Morgunblaðið - 14.08.2019, Page 22

Morgunblaðið - 14.08.2019, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019 ✝ Sigrún JónínaJensdóttir fæddist í Skipagötu 2 á Akureyri 13. september 1941. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sel- tjörn 2. ágúst 2019. Foreldrar henn- ar voru Þorbjörg Friðrikka Jóns- dóttir frá Fagra- nesi á Langanesi, f. 13.9. 1921, d. 7.10. 2006, og Jens Kristinn Sigurðsson frá Flatey á Skjálfanda, f. 24.12. og Jan Bertil Mörreaunet er Atli Logi, f. 25.7. 1987. 2) Haf- dís Hilmarsdóttir, f. 23.10. 1962, gift Bjarna Jóni Jónssyni, f. 12.7. 1963, börn þeirra eru Hilmar Daði, f. 10.9. 1991, og Sigrún Dís, f. 12.5. 1997. Sigrún vann fyrst við hin ýmsu störf, lengst af við garð- yrkju. Um fertug hóf hún nám í nálastungu-meðferð og svæð- anuddi og í beinu framhaldi af því lærði hún höfuð- beina- og spjaldhryggsjöfnun. Við þetta starfaði hún alla tíð síðan. Sig- rún gekk í Lions í Garðabæ þar sem hún tók þátt í ýmsum fé- lagsstörfum til margra ára. Hún gekk í Oddfellow-regluna 1978. Sigrún verður jarðsungin frá Vídalínskirkju í dag, 14. ágúst 2019, klukkan 15. 1919, d. 13.5. 1996. Systkini Sigrúnar eru Jens, Anna, Helga, Karl og Guðrún Elísabet. Sigrún giftist eftirlifandi manni sínum Hilmari Loga Guðjónssyni, f. 22.6. 1937, 13. september 1961. Dætur Sigrúnar og Hilmars eru 1) Þor- björg Helga Hilmarsdóttir, f. 8.8. 1961, gift Viðari Ágústs- syni, f. 9.11. 1950, sonur hennar Elsku besta, fallega mamma mín. Núna hefur þú farið í þitt síðasta ferðalag, án mín. Þú varst kletturinn í lífinu mínu, þú varst besta vinkonan mín, þú varst skemmtilegasti ferðafélag- inn minn, þú varst bónbesta manneskjan sem ég hef þekkt, þú varst mamma mín. Eftir sit ég með sorg í hjarta í risastóru tómarúmi sem ég ræð ekki við. Eftir sit ég líka með bestu minn- ingarnar um okkar einstaka samband, endalausu ferðalög bæði hérlendis og erlendis og allar samverustundirnar okkar sem við áttum. Við gátum talað endalaust um heima og geima, við gátum þagað saman, prjónað, heklað, nú eða leikið okkur í tölvuleikjum eins og orðasnakki. Þessar minningar mun enginn taka frá mér eins og þú varst tekin frá mér. Eftir langa og stranga baráttu við krabbamein varðstu því miður að láta í minni pokann. Elsku besta, fallega mamma mín, góða ferð, það mun ekki líða sá dagur að ég sakni þín ekki. Hvíl í friði, fallega sál, ég elska þig. Þín dóttir, Helga. Nú hefur það enn og aftur skeð sem enginn er undirbúinn fyrir þegar maður fetar lífsins veg. Maður missir alveg magn- aða konu sem er manni mjög hjartkær og var á margan máta meira stundum eins og mamma númer tvö hjá mér. Sterkar og duglegar konur voru þær báðar tvær mamma okkar hún Þor- björg F. Jónsdóttir heitin og Sigrún systir mín sem núna eru sameinaðar þar sem ljósið ræður ríkjum. Þær voru alltaf klettur í mínu lífi og stóðu með mér og mínum fram á síðustu stundu. Sigrún barðist hetjulega við krabbamein sem á endanum hafði betur. En minningarnar lifa um kjarkaða og duglega konu og góða fyrirmynd okkar sem á eftir henni koma. Rækt- arsemi og kærleikur var það sem maður mætti alltaf. Ég sem barn fékk til dæmis alltaf fallegan heimasaumaðan jólakjól eins og dætur hennar Helga og Hafdís sem eru nánast jafngamlar mér en ég var oft ekki nógu þakklát því ég vildi minna hana á að ég væri sko móðursystir þeirra og ætti sjálf mömmu sem sæi um mín jólaföt. Ég man líka eftir mér í sjálfstæðisbaráttu sem unglingur og við systur tókumst á þegar við vorum ekki sammála í skoðunum. En alltaf á endanum gat hún leiðbeint mér á rétta vegu og í dag er ég henni mikið og endalaust þakklát fyrir að hafa átt vináttu hennar og kær- leika. Ég á margar