Morgunblaðið - 14.08.2019, Síða 13

Morgunblaðið - 14.08.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019 Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 11.00 - 14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði beint í ofninn Þorskhnakkar | Glæný lúða | Klausturbleikja Glæný línuýsa | Nýlöguð humarsúpa Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ný skoðanakönnun bendir til þess að meirihluti Breta sé hlynntur því að stjórn Boris Johnsons forsætisráð- herra tryggi útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu 31. október með öllum ráðum, m.a. með því að senda þingið heim ef þörf krefur til að koma í veg fyrir að það hindri útgönguna. Í könnun fyrir The Telegraph sögðust 54% þátttakendanna vera sammála þeirri staðhæfingu að John- son þyrfti að tryggja brexit með öll- um ráðum, m.a. með því að loka þinginu um tíma ef það væri nauðsyn- legt til að koma í veg fyrir að þing- menn hindruðu útgönguna. 62% sögð- ust vera ósammála þeirri staðhæf- ingu að þingið væri „meira í takt við breskan almenning en Johnson“. Gæti sent þingið heim Samkvæmt gildandi lögum gengur Bretland úr ESB 31. október og Johnson hefur sagt að útgöngunni verði ekki frestað ef leiðtogar sam- bandsins hafna kröfu hans um breyt- ingar á brexitsamningi sem þingið hefur fellt þrisvar. Meirihluti neðri deildar þingsins hefur hins vegar ver- ið andvígur útgöngu án samnings. Johnson hefur ekki útilokað þann möguleika að þinginu verði lokað um tíma til að koma í veg fyrir að það reyni að hindra útgönguna, m.a. með því að samþykkja vantrauststillögu gegn honum. Forsætisráðherrann hefur þann möguleika að leggja til við Breta- drottningu að senda þingið heim fyrir 31. október, án þess að rjúfa þing og boða til kosninga. Þingmenn héldu þá sætum sínum og stjórnin sæti áfram en engin umræða og engar atkvæða- greiðslur færu fram á þinginu. Drottningin drægist þannig inn í brexit-deiluna en margir telja að hún myndi ekki geta neitað að senda þing- ið heim þar sem það gæti leitt til stjórnlagadeilu. Verði þinginu lokað fyrir útgöng- una gæti það torveldað stjórninni að undirbúa brexit án samnings, að sögn stjórnmálaskýrenda breska ríkis- útvarpsins. Þingið gæti þá t.a.m. ekki sett lög til að draga úr neikvæðum áhrifum útgöngu án samnings. Þeir sem eru hlynntir því að þinginu verði lokað um tíma ef þörf krefur telja hins vegar að það geti verið verið nauðsyn- legt til að tryggja útgönguna og sjá til þess að lýðræðisleg niðurstaða þjóðaratkvæðisins um brexit í júní 2016 verði virt. Andstæðingar út- göngu án samnings segja hins vegar að það sé ólýðræðislegt og grafi und- an þingræðinu að loka þinginu með þessum hætti. Brot á stjórnarskránni? Rúmlega 70 þingmenn í neðri deildinni og aðalsmenn í lávarðadeild- inni hafa óskað eftir því að dómstóll í Skotlandi úrskurði að það væri ólög- legt og brot á stjórnarskránni að senda þingið heim til að knýja fram brexit án samnings. Dómstóllinn ákvað í gær að taka málið fyrir 6. september. John Bercow, forseti neðri deildar þingsins, hefur sagt að ekki komi til greina að senda þingið heim til að tryggja brexit án samnings. „Það ger- ist einfaldlega ekki,“ sagði hann í júní og bætti við að þetta væri „svo gjör- samlega augljóst“ að varla þyrfti að taka það fram. Minni stuðningur við vantraust? Ef meirihluti neðri deildar þingsins samþykkir vantrauststillögu gegn forsætisráðherranum fær hann fjór- tán daga til sanna að hann njóti stuðn- ings neðri deildarinnar. Ef annar þingmaður getur sannað að hann njóti meirihlutastuðnings í deildinni er gert ráð fyrir því að forsætisráð- herrann víki fyrir honum. Verði ekki ný ríkisstjórn mynduð á þessum tveimur vikum verður efnt til þing- kosninga a.m.k. fimm vikum síðar. Að sögn The Telegraph hafa komið fram vísbendingar um að erfitt verði fyrir andstæðinga brexit að fá nægan stuðning í neðri deildinni við van- trauststillögu gegn Johnson. Nokkrir andstæðingar útgöngu án samnings úr röðum þingmanna Íhaldsflokksins hafi viðurkennt að þeim hafi mistekist að koma í veg fyrir hana. Hópur þing- manna Verkamannaflokksins og óflokksbundinna þingmanna hafi einnig sagt að ólíklegt sé að þeir styðji vantrauststillögu gegn Johnson þar sem þeir óttist að það verði til þess að Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka- mannaflokksins, verði forsætisráð- herra. Vilja brexit með öllum ráðum  54% Breta vilja að Johnson beiti öllum nauðsynlegum ráðum til að tryggja útgöngu úr ESB 31. októ- ber  Eru m.a. hlynnt því að þingið verði sent heim ef þörf krefur til að tryggja að það hindri ekki brexit AFP Babú, babú Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, skoðaði sjúkrabíl þegar hann var í heimsókn á sjúkrahúsi í enska bænum Boston á dögunum. Fylgi Íhaldsflokksins hefur aukist » Ný könnun fyrir The Tele- graph bendir til þess að fylgi Íhaldsflokksins hafi aukist um 15 prósentustig frá því að Bor- is Johnson varð forsætisráð- herra. » Fylgi Íhaldsflokksins mælist nú 31% og Verkamannaflokks- ins 27%. Frjálslyndir demó- kratar og Brexit-flokkurinn eru með 16% fylgi hvor flokkur. » Gert er ráð fyrir að Íhalds- flokkinn myndi vanta fimm sæti til að fá meirihluta í neðri deild þingsins ef þetta væri niðurstaða kosninga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.