Morgunblaðið - 19.08.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 19.08.2019, Síða 22
50 ára Þuríður ólst upp í Vogum á Vatns- leysuströnd en býr í Innri-Njarðvík. Hún er með BA í stjórnmála- fræði frá HÍ og MA í al- þjóðasamskiptum frá HÍ. Hún er fagstjóri ökunáms og leyfisveitinga hjá Sam- göngustofu. Maki: Njáll Pálsson, f. 1976, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður á höfuðborgar- svæðinu. Börn: Ægir Páll, f. 2006, og Edda Björk, f. 2007. Foreldrar: Ægir Axelsson, f. 1941, fyrr- verandi verkamaður, bús. í Vogum, og Ásta Björk Marteinsdóttir, f. 1948, d. 2006, verslunarmaður. Þuríður Berglind Ægisdóttir 22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 2019 Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is SKÚTAN Veitingar af öllum stærðum, hvort sem er í sal eða heimahúsi Nánar á veislulist.is Erfidrykkja Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þótt óvæntir hlutir gerist átt þú að vera undir þá búinn og geta tekið á þeim með réttum hætti. Ekki reyna að breyta ár- farveginum og láttu hlutina þróast. 20. apríl - 20. maí  Naut Það getur verið freistandi að falla fyrir nýjum hugmyndum. Haltu áfram að vinna vel því nú munu draumar þínir rætast. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert óvenju kraftmikil/l og þarft að fá útrás fyrir orkuna. Reyndu að gera velgengi þína að velgengi fólksins í kringum þig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þótt að miklu sé að stefna á vinnu- staðnum máttu ekki fórna framanum öllu sem þú átt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Viðamikið samstarfsverkefni sem þú ert nú að taka þátt í krefst mikils af þér. Vertu rólegur því þú hefur alla burði til að leysa þetta vel af hendi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Óvænt tækifæri á framabrautinni, sem hugsanlega er boðið fram af yfirmanni þínum eða einhverjum háttsettum, gæti orðið þín blessun í dag. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ef þú ert óöruggur um stöðu mála skaltu gefa þér tíma til að endurskoða þau. Kynntu öðrum árangur þinn með hógværð; hún vinnur á. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vinsældir þínar í einkalífi og starfi eru miklar um þessar mundir og allir vilja hafa þig með. Nú er komið að því að þú uppskerir laun erfiðis þíns. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Nú skiptir öllu máli að finna réttu aðferðina til að ná viðunandi árangri. Kannski felur það í sér að læra meira um nýja tækni. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér sárna ummæli sem falla í samtali innan fjölskyldunnar. Mundu að öllu gamni fylgir nokkur alvara og því er betra að gæta orða sinna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Samstarfsmenn þínir munu koma auga á hæfileika þína og vilja njóta þeirra. Líf þitt hefur tekið nýja stefnu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Láttu þér ekki bregða þótt gömul mál dúkki upp og þú þurfir að eyða tíma í að koma þeim á hreint. En láttu samt engan þvinga þig til að gera eitthvað sem þú vilt ekki. sprengjuleit og við leitar- og björg- unarstörf. Viðskiptavinir okkar eru einnig þjónustufyrirtæki sem skoða allar neðansjávarbyggingar eins og olíupípur og olíuborpalla sem og ýmsar vísinda- og háskólastofnanir stundum nefndur helsti kafbáta- sérfræðingur Íslands. „Helstu við- skipavinir okkar eru ýmsar ríkis- stjórnir sem nota kafbátana fyrir sjóherinn og landhelgisgæslu. Sjó- herinn notar þá fyrst og fremst í S tefán Reynisson er fædd- ur 19. ágúst 1979 í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hann fór í Öldutúnsskóla í Hafnar- firði en eftir grunnskóla fór Stefán í Verzlunarskóla Íslands þar sem hann útskrifaðist 1999. Eftir stúd- entspróf fór hann á viðskiptafræði braut í Háskóla Reykjavíkur. Hann útskrifaðist þaðan 2002. Meðan Stef- án var í námi í HR kynntist hann Sóleyju Eiríksdóttur og hafa þau verið saman síðan í ársbyrjun 2002.