Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 01.12.1997, Blaðsíða 12
10
Utanríkisverslun 1996 - vöruflokkar og viðskiptalönd
stafimir mynda kafla frá 01-97 og em vömr flokkaðar innan
þessa flokkunarkerfis eftir efni þeirra. Þau ríki sem hafa
undirritað samninginn um notkun þessa samræmda kerfis
hafa skuldbundið sig til þess að fylgja þessu sex stafa kerfi
en þeim er frjálst að beita nákvæmari flokkun með fleiri
stöfurn. Flest ríki sem tekið hafa HS-skrána í notkun, nota
fleiri stafi en sex og sum allt að tíu. íslenska tollskráin er
átta stafa skrá þar sem HS-skránni er fylgt á sex stafi en í
ýmsum tilvikum em síðustu tveir stafimir notaðir til ná-
kvæmari flokkunar miðað við íslenskar þarfir. Tollskráin frá
1988 er mun sundurgreindari en tollskráin frá 1978. Þetta
stafar mest af því að HS-skráin, sem er sex stafa skrá, er
miklu ítarlegri en fyrri skrá Tollasamvinnuráðsins, svonefnd
CCCN-skrá, sem byggðist á fjögurra stafa flokkun og hafði
alls um 1.920 númer. í HS-skránni eru alls rösklega 5.000
vörunúmer. í tollskránni íslensku frá 1978 voru tæplega
2.900 númer en árið 1996 vom í henni nær 6.800 tollskrár-
númer. Þess má geta að á árinu 1996 kom einhver inn-
flutningur fram í 5.611 tollskrárnúmerum en útflutningur
kom aðeins fyrir í 1.205 númerum. ítarleg sundurliðun
útflutnings og innflutnings eftir tollskrámúmemm er birt í
riti Hag-stofunnar, Utanríkisverslun eftir tollskrárnúmerum.
SITC vöruflokkar (Standard International Trade Classi-
fication)
í þessu riti er aðalflokkun innflutnings samkvæmt alþjóð-
legri vömskrá Hagstofu Sameinuðu þjóðanna (Standard In-
ternational Trade Classification, SITC). Einnig eru birtar
tölur um útflutning eftir SITC-flokkun. SITC-flokkunin er
sundurliðun eftir vömdeildum og vömflokkum. Þessi skrá
er ætluð til hagskýrslugerðar og miðast við það að unnt sé
að skipa skyldum vörum saman í flokka og deildir. I tengslum
við samningu HS-skrárinnar var SITC-skráin endurskoðuð
í þriðja sinn. Sjálf vömskráin hélst að mestu óbreytt og
endurskoðunin fólst aðallega í samningu einhlíts lykils milli
HS-skrárinnar og SITC-skrárinnar. Hagstofan tók upp þriðju
endurskoðun SITC-skrárinnar í ársbyrjun 1988 um leið og
ný tollskrá tók gildi. Flokkun SITC-skrárinnar er eftirfarandi:
10 eins stafs vömbálkar
67 tveggja stafa vömdeildir
261 þriggja stafa vömflokkar
1.033 fjögurra stafa undirflokkar
3.118 fimm stafa vömliðir
í riti Hagstofunnar, Utanríkisverslun eftir tollskrár-
númerum, er birt við hvert tollskrárnúmer samsvarandi
vömliður eftir SITC flokkunarkerfmu. Að baki hverjum
SITC vörulið stendur eitt eða fleiri tollskrárnúmer. I þessu
riti er SITC flokkunni beitt við sundurliðun í vömbálka,
vömdeildir og vöruflokka bæði fyrir útflutning (tafla 1) og
innflutning (tafla 3). Einnig er birtur innflutningur eftir
vömdeildum og markaðssvæðum (tafla 16) og sundurliðun
innflutnings frá einstökum löndum eftir vörubálkum og
vömdeildum (tafla 20).
Hagstofuflokkun
Frá og með árinu 1988 er útflutningur flokkaður samkvæmt
tollskrámúmerum á sama hátt og innflutningur en áður hafði
flokkun útflutnings byggst á sérstöku kerfi Hagstofunnar.
