Morgunblaðið - 14.08.2019, Síða 15

Morgunblaðið - 14.08.2019, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019 Ég vona að sálar- angist stjórnarand- stöðunnar sé að baki. Hrakspár um alvar- legan efnahags- samdrátt hafa að minnsta kosti ekki gengið eftir. Brúnin á þingmönnum ætti því að vera nokkuð léttari þegar þing kemur stuttlega saman í lok mánaðarins en hún var undir lok þinghalds í vor. Þingmenn stjórnarandstöðunnar voru fremur þungir í lund mestan hluta síðasta vetrar. Og ekki léttist geð þeirra þegar ákveðið var í ljósi breyttra aðstæðna í efnahagsmálum að endurskoða fjármálastefnuna. Í gegnum þoku svartsýni var mörg- um lífsins ómögulegt að viðurkenna að skynsamlegt væri, vegna verri aðstæðna í efnahagslífinu, að auka svigrúm hins opinbera og létta þar með undir með heimilum og fyr- irtækjum. Engu var líkara en að stefna ríkisstjórnarinnar að ýta undir hagkerfið, í stað þess að kreppa að því með óbreyttri fjár- málastefnu, tætti sundur viðkvæmt sálarlíf sumra stjórnarandstæðinga. Flestum var ljóst í upphafi árs að umskipti væru fram undan í efna- hagslífinu. Í stað mikils hagvaxtar yrði tímabundinn samdráttur. Or- sök samdráttar er ekki að finna í ákvörðunum sem teknar hafa verið á vettvangi opinberra fjármála. Gjaldþrot WOW vó þar þyngst en loðnubrestur var ekki til að létta róðurinn. Við þessum breyttu að- stæðum var brugðist með breyt- ingum á fjármálastefnu. Samhengi skatta og ráðstöfunartekna Aðilar vinnumarkaðarins báru gæfu til að taka höndum saman með nýjum kjarasamningum og þar lagði ríkisstjórnin þung lóð á vogaskál- arnar. Fyrir hægrimenn var það sérstakt gleðiefni að skynja hverju þung áhersla var lögð á lækkun skatta, ekki síst á þá sem lægstu tekjurnar hafa. Stuðningur við stefnu Sjálfstæð- isflokksins um að hófsemdar skuli gætt í skattheimtu opinberra aðila hefur aukist og skilningur á sam- hengi skattheimtu og ráðstöf- unartekna launafólks náð að festa rætur. Sterkur hagvöxtur á undan- förnum árum hefur byggt undir hærri laun og gefið færi á að lækka opinberar álögur. Almenn vörugjöld voru felld niður (áralöng barátta Sjálfstæðisflokksins skilaði árangri), milli- þrep í tekjuskatti var fellt niður og trygg- ingagjald lækkað í nokkrum skrefum. Hækkun launa, lækk- un skatta og stöð- ugleiki hafa skilað launafólki bættum lífs- kjörum. Ráðstöf- unartekjur allra ald- urshópa hafa hækkað á undanförnum árum – mest hjá eldri borg- urum en þeir yngstu hafa einnig notið verulegra bættra kjara, eins og sést á meðfylgjandi súluritum. Á liðnu ári hækkuðu meðal at- vinnutekjur um 5,5%. Kaupmáttur launa í júní síðastliðnum var liðlega 32% meiri en að meðaltali árið 2013. Þrátt fyrir mikinn og góðan hagvöxt og verulega hækkun launa hefur tekist að tryggja ágætan stöð- ugleika frá árinu 2013. Ólíkt því sem oft hefur gerst hefur verðbólgan ekki étið upp launahækkanir og skattmann ekki rifið til sín allar launahækkanir. Að meðaltali var verðbólga um 2,3% á ári á sex árum til 2018. Á mælikvarða neysluverðs var verðhjöðnun í júlí síðastliðnum en verðbólga síðustu 12 mánuði er 3,1%. Miðað við hækkun vísitöl- unnar síðustu þrjá mánuði er verð- bólgan hins vegar rétt um 1,6%. Verðstöðugleiki hefur ekki aðeins tryggt að launafólk