“ Stefán hóf störf hjá Öryggis- miðstöð Íslands sem innkaupastjóri og var þar til hann fór aftur í nám ágúst 2004. Stefán fór í CBS (Copen- hagen Business School) og lærði þar M.Sc. í International Marketing and Management og eftir eitt ár þar skráði hann sig líka í CEMS MIM nám sem er alþjóðlegt nám í Inter- national Management. Þau eign- uðust Margréti Nótt í Danmörku í júní 2005. Þau fluttu til Búdapest í ágúst 2005 þar sem Stefán var í CEMS-náminu og dvöldu þar eina önn. Þau fluttu aftur til Kaupmanna- hafnar, þar sem Stefán kláraði nám sitt, og þaðan fluttu þau til London, þar sem hann starfaði sem markaðs- lærlingur hjá London-skrifstofu Ice- landair. Stefán útskrifaðist árið 2007 úr báðum námsbrautunum. Eftir námið fluttu þau aftur heim til Íslands, Sóley fór í nám í sagn- fræði við HÍ og Stefán hóf störf sem innkaupa- og gæðastjóri hjá heild- versluninni Karl K. Karlsson og starfaði þar til ársins 2009. Stefán hóf störf sem innkaupastjóri í októ- ber 2009 hjá Hafmynd ehf, en fyrir- tækið breyttist í Teledyne Gavia ehf. þegar það var selt Teledyne Techn- ologies í september 2010. Sú fyrir- tækjasamsteypa á tugi fyrirtækja í hátækniiðnaði og er með um 11.000 starfsmenn. Eftir tvö ár í starfi tók Stefán við stöðu rekstrarstjóra hjá Teledyne Gavia og árið 2014 tók hann við sem framkvæmdastjóri og gegnir því starfi enn. Teledyne Gavia framleiðir djúp- förin Gavia, sem fer niður á 1.000 m dýpi, og SeaRaptor, sem getur farið niður á 6.000 m dýpi, og er Stefán víða um heim.“ Starfsmenn fyrir- tækisins eru 20 á Íslandi. Stefán hefur mikinn áhuga á íþróttum og hefur verið virkur í mörgum greinum. Hann spilaði körfubolta frá 12 ára aldri en hætti að spila 32 ára gamall eftir þrálát ökklameiðsl. „Ég ólst upp með Haukum en spilaði með Stjörnunni í fyrstu deild og komst með félaginu upp í úrvalsdeild. Ég spilaði einnig með Íslendingafélaginu Guðrúnu í Danmörku fyrsta árið þar og þjálfaði og spilaði með félaginu seinna árið. Ég endaði svo ferilinn með Álftanesi. Ég tek þó enn þátt í körfuboltaferli stelpnanna minna, sem æfa allar körfubolta með Breiðablik.“ Eftir körfuboltann tóku við hlaup, hjólreiðar, Crossfit og þríþraut. Stefán tók þátt meðal annars í heimsmeistaramóti í ólympískri þrí- þraut í London 2013, hljóp heilt maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu 2014 og kláraði hálfan Járnmann í Hafnarfirði 2015. Hann æfir nú hjól- reiðar og tók þátt í Wow Cyclothon Stefán Reynisson, framkvæmdastjóri Teledyne Gavia ehf. – 40 ára Fjölskyldan Elísa Dögun, Sóley, Vilborg Saga, Margrét Nótt og Stefán á heimili þeirra í fyrra. Stýrir kafbátafyrirtæki Hjónin Stefán og Sóley að klára Wow Cyclothon í sumar. 60 ára Agnar er Kefl- víkingur, fæddur þar og uppalinn. Hann lauk grunnskólanámi í Keflavík. Hann var bæjarstarfsmaður og sjómaður á Voninni og Hólmsteini frá Garði. Hann var formaður Vinstri-grænna á Suðurnesjum. Maki: Jórunn Dóra Hlíðberg, f. 1962, ör- yrki. Börn: Guðrún Valdís, f. 1982, Kolbrún, f. 1985, og Bjarni Valur, f. 1991. Barnabörn- in eru orðin fimm. Foreldrar: Sigurbjörn Pálsson, f. 1933, fv. verkstjóri hjá Jökli og Miðnesi, bús. í Njarðvík, og Guðlaug Guðmundsdóttir, f. 1937, d. 1998, húsmóðir. Agnar Sigurbjörnsson Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.