Morgunblaðið - 19.08.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.08.2019, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 9. Á G Ú S T 2 0 1 9 Stofnað 1913  193. tölublað  107. árgangur  SELFYSSINGAR BIKARMEISTARAR Í FÓTBOLTA SÁLUFÉLAGAR MIKIL ÞÖRF FYRIR SÉRFRÆÐINGA Í TRJÁFRÆÐI ÍMYND ÍSLENSKU ÞJÓÐARINNAR 28 TRJÁKLIFRARAR AÐ ATVINNU 11ÖFLUGUR ÍÞRÓTTABÆR SPORT A ct av is 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is „Í gær urðum við vitni að dapurlegri stund í sögunni þegar við klifruðum upp á það sem áður var jökullinn Ok, til að setja þar upp skilti til að minn- ast eyðingar hans,“ segir í upphafi aðsendrar greinar eftir Mary Robin- son, fyrrverandi forseta Írlands, og Ólaf Elíasson listamann, sem birt er í Morgunblaðinu í dag. Voru þau í gær bæði viðstödd formlega kveðju- athöfn á jöklinum Ok. Árið 1945 var Ok einungis sjö fer- kílómetrar, að því er fram kemur í frétt Morgunblaðsins frá október ár- ið 1960 sem fjallar um hraða eyðingu jökla á Íslandi. Svo hefur jökullinn stækkað duglega því árið 1956 var hann orðinn 34 ferkílómetrar, ef marka má tölur úr lokaritgerð frá jarðvísindadeild Háskóla Íslands. Frá 1985 hefur Ok farið minnkandi. Hann missti sess sinn sem jökull árið 2014 þegar hann var úrskurðaður „hreyfingarlaus dauðís“ af jarðfræð- ingnum Oddi Sigurðssyni. Hvetja stjórnvöld Í áðurnefndri grein hvetja Robin- son og Ólafur stjórnvöld til að grípa til aðgerða vegna loftslagsbreytinga. „Fyrir hönd núverandi kynslóða, kynslóðanna sem eftir koma og þeirra jökla sem eftir lifa í heimin- um,“ segja þau í greininni. „Vitni að dapurlegri stund“  Jökullinn Ok var að dauða kominn árið 1945 og talinn vera sjö ferkílómetrar Kveðja Ólafur Elíasson og Mary Robinson við kveðjuathöfnina í gær. Morgunblaðið/Sigurður Bogi M Dapurleg stund »15 og 4 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Upplýsingar um launaþróun forstjóra ríkisfyrir- tækja setja kjaraviðræður BHM við ríkisvaldið í nýtt ljós að sögn Þórunnar Sveinbjarnardóttur, formanns BHM. Upplýsingarnar sem um ræðir komu fram í svari við fyrirspurn Þorsteins Víg- lundssonar, þingmanns Viðreisnar, til fjármála- ráðherra. Þar kom fram að laun ríkisforstjóra hefðu hækkað um tæplega fjórðung síðan kjara- ráð var lagt niður árið 2017. Stjórnir viðkomandi fyrirtækja bera nú ábyrgð á launakjörunum. Í samtali við mbl.is í gær sagði Þorsteinn sláandi hve mikið ósamræmi væri í launaákvörðunum eftir fyrirtækjum. Kallaði hann eftir samræmdri launastefnu sem stjórnum umræddra fyrirtækja yrði gert að fylgja. Sama ríkisvaldið í viðræðunum „Þessar upplýsingar setja kjaraviðræðurnar í nýtt ljós,“ segir Þórunn og nefnir að aðildarfélög BHM eigi nú í kjaraviðræðum við „það sama ríkis- vald og beri ábyrgð á rekstri og launakjörum þess- ara fyrirtækjastjórnenda“. „Í viðræðum um kaup og kjör félagsmanna innan BHM hefur sannarlega ekki bólað á neinu viðlíka handa okkar fólki,“ segir Þórunn, sem kveðst hugsi yfir upplýsingunum og að þær verði rýndar betur. Þórunn bætir því við að kjararáð hafi verið lagt niður fyrir um tveimur árum til að koma í veg fyrir að laun æðstu stjórnenda ríkisins þróuðust með tilviljanakendum og ógegnsæjum hætti. „Nú virð- ist sem einmitt það hafi gerst. Það er alvarleg hlið á málinu og það verður að skoða þessar upplýs- ingar í því ljósi líka,“ segir hún. „Miðað við það sem nú liggur fyrir velti ég því fyrir mér hvort það að leggja niður kjararáð hefur haft tilætluð áhrif,“ segir Þórunn. Setja viðræður í nýtt ljós  Upplýsingarnar varpi nýju ljósi á kjaraviðræður  Ekkert viðlíka boðist BHM  Laun virðist ákveðin með ógegnsæjum hætti þrátt fyrir niðurlagningu kjararáðs Fjölmargir foreldrar mættu með börn sín að Kjarvalsstöðum í gær þar sem byggður var ævintýraleikvöllur úr pappakössum, límbandi, spýtum og öðrum efniviði. Er leikvöllurinn framtak samtakanna Meðvitaðir foreldrar, sem leggur áherslu á virðingarríkt uppeldi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ævintýraleikvöllur úr pappakössum  Bæði Evrópska persónuverndar- ráðið og Evr- ópska persónu- verndarstofnun- in telja nauðsyn- legt að farið sé yfir gildandi alþjóðasamninga Evrópusam- bandsins við Bandaríkin vegna skýjalöggjafar Bandaríkjanna. Skýjalöggjöfin heimilar löggæsluyfirvöldum í Bandaríkjunum að krefjast afhend- ingar á gögnum þjónustuaðila sem staðsettir eru í Bandaríkjunum. Óvíst er hvaða afleiðingar skýja- löggjöfin hefur á Ísland en fjöl- margir Íslendingar nýta sér banda- ríska þjónustuaðila sem geyma gögn í svokölluðum „skýjum“ á netinu. Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir ólíklegt að bandarísk löggæsluyfirvöld geti nýtt skýjalöggjöfina til að nálgast íslensk gögn án heimildar en gefur sér að einhvers konar samkomulag sé í gildi við bandarísk stjórnvöld sem veiti slíka heimild. »10 Óvissa um áhrif skýjalöggjafar Helga Þórisdóttir  Páll Magnús- son, formaður allsherjar- og menntamála- nefndar, segist vona og treysta því að hægt verði að grípa til aðgerða sem bæti rekstrarstöðu einkarekinna fjöl- miðla á Íslandi. Telur hann ekki nóg að grípa til skattalegra að- gerða eins og menntamálaráðherra leggur til. „Það verður jafnframt að fylgja því að fyrirferð Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði verði tak- mörkuð,“ segir Páll, sem lítur svo á að RÚV hafi fengið talsverða hækk- un rauntekna af útvarpsgjaldi. »2 Segir ekki nóg að grípa til skattaaðgerða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.