yndislegar og verðmætar minningar um hjálp- semi hennar, til dæmis þegar ég giftist manni mínum Balda, þá fannst Sigrúnu og Hilmari eðli- legt að hjálpa móður minni og okkur að halda brúðkaupsveislu okkar á heimili sínu. Það fáum við seint fullþakkað. Eins þegar við svo fluttum inn í okkar fyrstu híbýli, þá voru þau mætt vestur í Rif þar sem við búum með tepp- isrúlluna í sendibílnum sínum til að leggja með okkur teppið. Hellur sem voru lagðar í kring- um hús okkar og þökur voru lagðar með þeirra aðstoð. Sigrún var viðstödd fæðingu frumburðar okkar hjóna, hans Hjalta Más heitins, og stóð sig þar eins og hennar var von og vísa, traust og hvetjandi. Honum og öðrum börnum okkar var hún ætíð góður vinur og hjálpleg. Við Baldi gætum talið upp ótalmarg- ar minningar aðrar með þeim hjónum svo sem ferðalög bæði innanlands og utan sem eru ógleymanleg og öll skemmtilegu áramótin þar sem við systkinin öll og fjölskyldur komum til að fagna nýju ári. Það myndi fylla margar síður sem hægt væri að skrifa um þessa stórkostlegu konu sem nú hefur kvatt okkur. En vonandi flytur hún kveðjur fyrir okkur sem eftir lifum til þeirra sem í sólarlandinu búa. En eitt veit ég að falleg minn- ing um Sigrúnu systur, mágkonu og frænku mun ávallt fylgja okk- ar fólki. Elsku Hilmar Logi, Þorbjörg Helga og Hafdís, okkar dýpstu samúð sendum ykkur og fjöl- skyldunni allri. Missir ykkar er mikill. Augun þreyttu þurftu að hvíla sig. Það er stundum gott að fá að sofa. Armar drottins umlykja nú þig, okkar er að tilbiðja og lofa. Við þér tekur annað æðra stig, aftur birtir milli skýjarofa. Enginn nær flúið örlögin sín aldrei ég þér gleymi. Nú ert þú sofnuð systir mín Sæl í öðrum heimi. Hlátra og hlýju brosin þín í hjarta mínu geymi. (Haraldur Haraldsson) Guðrún Elísabet, Baldur Freyr og fjölskylda. Elsku Sigrún. Takk fyrir að hafa alltaf verið þú; heiðarleg, hjálpsöm og hlý. Alltaf hugsaðir þú til okkar, meðal annars pass- aðirðu börnin okkar ævinlega þegar á þurfti að halda. Við minnumst sérstaklega fjöl- margra ferðalaga sem við fórum saman; Þórsmörk um miðjan vetur, Hrafntinnusker að sumar- lagi, það mætti lengi telja. Svo maður tali nú ekki um Róm og Kaprí. Síðasta áratuginn eða þar um bil var alla föstudaga mætt á ein- hverri kaffistofu þar sem málin voru rædd. Þar var ekkert óvið- komandi. Þrátt fyrir veikindin áttirðu góðar stundir síðustu árin og gast ferðast m.a. til Atla Loga. Og Önnu er minnisstæð ferðin góða til Gunnu og Balda á Spáni. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Anna, Páll, Hildur og Hlynur og fjölskyldur. Ég kynntist Sigrúnu fyrir um 60 árum þegar Hilmar bróðir minn kom í heimsókn og kynnti hana sem kærustu sína en hún varð síðar eiginkona hans og lífs- förunautur. Það tókust strax með okkur Sigrúnu góð kynni sem entust alla ævi. Sigrún bjó yfir miklum mannkostum og hæfileikum. Hæfileikarnir komu fram í öllu því sem hún tók sér fyrir hendur, hún saumaði til að mynda þjóðbúning á sig og brúð- arkjól á dóttur sína, var mikil blómakona og töfraði fram fal- legar blómaskreytingar við hin ýmsu tækifæri, en þau hjónin ráku blómabúð og síðar gróðr- arstöð til margra ára. Sigrún og Hilmar eignuðust tvær dætur, þær Helgu og Haf- dísi, og var gaman að sjá hversu samstillt fjölskyldan var. Við fjölskyldan áttum margar ánægjustundir saman í gegnum árin. Við heimsóttum Hilmar og Sigrúnu þegar þau bjuggu í Nor- egi en Hilmar var þar við nám. Við ferðuðumst um norsku firð- ina og gistum í tjöldum og sigld- um milli hafna. Ekki má gleyma ferðinni til Danmerkur á vegum Oddfellow-reglunnar, en þar var margt skemmtilegt og eftir- minnilegt á dagskrá. Þau hjónin, Hilmar og Sigrún, voru alltaf svo glöð