Morgunblaðið - 19.08.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 2019
V
E
R
T
Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og
steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum.
- því að sumt virkar betur saman
Stundum
þarf tvo til
Kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir og hástökkv-
arinn Kristófer Viggó Sigfinnsson unnu gull á Norð-
urlandamóti 19 ára og yngri í Noregi um helgina. Erna
Sóley kastaði kúlunni 15,85 metra og setti um leið nýtt
mótsmet. Kristján Viggó stökk yfir 2,13 metra í hástökki
og jafnaði 22 ára gamalt piltamet 16-17 ára.
Katla Rut Róbertsdóttir Kluvers, Þórdís Eva Steins-
dóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir og Guðbjörg Jóna
Bjarnadóttir settu stúlknamet 18-19 og 20-22 ára í 4x400
metra boðhlaupi á 3:44,99 mínútum. Þær fengu einnig
brons í 4x100 metra hlaupi á tímanum 47,48 sekúndum.
Guðbjörg og Þórdís höfðu áður unnið silfurverðlaun;
Guðbjörg í 100 metra hlaupi á 12,08 sekúndum og Þórdís í 400 metra
hlaupi á 55,64 sekúndum. Tvíburabróðir Þórdísar, Hinrik Snær Steinsson,
fékk einnig silfur í 400 metra hlaupi á 48,74 sekúndum.
Valdimar Hjalti Erlendsson fékk silfur í kringlukasti þar sem hann kast-
aði 57,59 metra. Birna Kristín Kristjánsdóttir fékk svo silfur í langstökki
þegar hún stökk 6,01 metra og Eva María Baldursdóttir fékk silfur í há-
stökki þegar hún fór yfir 1,76 metra. yrkill@mbl.is
Erna og Kristófer meistarar
Erna Sóley
Gunnarsdóttir
GARÐABÆR/KAPLA-
KRIKI/GRINDAVÍK/EYJAR
Jóhann Ingi Hafþórsson
Jóhann Ólafsson
Kristófer Kristjánsson
Þórður Yngvi Sigursveinsson
Stjarnan vann verðskuldaðan 3:1-
sigur á ÍA í 17. umferð Pepsi Max-
deildar karla í fótbolta á heimavelli
sínum í Garðabænum í gærkvöldi.
Það kom eins og þruma úr heiðskíru
lofti þegar ÍA jafnaði metin í 1:1 í
lok fyrri hálfleiks, því Stjörnumenn
voru sterkari allan hálfleikinn.
Stjarnan svaraði með marki á
fyrstu sekúndum seinni hálfleiks og
var ekki spurning hvort liðið myndi
fagna stigunum þremur eftir það.
ÍA skapaði nánast ekki neitt og
var sóknarleikur liðsins tilviljana-
kenndur. Hinum megin var Stjarn-
an með nægilega mikil gæði til að
skora þrjú mörk, þrátt fyrir að
Hilmar Árni Halldórsson hafi ekki
náð sér sérstaklega á strik. Sig-
urinn var nauðsynlegur fyrir
Stjörnuna í baráttunni um Evr-
ópusæti og eru næstu leikir liðsins
gegn Val, FH og Breiðabliki. Þar
verður Stjarnan að spila betur.
Eftir byrjun sem lofaði svo góðu
fyrir ÍA hefur liðið unnið einn leik
af síðustu tólf og tapað fjórum í röð.
Fari ÍA illa úr þeim fimm leikjum
sem eftir eru er ekki útilokað að lið-
ið falli. Sumar sem byrjaði eins og
góður draumur gæti endað sem
martröð. johanningi@mbl.is
Ósvikin fagnaðarlæti FH-inga
FH vann dramatískan 2:1-sigur á
Fylki í Kaplakrika. Þegar FH tap-
aði fyrir KA 28. júlí virtist liðið á
góðri leið með að sogast niður í fall-
baráttu, nokkuð sem FH-ingar vita
varla hvað er. Síðan hafa þeir ekki
tapað leik, eru í þriðja sæti og
komnir í bikarúrslit.
