Morgunblaðið - 14.08.2019, Side 12
12 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
Mikið úrval varahluta í Ifor Williams kerrur
og allar aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu
Ifor Willams Kerrur
í öllum stærðum og útfærslum
Donald Trump Bandaríkjaforseti
kvaðst í gær hafa fengið upplýsingar
frá leyniþjónustu landsins um að kín-
verska stjórnin væri að „senda her-
menn að landamærunum að Hong
Kong“ vegna mótmæla lýðræðis-
sinna.
Fyrr um daginn var hundruðum
flugferða aflýst eða frestað á flug-
vellinum í Hong Kong vegna glund-
roða sem varð þar annan daginn í röð
vegna mótmæla ungra lýðræðis-
sinna. Innritun farþega var stöðvuð
síðdegis í gær að staðartíma eftir að
þúsundir mótmælenda hindruðu að
farþegar kæmust um öryggishlið úr
brottfararsalnum.
Til ryskinga kom milli mótmæl-
enda og ferðamanna. Óeirðalög-
reglumenn beittu piparúða til að
halda aftur af mótmælendum fyrir
utan flugstöðina þegar maður var
fluttur á brott í sjúkrabíl. Áður höfðu
mótmælendur ráðist á manninn
vegna þess að þeir voru sannfærðir
um að hann væri óeinkennisklæddur
lögreglumaður og það tók bráðaliða
um tvær klukkustundir að ná honum
út úr byggingunni. Lögreglan hafði
áður viðurkennt að hún hefði beitt
þeirri aðferð að láta lögreglumenn,
dulbúna sem mótmælendur, slást í
hóp lýðræðissinna til að handtaka þá.
Carrie Lam, héraðsstjóri Hong
Kong, hvatti lýðræðissinnana til að
hætta mótmælunum á blaðamanna-
fundi í gærmorgun og virtist vera
gráti nær þegar hún varaði við því að
ella kynni sjálfstjórnarhéraðið að
steypast niður í „hyldýpi“. Ríkisfjöl-
miðlar í Kína hafa sýnt myndir af
herbílum og brynvörðum liðsflutn-
ingabílum í borginni Shenzhen, sem
liggur að Hong Kong. Þeir ýjuðu að
því að stjórnvöld í Peking væru tilbú-
in að senda öryggissveitir til að
binda enda á mótmælin í
sjálfstjórnarhéraðinu.
AFP
Öngþveiti Kona réttir öryggisvörðum ferðatösku sína til að reyna að komast út úr brottfararsal flugvallarins í sjálfstjórnarhéraðinu Hong Kong.
Glundroði á flugvelli Hong Kong
Trump segir stjórnvöld í Kína senda hermenn að sjálfstjórnarhéraðinu
Mette Frederiksen, forsætisráð-
herra Danmerkur, hefur beðið
hundruð fórnarlamba opinberlega
afsökunar á kynferðislegu ofbeldi
sem þau urðu fyrir á ríkisreknum
upptökuheimilum.
Á árunum 1945 til 1976 urðu börn
fyrir kynferðislegu ofbeldi og bar-
smíðum á upptökuheimilum víða um
Danmörku samkvæmt niðurstöðum
rannsóknar á því sem gerðist.
Fórnarlömb ofbeldisins hafa í mörg
ár barist fyrir því að ríkið viðurkenni
sök í málinu. Fyrst var sagt opin-
berlega frá því sem gerðist í danskri
heimildarmynd, sem var sýnd í sjón-
varpi árið 2005 og fjallaði um ofbeldi
á Godhavn-drengjaheimilinu.
Frederiksen hitti tugi fórnar-
lambanna í ráðherrabústað sínum í
gær. Mörg þeirra táruðust þegar
hún sagði að börn hefðu verið tekin
frá foreldrum sínum og í stað þess
að fá stuðning og hlýju hefðu þau
verið niðurlægð og beitt ofbeldi. „Ég
vil horfa í augun á ykkur öllum og
biðja ykkur afsökunar,“ sagði hún.
„Yfirvöldin gerðu ekki neitt. Sem
samfélag getum við ekki og megum
ekki loka augum okkar fyrir þessu.“
AFP
Afsökunarbeiðni Mette Frederik-
sen, forsætisráðherra Danmerkur.
Fólkið beðið
afsökunar á
ofbeldinu