstöðum skýrslu um umfang brota á vinnumarkaðin- um sem ASÍ birti í gær. Ítarleg úttekt er byggð annars veg- ar á gögnum fjögurra af stærri aðild- arfélögum ASÍ, sem eru með um 73 þúsund félagsmenn, sem sýna leið- réttingarkröfur sem stéttarfélögin gerðu fyrir hönd félagsmanna í fyrra vegna meintra réttindabrota og/eða launaþjófnaðar. Hins vegar eru svo birtar niðurstöður Gallupkönnunar meðal 18 til 35 ára einstaklinga og meðal ríflega sex þúsund erlendra starfsmanna á vinnumarkaðinum. Fram kemur að þessi fjögur aðild- arfélög ASÍ gerðu 768 launakröfur á síðasta ári upp á samtals 450 milljónir króna og nam miðgildi kröfuupphæð- anna 262.534 kr. Meðalfjárhæð þeirra var hins vegar mun hærri eða rúmar 586 þúsund kr. Meira en helmingur allra krafna stéttarfélaga er gerður fyrir hönd félagsmanna af erlendum uppruna. Um 19% launafólks á ís- lenskum vinnumarkaði eru af erlend- um uppruna. Þá kemur í ljós að um helmingur allra krafna kemur úr hótel-, veitinga- og ferðaþjónustu en hæstu launakröf- urnar eru gerðar á fyrirtæki í mann- virkjagerð. Í samantekt skýrslunnar segir að niðurstöður spurningakönnunar Gall- up séu í takt við launakröfur stéttar- félaga og bendi til þess að íslenskur vinnumarkaður sé tvískiptur þar sem brotastarfsemi beinist fremur gegn erlendu launafólki og yngra launa- fólki, með lægri tekjur og í óreglulegu ráðningarsambandi og hlutastörfum en öðrum. „Hjá meirihluta launafólks, einkum hjá þeim sem hafa lengri starfsaldur og hærri tekjur, er brota- starfsemi nærri óþekkt.“ Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir í inngangi skýrslunnar að brotastarf- semin lýsi sér „í stórfelldum launa- þjófnaði, alvarlegum brotum gagn- vart öryggi og aðbúnaði, illri meðferð og framgöngu fyrirtækja sem þegar verst lætur verður ekki lýst nema sem nauðungarvinnu eða vinnu- mansali. Dæmin skipta ekki bara tug- um eða hundruðum. Brotin snerta þúsundir einstaklinga“, segir Drífa. Í skýrslunni segir að ástæða sé til að ætla að launaþjófnaður geti hlaup- ið á milljörðum árlega á íslenskum vinnumarkaði. Þúsundir mála sem tengjast brotum á réttindum launa- fólks berist á borð stéttarfélaga ár hvert. Þar er m.a. um að ræða launa- kröfur þar sem greitt er undir lægsta taxta eða lágmarkslaunum kjara- samninga. Einnig eru m.a. van- greiðslur á hvers kyns álögum s.s. yfirvinnu-, stórhátíðar- eða vakta- álagi og fullyrt er að svokallað jafn- aðarkaup sé algeng leið sem atvinnu- rekendur noti til að komast hjá því að greiða kjarasamningsbundin kjör. „Þótt jafnaðarkaup sé ekki alltaf dæmi um launaþjófnað, þá getur það í vissum tilfellum verið það og beinist gjarnan að ungu fólki í hlutastörfum.“ Þótt mál af þessum toga komi inn á borð stéttarfélaga leiðir það ekki allt- af til að launakrafa sé gerð á hendur atvinnurekanda. Í einhverjum tilvik- um fá starfsmenn sjálfir úrlausn sinna mála og í öðrum tilvikum eru málin leiðrétt eftir að stéttarfélög gera athugasemdir. Þá eru niðurstöð- urnar sagðar benda til að ákveðin brot séu nær óþekkt á íslenskum vinnumarkaði. Ólaunuð prufuvinna sé fátíð og sjaldgæft að Íslendingar séu þvingaðir í gerviverktöku eða hvattir til að vera ekki í stéttarfélagi. „Brotin snerta þúsundir“  Fjögur stéttarfélög gerðu 450 milljóna kr. kröfur vegna launaþjófnaðar og kjarasamningsbrota 2018 Í könnun sem Gallup gerði meðal fólks á aldrinum 18 til 35 ára, þar sem spurt var hvort brotið hefði ver- ið á réttindum þess, kom á daginn að 22% aðspurðra töldu sig ekki hafa fengið greitt fyrir allar unnar stund- ir á sl. 12 mánuðum. Algengast var að yngsti aldurshópurinn teldi sig fá minna greitt en samstarfsfélagar fyrir sömu vinnu. 18% sögðust ekki hafa fengið greitt fyrir unna yfir- vinnu. Tekið er fram að þetta þurfi ekki endilega að benda í öllum til- vikum til brotastarfsemi vegna auk- ins vægis pakkalauna. 11% fólks á þessum aldri töldu sig ekki hafa fengið orlofs- og desem- beruppbætur. Af aðspurðum töldu 12% sig ekki hafa fengið umsamið neysluhlé eða laun greidd í fjarveru vegna veikinda. Hins vegar kom í ljós að önnur réttindabrot eru óal- geng s.s. vegna fjölskylduaðstæðna en einungis 1% sagðist ekki hafa fengið greidd laun í fjarveru vegna veikinda barns og engum hafði verið sagt upp störfum í fæðingarorlofi. Erlendir starfsmenn skera sig enn frekar úr á vinnumarkaði en aðrir hópar skv. könnuninni. Þannig telur tæplega helmingur aðspurðra af er- lendum uppruna sig hafa fengið minna greitt fyrir sömu vinnu en samstarfsfélagi. 