Morgunblaðið - 14.08.2019, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 14.08.2019, Qupperneq 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019 „venjulegum“ bústaðaferðum. Dísa var alltaf boðin og búin að aðstoða við hvers kyns veislur. Eftir að við fórum sjálf að elda gátum við alltaf hringt í hana til að fá ráð og oft var okkur bent á að fletta upp í matreiðslubókinni hennar. Hún kenndi okkur alls konar servíettubrot og að leggja fallega á borð. Hún gaf okkur stundum að gamni einkunnir fyr- ir góða frammistöðu og gátum við verið svo heppin að fá 11 eða jafn- vel 12 í einkunn. Dísa frænka var ómissandi í öllum boðum. Hjá okkur byrjuðu jólin ekki klukkan sex, heldur upp úr klukkan sjö þegar Dísa kom úr kirkju. Enn finnst sumum okkar að jólin eigi að hefjast á þeim tíma. Mikilvægust voru þó hennar eigin boð, enda engin boð eins og „Dísuboð“. Það var mikið lán fyrir okkur öll þegar Hjörtur kom inn í henn- ar, og í leiðinni inn í okkar, líf. Þau voru einstaklega góðir vinir og jákvæðni og bjartsýni ein- kenndi fas þeirra og hugarfar. Þau eru okkur einstakar fyrir- myndir. Dísa sagði oft í gamni að maður ætti að vera skemmtilegt og sjarmerandi gamalmenni og henni tókst það svo sannarlega. Elsku Dísa frænka. Við sökn- um þín en yljum okkur við hlýjar og notalegar minningar. Þær munu lifa með okkur. Megum við vera svo lánsöm að læra af þínu jákvæða, bjarta og hvetjandi hugarfari og fá að feta, þó ekki nema að litlu leyti, í fótspor þín. Sigrún, Björgvin, Dóra og María. Elsku Bryndís kom inn í líf okkar þegar „afi nafni“ Hjörtur endurnýjaði kynni sín við hana, nokkru eftir að hann varð ekkill. Þræðir þeirra höfðu verið sam- ofnir um stund tæpri hálfri öld áður en leiðir þeirra skildu. Þegar við fjölskyldan flutt- umst heim eftir langdvöl erlendis eignuðust börnin þrjú „ömmu Dísu“. Hún varð strax hluti af fjölskyldunni og umhyggja henn- ar og hjálpsemi var einstök. Að sjá aftur blik í auga og bros á vör afans gladdi okkur öll og yndis- legt var að fylgjast með þeirra góða lífi saman sem einkenndist af hlýju og virðingu. Þau nutu lífsins á efri árum á einstakan hátt, sóttu tónleika, fóru í leikhús og ferðuðust innanlands og er- lendis fram undir nírætt. Það var alltaf ánægjulegt að umgangast Bryndísi og bar hún með sér gleði hvar sem hún kom. Hún var ávallt tilbúin til að aðstoða, sér- staklega þegar eitthvað stóð til, og henni þótti ekkert skemmti- legra en að undirbúa veislur og vesenast með okkur í eldhúsinu. Öll okkar börn hafa fengið bókina „Við matreiðum“ að gjöf ásamt svuntu og munu vonandi bera hróður hennar áfram. Hún var sjálf barnlaus en átti stóran hóp bræðrabarna og það var með ein- dæmum hversu vel hún fylgdist með hverjum og einum og fjöl- skyldum þeirra. Það þurfti því enga samfélagsmiðla til þess að fá fréttir af fólkinu hennar. Eftir að heilsunni fór að hraka á þessu ári áttum við góðar stundir saman fram á síðasta dag. Líkaminn hrörnaði en hug- urinn ekki og jákvæðnin og bjart- sýnin voru áfram á sínum stað. Enn spurði hún sem fyrr „hvað get ég gert fyrir ykkur?“ þegar við heimsóttum hana. Þannig var Bryndís, alltaf að hugsa um aðra og ætlaðist ekki til neins fyrir sjálfa sig. Elsku afi nafni, Ingimar, Snorri, bræðrabörn og fjölskyld- ur. Við geymum minningu um dásamlega konu sem við erum þakklát fyrir að hafa kynnst. Hvíl í friði. Sigrún Hjartardóttir og Björn Geir Leifsson. Í dag er kvödd Bryndís Stein- þórsdóttir hússtjórnarkennari, sem mig langar að minnast og kveðja með nokkrum orðum. Hún var í saumaklúbbi með móð- ur minni Kristveigu Björnsdótt- ur sem lést fyrir tæpum tíu árum og er Bryndís síðust þeirra sem fellur frá. Fyrir rúmum