hafi notið launa- hækkana heldur einnig búið til jarð- veg fyrir lægri vexti. Fátt kemur heimilum og fyrirtækjum betur en lækkun vaxta. Séreignastefnan styrkist Árangursrík efnahagsstjórn, ekki síst festa í ríkisfjármálum, birtist með ýmsum hætti – ekki aðeins í hækkun ráðstöfunartekna allra ald- urshópa. Styrkari stoðum hefur ver- ið skotið undir séreignastefnuna. Nýjar tölur Íbúðalánasjóðs sýna þetta svart á hvítu. Árið 2009 voru fyrstu íbúðakaup um 7,5% allra íbúðakaupa en á öðrum ársfjórðungi þessa árs var hlutfallið komið í tæp 28%, og hefur aldrei verið hærra frá því að mælingar hófust árið 2008. Í nýrri skýrslu sjóðsins um fast- eignamarkaðinn kemur fram að vaxandi hlutfall fyrstu íbúðakaup- enda á meðan fjöldi kaupsamninga hefur lítið breyst gefi til kynna að auðveldara sé að safna fyrir íbúð en áður. Bent er á að svo virðist sem kaupmáttaraukning, lækkun vaxta og aðgerðir ríkisins til stuðnings fyrstu kaupendum hafi vegið þyngra en mikil hækkun fast- eignaverðs. Þessi ályktun sérfræðinga Íbúða- lánasjóðs er örugglega rétt. Árið 2014 beitti Bjarni Benediktsson sér fyrir því sem fjármálaráðherra að heimila launafólki að nýta sér- eignasparnað skattfrjálst til íbúðar- kaupa og greiðslu íbúðaskulda. Alls hafa um 56 milljarðar króna runnið til öflunar húsnæðis með samþætt- ingu skattalækkunar og séreign- arstefnu. Um 23 þúsund ein- staklingar hafa að jafnaði nýtt sér þessa heimild í hverjum mánuði. Kjarninn í stefnu Sjálfstæðisflokks- ins er að stuðla að eignamyndun launafólks, ekki síst í íbúðar- húsnæði. Það er ekki aðeins að sífellt fleiri geti keypt sína fyrstu íbúð heldur hefur íslenskum heimilum tekist að umbylta eigin efnahagsreikningi á síðustu árum. Þau eru betur í stakk búin til að takast á við efnahagsleg áföll. Eigið fé, að frátöldum lífeyris- réttindum, er um 157% af lands- framleiðslu. Staðan er miklu sterk- ari en í öðrum Norðurlandaríkjum. Skuldir heimila sem hlutfall af landsframleiðslu eru 75% hér en um 105% að meðaltali annars staðar á Norðurlöndunum. Sem hlutfall af ráðstöfunartekjum eru skuldirnar einnig lægri hér, eða tæplega 150% á móti liðlega 200%. Sama á við um fyrirtækin og heimilin. Þeim hefur tekist að styrkja efnahag sinn. „... engin stórkostleg krísa“ Efnahagsleg velgengni okkar Ís- lendinga á síðustu árum, eftir mikl- ar hremmingar í kjölfar falls fjár- málakerfisins, er ekki tilviljun. Auðvitað hefur margt lagst með okkur en mestu hefur skipt að við höfum náð að nýta tækifærin með skynsamlegum hætti. Styrk stjórn ríkisfjármála og algjör umskipti er varðar skuldir ríkisins hafa lagt grunninn. (Þannig er vaxtakostn- aður ríkisins sem hlutfall af lands- framleiðslu um 1% en var fimm sinnum hærri fyrir áratug.) Erlend staða þjóðarbúsins hefur aldrei ver- ið betri. Ásdís Kristjánsdóttir, hagfræð- ingur Samtaka atvinnulífsins, benti á í samtali við Morgunblaðið síðasta laugardag að þótt hagkerfið væri „að sigla í gegnum lægð er ljóst að það er engin stórkostleg krísa fram undan, sem betur fer“: „Það var dregin upp mjög dökk mynd á fyrstu mánuðum ársins þeg- ar fyrstu merki komu fram þess efnis að uppsveiflunni væri lokið og niðursveifla fram undan samfara falli WOW air. Sú mynd virðist ekki vera að raungerast. Ólíkt því sem við erum að sjá í Evrópu, þar sem stýrivextir eru neikvæðir og skuldir hins opinbera hjá mörgum ríkjum hærri í dag en fyrir síðustu efna- hagskreppu 2008, þá hefur Seðla- banki Íslands og íslensk stjórnvöld talsvert svigrúm til að bregðast við og styðja við hagkerfið þannig að niðursveiflan verði mildari en ella.