Morgunblaðið - 19.08.2019, Side 28

Morgunblaðið - 19.08.2019, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 2019 Verslun Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | www.kemi.is | kemi@kemi.is Tæki sem lesa sjálf ástand rafgeyma og tryggja að ekki er hægt að tengja rangt. Neistafrí og hættulaus. STARTTÆKI FYRIR ÖLL ÖKUTÆKI ER RAFGEYMIRINN DAUÐUR VIÐTAL Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Hópurinn Sálufélagar, sem stofnaður var af Nínu Hjálmarsdóttur og Selmu Reynisdóttur árið 2015, setur upp verkið Independent Party People í Tjarnarbíói. Fyrir ári sýndu þær sam- nefnda sýningu sem verk í vinnslu í Mengi. Í kjölfar þess hlutu þær styrki til þess að halda áfram með verkefnið og fengu þá til liðs við sig leikarana Jónmund Grétarsson og Davíð Þór Katrínarson til þess að setja upp sýn- ingu í fullri stærð í Tjarnarbíói. „Sálufélagar hafa verið að sviðsetja sjálfið og við fórum að skoða sjálfs- mynd Íslendinga,“ segir Selma og Nína bætir við: „Þetta byrjaði allt fyrir nokkrum árum þegar við fórum að hugsa um hvernig við upplifum að útlendingar hugsi um okkur Íslend- inga sem einhvers konar náttúru- börn, að hér ríki fullkomið jafnrétti og hér sé engin spilling. Við fórum að skoða skrif mannfræðingsins Krist- ínar Loftsdóttur, sem hefur mikið verið að skoða hugmyndina um Ís- land sem hið exótíska norður. Svo gaf forsætisráðuneytið út skýrslu árið 2008 sem var grunnurinn að ímyndarsköpun um hið nýja Ís- land, hugmynd sem var seld með Inspired by Iceland og fleiri herferð- um og var ákveðið grunnstef í öllum auglýsingum um Ísland. Þetta varð til þess að ferðaþjónusta varð ein mikil- vægasta atvinnugrein Íslands. Skýrslan átti ekki bara að fjölga ferðamönnum heldur áttum við Ís- lendingar að fá einhverja ímynd og það virkaði vel.“ Skýrslan útilokar marga Nína segir lýsandi fyrir skýrsluna að hún hefjist á orðunum: „Í þjóðinni býr náttúrulegur kraftur sem mótast hefur í sambúð við náttúruna.“ „Við tengjum ekki við þessa ímynd sem sett er fram í skýrslunni og hún er rosalega útilokandi fyrir marga sem ættu að eiga heima innan hennar,“ segir hún. „Við tengjum ekki við þessa ímynd en henni er varpað á okkur,“ bætir Selma við og lýsir því sem margir Ís- lendingar kannast við, að mæta hug- myndum um þjóðina í útlöndum, t.d. þeirri hugmynd að við trúum öll á álfa. „Hugmyndin um Ísland hefur verið að við séum einhvers konar hið rétta „annað“, eitthvað annað eða öðruvísi en fólk upplifir heima hjá sér. Það er mjög huggulegt að koma hingað til Íslands og geta skoðað eitt- hvað sem er öðruvísi, laus við sam- viskubit en á sama tíma er það svo öruggt af því það hafa það allir svo gott hérna.“ Hún lýsir því að hingað til lands geti fólk komið og fundið eitthvað sem það telur vera exótískt, æskilegt og upprunalegt án þess að verða fyrir neinum óþægindum. „Hins vegar er t.d. litið á flóttamenn sem óæskilega „aðra“.“ Hvítt landslag og fantasía Selma bendir einnig á hugmyndir um Ísland sem hvítt rými, um að allir Íslendingar séu hvítir. „Kristín Lofts- dóttir hefur bent á að þú þarft ekki annað en að sjá mynd af landslaginu, það þarf ekki að vera manneskja á henni, til þess að þú skynjir að þetta sé hvítt landslag,“ segir hún. „Norðrið er svo tengt hugmyndinni um hvítleika. Ég verð reiðust yfir því að við séum að styðja við einhverja hvíta fantasíu. Því það er akkúrat öf- ugt við það sem við segjumst vilja vera. Við viljum vera þessi jafnréttis- paradís; við viljum vera fyrirmynd,“ segir Nína. „Að sjálfsögðu er margt í þessari skýrslu sem margir Íslend- ingar telja að sé satt. En þessi ímynd getur verið svo svakalega heftandi þegar hún er gerð að kapítalískri söluvöru sem við eigum að ganga inn í. Við erum dæmd til að leika ákveðið hlutverk.