Á tímabili í gærkvöld leit þó út
fyrir að Fylkir myndi ná FH að
stigum. Árbæingar komust yfir og
héldu þá einhverjir að FH-ingar,
leikandi sinn þriðja leik á sjö dög-
um, hefðu ekki orku í að kreista út
stigin þrjú. En fagnaðarlætin voru
ósvikin þegar Brandur Olsen skor-
aði sigurmarkið á 90. mínútu og
stuðningsmenn FH fóru brosandi
úr Krikanum.
Árbæingar brostu hins vegar
ekki mikið eftir leikinn og í raun er
ekki sanngjarnt að þeir hafi farið
stigalausir úr Hafnarfirði.
Varnarleikurinn, með Ólaf Inga
Skúlason í broddi fylkingar, var
lengst af til fyrirmyndar og þá var
Valdimar Þór Ingimundarson
hættulegur fram á við. Það er þó
ekki spurt að því heldur skiptir máli
að skora fleiri mörk og það gerði
FH. johann@mbl.is
Urðu að sættast á jafntefli
Grindavík og HK berjast um að
ná markmiðum sínum á sitt hvorum
enda deildarinnar nú þegar styttist
í annan endan á Íslandsmótinu.
Hvorugt lið mátti því við jafntefli
þegar þau mættust í Grindavík í
gær og varð jafntefli, 1:1, að sjálf-
sögðu niðurstaðan í leik sem enginn
vildi tapa.
Atli Arnarson kom gestunum í
HK yfir úr vítaspyrnu en nýliðarnir
hafa verið á mikilli siglingu undan-
farnar vikur og berjast um eftirsótt
Evrópusæti á næstu leiktíð. Eftir
góða byrjun HK í gær virtist fátt
annað í spilunum en sigur Kópa-
vogsbúa þegar Atli skoraði. HK-
ingar gáfu hins vegar óvænt eftir,
eða bognuðu einfaldlega undir ör-
væntingarfullri pressu Grindvík-
inga, sem sitja í fallsæti og berjast
fyrir lífi sínu í deildinni. Stefan
Ljubicic jafnaði metin eftir horn-
spyrnu seint í leiknum og reyndu
svo bæði lið á lokamínútunum að
kreista fram dýrmætt sigurmark.
Allt kom fyrir ekki og bæði lið gáfu
eftir í baráttu sinni í deildinni.
kristoferk@mbl.is
Varði víti í uppbótartíma
Það var dramatík á Hásteinsvelli
þegar ÍBV fékk KA í heimsókn þar
sem liðin gerðu 1:1 jafntefli. Elfar
Árni Aðalsteinsson kom KA yfir í
fyrri hálfleik eftir frábært spil en
strax í byrjun síðari hálfleiks fengu
Eyjamenn vítaspyrnu. Jonathan
Glenn féll í teignum og Gary Martin
jafnaði metin með öruggu víti.
Bæði lið sóttu á markið enda
þurftu bæði á þremur stigum að
halda í botnbaráttunni. Dramatíkin
var síðan mikil í lokin þegar KA
fékk víti á þriðju mínútu uppbót-
artíma. Hallgrímur Mar Stein-
grímsson steig fram en Halldór Páll
Geirsson í marki ÍBV varði og
bjargaði stiginu fyrir Eyjamenn.
Strax í kjölfarið var leikurinn flaut-
aður af; ótrúleg dramatík sem olli
því að KA-menn voru miður sín eft-
ir leik.
Eyjamenn voru þarna að næla í
sitt fyrsta stig eftir níu tapleiki í röð
en eru enn á botninum, nú með sex
stig. KA er í níunda sætinu með 20
stig, aðeins tveimur stigum frá fall-
sæti. sport@mbl.is
Breytist
draumurinn
í martröð?
ÍA nálgast fallsæti Fjórði sigur
FH í röð ÍBV stöðvaði taphrinuna
Læti Daninn Morten Beck átti
hér eftir að fá rautt spjald fyrir
að stíga á andlitið á Ólafi Inga
Skúlasyni í Kaplakrika.