sextíu ár- um var klúbburinn þeirra stofn- aður af systrum og æskuvinkon- um á Fjölnisveginum, miklum hannyrðakonum eins og Bryndís orðar það í minningarorðum um móður mína og síðar bættust fleiri í hópinn. Níu hressar og lífs- glaðar konur úr ólíkum starfs- stéttum og með fjölmörg áhuga- mál sem áttu ógleymanlegar samverustundir sem einkennd- ust af vináttu og hjálpsemi. Ég kynntist ung þessum vin- kvennahópi en þar voru líka Ásta móðursystir mín og Kristjana frænka mín og fékk ég stundum að koma og hitta þær þegar klúbbur var hjá mömmu. Þá var oft glatt á hjalla og um margt að spjalla og ekki skorti handavinn- una. Þá var enginn klúbbur án þess að spáð væri í bolla. Eitt árið leit Bryndís í bolla móður minnar og sagði að hún sæi barn í boll- anum – kannski ömmubarn á leiðinni. Það reyndist rétt vera, en þá gekk ég með dóttur mína, Bryndísi, fyrsta barnabarn mömmu. Þegar við hjónin hófum bú- skap gaf mamma okkur mat- reiðslubók þeirra Önnu Gísla- dóttur og Bryndísar Steinþórsdóttur sem fylgt hefur okkur frá útgáfu hennar 1976 og er enn í notkun. Þegar þær end- urbættu og gáfu bókina út að nýju heimsótti ég Bryndísi og fékk hjá henni bækur til að gefa mínum afkomendum. Ég vil þakka Bryndísi ómælda tryggð, en hún hefur haft sam- band við mig á hverju ári und- anfarin ár og spurt frétta af fjöl- skyldunni. Það gladdi mig og áttum við ávallt skemmtilegt spjall. Ég kveð þessa dugnaðar- og atorkukonu og sendi Hirti og fjöl- skyldu hennar allri innilegar samúðarkveðjur. Minningin lifir. Sigríður Jóhannsdóttir. Stórt skarð er nú höggvið í vinahópinn þegar Bryndís Stein- þórsdóttir hefur kvatt eftir stutt veikindi. Bryndís var einstök kona, svo glaðlynd, góðlynd og greind. Hún átti líka marga góða vini og velunnara sem nú syrgja hana sárt. Hún vildi öllum gott gera og öllum þótti gott að eiga hana að. Bryndís var glögg- skyggn á eiginleika samferða- fólks og annarra og ófeimin að láta skoðanir sínar í ljós. Aldrei var hún meinleg í orðum, heldur jákvæð, skemmtileg og gaman- söm í tali. Hún var höfðingi í lund og lagði sig fram um að öllum sem nálægt henni væru liði sem best, bæði á sál og líkama. Hún var framúrskarandi vinkona, við- mótshlý og skilningsgóð, ætíð fús að leggja góðu máli lið og veita af hjálpsemi sinni og hæfileikum. Við Bryndís kynntumst snemma á lífsferli okkar, feður okkar voru samstarfsmenn og góðir vinir, kennarar við Barna- skólann á Akureyri. Við endur- nýjuðum kynnin og vináttuna þegar við hittumst aftur fyrir sunnan og hefur vináttan vaxið og orðið traustari með hverju ári. Reglulega höfum við hist vinkon- urnar úr Húsmæðrakennaraskól- anum og er þá ætíð glatt á hjalla og það er ekki síst Bryndísi að þakka. Við erum þakklátar fyrir samfylgdina og allt sem hún lagði til að samverustundirnar yrðu okkur kærar og eftirminnilegar. Nú er haustið í nánd og við syrgjum fráfall góðrar og merki- legrar konu sem lét mikið gott af sér leiða. Minning Bryndísar mun lifa lengi og ég kveð hana með ein- lægri þökk og ósk um endur- fundi. Ég sendi fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur og bið þeim allrar blessunar. Sigríður Kristjánsdóttir. Saumaklúbbur okkar sex kvenna sem allar eru kennarar hefur starfað í sátt og samlyndi í rúmlega 65 ár. Bryndís okkar kæra vinkona er sú fyrsta sem fellur frá og er söknuður okkar sár. Bryndís var gædd frábærum hæfileikum sem nutu sín vel í starfi hennar sem kennari og einnig í ýmsu félagsstarfi. Hlý framkoma og nærgætni setti svip á allt viðmót hennar gagnvart nemendum og samstarfsfólki. Eftir starfslok við kennslu á ýmsum stigum og einnig sem námsstjóri í menntamálaráðu- neytinu í nokkur ár settist Bryn- dís