“ Selma bendir á að á bak við þessa ímynd um Ísland sé heil markaðs- deild og erlendir markaðssérfræð- ingar. „Ég held að fáir átti sig á því hvað þetta var strategískt,“ segir hún. „Þessi skýrsla forsætisráðuneyt- isins var nýtt í Inspired by Iceland- herferðinni, sem er ein áhrifamesta herferð fyrr og síðar. Það muna allir eftir henni,“ segir Davíð. „Og við féll- um öll fyrir henni,“ bendir Jónmund- ur á. Hvers konar Ísland viljum við? „Við erum svolítið að pota í það að 12-15% af íslensku þjóðinni eru af er- lendum uppruna en eiga samt engan stað í ímyndinni,“ segir Davíð og Nína bætir við: „Þetta eru hug- myndir sem við ættum að vera að ræða núna af því að við lifum á tímum þar sem munu verða svo miklar breytingar. Eftir einhverja áratugi verður það ekki spurningum um hvort við ætlum að taka á móti fleiri flóttamönnum heldur hvort við ætl- um að taka á móti 20.000 eða 200.000. Þessar hugmyndir sem eru svo inn- grónar í okkur, að Ísland sé eitthvað ákveðið, að við séum hvít, náttúru- börn og bændur, eru svo rosalega takmarkandi. Við þurfum að byrja að takast á við þær. Þetta snýst um það hvers konar Ísland við, sem erum að taka við taumunum, viljum og hvern- ig framtíð við viljum skapa.“ „Við viljum sjá ímynd sem er nær raunveruleikanum og er aðgengileg fyrir alla,“ segir Davíð. Jónmundur nefnir þó að markmið hópsins sé ekki að finna svör heldur séu þau „fyrst og fremst að spyrja spurninga til þess að vekja fólk til umhugsunar“. „Við erum nánast farin að trúa þessum hugmyndum um að Ísland sé svo hreint og tært en að sama skapi erum við t.d. ótrúlega aftarlega þegar kemur að plastnotkun,“ segir Selma. „Við erum ein þeirra þjóða sem nota hvað mest plast í heiminum.“ Nína bendir á að það hafi einmitt verið innblásturinn að sviðsmynd verksins sem Katerina Blahutová hannaði. „Hún er öll búin til úr plasti en endurspeglar íslenska náttúru. Hún er líka hvít, sem endurspeglar þessa hugmynd um að norðrið sé ósjálfrátt hvítt.“ Selma skýrir frá því að Katerina hafi notað heybaggaplast til þess að gera sviðsmyndina og hafi verið í samstarfi við fyrirtækið Pure North, sem endurvinnur plast úr landbúnaði. Titill verksins, Independent Party People, vísar m.a. í Sjálfstætt fólk eft- ir Halldór Laxness. „Í skýrslunni segir „Það býr enn þá Bjartur í Sumarhúsum í hverjum manni“ og ég held að hugmyndin að titlinum hafi komið þaðan,“ segir Nína. Titilinn vísar einnig til Sjálfstæðisflokksins og hugmyndarinnar um „Party People“ sem hópnum finnst eiga vel við sína kynslóð. „Við reynum að leysa vandamál með því að halda partí fyrir ýmsa jaðarsetta hópa,“ segir Selma. Vinna í samsköpunarferli Allar þessar vangaveltur um ímynd Íslands urðu innblásturinn að verkinu sem Sálufélagar hafa unnið með svokölluðu samsköpunarferli. „Það þýðir að við erum í rauninni ekki með neitt í höndunum þegar við byrj- um annað en ákveðið þema, hug- myndir um það sem við viljum koma á framfæri og okkar eigið sjálf. Við vinnum í spuna, lesum, tölum saman og skrifum saman. Svo enduðum við með rosalega mikið efni sem þarf svo að setja saman. Það er í rauninni mesta áskorunin að finna hvaða heim við viljum skapa saman,“ skýrir Nína. „Þetta er í fyrsta skipti sem við Davíð gerum svona samsköpunar- verk. Þetta er ekki týpískt leikhús eins og við erum vanir að gera. Við erum vanir að fá handrit en við erum algjörlega búin að búa þetta verk til saman frá grunni, sem er ótrúlega skemmtilegt og áhugavert ferli,“ segir Jónmundur. Hópurinn leggur mikið upp úr því að skoða eigið ferli og skoða efnið út frá sjálfum sér. „Við skoðum hvaða vandamál það skapar að vera að tala um svona pólitísk efni, hvaða vanda- mál við sem hópur höfum rekist á, hvernig orðræðan okkar endur- speglar orðræðuna í samfélaginu,“ segir Selma en Davíð bætir við að hann telji að margir muni „tengja við þetta verk þrátt fyrir að þetta sé okk- ar ferli og okkar uppgötvanir,“ og Selma tekur undir: „Þetta er sam- mannlegt málefni árið 2019.“ Sýningin Independent Party People verður frumsýnd á miðviku- dag, 21. ágúst, í Tjarnarbíói. Miðasala fer fram á vefnum tix.is. Sviðsetja ímynd þjóðar  Sviðslistahópurinn Sálufélagar setur upp verkið Independent Party People í Tjarnarbíói  Skoða ímynd íslensku þjóðarinnar og hugmyndir um hana  „Þetta er sammannlegt málefni árið 2019“ Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Sálufélagar Nína Hjálmardóttir, Jónmundur Grétarsson, Davíð Þór Katrínarson og Selma Reynisdóttir hafa unnið í samsköpunarferli með það að mark- miði að skapa verk um ímynd íslensku þjóðarinnar. Afrakstur samvinnunnar verður frumsýndur á miðvikudagskvöld í Tjarnarbíói.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.