og skemmtileg og góð heim að sækja og gaman að ferðast með þeim. Þau höfðu mikla ánægju af því að ferðast bæði innanlands og utan og síðasta ár- ið sem Sigrún lifði var hún enn að ferðast þótt sjúkdómurinn sem dró hana til dauða væri bú- inn að taka af henni mikinn toll. Ég kveð kæra mágkonu mína með miklum söknuði og votta Hilmari bróður mínum, Helgu, Hafdísi og barnabörnunum mína dýpstu samúð og óska þeim guðs blessunar. Emilía Ósk Guðjónsdóttir. Það er með miklum söknuði sem við kveðjum Sigrúnu Jens- dóttur. Það var árið 1985 sem ég kynntist Sigrúnu, þá aðeins 12 ára gamall, en foreldrar mínir fóru með Sigrúnu og Hilmari í sýningarferð sem leikfimishópar úr Garðabæ og Kópavogi fóru sameiginlega í til Brasilíu árið á undan. Sigrún og Hilmar réðu mig til vinnu hjá þeim í Garða- mold og gróðrarstöðina sem þau voru með í Garðabænum, stein- snar frá heimili mínu. Ég kom til þeirra sem ráðvilltur 12 ára pilt- ur á upphafsárum unglingsins. Óhætt er að segja að bæði Hilm- ar, og þá alveg sérstaklega Sig- rún með sinn sterka persónu- leika, hafi haft afgerandi áhrif á hvernig ég leit á veröldina og geri enn. Svo vel kunni ég við mig hjá þeim að ég vann hjá þeim allt fram að þeim tíma er ég hóf laganám í Háskóla Íslands, að frátöldu einu sumri. Það var alltaf Sigrún sem lagði línurnar á þeim árum sem ég vann hjá þeim. Með áherslu á vinnusemi og á sama tíma uppbyggilegt samtal um mikilvæg málefni hafði hún afgerandi áhrif á hugs- unarhátt minn. Mér er til dæmis ávallt minnisstætt samtal sem við áttum um jafnrétti kynja í launamálum, sem var ekki sjálf- sagt að ungur drengur á þessum tíma hefði verið búinn að mynda sér heilbrigða afstöðu til. Einnig má nefna samtal okkar Sigrúnar um mikilvægi þess að halda vel utan um skráningu vinnutíma, virðingu fyrir því að mæta á rétt- um tíma til vinnu og gott utan- umhald um innheimtu fyrir seld- ar vörur. Nefna mætti fjölmarga aðra þætti sem Sigrún kenndi mér og vísa ég reglulega til hennar. Lífsviðhorf sem Sigrún fékk mig til að aðhyllast hefur fylgt mér inn í lífið. Það sem er þó kannski mikilvægast af öllu er það traust sem Sigrún sýndi mér og trú hennar á því að ég næði markmiðum mínum. Án stuðnings hennar hefði líf mitt sjálfsagt þróast á annan veg. Ég verð henni ævinlega þakklátur fyrir allt sem hún gaf mér. Votta ég fjölskyldu Sigrúnar samúð mína. Blessuð er minning þín. Takk fyrir allt. Jón Finnbogason. Sigrún prinsessa. Já, við vor- um 10 vinkonur sem kölluðum okkur „prinsessur“. Fyrir tæp- um 30 árum ákvað þessi hópur að fara saman út að borða einu sinni í mánuði. Ein sá um að ákveða á hvaða veitingastað væri farið og síðan bauð hún heim í kaffi og auðvitað eitthvert nammi með. Einnig var farið nokkuð oft á jólahlaðborð og helgarferðir eitthvert út á land og buðum við þá okkar betri helmingi með. Síðast en ekki síst lögðum við 10 prinsessur land undir fót og fórum í vikuferð til Barcelona þar sem við fórum í skoðunarferðir og þræddum fína veitingastaði. Allar þessar sam- verustundir eru ómetanlegar þar sem við nutum samverunnar og vináttunnar. Hverjum hefði dottið í hug að Sigrún, þessi sterka kona, yrði fyrst af okkur að kveðja þennan heim. Nei, það var fráleitt. En kæra vinkona, nú ert þú komin á betri stað og þjáningum þínum er lokið. Við „prinsessur“ þökkum fyr- ir allar þær góðu samverustund- ir sem við áttu saman og vottum Hilmari, Helgu, Hafdísi og öðr- um ástvinum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin lifir. Arna, Halldóra, Hrafnhild- ur, Kristiana, Guðbjörg Ólöf, Ólöf, Regína, Sig- urveig og Þórunn. Traustur vinur, litríkur per- sónuleiki og kær samferðamað- ur, Sigrún Jensdóttir, er nú kvaddur. Sigrún var