Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.12.1997, Blaðsíða 11
Inngangur
Gagnasöfnun
Upplýsingar um utanríkisverslun byggjast að mestu leyti á
aðflutningsskýrslum innflytjenda og útflutningsskýrslum út-
flytjenda. Aðflutningsskýrslur eru tölvuskráðar hjá toll-
stjórum og hefur Hagstofan aðgang að gagnaskrám Ríkis-
tollstjóra og sækir þangað upplýsingar með vélrænum hætti.
Þessar upplýsingar eru yfírfamar og leiðréttar eins og kostur
er. Oft er haft samband við viðkomandi innflytjendur eða
útflytjendur til nánari útskýringa eða leiðréttingar. Tollyfir-
völd hafa ekki hafið tölvuskráningu útflutningsskýrslna og
því fór skráning þeirra enn fram á Hagstofunni á árinu 1996
eins og verið hefur. Hagstofan skráir einnig aðflutnings-
skýrslur frá Tollpóststofu.
Viðar er leitað upplýsinga um utanríkisverslun en í toll-
skýrslum. Siglingastofnun Islands (Skipaskrá) og Flugmála-
stjóm, Loftferðaeftirlit, gefa upplýsingar um kaup og sölu á
flugvélum og skipum og er haft samband við hlutaðeigandi
kaupendur og seljendur til nánari upplýsinga. Hjá Fiskveiða-
sjóði Islands er leitað upplýsinga um lán til innlendra
útgerðarfyrirtækja vegna endurbóta á íslenskum fiskiskipum
og Siglingastoftiun gefur upplýsingar um hvaða skip fara
utan til breytinga. í framhaldi af því er haft samband við
fyrirtæki sem hlut eiga að máli til nánari upplýsinga. Sendar
em fyrirspumir til fýrirtækja í viðkomandi atvinnugrein um
endurbætur á erlendum skipum framkvæmdar af íslenskum
fyrirtækjum. Fiskifélag Islands gefur upplýsingar um land-
anir íslenskra fiskiskipa í erlendum höfnum og fiskiskipa í
eigu íslenskra aðila sem em skráð erlendis (þ.e. sigla undir
hentifána).
Umfang
Hagstofan fylgir að mestu leiðbeiningum Sameinuðu þjóðanna
um skilgreiningu og meðferð talnaefnis um utanríkisverslun
(United Nations: Intemational Trade Statistics, Concepts and
Definitions), þ.e. hvað er tekið með, hvernig og hvenær. Um
er að ræða vöruviðskipti og er almenna skilgreiningin sú að
allur innflutningur og útflutningur sem eykur eða skerðir
efnislegar auðlindir lands á að teljast með í utanríkisverslunar-
tölum. Venja er að greina á milli tvenns konar grundvallar-
reglna um skýrslur varðandi utanríkisverslun, almennra
verslunarreglna (general trade system) og sértækra verslunar-
reglna (special trade system). Munur á þessum reglum felst
aðallega í skráningu á vöm sem flutt er í tollvörugeymslu og á
fnsvæði. Samkvæmt almennu verslunarreglunum er vara skráð
sem innflutt þegar hún kemur inn í tollvörugeymslu/ffísvæði
en samkvæmt sértæku verslunarreglunum er varan skráð þegar
hún fer úr tollvörugeymslu/frísvæði inn í landið. Hérlendis
hefur almennu verslunarreglunum verið fylgt.
Dæmi um liði sem em meðtaldir í íslenskum skýrslum
um utanríkisverslun:
- Gull til almennra nota
- Vömr sendar í pósti, að verðmæti meira en 25.000
krónur
- Vörur sem fluttar em inn í landið eða út úr landinu til
frekari vinnslu
- Ýmsar vömr með hátt hlutfall þjónustu (t.d. skipulags-
teikningar, spólur, hugbúnaður o.s.frv.)
- Skip og flugvélar í forum milli landa
- Landanir erlendra fiskiskipa í innlendum höfnum
- Landanir íslenskra fiskiskipa erlendis og einnig landanir
hentifánaskipa erlendis, skipa í eigu Islendinga
- Vömr í eignarleigu (eitt ár eða lengur)
- Endursendar vömr
- Meiri háttar viðgerðir og endurbætur
Dæmi um liði sem ekki em innifaldir í íslenskum skýrslum
um utanríkisverslun:
- Vörur sem sem hafa viðkomu í landinu en flytja á áfram
(transit)
- Tímabundinn innflutningur og útflutningur (t.d. fyrir
ýmiss konar sýningar)
- Eldsneyti, vistir og önnur aðfong seld erlendum skipum
eða flugvélum innanlands
- Eldsneyti, vistir og önnur aðföng keypt erlendis fyrir
íslensk skip eða flugvélar
- Ólögleg verslun
- Vömr frá ríkisstjóm til sendiráða og fulltrúa ríkisins
erlendis og aðsendar vörur til sendiráða og fulltrúa
erlendra rikja innanlands
- Gull til myntsláttu
- Vömr í afnotaleigu (innan við eitt ár)
- Verðlítil sýnishom
- Keypt eða seld hentifánaskip
- Afli sem hentifánaskip í eigu íslendinga landar í
íslenskri höfn
- Vömviðskipti vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli
- Vömsala Islensks markaðar hf. á Keflavíkurflugvelli
- Vörusala Fríhafnar á Keflavíkurflugvelli
Flokkun
Tollskrárnúmer
Flokkun vömtegunda í utanríkisverslun byggist á tollskrá.
Núgildandi tollskrá tók gildi hinn 1. janúar 1988 skv. lögum
nr. 96/1987 um breyting á tollalögum nr. 55/1987. Með
þessari tollskrá varð gjörbreyting á vömflokkun í samræmi
við þær breytingar sem þá höfðu verið gerðar á hinni
alþjóðlegu vöruflokkunarskrá Tollasamvinnuráðsins í
Bmssel. Þessi skrá er nefnd Hið samræmda flokkunarkerfi
og er þekkt undir skammstöfuninni HS eftir hinu enska heiti
sínu (the Harmonized Commodity Description and Coding
System). HS-skráin var viðtekin með samningi Tollasam-
vinnuráðsins í Bmssel í júní 1983 og gefin út árið 1985.
íslendingar vom aðilar að þessum samningi og var hann full-
giltur af íslands hálfu í júní 1986. HS-skráin tók gildi í
flestum aðildarríkjum Tollasamvinnuráðsins frá og með 1.
janúar 1988.
HS-skráin er sex stafa flokkunarkerfi þar sem tveir fyrstu