Pepsi Max-deild karla
ÍBV – KA................................................... 1:1
Grindavík – HK ........................................ 1:1
FH – Fylkir............................................... 2:1
Stjarnan – ÍA ............................................ 3:1
Staðan:
KR 16 11 3 2 35:20 36
Breiðablik 16 9 2 5 31:19 29
FH 17 8 4 5 24:24 28
Stjarnan 17 7 6 4 29:25 27
HK 17 7 4 6 24:19 25
Valur 16 7 2 7 28:24 23
ÍA 17 6 4 7 22:22 22
Fylkir 17 6 4 7 26:29 22
KA 17 6 2 9 24:29 20
Víkingur R. 16 4 7 5 25:26 19
Grindavík 17 3 9 5 14:19 18
ÍBV 17 1 3 13 13:39 6
Inkasso-deild karla
Magni – Afturelding................................ 3:1
Kristinn Rósbergss. 54., Kian Williams 61.,
Louis Wardle 84. – Ásgeir Arnþórss. 7.
Staðan:
Fjölnir 17 10 5 2 34:15 35
Þór 17 9 5 3 29:17 32
Grótta 17 8 7 2 34:24 31
Leiknir R. 17 9 2 6 30:25 29
Fram 17 8 2 7 26:26 26
Keflavík 17 7 4 6 24:22 25
Víkingur Ó. 17 6 6 5 18:15 24
Þróttur R. 17 6 3 8 33:26 21
Afturelding 17 5 2 10 22:33 17
Magni 17 4 4 9 21:43 16
Haukar 17 3 6 8 23:33 15
Njarðvík 17 3 2 12 16:31 11
2. deild karla
Þróttur V. – Leiknir F. ............................ 2:0
Vestri – Fjarðabyggð............................... 2:0
Tindastóll – KFG...................................... 3:0
Völsungur – Víðir ..................................... 1:3
Staðan:
Leiknir F. 16 9 4 3 30:18 31
Vestri 16 10 0 6 22:20 30
Víðir 16 9 1 6 29:20 28
Selfoss 16 8 2 6 36:22 26
Þróttur V. 16 7 4 5 28:24 25
ÍR 16 7 3 6 25:23 24
Dalvík/Reynir 16 6 6 4 23:23 24
Fjarðabyggð 16 6 4 6 30:27 22
Völsungur 16 6 3 7 19:22 21
Kári 16 5 2 9 31:40 17
KFG 16 5 0 11 25:39 15
Tindastóll 16 2 3 11 17:37 9
3. deild karla
Einherji – Vængir Júpíters ..................... 0:1
Augnablik – Höttur/Huginn.................... 1:4
Skallagrímur – Sindri .............................. 4:5
KF – KV .................................................... 3:1
Staðan:
Kórdrengir 17 13 3 1 45:18 42
KF 17 13 2 2 45:17 41
KV 17 10 2 5 34:24 32
Vængir Júpiters 17 10 1 6 31:24 31
Reynir S. 17 8 5 4 30:27 29
Einherji 17 6 5 6 21:20 23
Sindri 17 6 3 8 38:44 21
Álftanes 17 5 4 8 30:30 19
Höttur/Huginn 17 4 6 7 27:27 18
Augnablik 17 3 4 10 22:37 13
KH 17 4 1 12 22:43 13
Skallagrímur 17 2 0 15 20:54 6
KNATTSPYRNA
0:1 Elfar Árni Aðalsteinsson 18.
1:1 Gary Martin 49. (víti)
I Gul spjöldOran Jackson, Benjamin Prah
(ÍBV).
Dómari: Jamie Robinson, 7.
Áhorfendur: Óuppgefið.
ÍBV – KA 1:1
MM
Halldór Páll Geirsson (ÍBV)
M
Gary Martin (ÍBV)
Almarr Ormarsson (KA)
Callum Williams (KA)
Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Kristijan Jajalo (KA)