afar dugleg og ákveðin, verklagin og hjálp- fús og lét sér fátt óviðkomandi. Hún var mikil félagsvera og virk í störfum sínum sem og í þátt- töku í félagsstarfi. Hún var með- al stofnenda Lionsklúbbsins Eikar í Garðabæ, einum af fyrstu kvenna lionsklúbbum á Íslandi. Oddfellow-reglan var henni hugleikin enda virkur fé- lagi um áratuga skeið og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum. Innan samfélags Garðbæinga var Sigrún vel liðin og þekkt enda höfðu þau Hilmar búið lengi í Garðabæ, allt frá þeim tíma, að „allir svo að segja þekktu alla“. Hún var líka félagi í minna þekktum félögum. Eitt slíkt myndaðist úr hópi kunningja um 1990. Vinabönd fimm hjóna urðu að traustum félagsskap sem kallar sig „Sólskríkjurnar“. Markmiðið var að ferðast saman um Ísland. Ein föst sumar útileguferð hefur verið farin á ári æ síðan, í 7 til 10 daga, með mismunandi ferðabúnaði, svo sem í brúna Econoline-ferðabíl Sigrúnar og Hilmars, tjöldum, tjaldvögnum, fellihýsum, bílatjöldum eða hjól- hýsum. Iðulega voru farnar aukaferðir, jafnvel um eyjar og hálendið, farið og dvalið í sum- arhúsum og þeyst um jökla á snjósleðum. Í þessum ferðum naut Sigrún sín, slíkur ferða- og fjallagarpur sem hún var. Áhugi hennar geislaði og þeg- ar þau Hilmar Logi lögðu saman stóð ekkert í vegi þeirra, hvort heldur voru grýttir fjallahryggir eða brattar hlíðar, sandbleytur eða árvöð jökulvatna. Þetta eru hinar hugljúfustu ferðir, slysa- laus ævintýri í fögru umhverfi og góðum félagsskap. Í seinni tíð hefur þó dregið úr tilhneigingu ferðagarpanna til svaðilfara. Tvennt hefur einkennt þessar ferðir. Hið fyrra er einstök hæfni á vorfundum að skipu- leggja veður komandi sumars og til að finna besta veðrið á landinu alla ferðadagana. Stundum þarf þó aðeins að breyta út af áætlun og er þá ekki talið eftir sér að hendast á milli staða, jafnvel landshluta, í elt- ingaleik við sólina og lognið. Enda geta fáir ef nokkur ferða- klúbbur á landinu státað af jafn- mörgum dögum með borðhald undir berum himni við logandi kertaljós í sólskini. Hið síðara er daglegt veislu- borð með tilheyrandi „sexara“ (fordrykk). Frá upphafi hefur mikið verið lagt upp úr kvöld- verðarborðhaldi í öllum okkar ferðum. Meistarakokkar blikna í sam- burði þegar þriggja rétta máltíð sem borin er fram við kertaloga á uppdúkað og skreytt matborð með tilheyrandi servíettubrot- um. Í vinahópi Sólskríkjanna er enginn undanskilinn með sitt metnaðarfulla framlag. Nú verða ferðirnar með þátt- töku Sigrúnar ekki fleiri. Henn- ar verður minnst, svo sterkt stendur hún í hugskotum okkar. Um leið og við kveðjum Sigrúnu þökkum við innilega allt sam- neytið og ánægjustundirnar, sem við fengum svo ríkulega not- ið. Við vottum þér, Hilmar Logi, og fjölskyldu dýpstu samúð. Megi Guð veita ykkur styrk og blessa minningu okkar kæru vinkonu. Arna og Sighvatur, Ólöf Októs, Ebba og Þorgrímur, Sólveig og Árni. Sigrún Jónína Jensdóttir Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.         þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber       ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR GRÉTAR SVEINBJÖRNSSON fiðluleikari, er látinn. Útförin verður auglýst síðar. Börnin Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSTBJARTUR SÆMUNDSSON, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, áður Álfhólsvegi 85, Kópavogi, lést föstudaginn 9. ágúst á dvalarheimilinu Höfða. Pétur Ástbjartsson Hrafnhildur Hjartardóttir Ástríður Ástbjartsdóttir Jón Þór Hallsson Bjarni Valur Ástbjartsson Nongnart Lue-U-Kosakul Gylfi Ástbjartsson Hafdís Helga Ólafsdóttir Hjalti Ástbjartsson Bryndís Emilsdóttir barnabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.