Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.12.1997, Blaðsíða 13
Utanríkisverslun 1996 - vöruflokkar og viðskiptalönd
11
snertir og framleiðslulönd hvað varðar innflutning. Þannig
er leitast við að greina endanlegan áfangastað útfluttrar vöru
og upprunaland innfluttrar vöru en ekki kaup- eða söluland
eða það land sem útflutt vara fer til eða innflutt vara kemur
frá. Fyrir kemur að útflytjanda eða innflytjenda er ókunnugt
um endanlegt móttökuland eða upprunaland vörunnar og
verður þá að skrá á skýrslu það land sem útflutt vara fer til
eða innflutt vara kemur frá í stað notkunarlands eða uppruna-
lands.
Verðreikningur
Verðmæti innfluttrar vöru er ýmist sýnt á cif-verði eða fob-
verði en verðmæti útflutnings eingöngu á fob-verði. Með
fob-verði (free on board) er átt við verð vörunnar komið um
borð í flutningsfar í útflutningslandi. I cif-verði (cost, insur-
ance, freight) er einnig talinn sá kostnaður sem fellur á
vöruna þar til henni er skipað upp í innflutningslandi. Aðal-
lega er um að ræða flutningsgjald og vátryggingu. I hag-
skýrslum um utanríkisverslun er venjan sú að innflutningur
er talinn á cif-verði en útflutningur á fob-verði. Eðli málsins
samkvæmt á þó þessi regla ekki við um ferskan fisk sem
seldur er í erlendum höfnum. Við verðákvörðun þessarar
vöru er farið eftir reglum Fiskifélags Islands um útreikning
útflutningsverðmætis ísfísks og bræðslufisks þar sem frá
brúttósöluverði eru dregnir tilteknir kostnaðarliðir, mismun-
andi eftir löndum. Hér er um að ræða löndunarkostnað og
hafnargjöld, toll og sölukostnað.
Tölur um verðmæti innflutnings eru fengnar með því að
umreikna verðmæti vörunnar 1 erlendum gjaldeyri til ís-
lenskra króna miðað við sölugengi viðkomandi gjaldmiðils.
Útflutningstölur eru miðaðar við kaupgengi. Viðmiðunar-
gengið er svokallað tollgengi sem erhið opinbera gengi skráð
af Seðlabanka Islands 28. hvers mánaðar, sé það virkur dagur,
ella næsta rúmhelgan dag.
Magn
Með magni útflutnings og innflutnings er átt við nettóþyngd
(þ.e. þyngd án umbúða) í tonnum nema annað sé tilgreint
sérstaklega. í þessu riti er í töflum 19 og 21 til-greindur fjöldi
útfluttra hrossa í stað þyngdar þeirra í tonnum en þyngd
þeirra er meðtalin í samtölu fýrir landbúnaðarvörur í töflu
19.
Utanríkisverslun 1996
Vöruskiptajöfnuður
í 1. yfirliti er sýnd þróun utanríkisverslunar áratuginn 1987-
1996, annars vegar á gengi hvers árs og hins vegar á meðal-
gengi ársins 1996. Innflutningur er hér sýndur á cif-verði en
útflutningur á fob-verði. A árinu 1996 nam verðmæti vöru-
útflutningsins í heild 125,7 milljörðum króna fob á móti
136,0 milljarða heildarvöruinnflutningi cif. Þetta þýðir að
útflutningur umfram innflutning á árinu 1996 var neikvæður
um 10,3 milljarða. Samkvæmt þessum mælikvarða hefur
verið halli á utanríkisversluninni allan þennan áratug að
undanskildum árunum 1993-1995. Hallinn hefur verið mis-
mikill eða frá um 0,7% af útflutningsverðmæti árið 1989,
reiknað á föstu gengi, upp í 15,4% árið 1987. Hallinn á
vöruskiptunum á árinu 1996 var 8,2% af útflutningsverðmæti
í samanburði við 2,6% afgang árið 1995, 9,0% afgang árið
1994 og 3,5% afgang árið 1993.
1. yfirlit. Utanríkisverslun árin 1987-1996
í millj. kr. á gengi hvers árs í millj. kr. á gengi ársins 1996 Útflutt umfram innflutt í % af útflutningi
Útflutt fob Innflutt cif Útflutt umfram innflutt (fob-cif) Útflutt fob Innflutt cif Útflutt umfram innflutt (fob-cif)
1987 53.053 61.232 -8.179 97.016 111.961 -14.945 -15,4
1988 61.667 68.723 -7.057 98.755 110.012 -11.257 -11,4
1989 80.072 80.599 -528 101.931 102.602 -671 -0,7
1990 92.625 96.621 -3.996 105.845 110.411 -4.566 -4,3
1991 91.560 104.129 -12.569 104.628 118.991 -14.363 -13,7
1992 87.833 96.895 -9.063 99.869 110.174 -10.305 -10,3
1993 94.658 91.307 3.351 99.381 95.863 3.518 3,5
1994 112.654 102.541 10.113 112.428 102.337 10.091 9,0
1995 116.607 113.614 2.993 116.490 113.500 2.990 2,6
1996 125.690 135.994 -10.304 125.690 135.994 -10.304 -8,2
!) Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog; samkvæmt þeim mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1996 0,1% lægra en árið áður.
Innflutningur er gerður upp á fob-verði í íslenskum þjóð-
hagsreikningum. Mismunur cif-verðs og fob-verðs, aðallega
farmgjöld og vátrygging, færist þá á útgjaldahlið þjónustu-
reiknings. Niðurstaðan á viðskiptareikningi (sem er samtala
vöru- og þjónustureiknings) verður því hin sama óháð því
hvorri aðferðinni erbeitt. Tölurum vöruskiptajöfnuð breytast
hins vegar mikið. Þetta kemur fram í 2. yfirliti sem sýnir
vöruskiptajöfnuðinn þar sem verðmæti útflutnings og inn-
flutnings er hvort tveggja reiknað á fob-verði. Til þess að
gefa betri vísbendingu um vöruskiptajöfnuðinn er jafnframt
sýnt hlutfall hans af vergri landsframleiðslu samkvæmt tölum
Þjóðhagsstofnunar. Innflutningur fob 1996 nam 124,8