aldeilis ekki í helgan stein. Þá tók hún að sér að miðla fróðleik í „Fræðsluhorninu“ í tímariti eldri borgara: Listin að lifa. Hún fékk þá oft uppskriftir og leiðbeiningar af ýmsu tagi í þennan þátt frá lesendum sem kom sér örugglega vel fyrir marga. Nýlega var endurútgefin bók- in „Við matreiðum“ sem Bryndís og Anna Gísladóttir skrifuðu á sínum tíma. Hefur þessi bók ver- ið kennd lengi við framhaldsskóla og notið mikilla vinsælda. Bryn- dís var mjög hjálpsöm að eðlis- fari, og eflaust munu margir standa í mikilli þakkarskuld við hana. Bryndís var einhleyp meg- inhluta ævinnar, en síðustu rúm 20 árin átti hún frábæran vin, Hjört Þórarinsson, sem hefur verið henni stoð og stytta öll þessi ár. Hann hefur einnig reynst okkur klúbbsystrum góð- ur vinur, t.d. verið fararstjóri í mörgum ferðum okkar um landið síðari árin okkur til mikillar ánægju. Fjölskylda Bryndísar var henni afar kær, kom það glöggt í ljós með þátttöku í stórafmæli hennar sl. haust. Bróðir hennar heimsótti hana hvern dag á sjúkrahúsið, þar sem hún dvaldi síðustu mánuðina, sýndi það vel hug hans til systur sinnar. Nú er komið að kveðjustund. Allar klúbbsystur okkar kæru vinkonu Bryndísar Steinþórs- dóttur senda ættingjum hennar ásamt vini okkar Hirti innileg- ustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. Guðrún Kristinsdóttir, Ingibjörg Þórarinsdóttir. Okkar kæra Gammasystir, Bryndís Steinþórsdóttir hús- stjórnarkennari, er látin 91 árs að aldri. Þegar Gammadeild Delta Kappa Gamma International var stofnuð á Íslandi, 5. júní 1977, var hún ein af stofnfélögunum. Það var mikill happafengur fyrir deildina, því Bryndís var mjög virk í starfi og ætíð tilbúin að taka að sér verkefni og trúnaðar- störf fyrir samtökin sem hún vann með gleði og jákvæðum huga. Hún var strax kosin í stjórn og gegndi hlutverki ritara fyrstu árin. Eftir því var tekið hversu nákvæm og samviskusöm hún var og voru fundargerðir hennar, þá handskrifaðar, algjört augnayndi, svo fallega og vel var staðið að verkum. Hún var hússtjórnarkennari og sótti sér menntun víða, svo sem til Noregs og Danmerkur. Sótti nám í uppeldis- og kennslu- fræði fyrir kennara á vegum KHÍ 1975-1976. Kenndi við Fjölbraut í Breiðholti frá 1975 og var einn af stofnendum matvælabrautar sem þar var starfrækt, var um tíma námsstjóri í heimilisfræði og vann að námsskrám og er þá fátt upptalið. Bryndís Steinþórsdóttir var mjög ritfær og skrifaði margar greinar og fræðslurit um nær- ingu, matreiðslu og heimilishald. Bryndís var annar höfunda mat- reiðslubókarinnar „Við matreið- um“ sem fyrst kom út árið 1976. Bókin hefur verið notuð til kennslu í grunn- og framhalds- skólum um langa tíð og hún er einnig vinsæl á heimilum lands- manna. Höfundarnir endurskoðuðu bókina í 6. skipti til nýrrar útgáfu árið 2018 og var Bryndís þá orðin níræð. Hún var heiðruð og færð rauð rós í tilefni af endurútkomu bókarinnar „Við matreiðum“ á fundi Gammadeildarinnar 11. apríl 2018 en rauða rósin táknar andríki og sköpunargáfu. Rauði liturinn er tákn þess hugrekkis sem þarf til að ná árangri og allt þetta hafði Bryndís í ríkum mæli. Hún starfaði fyrir félag eldri borgara og sá til margra ára um mjög vinsælan fræðsluþátt um matreiðslu og heimilishald í fréttabréfi þeirra, Listin að lifa. Bryndís var mjög virk í starfi Gammadeildarinnar, var áhuga- söm um starf deildarinnar og allt sem laut að skólastarfi og mennt- un unga fólksins og var virk í um- ræðum. Hún mætti á alla fundi, enda vel hress allt þar til seinni hluta síðasta vetrar þegar heilsu henn- ar fór hrakandi, en samt kom hún færandi hendi með afmælis- kringlu í tilefni af 90 ára afmæl- inu sínu. Hún var alltaf svo létt og