“ Staða þjóðarbúsins – heimilanna, fyrirtækjanna og hins opinbera – er í flestu sterk og það er vel undir það búið að takast á við tímabundinn samdrátt. En það mun reyna á Seðlabankann og það mun reyna á ríkissjóð. Krónan er stöðug og verð- bólguvæntingar í takt við markmið Seðlabankans. Það gefur bankanum tækifæri til að halda áfram að lækka vexti. Staða ríkissjóðs er sterk, sem gefur ekki aðeins mögu- legt að hrinda í framkvæmd þeim skattalækkunum sem þegar hefur verið lofað, heldur stíga stærri skref. Þrýstingur á sveitarfélögin að endurskoða skatta- og gjaldastefnu sína mun síðan aukast, ekki aðeins útsvar heldur ekki síður fast- eignagjöld. Helsta ógn sem blasir við er staða efnahagsmála í öðrum löndum. Evrópusambandið berst við erfið- leika – efnahagslega og pólitíska. Brexit er áskorun fyrir okkur Ís- lendinga en þar hefur Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra þegar unnið heimavinnuna. Við- skiptadeilur Kína og Bandaríkjanna geta valdið okkur eins og öðrum þjóðum erfiðleikum. Á stundum, ekki síst þegar vel árar, gleymist hve við Íslendingar erum háðir öðrum þjóðum. Greiður aðgangur að erlendum mörkuðum er okkur lífsnauðsynlegur – er for- senda einhverra bestu lífskjara í heiminum. Einmitt þess vegna eig- um við að sameinast um að fjölga tækifærum með opnum samskiptum og viðskiptum við aðrar þjóðir, en ekki fækka þeim. Í alþjóðlegum samskiptum skiptir mestu að vera sjálfum sér samkvæmur. Um það verður kannski lítillega rætt þegar þing kemur saman í nokkra daga í lok mánaðarins. Eftir Óla Björn Kárason »Árangursrík efna- hagsstjórn birtist ekki aðeins í hækkun ráðstöfunartekna allra aldurshópa. Styrkari stoðum hefur verið skotið undir séreignastefnuna. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Efnahagsleg velgengni er ekki tilviljun Ráðstöfunartekjur allra hafa hækkað Mánaðartekjur 2013 og 2018 á verðlagi 2018 í þúsundum króna Hlutfallsleg hækkun ráðstöfunartekna 500 400 300 200 100 0 35% 30% 25% 20% 15% 10% 5% 0% 2013 2018 16-24 ára 25-34 ára 35-44 ára 45-54 ára 55-64 ára 65-74 ára 75 ára og eldri 16-24 ára 25-34 ára 35-44 ára 45-54 ára 55-64 ára 65-74 ára 75 ára og eldri 27% 20% 18% 23% 26% 32% 34% Heimild: Hagstofan/Fjármálaráðuneytið Fyrir nákvæmlega 45 árum og einum mánuði, 14. júlí 1974, var blásið í lúðra við Skeiðarárbrú og hald- inn dansleikur á palli fram eftir kvöldi. Til- efnið var vígsla brúar- innar, en með henni var hringnum lokað og Hringvegurinn, sem tengir byggðir um- hverfis landið, form- lega opnaður. Skeiðarárbrú var án nokkurs efa ein mesta samgöngu- bót Íslendinga fyrr og síðar. Upp frá þeim tíma gat ekkert hamlað greiðri för bifreiða hringinn í kringum landið og vegasamgöngur tóku stakkaskiptum. Í framhaldinu var fljótlega farið að leggja bundið slitlag á þjóðvegi víðs vegar um landið. Nú, fjórum áratugum seinna, er tímabært og ánægjulegt að hafa lokið því brýna