Morgunblaðið - 19.08.2019, Side 13

Morgunblaðið - 19.08.2019, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 2019 Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Hundruð þúsunda þyrptust út á göt- ur Hong Kong í gær í þeim tilgangi að sýna leiðtogum borgarinnar að hreyfing þeirra njóti enn víðtæks stuðnings þrátt fyrir stigvaxandi of- beldi gegn mótmælendum og vægðarlausar viðvaranir frá Peking, höfuðborg Kína. Mótmælendurnir virtu að vettugi fyrirmæli lögregluyfirvalda um að halda ekki af stað frá almennings- garði sem þeir söfnuðust saman fyrir mótmælin. Mótmæli hafa staðið yfir reglu- lega síðan snemma í júní og hafa mótmælendur kvartað yfir mikilli hörku í garð mótmælenda, sem hafa að mestu mótmælt friðsamlega. Stjórnvöld í Kína hafa krafist þess að stjórnvöld í Hong Kong, sem er sjálf- stjórnarsvæði innan Kína, bregðist harkalega við mótmælunum. Hong Kong hefur farið eftir þeim kröfum og hefur lögreglan beitt táragasi, kylfum og gúmmíkúlum gegn mót- mælendum. Búnir gasgrímum og hjálmum „Lögreglan er að gera ýmislegt sem er óviðunandi,“ sagði mótmæl- andinn Yim, sem vildi ekki geta seinna nafns, við fréttastofu AFP í gær. „Lögreglan er ekki hér í þeim tilgangi að verja mótmælendur held- ur er hún hér til þess að valda þeim skaða,“ bætti Yim við. Mótmælendur mættu tilbúnir í slaginn á mótmælin í gær og voru margir hverjir með bakpoka fulla af gasgrímum, sundgleraugum og hjálmum til að verjast mögulegum árásum lögreglu. Þynnast fór í hópi mótmælenda rétt fyrir miðnætti á sunnudags- kvöld en nokkur þúsund grímu- klæddra mótmælenda héldu þó að höfuðstöðum ríkisstjórnarinnar seint um kvöldið og hrópuðu: „Endurheimtum Hong Kong, bylt- ingu okkar tíma.“ Hin fordæmalausa pólitíska kreppa sem stendur yfir í Hong Kong kviknaði vegna andstöðu við framsalsfrumvarp sem ríkisstjóri Hong Kong, Carrie Lam, hugðist leggja fram. Sé það samþykkt mun frumvarpið heimila Hong Kong að framselja afbrotamenn til megin- lands Kína. Hersveitir Kína nálgast Borgarar Hong Kong eru að mörgu leyti frjálsari en landar þeirra á meginlandinu. Þótti frumvarpið bera merki þess að Kína væri að herða tökin á sjálfstjórnarhéraðinu. Framlagningu frumvarpsins hefur verið frestað en mótmælendur vilja að það sé tekið af dagskrá. Auk þeirrar kröfu hafa mótmælin undið upp á sig og orðið að almennu ákalli um lýðræðisleg réttindi íbúa í Hong Kong. Þolinmæði Kínverja fyrir mót- mælunum virðist vera á þrotum, en stjórnvöld á meginlandinu færa her- sveitir sínar sífellt nær mörkum Hong Kong. Nokkur hundruð kín- verskra sérveitarmanna hafa verið við æfingar í kínversku borginni Shenzhen, nágrannaborg Hong Kong, undanfarið. Sérfræðingar telja að ef til inngrips kínverskra ör- yggissveita komi verði það til þess að efnahagur og orðspor Kína bíði hnekki. Vestrænir leiðtogar hafa reynt að grípa inn í, meðal annars Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem hefur kallað eftir stillingu og boðist til að ræða við Xi Jinping, forseta Kína, um málefni Hong Kong. Trump telur að Jinping hafi getu til að leysa deil- una fljótt og mannúðlega. Hundruð þúsunda virtu ekki fyrirmæli lögreglu  Mótmælendur í Hong Kong halda uppteknum hætti AFP Regnhlífar Mikið rigndi á mótmælendur, sem létu það ekki á sig fá. Sýrlenskir flóttamenn sem fara í frí til heimahaganna gætu misst stöðu sína sem flóttamenn í Þýskalandi, sagði Horst Seehofer, innanríkis- ráðherra Þýskalands, í viðtali sem birtist í gær í þýska dagblaðinu Bild. „Ef sýrlenskur flóttamaður fer reglulega í frí til Sýrlands getur hann ekki sagt á sama tíma að hann sé of- sóttur í Sýrlandi,“ sagði Seehofer. „Við þyrftum að svipta hann stöðu flóttamanns,“ bætti Seehofer við. Um leið og þýskir embættismenn heyra af slíkum ferðum munu þeir hefja rannsókn á stöðu flótta- mannsins, að sögn Seehofer. Hann gat ekki sagt til um hversu margir flóttamenn yrðu fyrir áhrifum af þessari stefnu. Þýskir embættismenn mega eins og sakir standa ekki vísa flóttafólki til Sýrlands, þar sem aðstæður í landinu eru taldar hættulegar. Bannið á að falla úr gildi í lok árs en mögulegt er að framlengja það. „Þegar aðstæður leyfa munum við hefja brottvísanir,“ sagði Seehofer, sem hefur ítrekað lent í árekstrum við Angelu Merkel, kanslara Þýska- lands, vegna stefnu hennar í mál- efnum flóttamanna, sem hann telur of frjálslynda. Frí gætu valdið brottvísunum  Hyggjast vísa Sýrlendingum burt AFP Seehofer 780.000 Sýrlendingar hafa flutt til Þýskalands síðan 2011. Matar-, lyfja- og eldsneytis- skortur gæti verið yfirvof- andi í Bretlandi gangi Bretar úr Evrópusam- bandinu án samnings. Þetta kemur fram í skjölum frá bresku ríkis- stjórninni sem lekið var til breska dagblaðsins The Sunday Times. Ríkisstjórnin telur einnig lík- legt að setja þurfi upp hörð landa- mæri á milli Norður-Írlands og Ír- lands. Gert er ráð fyrir að Bretland gangi úr sambandinu 31. október næstkomandi, með samningi eða án hans. Kwasi Kwarteng, orkumála- ráðherra Bretlands, hefur vísað því á bug að skorturinn sé yfirvof- andi. Hann segir að skjölin sýni ekki fram á það sem er líklegast að gerist heldur eitthvað sem gæti gerst og auðvitað þurfi ríkis- stjórnin að vera undir allt búin. ÚTGANGA ÚR ESB ÁN SAMNINGS Kwasi Kwarteng Mögulegur nauðsynjaskortur í Bretlandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.