skemmtileg og ég held að Bryn- dís hafi um margt verið á undan sinni samtíð. Bryndís hafði sérstaklega fal- lega og hæverska framkomu, var kurteis og einstaklega smekkleg í öllu sem hún kom að. Hún var glöð og jákvæð og allt fallegt í kringum hana svo unun var að samveru við hana. Delta Kappa Gamma, félag kvenna í fræðslustörfum, kveður mæta félagskonu með þakklæti og söknuði. Aðstandendum henn- ar vottum við dýpstu samúð. Blessuð sé minning Bryndísar Steinþórsdóttur. Fyrir hönd Gammasystra, Hertha W. Jónsdóttir. Þá er hæfileika- og heiður- skonan Bryndís Steinþórsdóttir látin. Ég man fyrst eftir Bryndísi á aðalfundi Hússtjórnarskóla Ís- lands 1957. Ég dáðist að þessari ungu kennslukonu sem var brennandi af áhuga fyrir starfinu og átti mjög auðvelt með að tjá sig. Síðar kynntist ég Bryndísi og í mínum huga var hún leiðtogi og frumkvöðull. Árið 1977, er Fjöl- brautaskólinn í Breiðholti hafði starfað í tvö ár, bað Bryndís mig að sækja um kennslu þar. Ég af- þakkaði en hún hélt áfram og í lokin sló ég til. Ég er Bryndísi þakklát fyrir það að fá mig til að kenna í FB. Bryndís skilur eftir sig mikið starf sem kennari og skipuleggjandi. Elsku Bryndís, með djúpri þökk og virðingu fyrir þína góðu vináttu. Ég votta ástvinum Bryn- dísar innilega samúð. Blessuð sé minning hennar. Borghildur Jónsdóttir. Árin líða eitt af öðru og ekkert fær stöðvað tímanns rennsli. Við mannfólkið erum svo lítið brot af eilífðinni. Það hugsa ég oft þegar ég frétti lát góðra samstarfs- manna og vina frá fyrri árum. Hún Bryndís var ein af þeim. Ég kynntist Bryndísi fyrst persónulega þegar ég var kosin í stjórn Landssambands eldri borgara árið 2009. Hún hafði þá þegar unnið þar að margvísleg- um málum í mörg ár, setið bæði í stjórn og nefndum. Það var ómet- anlegt að hafa slíkan reynslu- bolta meðan ég var að setja mig inn í starfsemi landssambands- ins, fyrst sem ritari í stjórn og síðar formaður. Við Bryndís unn- um lengi saman að ýmsum mál- um innan Landssambands eldri borgara Við vorum saman í þjón- ustunefnd, síðar velferðarnefnd, ásamt Ragnheiði Stephensen sem stýrði nefndinni af miklum skörungsskap. Þar funduðum við reglulega um ýmis mál, fengum til okkar sérfræðinga, fórum á fund landlæknis, hittum ráð- herra, ferðuðumst um og skoðuð- um hjúkrunarheimili. Í framhaldi sendum við frá okkur ályktanir, bréf og tillögur. Það var skemmtilegt og fræðandi að vinna með Bryndísi, sem var full af áhuga fyrir því að bæta allt sem sneri að þjónustu við eldra fólk. Matur, næring, umhirða, menntun starfsfólks í heimaþjón- ustu, allt þetta lét hún sig varða og meira til. Og hún taldi aldrei eftir sér þá vinnu sem þessu fylgdi. Bryndís var einnig ásamt mér og fleirum í ritnefnd tíma- ritsins Listin að lifa allt frá árinu 2009 til 2017. Þar átti hún sér- stakan þátt sem hét Heilsuhorn- ið. Hún átti frumkvæði að þeim þætti í blaðinu á sínum tíma og sá um hann allt frá árinu 2000 til 2017. Þetta var vinsæll þáttur þar sem hún miðlaði alls konar fróð- leik. Hún var með góð húsráð, mataruppskriftir, handavinnu alls konar og föndur. Auk þess kom hún með margar hugmyndir að efni í blaðinu og hafði sam- band við ýmsa aðila um áhuga- vert efni til birtingar. Hún var lærður hússtjórnarkennari og miðlaði samfélaginu reynslu sinni og þekkingu. En hún var líka vin- ur vina sinna. Við héldum alltaf góðu sambandi með reglulegum símtölum og hittumst þegar tími var til. Hún vildi lítið tala um las- leika eða veikindi sín, hún hafði svo mörg önnur áhugamál sem hún vildi ræða. Það er sjónar- sviptir að slíkri konu þegar hún fellur frá. Ég mun sakna spjall- tímanna okkar en geymi í minn- ingunni allar samverustundirnar frá fyrri árum, sem ég þakka henni innilega fyrir. Þrúður syst- ir mín, sem einnig vann með Bryndísi í nokkur ár í ritnefnd Listarinnar að lifa, biður fyrir kveðju. Ég votta ættingjum og vinum Bryndísar innilega samúð og sér- staklega vini hennar til margra ára Hirti Þórarinssyni. Guð blessi minningu hennar. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir. Lífshlaupi mætrar konu er lokið, 1. sepember nk. hefði hún orðið 91 árs gömul. Við vissum hvor af annarri, höfðum báðar lokið námi frá Hús- stjórnarkennaraskóla Íslands og aukið við menntun okkar erlend- is, en kynni okkar hófust ekki fyrr en árið 1977. Bryndís starf- aði þá við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Skólinn tók til starfa árið 1975. Guðmundur Sveinsson var fyrsti skólameistari skólans og stýrði hann uppbyggingu skól- ans ásamt úrvalsliði kennara úr hinum ýmsu stéttum þjóðlífsins. Bryndís stýrði hússtjórnarsviði skólans. Nafni sviðsins var síðan breytt í matvælasvið. Árið 1977 hafði Bryndís sam- band við mig og bauð mér kennslu í næringarfræði. Ég var þá heimavinnandi með litlar dæt- ur og gat tekið boði hennar. Á haustönninni kenndi ég næring- arfræði á ýmsum sviðum skólans. Engin kennsla var fyrir mig á vorönninni, svo ég fór þá að sinna fyrra starfi mínu sem næringar- ráðgjafi á Borgarspítalanum. Næsta haust var mér boðin full staða við skólann og átti ég eftir að starfa þar í tæp 20 ár. Mestallan þann tíma stýrði Bryndís matvælasviðinu með mikilli prýði. Sviðið okkar tók smám saman breytingum, þar störfuðu saman hússtjórnar- kennarar, næringarfræðingur, matreiðslu- og framreiðslumeist- ari. Þeir síðastnefndu kenndu nemendum matreiðslu og fram- reiðslu fyrir hótel og veitingahús. Hússtjórnarkennarar kenndu nemendum að matreiða og skipu- leggja daglegar hollar máltíðir. Næringarfræðingur kenndi nem- endum um nauðsyn þess að fá lífsnauðsynleg næringarefni úr matnum. Bryndís sjálf kenndi nemendum matvælavörufræði og að skipuleggja eldhúsin. Bryndís var sérstaklega lagin í samskipt- um bæði við nemendur sína og okkur kennarana sem störfuðu undir hennar stjórn. Má segja að hún hafi kunnað stjórnunarhætti eins og þeir þekkjast bestir í dag. Hún var líka lagin við að velja rétt fólk, þegar ráða þurfti nýja kennara. Öll mál voru rædd í mesta bróðerni og ágreiningsmál leidd til lykta á farsælan hátt. Bryndís hafði ákaflega létta lund, var ætíð glöð og skemmti- leg. Hún var heilsuhraust og ég minnist þess ekki að hún hafi ver- ið frá kennslu öll árin sem við störfuðum saman. Hún naut þess að kenna og mætti ætíð glöð á hverjum morgni. Það var mann- bætandi að umgangast hana dag- lega. Bryndís var sérstaklega fær í matreiðslu, allt lék í höndum hennar. Þetta fengum við sam- kennarar hennar að sannreyna þegar við hjálpuðumst að við stórveislur á heimilum okkar. Samstarfi okkar lauk 1997 þegar ég fór í kennaraleyfi til Þýskalands og deildin okkar var flutt í Menntaskólann í Kópavogi. Þar starfaði Bryndís í eitt ár, þar til hún lauk starfsævi sinni. Vinátta okkar Bryndísar hefur nú staðið í rúmlega fjörutíu ár. Við þrjár vinkonur úr stétt hús- stjórnarkennara höfum hist reglulega þar sem við ræddum áhugamál okkar. Ætíð spurði Bryndís frétta úr FB og MK, þar sem starfsnámið sem við þróuð- um í FB er enn kennt. Ég kveð Bryndísi mína með miklum söknuði og óska henni velfarnaðar í nýjum víddum. Guð blessi minningu hennar. Ástvin- um hennar sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Elísabet S. Magnúsdóttir. Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.         þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber       ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.