Vinnumarkaður - 01.06.1995, Page 15

Vinnumarkaður - 01.06.1995, Page 15
Y firlit yfir helstu niðurstöður 13 1. Yfirlit yílr helstu niðurstöður f þessum kafla verður fjallað um nokkrar helstu niðurstöður skýrslunnar. Nánari skýringar á hugtökum eru í greinargerð um aðferðir og hugtök í kafla 2. Talnaefninu. einkum töflum í kafla 6, má í grófum dráttum skipta í þrennt. 1. Töflur sem ná til allra sem eru á vinnualdri, þ.e. 16-74 ára. 2. Töflur sem ná aðeins til starfandi fólks. 3. Töflur sem aðeins ná til atvinnulausra. Textinn hér á eftir fylgir þessari flokkun að mestu leyti. Til hagræðis fyrir lesendur er vísað í töflur eða myndir með fyrirsögn hverrar efnisgreinar. 1.1 Mannfjöldinn 16-74 ára Atvinnuþátttaka eftir kyni. Töflur 5.1, 6.1. Myndir 4.1-4.4 Atvinnuþátttaka á árinu 1994 var nánast hin sama og árið 1993. Á sl. ári var atvinnuþátttakan 81%. Atvinnuþátttaka kvenna hélt áfram að aukast en árið 1994 var hún 77% miðað við76% áárinu 1993. Atvinnuþátttakakarla varóbreytt 1994 frá 1993 eða um 86%. Þessar hlutfallstölur jafngilda þvf að áárinu 1994hafiallsum 145.400 mannsveriðávinnumarkaði á íslandi, 77.400 karlar og 68.000 konur. Um er að ræða íjölgun frá fyrra ári um 1.200 manns. í apríl 1994 var atvinnuþátttaka karla 86% en dróst saman í 85% í nóvember það ár. Hlutfall kvenna á vinnumarkaði jókst hins vegar á sama tíma úr 76% í 78%. Báðar þessar breytingar eru vel marktækar. Frá því Hagstofan hóf vinnumarkaðskannanir 1991 hefur lítillega dregið úr atvinnuþátttöku karla en atvinnuþátttaka kvenna aukist að sama skapi. Heildaratvinnuþátttaka hefur því nokkum veginn staðið í stað. Samanburður við önnur lönd. Tafla 10.1 Á alþjóðlegan mælikvarða er atvinnuþátttaka mjög mikil á íslandi. Árin 1991-1993 var hún alls um 81%-82%. Á sama tímabili var hún lítið eitt meiri í Svíþjóð en minni á öðrum Norðurlöndum. Hér á landi var atvinnuþátttaka karla þetta árabil svipuð eða meiri en í Svíþjóð, Noregi og Ástralíu, en nokkru minni en í Bandaríkjunum. Aðeins í Svíþjóð var atvinnuþátttaka kvenna meiri en hér á landi á þessu sama tímabili. Atvinnuleysi á Islandi var minna en í samanburðar- löndunum á árunum 1991-1993. Það jókst í öllum löndunum. Atvinnuþátttaka eftir aldri. Töfluró.l, 6.5. Myndir 4.5, 4.6 Samdráttur í atvinnuþátttöku karla skýrist fyrst og fremst af minnkandi þátttöku eldri karla (65-74 ára) á vinnumarkaði. Frá nóvember 1992 til nóvember 1994 hefur hún fallið úr 64% í 48%. Enginn aldurshópur meðal kvenna sýnir jafn afgerandi breytingu þegar litið er yfir tímabilið 1991 - 1994. í aldurshópnum 16-24 ára er atvinnuþátttaka kvenna nánast sú sama og hjá körlum eða um 65-66%. Eftir 24 ára aldur skilur mjög á milli atvinnuþátttöku kynjanna. Þetta verður helst skýrt með fjölda bama á heimili. Séu börn á heimili er atvinnuþátttaka kvenna á aldrinum 25-54 ára minni en ef engin eru, eða 84% á árinu 1994 á móti 92%. Atvinnu- þátttaka kvenna minnkar einnig með auknum barnafjölda á heimili. Þá skiptir aldur barna máli. Séu fleiri en eitt barn á heimili og yngsta bam yngra en 7 ára er atvinnuþátttaka kvenna minni en ef yngsta bam er 7 ára eða eldra, eða 77% á móti 88% árið 1994. Atvinnuþátttaka eftir h júskaparstétt. Töflur 5.4, 6.4 Hjúskaparstétt virðist ekki hafa mikil áhrif á atvinnuþátttöku en þar virðist aldur og kyn ráða meira. Þó er nokkur munur eftir kynjum. Atvinnuþátttaka ógifts fólks er svipuð hjá körlum og konum eða um 90% í aldursflokkunum 25-64 ára. Giftar konur og konur í sambúð eru hlutfallslega færri á vinnumarkaði en karlar. Sama máli gegnir um áður gift fólk. Breytingar milli 1993 og 1994 era ekki teljandi. Atvinnuþátttaka eftir búsetu. Töflur 5.1, 6.2. Mynd 4.3 Atvinnuþátttaka í kaupstöðum og bæjum utan höfuðborgar- svæðisins var 83% 1994 en 81% á höfuðborgarsvæðinu og 81% í öðram sveitarfélögum. Breytingar milli áranna 1993 og 1994 vora þær helstar að konum á höfuðborgarsvæðinu og í öðram sveitarfélögum fjölgaði á vinnumarkaði, svo og körlum í kaupstöðum og bæjum. Samdráttur var hins vegar í atvinnuþátttöku kvenna í kaupstöðum og bæjum og karla í öðram sveitarfélögum. Atvinnuþátttaka eftir menntun. Töflur 5.3, 6.3. Mynd 4.4 Árið 1994 var atvinnuþátttaka háskólagengins fólks um 96%. Atvinnuþátttaka fólks með starfs- og framhaldsmenntun var þá 86% en 75% hjá fólki sem aðeins hefur lokið grannmenntun. Þessi munur skýrist að nokkru leyti af aldri. Breytingar á þessum hlutföllum frá fyrri áram era ekki teljandi. Atvinnuþátttaka skólanema. Tafla 6.6 Atvinnuþátttaka skólanema jókst á árinu 1994 frá árinu áður, en 1991-1993 hafði hún dregist nokkuð saman. Tæplega 46% nemenda vinnur með námi. Atvinnuþátttaka skóla- stúlkna er töluvert meiri en skólapilta eða 50% á móti 41%. Á árinu 1994 var meðalvinnustundafjöldi nemenda 22,1 klst á viku sem er nokkuð meira en árin þar á undan. Aðaliðja. Töflur 6.1, 6.58-6.61 Aðaliðju fólks má gera gleggri skil með því að setja mörk atvinnuþátttöku við 12 klst. eða fleiri á viku í stað einnar klst. á viku eins og alþjóðleg skilgreining gerir ráð fyrir. Þessi breytta viðmiðun veldur því einkum að mun færri á aldursbilinu 16-24 ára reiknast til vinnuaflsins, eða 54% í stað 65%. Heildaratvinnuþátttaka á árinu 1994, með þessari breyttu skilgreiningu, var þannig 78% í stað 81%. Þetta er óbreytt atvinnuþátttaka frá árinu 1993.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146

x

Vinnumarkaður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnumarkaður
https://timarit.is/publication/1382

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.