verkefni að leggja slitlag á allan hringinn með nýjum vegarkafla um Berufjarðarbotn. Það kann að hljóma undar- lega í eyrum margra að ekki hafi verið komið bundið slitlag á allan hringinn fyrir löngu og má tína til margar ástæður fyrir því. Skiptar skoðanir um leiðir Þjóðvegakerfið er viðamikið, um 13 þús- und kílómetrar, og fyrir fámenna þjóð kostar mikla fjármuni að byggja það upp svo að uppfylli megi lágmarkskröfur. Á und- anförnum árum hafa fjármunir ver- ið af enn skornari skammti og for- gangsröðun vegaframkvæmda verið í þágu umferðaröryggis þar sem umferðin er mest. Undirbúningur að þessum lokakafla hringvegarins á sér langan aðdraganda og má rekja til ársins 2007. Skiptar skoð- anir voru um leiðir um Berufjarð- Eftir Sigurð Inga Jóhannsson » Tilgangurinn er skýr; að efla at- vinnusvæði og búsetu um land allt til að Ísland verði í fremstu röð með trausta innviði og öflug sveitarfélög. Sigurður Ingi Jóhannsson Höfundur er samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Hringnum lokað arbotn, sem seinkaði undirbúningi verksins, en niðurstaðan var þessi nýi vegkafli sem ég held að við get- um öll verið ánægð með. Flókinn undirbúningur Það leiðir hugann að öðrum brýnum vegaframkvæmdum sem hafa dregist úr hófi. Undirbúningur nýrrar veglínu er mun flóknari í dag, ferlið langt þar sem margir aðilar og stofnanir koma að málum, s.s. skipulagsyfirvöld, landeigendur og íbúar. Stjórnsýsluferlið er því flókið og getur leitt af sér ófyr- irséðar niðurstöður með tilheyrandi seinkunum á samgöngubótum. Hverjar sem ástæðurnar kunna að vera koma þær nær oftast niður á almenningi og fyrirtækjum á svæð- inu. Ný samgönguáætlun Frá því að hringnum var lokað hefur vegakerfið batnað umtalsvert undanfarna áratugi. Mikið verk er þó óunnið sem brýnt er að hraða eins og kostur er. Umferð á vegum hefur aukist mjög hratt á síðustu árum en vegakerfið er víða við þol- mörk vegna umferðar og ber þess merki. Í stjórnarsáttmálanum var sammælst um stórsókn í sam- göngumálum og verður um 120 milljörðum kr. varið úr ríkissjóði til framkvæmda á vegakerfinu á næstu fimm árum. Þess fyrir utan hefur verið leitað allra leiða til að hraða vegaframkvæmdum enn frekar og mun ég leggja fram end- urskoðaða fimm ára samgönguáætl- un núna í haust á Alþingi. Þar ber hæst stærri framkvæmdir sem mætti flýta, en verða gjaldskyldar að þeim loknum. Gert er ráð fyrir sérstakri jarðgangaáætlun og er miðað við að hafin verði hófleg gjaldtaka til þess að standa straum af kostnaði við rekstur og viðhald þeirra. Þá er markmið að gera um- ferð á höfuðborgarsvæðinu skilvirk- ari og er ljóst að ríki og sveit- arfélög geta ekki borið nema að hluta til fyrirhuguð samgöngu- mannvirki, umferðargjöld muni því renna til verkefnanna. Næstu ár Öryggi er sem fyrr leiðarljósið í öllum framkvæmdum og er stærsta verkefnið að auka öryggi í umferð- inni. Markmið til lengri tíma er að stytta vegalengdir og tengja byggðir með bundnu slitlagi, sem er eðlilegt framhald eftir að hafa lokað hringnum. Tilgangurinn er skýr; að efla atvinnusvæði og bú- setu um land allt til að Ísland verði í fremstu röð með trausta og örugga innviði og öflug sveit- arfélög.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.