30% þeirra segjast ekki hafa fengið greidd laun fyrir allar unnar stundir og 29% ekki greitt fyrir unna yfirvinnu. Tekið er fram að ekki er alltaf sjálfgefið að brot hafi átt sér stað þó að ein- staklingur telji sig ekki hafa notið ákveðinna réttinda. Hins vegar gefi niðurstöðurnar vísbendingu um hvar launaþjófnaður geti mögulega þrifist. Sláandi sé hve hátt hlutfall ungra útlendinga á íslenskum vinnu- markaði telji að á sér hafi verið brot- ið. Forseti ASÍ segir rannsóknina sýna nýja stéttaskiptingu þar sem ungt fólk og fólk af erlendum upp- runa sé sérstaklega berskjaldað fyr- ir launaþjófnaði og annarri brota- starfsemi. Morgunblaðið/Ómar Ferðamenn Um helmingur krafna er vegna starfsfólks í ferðaþjónustu. Vangreidd laun og réttindabrot  Útlendingar og ungt fólk berskjaldað fyrir launaþjófnaði Fjöldi launakrafna sem verkalýðs- félögin gerðu í fyrra fyrir hönd starfsmanna sem töldu að brotið hefði verið á rétti sínum hleypur á milljónum. Um fjórðungur allra krafna var lægri en 93 þúsund. Í úttekt ASÍ er víða talað um launaþjófnað og er þá átt við tilvik þar sem atvinnurekandi virðir ekki lágmarksrétt launafólks með ásetningi eða vítaverðu gáleysi og tekur til sín fé og/eða réttindi sem launafólk hefur aflað sér með vinnu sinni og tilheyrir honum ekki með réttu. Telur ASÍ rétt að nota hugtakið launaþjófnað um slík til- vik. Launakröfur stéttarfélaganna voru töluvert fleiri fyrir hönd karla en kvenna og að stórum hluta vegna erlendra starfsmanna. Kröf- ur tengdar gjaldþrotum voru 281 talsins í fyrra. Margar hlaupa á milljónum LAUNAKRÖFUR VERKALÝÐSFÉLAGA VEGNA STARFSMANNA IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ford F-350 Platinum Litur: Magma red, svartur að innan. 6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque. FX4 off-road pakki, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaður pallur, fjarstart, trappa í hlera, airbag í belti í aftursæti VERÐ 11.390.000 m.vsk 2019 Ram Limited 3500 35” Nýtt útlit 2019! Litur: Granite Crystal Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki. 35” dekk. VERÐ 11.395.000 m.vsk 2019 F-350 Limited 35” breyttur Litur: Perluhvítur, “cocoa” að innan. 6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of torque. Breyttur með 35” dekk, 20” felgur og brettakanta. Með FX4 off-road pakka, top- pljós (ekki á mynd), upphituð/loftkæld sæti, heithúð- aðan pall, fjarstart, auka bakkmyndavél fyrir camper eða trailer, trappa í hlera og airbag í belti í aftursæti. VERÐ 12.490.000 m.vsk 2019 Chrysler Pacifica Hybrid Limited Glæsilegur 7 manna bíll. Einn með öllu, t.d. hita/ kæling í sætum, glerþak, leðursæti, bakkmyndavél, Dvd spilari, Harman Kardon hljómflutningskerfi o.fl. o.fl. 3,6 L Hybrid. VERÐ 7.990.000 m.vsk 21% 30% 22% 29% 18% 20% 11% 26% 10% 7% 10% 4% Launaþjófnaður og brot á réttindum launafólks árið 2018 og könnun á umfangi þess Ungt fólk (félagsmenn á aldrinum 18-35 ára) Félagsmenn af erlendum uppruna (allir aldurshópar) Launakröfur fjögurra aðildarfélaga ASÍ 2018 Stéttarfélögin eru: ■ Báran á Selfossi ■ Efl ing í Reykjavík ■ Eining-Iðja á Akureyri ■ VR stéttarfélag Aðild að þeim eiga 55% af félagsmönnum innan ASÍ Hafa ekki fengið greitt fyrir allar unnar stundir Hafa ekki fengið greitt fyrir unna yfi rvinnu Hafa ekki fengið kjara- samningsbundna orlofs- eða desemberuppbót Hafa ekki fengið greitt skv. ráðningarsamningi Hafa ekki fengið stór- hátíðarálag vegna vinnu á stórhátíðum Hafa ekki fengið greitt vegna svokallaðrar „prufuvinnu“ Brotaþolar Ísland EES Annað erlent ríki Uppruni 48% 7% 40% 768 launakröfur voru gerðar af stéttarfélögunum fjórum á síðasta ári vegna launaþjófnaðar og kjarasamningsbrota 450 milljónir kr. var heildar-upphæð krafna 587 þúsund kr. var meðal-kröfuupphæð árið 2018, miðgildi krafna var 263 þúsund kr. Kyn 61% 39% Brotaþolar Karl Kona Spurningakönnun Gallup um brot á samningsbundnum réttindum félagsmanna stéttarfélaga innan ASÍ* *Um er að ræða tvær kannanir, framkvæmdar á tímabilinu 31. janúar til 30. mars 2019. Alls svöruðu 610 í könnun meðal ungs fólks og 963 í könnun meðal félagsmanna af erlendum uppruna. Heimild: Skýrsla ASÍ um umfang brota á vinnumarkaði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.