Hagstofuflokkunin, sem svo var nefnd, var sex stafa skrá,
dregin saman í kafla eftir tveimur fyrstu stöfum skrárinnar.
Eftir að farið var að flokka útflutning eftir tollskrá árið 1988
var tveggja stafa Hagstofuflokkunin aflögð en um leið tekin
upp ný Hagstofuflokkun vegna innlendra þarfa þar sem toll-
skrá þótti ekki gefa færi á nægilegri sundurliðun sjávaraf-
urða. I þeirri flokkun er útfluttum vörum raðað eftir nýrri
þriggja stafa skrá Hagstofunnar og er sú röðun hliðstæð eldri
sundurgreiningu í tveggja stafa kafla. Nýja Hagstofu-
flokkunin er töluvert sundurgreindari en hin eldri og hefur
fleiri vöruliði en skrárnar eru þó að mestu sambærilegar.
Þessi flokkun er einkum ætluð til nota hérlendis og er áhersla
lögð á nákvæmari sundurgreiningu útflutnings íslendinga á
sjávarafurðum en fram kemur í hinum alþjóðlegu flokkunar-
kerfum. I Hagstofuflokkun em vömr flokkaðar saman í
sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, iðnaðarvörur og aðrar
vörur. I þessu riti er útflutningur birtur eftir Hagstofúflokkun
(tafla 2), eftir Hagstofuflokkun og markaðssvæðum (tafla
15), eftir Hagstofúflokkun og einstökum löndum (tafla 19)
og eftir Hagstofúflokkun (völdum vömflokkum), markaðs-
svæðum og einstökum löndum (tafla 21).
Hagræn flokkun (BEC)
I verslunarskýrslum áranna 1969-1987 var innflutningur
flokkaður eftir svonefndum notkunarflokkum, þ.e. í neyslu-
vöm, rekstrarvöm og fjárfestingarvöm. Þessi flokkun var
séríslensk. Hún var felld niður árið 1988 en í stað hennar
var tekin upp hagræn flokkun Hagstofú Sameinuðu þjóðanna
(Classification by Broad Economic Categories, BEC). Þessi
flokkun er mjög einföld í uppsetningu, þar sem hún skiptist
alls í 19 flokka sem dregnir em saman 17 aðalflokka. í útgáfú
Hagstofunnar um utanríkisverslun er bætt við tveimur
flokkum fyrir skip og flugvélar. Þessi flokkun er hér sýnd
fyrir útflutning (tafla 5), fyrir innflutning (tafla 6), útflutning
eftir BEC og markaðssvæðum (tafla 17) og innflutning eftir
BEC og markaðssvæðum (tafla 18).
Vinnslugreinar
I allmörg ár hefúr útflutningur verið flokkaður eftir vinnslu-
greinum. Þessi tilhögun hefúr þótt skýr og notadrjúg og hana
má sjá í töflu 4.
Atvinnugreinaflokkun
Þær töflur um utanríkisverslun eftir atvinnugreinum sem hér
eru birtar fylgja íslenskri atvinnugreinaflokkun, ÍSAT 95,
sem byggist á samræmdri atvinnugreinaflokkun Evrópu-
sambandsins (NACE, 1. endursk.). NACE er fjögurra stafa
flokkun en ISAT 95 er fimm stafa flokkun. í þessu riti er
notuð fjögurra stafa flokkun en til nánari sundurgreiningar
á vinnslu sjávarafúrða eru þær flokkaðar á fimm stafi. ÍSAT
95 tók gildi í opinberri hagskýrslugerð 1. janúar 1995. Frá
þeim tíma hefur henni verið beitt í fyrirtækjaskrá, launa-
skýrslum, vinnumarkaðsskýrslum, atvinnuvegaskýrslum og
við þjóðhagsreikningagerð. Otvíræðir kostir eru því fylgjandi
fyrir greiningu þjóðhagsstærða að birta innflutning og
útflutning eftir atvinnugreinum. Tafla 7 sýnir þessa flokkun
í útflutningi og tafla 8 í innflutningi.
Lönd
Við skilgreiningu á löndum fylgir Hagstofan hinum alþjóð-
lega staðli ISO-3166.
Öll landaskipting er miðuð við neyslulönd hvað útflutning